Morgunblaðið - 30.01.1959, Side 2
r
*
MORCVISnr^ÐIÐ
Fðstudaerur 30. janúar 1959
Lokið var hyggingu 865 ibúðd Fræðsluerindi um skóla-
í Reykjavík á sl. ári
Nú eru 1243 íbúðir i smíðum, auk
margra stórhýsa
MORGUNBLAÐINU hefir borizt
yfirlit frá byggingfafulltr. Reykja-
vikurbæjar yfir bygffingar þær í
bænum, sem lokið var við á árinu
1958. — Þar kemur það m.a. fram,
að lokið hefir verið við byggingu
865 ibúða á sl. ári. Eru ibúðir
þessar nær allar i steinhúsum, að-
eins 6 eru í timburhúsum. Auk
íbúðanna hafa svo verið byggð
70 einstök herbergi. —
Stærð umræddra íbúða er frá
1 herb., auk eldhúss, upp í 8
herbergi. Langalgengasta stærð-
in er 4 herbergi og eldhús, og
eru 310 íbúðanna af þeirri stærð.
Að tölunni til hefir verið byggt
mest af einnar hæðar íbúðarhús-
um, eða samtals 136. Þar af eru
einstæð steinhús 52, raðhús (stein
steypt) 82 og 2 einstæð timbur-
hús. Samtals eru hús þessi 10.303,4
fermtr. að grunnfleti og 67.094
rúmmetrar. — Samkvæmt yfir-
liti byggingafulltrúans eru 4 og
5 hæða íbúðarhúsin hins vegar
stærst að rúmtaki. Seytján slík-
um húsum var iokið á árinu og
eru þau samtals 127.228 rúmmtr.
(8.484,9 fermtr.). — Lokið var
byggingu 70 tveggja hæða íbúðar-
húsa; eru þar af 64 einstæð, en
6 sambyggð, og samtals eru þau
9.485,6 fermtr. að fiatarmáli og
89.566 rúmmtr. Þriggja hæða hús
eru 4 talsins (642,8 fermtr. og
7.845 rúmmtr.). Einu 8 hæða
íbúðarhúsi var lokið á árinu; er
það 233,5 fermtr. að grunnfleti
og 617 rúmmtr. — Auk þess er
um að ræða nokkrar aukningar
á eldri íbúðarhúsum, og nema
þær samtals 7.139 rúmmtr. Enn-
fremur eru 7 hús talin íbúðar-
og verzlunarhús í senn.
Aðrir flokkar í skýrslu bygg-
ingafulltrúans eru þessir: Sam-
komuhús, félagsheimili, skólar o.
fl. 6, iðnaðar- og verksmiðjuhús
32, stálgrindarhús 2 og bílskúrar
og smáhýsi 146.
Loks eru í yfirlitinu eftirfar-
andi heildartölur um byggingar,
sem lokið var á árinu 1958: Stein-
hús 48.047,2 fermtr. (445.966 rúm-
mtr.), timburhús 1.002,5 fermtr.
(4.011 rúmmtr.), stálgrindarhús
3.185 fermtr. (23.679 rúmmtr.) —
eða samtals 52.234.7 fermtr. og
473.656 rúmmtr.
Þá segir, að af íbúðum þeim,
sem lokið var við á árinu, séu
14, sem gerðar hafi verið í kjöll-
urum og rishæðum húsa, án sam-
þykkis byggingarnefndar. —
Meiri háttar breytingar og endur
bætur hafi verið gerðar á 54
eldri húsum, án þess að um rúm-
málsaukningu væri að ræða. —
Meðalstærð þeirra íbúða, sem
byggðar voru á árinu, var nær
sama og árið áður, 358 rúmmtr.
(360 árið 1957).
Auk stórhýsa, svo sem Bæjar-
sjúkrahússins, Búnaðarfélagshúss
ins, kvikmyndahúss Háskólans og
viðbótarbygginga við Landsspít-
alann og Landakotsspítalann, eru
nú í smíðum 1243 íbúðir í Reykja
vík, . og eru rúmlega 770 þeirra
fokheldar eða lengra komnar.
mál og sýnikennsla
á vegum Stéttairfélags barnakennara í Rvík
Afkoma Siglufjarðartog-
aranna á sl. árí með
bezta móti
Útflufningsverðmœti afla þeirra um
22 millj. kr.
SIGLUFIRÐI, 29. jan. — Afli
Siglufjarðartogaranna á s.I. ári
varð sem hér segir: Elliði 4280
lestir í 18 veiðiferðum og Hafliði
4380 lestir í 17 veiðiferðum.
Hlé varð á úthaldi togaranna,
meðan á síldveiðum stóð, enda er
erfitt að manna þá þann tíma.
Afli þeirra fór að mestu leyti til
vinnslu í frystihús S.R. og ísa-
foldar, en að nokkru í herzlu.
Nærri lætur, að útflutnings-
verðmæti aflans hjá togurunum
tveimur hafi numið 22 milljón-
um króna á árinu 1958. Vinnu-
laun skipverja og vinnulaun í
landi við vinnslu aflans námu
samtals nálægt 11,5 millj. kr.
Reikningslegar niðurstöður um
reksturinn s.l. ár liggja ekki fyr-
ir, en fullyrða má, að útkoman
hafi ekki áður verið betri.
Togarinn Hafliði kom hingað
í morgun með 160 lesta afla, og
verður fiskurinn hraðfrystur.
Atvinnuástand er fremur bág-
borið hér um þessar mundir. Er
ljóst, að ekki verður til fulls úr
því bætt, nema hingað fáist nýr
togari, sem í senn færði fólkinu
aukna atvinnu og mundi fullnýta
afkastagetu frystihúsanna.Einnig
er mikilvægt í þessu tilliti, að
framkvæmd verði gildandi lög
um niðurlagningarverksm. sjáv-
arafurða hér á vegum S.R., en
á þeim lögum svaf vinstri stjórn-
in og Lúðvík Jósefsson værum
svefni, þrátt fyrir loforð um at-
vinnuuppbyggingu, þar sem henn
ar væri mest þörf. — Stefán.
í GÆR ræddi stjórn Stéttarfé-
lags barnakennara við fréttamenn
og skýrði m. a. frá því að ákveðið
hefði verið að nokkrir valinkunn
ir skólamenn flyttu sex erindi um
kennsiumál á vegum félagsins og
auk þess mundi ísak Jónsson
skólastjóri annast sýnikennslu. —
Erindin verða flutt í samkomusal
Melaskólans og eru fyrir almenn
ing.
Fyrsta erindið flytur Helgi El-
íasson, fræðslumáiastjóri, sunnu
daginn 1. febr. nk. kl. 14,30. Fjall
ar það um fræðslulögin og fram-
kvæmd þeirra. Flutningsdagar
hinna erindanna eru enn ekki
ákveðnir, en þau eru þessi: Lestr
arkennsla, flutningsmaður ísak
Jónsson skólastjóri, stafsetningar
kennsla, flutningsmaður próf.
Halldór Halldórsson, reiknings-
kennsla, flutt af Jónasi B. Jóns-
syni fræðslustjóra, náttúru-
fræðikennsla, flutt af Sigurði Pét
urssyni, gerlafræðingi og kristin-
fræðikennsla, flutt af Þórði Krist
jánssyni námsstjóra. Ennfremur
verður efnt til sýnikennslu í átt-
hagafræði og lestri (hljóðaðferð),
því að ætla má að mörgum leiki
hugur á að sjá, hvernig sú kennsla
fer fram. Með erindaflutningi
þessum hyggst Stéttarfélag barna
kennara gefa foreldrum og öðru
áhugafólki kost á fræðslu um
ýmsa þætti skólamálanna frá
fyrstu hendi. Alltaf er ritað og
rætt um skólamál og oft gætir
Misklíð um hvalveiðar
LONDON, 29. jan. NTB-Reuter. aiþjóðasamþykktum um hvaiveið
— Eftir gaiumgæfilega yfirvegun
hafa Bretar ákveðið að segja sig
ekki úr Alþjóða-hvalveiðanefnd-
inni að svo stöddu. Þetta kom
fram í skriflegu svari sem þing-
ritari landbúnaðar- og sjávarút-
vegrsmálaráðuneytisins gaf á þing
fundi í dag. Hins vegar er mjög
vafasamt að Bretar geti haldið
áfram þátttöku sinni í nefndinni,
segir í svarinu, ef löndin sem
reka hvalveiðar á Suðuríshafinu I verður þá búið að ná samkomu-
ar, þá vill brezka stjórnin sjá til
þess, að brezkir hvalveiðimenn
standi ekki verr að vígi en hval-
veiðimenn þeirra ríkja, sem eru
óbundin af alþjóðasamþykktinni.
Úrsögn Noregs og Hollands
Norðmenn og Hollendingar
hafa sem kunnugt er þegar sagt
sig úr nefndinni með fyrirvara.
Þeir hafa tilkynnt, að úrsögnin
taki gildi 30. júní n.k., ef ekki
Veðrahamur fyrir austan
Fréttabréf úr Borgarfirði eystra
BORGARFIRÐI eystra, 26. jan.:
Hin framúrskarandi góða haust-
veðrátta er hér ríkti fram á vet-
ur hélzt allt til 8. des. þá byrj-
aði að snjóa, og þann 11. var tíðarlok
orðið haglaust um allt og nær stöð
ug innistaða á fé til jóla, en þá
brá til þíðviðris og rigndi mikið
Hélzt svo til áramóta. En með
ármótum spillti aftur og hefur
allt það ,sem af er þessu ári og
þar til í gær að brá til hláku,
verið einn óslitinn illviðris kafli
og undanskildum fáeinum frost-
dögum, sem ekki hefur verið kóf
eða hríðarjagandi. Fé hefur því
verið nokkuð þungt á fóðrum
víðast hvar síðan það kom á hús
laust fyrir miðjan desember.
í dag og í gær hefur verið agæt
is veður og 5—7° hiti og er nú
alls staðar góð jörð fyrir fé.
og fara flestir til Vestmannaeyja
eins og venjulega. Verður þá fá-
mennt heima og allt félagsiíf
leggst að mestu niður þar tii
fólkið kemur aftur heim eftir ver
I. I.
eiga ekki æskilegan aðgang að
henni.
Ef svo verður, getur nefndin
ekki tryggt verndun hvalastofns-
ins og þær ráðstafanir, sem nauð-
synlegar eru til að halda veiðun-
um innan skynsamlegra tak-
marka, segir enn í svarinu. Ef til
þess kemur að gera breytingar á
Dagskrá Alþingis
í DAG eru boðaðir fundir i báð-
um deildum Alþingis. Á dagskrá
efri deildar er eitt mál:
Niðurgreiðála verðlags og kaup
gjalds, frv. — 2. umr. Ef leyft
verður.
Fjögur mál eru á dagskrá neðri
deildar:
1. Bráðabirgðafjárgreiðslur úr
ríkissjóði 1959, frv. — 2. umr. Ef
leyft verður. — 2. Eftirlit með
skipum, frv. — 1. umr. — 3. Dýra-
læknar, frv. — Ein umr. — 4.
BúnaðarmálasjóÖMr, frv. — 3.
umr.
lagi um eftirlit með hvalveiðum.
Bíða átekta
Bretar ætla að sitja áfram í
nefndinni fram að alþjóðaráð-
stefnunni um hvaiveiðar, sem
haldin verður í nóvember, og
munu þeir þá leggja fram ákveðn
ar tillögur til úrbóta á ríkjandi
ástandi. Verði þær felldar, mun
brezka stjórnin taka til alvar-
egrar athugunar spurninguna um
það, hvort Alþjóða-hvalveiði-
nefndin sé starfshæf.
Efnahagsmál rædd
STOKKHÓLMI, 29. jan. NTB. —
Búizt er við að efnahagsmála-
nefnd Norðurlanda komi saman
í Stokkhólmi 10. febr. og taki til
meðferðar ýmis þau mál, sem
rædd voru á ráðherrafundi Norðr
urlanda I Ósló um síðustu helgi.
Fyrst og fremst verði rætt um
landbúnaðarmálin í efnahagssam-
starfi Norðurlanda.
— Grómykó
Framhald af bls. 1.
æðsti valdhafi flokksins. Á þessu
flokksþingi sitja 2000 kommún-
istar hvaðanæva úr heiminum.
Þýzkaland nær en tunglið
I ræðu sinni í dag sagði
Grómykó ennfremur, að íbúar
Vestur-Þýzkalands gætu ekki tal
ið sig örugga, ef kjarnorkustöðv-
um væri komið upp þar í landi.
Fjarlægðin milli Sovétrikjanna
og þess landshluta Vestur-Þýzka-
lands, sem lengst væri til, væri
minni er> fiarlægðin til tunglsins.
Félagslíf.
Unga fólkið hér sýndi sjónleik-
isn ,Góðir eiginmenn sofa heima1,
þrisvar á milli hátiðanna við góða
aðsókn og undirtektir. Þorrablót
og spilakvöld eru ný af staðin.
En ekki hefur enn þótt fært að
halda barnasamkomu vegna
útryggs veðurs.
Skíðakennari hefur verið hér
undanfarið að kenna börnum og
unglingum á skíðum. Heitir hann
Haraldur Pásson og hefur verið
áhugasamur að nota hverja færa
stund og hefur unga fókinu þótt
að þessu hin mesta upplyfting.
í gær gekkst hann t. d. fyrir hinni
fjörugustu skíðakeppni meðal
fólks hér.
misskilnings og rangfærslna,
sem valda því að almenningur
gerir sér rangar hugmyndir um
þessi efni. Væntir félagið þess að
almenningur kunni að meta þetta
kynningarstarf og sæki vel er-
indin.
Stjórn Stéttarfélags barna-
kennara skipa þessir: Steinar Þor
finnsson, form., Skúli Þorsteins-
son, varaform., Vilborg Dagbjarts
dóttir, ritari, Kristján Halldórs-
son, gjaldkeri og Sveinbjörn
Markússon meðstjórnandi. Fé-
lagið hefur, samhliða þátttöku í
hagsmunabaráttu stéttarinnar, lát
ið sig kennslu og uppeldi miklu
skipta. Það hefur á undanförnuna
árum t. d. staðið fyrir námskeið-
um, gefið út „Foreldrablaðið1*,
rætt kennslu um uppeldismál á
fundum sínum og sent frá sér
tllögur og ályktanir í þeim mál-
um. Stjórn félagsins gat þess m.
a. að kennarasamtökin væru al-
gerlega andvíg frumvarpi, sem
komið hefur fram að kennarar,
sem kennt hafi í 10 ár, fái full
réttindi. Telja kennarar að með
því verði kennaraskólanám að-
eins önnur og e. t. v. erfiðari
leiðin til að fá réttindi, þar eð
menn gætu þá alveg eins valið
það að kenna á fullu kaupi í
10 ár og öðlast réttindi á eftir.
Erlendir fulltrúar
Auk rússnesku kommúnista-
leiðtogannna, sem töluðu á flokks
þinginu í dag, tóku ýmsir er-
lendir fulltrúar til máls. Walter
Ulbricht framkvæmdastjóri aust-
ur-þýzka kommúnistaflokksins
sagði ,að í tillögum Sovétríkj-
anna um Þýzkalandsmálin væru
hagsmunir þýzku þjóðarinnar
hafðir í huga, og ef þær næðu
fram að ganga, mundu þær
stuðla að varanlegum friði.
Janos Kadar framkvæmda-
stjóri kommúnistaflokksins færði
Sovétstjórninni innilegar þakkir
fyrir aðstoð hennar haustið
1956, þegar þjóðbylting Ung-
verja var bæld niður. Sagði hann
að vinátta Sovétþjóðanna og ung
versku þjóðarinnar hefði aldrei
Skipin sigldu fram hjá.
t veðrahamnum hér fóru skip- ] verið traustari en nú.
in oft fram hjá óafgreidd og voru
á tímabili horfur á algeru kola-
og olíuleysi, en nú hefur vel úr
því rætzt.
Fjöldi fólks er ýmist nýfarinn
eða á förum héðan í atvinnuleit
Tékkneski kommúnistaforing-
inn A. Novotny sagði m. a. að
tékkneski kommúnistaflokkur
inn hefði ávallt litið á kommún
istaflokk Sovétríkjanna sem góð
an lærimeistara.
Miimingargrein
um Guðmund Jóns-
son hreppstjóra
leiðrétt
í MINNINGARGREIN um Guð-
mund Jónsson hreppstjóra frá
Valbjarnarvöllum, sem sr. Berg-
ur Björnsson ritaði í blaðið í gær
hafa orðið margar og slæmar
prentvillur. Um leið og blaðið
biðst afsökunar á mistökunum,
fylgja hér leiðréttlngar á villun-
um. En leiðrétt birtist greinin
í heild í ísafold síðar.
í upphafi annarrar málsgreinar
hefur fallið niður hluti setningar,
Rétt er hún þannig: Guðmundur
kom mér strax fyrir sjónir sem
maður mildi, drengskapar og
glaðlyndis, er framar öðru kaus
sér það hlutskipti að strá blóm-
um velvildar og hjartahlýju í
kringum sig.
í þriðju málsgrein stendur:
. ... og innilega glaðst að sjá
hann. Þar átti að standa: . . . og
innilega glaðst yfir að sjá hann.
í næstneðstu línu sömu máls-
greinar stendur: „auðfúsugestur"
— á að vera aufúsugestur.
í miðri fjórðu málsgrein stend-
ur: . . . roðaði bjarmi vestur,
loftið" — átti að vera „roðaði
bjarma vesturloftið . . .
í miðri fimmtu málsgrein
stendur: Rúnólfur í stað Runólf-
ur.
í miðri 6. málsgrein stendur:
„. . . elskulegustu mótt“. — átti
að vera elskulegustu móttökur.
Neðst í sömu málsgrein stend-
ur: „Galtarfelli" í stað Galtar-
holti.
f miðri sjöundu málsgrein
stendur: „kærleikshyggja“ en átti
að vera kærleiksumhyggja.
í 8. málsgrein stendur . . .
gifst Sigþóri Þórarinssyni en átti
að vera Sigþór Þórarinssyni.
f 9. málsgrein stendur: „Mýrar
prófastsdæmi" en átti að vera
Mýraprófastsdæmi.
Síðar i sömu málsgreín segir:
„. . . sem Guðmundur um langt
skeið hafði flutt inn á heimili
samferðamanna . . .“ Þar átti að
standa samferðamannanna.
f lok 9. málsgreinar stendur:
„. . . þessa listfengna" — átti að
vera listfenga . . .