Morgunblaðið - 28.01.1959, Qupperneq 20
V EÐRIÐ
Suðvestanátt. Hvass, skúrir
eða slydduél.
Kvennasíðan
er á bls. 8.
22. tbl. — Miðvikudagur 28. janúar 1959
Mikill vöxtur í Elliðaánum
í ÞEIM flóðum sem orðið hafa
síðustu daga í ám hér á Suður-
landi, hafa meira að segja Elliða-
árnar brugðið á leik. Var í gær
geipilegur vöxtur í ánum. Vest-
ari árnar, sem oft eru með
öllu vatnslausar eða þá aðeins
smálækjarspræna, voru bakka-
fullar í gærdag.
Það tók fyrst verulega að bera
á flóði í Elliðaánum í gærmorg-
un. Myndaðist þá stífla vegna
jakahröngls upp undir efri veiði-
mannahúsunum. Flæddi áin þá
langt yfir bakka sína og færði svo
Sex flugvélar
til Eyja ígær
MIKIÐ annríki var í innanlands-
fluginu hjá Flugfélagi Islands
gær. Farnar voru sex ferðir með
farþega og vörur til Vestmanna-
eyja, en flug þangað hafði legið
niðri vegna veðurs síðan sl. mið-
vikudag. Alls voru 111 farþegar
fluttir flugleiðis til Vestmanna-
eyja í gær. Þar að auki var flogið'
til Akureyrar, Egilsstaða og
Sauðárkróks.
Hláka og batnandi
færð nyrðra
AKUREYRI, 26. jan. — Um há-
degi á laugardag var orðið frost-
lítið hér nyrðra, og síðan hefir
verið hiti, mest 8 stig í dag. —
Jafnframt hefir verið sunnangola
og jafnvel allhvasst á stundum.
Snjó hefir mjög tekið upp, og
eru nú flestar samgönguleiðir í
lágsveitum færar orðnar. — Bú-
ið er að ryðja veginn til Dalvík-
ur og Hörgárdalsveg fram að Þrí
hyrningi. Verið er að ryðja Sval-
barðsstrandarveg í dag, allt út í
Höfðahverfi.
Vaðlaheiði er enn ófær, en síð-
astliðinn laugardag komu vöru-
flutningabílar vestur yfir Öxna-
dalsheiði, og nutu þeir aðstoðar
jarðýtu. Gert er ráð fyrir að at-
huga á morgun, hvort fært geti
talizt að opna veginn yfir Öxna-
dalsheiði, en talsverðar hættur
eru þar á nokkrum stöðum,
vegna svellbunka, sem myndazt
hafa. — vig.
AKRANESI, 27. jan. — Hingað
kom Lagarfoss í mogun með 40
lestir af ýmsum vörum. Var skip
ið mikið hlaðið af útflutningsvör
um og tók hér 14 þús. kassa af
frosnum karfaflökum *
nefndan Vatnsveituveg í kaf á
dálitlum kafla. Undir hádegið var
sprengjum komið fyrir í jakastífl
unni, sem sundraðist eftir að
þrjár öflugar sprengingar höfðu
farið fram.
Á neðri stíflu Elliðaánna var
frárennslislokum lyft. svo ekki
færi allt á bólakaf. Var ótrúlegt
vatnsmagn, sem beljaði niður
árfarveginn. Þar sem jakar höfðu
strandað, og vatnsflaumurinn
stóð á þeim myndaðist vatnssúla
upp í loftið. Fyrir þá sem þekkja
Elliðaárnar með sínum jafna
straumi, þá var í gær líkast því
sem stórfljót færi í vorleysing-
um.
Þormóður Eyólfs-
son látinn
ÞORMÓÐUR EYÓLFSSON for-
stjóri andaðist að heimili sínu á
Siglufirði í gærmorgun á 77.
aldursári.
Þörmóður kom mjög við sögu
Siglufjarðar í nær 50 ár. Hann
var lengi formaður í stjórn Síld-
arverksmiðja ríkisins og um
skeið forseti bæjarstjórnar. Hann
annaðist afgreiðslu Eimskipafél.
íslands og Skipaútgerðar ríkis-
ins, var ræðismaður Norðmanna
og lengi söngstjóri Karlakórsins
Vísis.
Kvæntur var Þormóður Guð-
rúnu Björnsdóttur frá Kornsá,
sem lifir mann sinn.
Með Þormóði er fallinn frá
einn kunnasti og merkasti borg-
ari Siglufjarðar.
Tvœr konur fyrir bíl á
Akureyri í gœrkvöldi
AKUREYRI, 27. jan. — Það slys
varð á tíunda tímanum í kvöld,
að tvær konur urðu fyrir bíl.
Þurfti að flytja þær í sjúkrahús.
Ekki var í kvöld hægt að fá ná-
kvæmar upplýsingar um slys
þetta, það mun hafa orðið með
þeim hætti, að stórri sendiferða-
bifreið var ekið suður Helga-
magrastræti.
ur
kvöld
ÞÆR stúlkur sem sótt hafa
föndurkvöld Heimdallar í vetur
eru minntar á námskeiðið í kvöld
kl. 20,30 í Valhöll.
Eftir hlákurnar undanfarna
daga hafa myndazt svellalög á
götunum, og í kvöld er lítils hátt-
ar frost.
Á móts við húsið nr. 38 urðu
tvær Hjálpræðisherskonur fyrir
biíreiðinni og munu hafa dregizt
með henni 10—15 m. Bifreiðin
sveiflaðist til á veginum og á
móts við húsið nr. 27 kastaðist
hún til um hálfhring, rakst á bif-
reið, sem þar stóð fyrir framan
húsið, en lenti síðan út í skafli
við götuna.
• ★ •
Sjúkrabifreið var þegar kvödd
á vettvang og flutti hún konurn-
ar í sjúkrahús. Önnur konan er
meira meidd en hin m.a. hald-
leggsbrotin, en báðar hlutu þær
nokkrar skrámur. Annars var
rannsókn meiðslanna ekki lokið,
þegar blaðið frétti síðast í gær-
kvöld. — vig.
Á þeim stað sem allir laxveiði-
menn þekkja, við Sjávarfoss,
mótaði rétt aðeins fyrir fossin-
um, en í svæðinu öllu frá raf-
stöðinni og til sjávar flæddu
Elliðaárnar yfir bakka sína.
Upp við efri stífluna var mikið
flóð. Þar skammt frá standa
tveir sumarbústaðir nærri árfar-
veginum. Var annar alveg um-
flotinn, en hinn að mjög miklu
leyti. Innan um birkihríslurnar
í skrúðgarði bústaðarins syntu
tvær stokkendur.
Að því er talið var reyndist
rennslið í rafstöðinni í gær 40
teningsm. á sekúndu. Meðal-
vatnsrennsli í Elliðaánum er um
4 teningsm.
•. • v .-m • • ■.■.•.my.vs.y.- •■•nv wVm,
Þa3 var miklu líkara því að staðið væri við stíflugarð austur
við Sog, svo mikið var vatnsmagnið.
Skrúðgarðurinn við sumarbústaðinn var allur undir vatni og
hluti af sjálfu húsinu umflotinn.
Háskólafyrir-
lestur um Robert
Burns
IAN RAMSAY MAXWELL,
prófessor við háskólann í Mel-
bourne í Ástralíu, heldur fyrir-
lestur í I. kennslustofu háskól-
ans fimmtudaginn 29. janúar kl.
8.30 e. h. um skozka þjóðskáldið
Robert Burns í tilefni af 200 ára
afmæli hans.
Öllum er heimill ókeypis að-
gangur að fyrirlestrinum, sem
verður fluttur á ensku.
Er Kristinn þar
einn frá íslands-
deildinni?
ÞJÓÐVILJINN skýrir frá því I
gærdag, að 21. þing kommún-
istanna í Rússlandi, hafi byrjað
í Moskvu í gær. Blaðið getur þess
að „Fulltrúum frá öllum komm-
únistaflokkum heims, nema júgó
slavneska kommúnistaflokknugi
hafi verið boðið til þingsins“.
Kommúnistablaðið getur þess
þó ekki hver farið hafi héðan
sem fulltrúi íslandsdeildarinnar.
Aftur á móti hefur það komið
fram í blöðum að Kristinn
Andrésson, hafi farið austur.
Útvarpsumrœður um
niðurfœrslufrumvarpið
kvöld
í KVÖLD kl. 8,15 hefjast út-
varpsumræður frá Alþingi. Er
Bíliinn fundinn
LOKS er bíllinn fundinn sem
heitið var 2000 kr. verðlaunum
fyrir að finna. Skömmu eftir há-
degið í gær fannst bíllinn á veg-
arspotta sunnan í hlíðum Rjúpna
hæðar. Starfsmaður við stöðina
á hæðinni, Martin Jensen hafði
þá tekið eftir hvar bíllinn stóð
og gerði hann rannsóknarlögregl-
unni aðvart.
það þriðja umræða í neðri deild
Alþingis um frumvarp ríkis-
stjórnarinnar um niðurfærslu
verðlags og launa o.fl.
Hver fiokkur hefur tii umráða
45 mínútur, sem skiptast niður á
tvær umferðir. Verður talað
hálftíma í fyrri umferðinni, en
15 mínútur í þeirri síðari.
Dregið hefur verið um röð
flokkanna og verður hún þannig,
að fyrstur er Alþýðuflokkur,
næst Framsóknarflokkur, þá
Sjálfstæðisflokkur og síðast Al-
þýðubandalag.
Af hálfu Sjálfstæðisflokksins
taka þátt í umræöunum þeir
Bjarni Benediktsson og Jóhann
Hafstein.
Hvítá flæðir yfir bakka sína
t GÆRMORGUN tók Hvítá í Ár-
nessýslu að flæða yfir bakka sína
neðan við Hestfjall, austan við
flóðgáttina við Brúnastaðaflatir
og við Útverk á Skeiðum. Þrjú
býli i Hraungerðishreppi og Út-
verk í Skeiðahreppi eru umflotin
vatni.
Áin flæðir fram á um eins kíló
metra breiðu svæði fyrir neðan
Hestfjall. Þjóðvegurinn er um-
flotinn vatni og á tveim stöðum
flæðir yfir hann — austan við
Skeggjastaði austur undir Kjart-
ansstaði og milli Kjartansstaða
og Mókeldu. EVaman af degi
í gær var vegurinn á þessu svæði
fær stórum bílum, en er blaðið
hafði tal af fréttaritara sínum
á Selfossi seint í gærkvöldi, var
vatnið á veginum orðið einn metri
á dýpt og töluverð straumharka
í vatnsflaumnum, svo að leiðin
var með öllu ófær.
Búast má við, að vegir á þessu
svæði stórskemmist í vatnavöxt-
unum. Um fjögurleytið í gær voru
Fjögur býli umflotin vatni, og
bjóðvegurinn ófær á kafla
vegir í Villingaholtshreppi að
verða ófærir vegna vatnavaxta.
¥
Býlin Brúnastaðir, Ölvisholt og
Hryggur í Hraungerðishreppi og
Útverk í Skeiðahreppi eru alveg
einangruð, og gátu bændur á
þessum bæjum ekki komið frá
sér mjólk í gærmorgun. Er frétta
maður blaðsins hafði tal af Ágústi
Þorvaldssyni, alþingismanni og
bónda á Brúnastöðum 1 gær-
kvöldi, sagði Ágúst, að flóðið
hefði vaxið mikið með kvöld-
inu. Hins vegar hafði vatnið tekið
nokkuð að sjatna við Útverk seint
í gær.
í vatnavöxtunum undanfarna
daga hafa myndazt miklar jaka-
hrannir í Hvítá. Fyrir neðan
! Brúnastaði fellur áin í mjög
þröngum farvegi og mun hafa
myndazt þar mjög mikii jaka-
stífla.
Spilakvöld
HAFNARFIRÐI. — Spila-
kvöld Sjálfstæðisfélaganna er
í Sjálfstæðishúsinu í kvöld og
hefst kl. 8,30. — Spiluð verð-
ur félagsvist og verðlaun
veitt.