Morgunblaðið - 01.02.1959, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 1. febrúar 1959
Skátakaffi í Firöinum
HAFNARFIRÐ — I dag hefur
Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði
kaffisölu og um leið sýningu á
margs konar hjálpartækjum, sem
sveitin þarfnast vissulega en hef-
ur ekki tök né efni á að eignast.
Þessari kaffisölu er því komið
upp með það fyrir augum, að á-
góða af henni verði varið til
kaupa á slíkum tækjum. Væntum
við meðlimir Hjalparsveitarinnar,
að Hafnfirðingar og Rvíkingar,
svo og allir velunnarar skáta og
sveitarinnar drekki skátakaffi í
Sjálfstæðishúsinu í Hafnarfirði í
dag og styrki á þann hátt hið
þýðingarmikla starf, sen sveitin
innir af hendi.
Hjálparsveit skáta í Hafnar-
firði var stofnuð 19. febr. 1951,
eða skömmu eftir að Geysir fórst
á Vatnajökli. En í sambondi við
það slys, fórum við nokkrir skát-
ar til Hornafjarðar, tilbúnir að
fara á jökulinn ef til þess hefði
komið. Eftir þessa ferð, sáum
við hve nauðsynægt var að hafa
ákveðna menn til að senda út, ef
um slys eða leit væri að ræða.
Var svo sveitin stofnuð, sem áð-
ur er greint frá.
Hjálparsveitin hefur ávallt
starfað af miklum krafti og
ávallt haft á að skipa mjög fær-
um og ósérhlífnum piltum, sem
hafa skilið hlutverk sitt fullkom-
lega. Stúlkur hafa líka rétt til að
gerast meðlimír sveitarinnar og
hafa þær veitt mikla og góða að-
stoð við störf sveitaunnar. A
þessum árum og fram að þessum
tíma hafa farið fram 35 fundir
sem eru bæði fræðslu og skemmti
fundir. Hafa þá oft verið fengnir
sérmenntaðir menn, svo sem
lækriar, hjúkrunarkonur og fjalla
garpar til þess að flytja erindi.
Þá hafa verið farnar 7 kynnis-
ferðir t. d. í brunastöðvar, flug-
velli og fl.. Þá hefur sveitin verið
kölluð út 28 sinnum í leitir og
á slysstaði, og oft höfum við
þurft að vera 2—3 daga í einu.
Þá hafa verið farnar 18 æfinga-
ferðir á fjöll, jökla — ,æft bjarg-
sig — farið á skíðum. Þá hafa og
verið námskeið, og meðlimir hafa
sótt námskeið í margs konar
störfum, sem koma að góðu haldi
fyrir hvern meðlim sveitarinnar.
Einkunnarorð sveitarinnar eru
„Vertu viðbúinn." Og má með
sanní segja, að svo er, því fáar
leitir hafa verið gerðar t. d. frá
Rvík, að ekki væri leitað tii
Hjálparsveitar skáta í Hafnar-
firði.
Skátastarfið í Hafnarfirði geng
ur alveg sérstaklega vel. Dug-
miklir foringjar, bæði stúlkur og
piltar. Skátarnir eru mjög áhuga-
samir.
Húsnæðisvandræði há starf-
inu mjög mikið. En vonandi ræt-
ist fljótt úr því, þar sem góð lóð
er fengin fyrir væntanlegt skáta-
heimili og undirbúningur að
byggingunni þegar hafinn.
Guðjón Sigurjónsson,
sveitarforingi.
BELGRAD, 31. jan. — Tilkynnt
var hér í dag að Titó forseti
myndi koma í óopinbera heim-
sókn til Grikklands þegar hann
hefir lokið Asíuferð sinni. Mun
hann verða gestur Páls Grikk-
landskonungs og dveljast í land-
inu í tvo daga í lok febrúar.
Hún reynir i kvöld
ÞÁTTURINN „Vogun vinnur —
vogun tapar“ verður í útvarp-
inu í kvöld. í þetta sinn ætlar
einn þátttakandinn að reyna við
10.000 kr. spurninguna, en það
er Þórunn Guðmundsdóttir, sem
svarar spurningum úr Eddukvæð
um. Á myndinni hér fyrir ofan
er Þórunn fyrir framan hljóðnem-
ann, ásamt Sveini Ásgeirssyni
stjórnanda þáttarins.
Þórunn er þriðji þátttakandinn,
sem kemst svo langt að eiga kost
á að reyna við lokaspurninguna.
Hún kann Eddukvæðin auðheyri-
lega næstum aftur á bak og á-
fram. Aldrei er þó að vita hvernig
fer. Eins og kunnugt er sigraði
Kosning iþróttafréttamanna:
Vilhjálmur Einarsson kjörinn
íþróttamaður ársins" 1958
//
FÉLAGAR í Samtökum íþrótta-
fréttamanna hafa kjörið „fþrótta-
mann ársins 1958“ og „10 beztu
íþróttamenn ársins". Er þetta í
þriðj-a sinn, sem slíkt kjör fer
Vilhjálmur Einarsson
fram meðal íþróttafréttaritara.
Frá upphafi hefir Vilhjálmur Ein
arsson hlotið titilinn „íþróttamað-
ur ársins", en munurinn á honum
og öðrum nú er miklu minni en
áður.
★
í samtökum íþróttafréttamanna
eru 9 félagar, sem að staðaldri
skrifa um íþróttir í dagblöð lands
ins og vikublöð eða tala um þær í
útvarp. Allir þessir menn skila
kjörseðli með 10 nöfnum á. Efsta
nafnið á hverjum lista hlýtur 11
stig, annað nafn 9, þriðja 8
o.s.frv.
Úrslit þessarar atkvaeðagreiðslu
urðu þau, að „10 beztu íþrótta-
menn ársins 1958“ voru kjörnir
eftirfarandi menn:
1. Vilhjálmur Einarsson fR
93 stig,
2. Eyjólfur Jónsson Þrótti 69,
3. Guðmundur Gislason ÍR 64,
4. Svavar Markússon KR 61,
5. Ágústa Þorsteinsdóttir
Ármanni 50,
6. Valbjöm Þorláksson ÍR 37,
7. Gunnlaugur Hjálimarsson
ÍR 31,
8. Kristleifur Guðbjömsson
KR 19,
9. Eysteinn Þórðarson fR 17,
10. Þórólfur Beek KR 15.
Þannig er listinn yfir „10 beztu
íþróttamenn ársins“. Aðrir, sem
atkvæði hlutu í þessu kjöri, voru
þessir: Jón Guðlaugsson UMS
Bisk. 12, Hilmar Þorbjörnsson Ár-
manni 10, Birgir Björnsson FH 5,
Hörður Felixsson KR og Haukur
Engitbertsson UMS Borg 4 hvor,
Pétur Kristjánsson og Ríkarður
Jónsson 3, Gerða Jónsdóttir KR og
Einar Sigurðsson FH 2, Bjöm
Helgason ísafirði, Þórður Þórðar
son Akranesi og Björgvin Hólm
1 hvor.
annar þátttakandinn, sem reynt
hefur á undan henni, enn hinn
sprakk á síðustu spurningunni.
Kl. 3 í dag verður þátturinn tek
inn upp í Sjálfstæðishúsinu, eins
og venjulega, og útvarpað í
kvöld.
Ftmdur lijá
KaupmannaféL
Hafnarfjarðar
HAFNARFIRÐI. — Annað kvöld
(mánudag) kl. 8,30 heldur Kaup-
mannafélag Hafnarfjarðar fund
að Strandgötu 4 (húsi Jón Mathie
sens) og verður þar rætt meðal
annars um verðlagsmál, styrktar-
sjóð og fleira. Félagar eru nú
um 30 og er Jón Mathiesen for-
maður.
Ekkert róið
frá Stykkishólmi
sl. viku
STYKKISHÓLMI, 31. jan. —
Ekkert hefir verið róið héðan
sl. yiku sökum sífelldra ógæfta.
Hefir verið hér versta veður og
mjög óstillt. Rok og stórrigning
var í nótt. Togarinn Þorsteinn
þorskabítur fór í gærkvöldi til
Reykjavíkur. Tekur skipið þar 14
Færeyinga og fer síðan á veiðar.
.— Árni.
Fyrir þá, sem búnir eru að
losa sig úr jólaskuldunum
— NÚ ÆTLUM VIÐ að taka upp
nýbreytni: Kalt borð fyrir alla,
sem vilja, á hverjum degi —
meira að segja tvisvar á dag.
Hingað til höfum við aðeins haft
það á laugardögum, en vegna
þess hve það er vinsælt ætlum
við nú að færa út kvíarnar með
kalda borðið.
★
Það var Sigurður Gíslason, yf-
irþjónn á Hótel Borg, sem fræddi
blaðamenn á þessu áður en tekið
var til óspilltra málanna í há-
deginu í gær við tugi indælis
rétta á kalda borðinu.
★
— Við ætlum að framreiða
kalda borðið á smáborðin í saln-
um eftir pöntun eins og annan
mat — og hann sýndi okkur stærð
ar föt hlaðin þessum kræsing-
um, sem alla dreymir um, þeg-
ar þeir sitja yfir grautnum
heima.
★
— Þetta eru engin verðlauna-
föt, við troðum ekkert í gestina,
þeir geta verið að þessu allt
kvöldið og fá bætt á fatið eftir
því sem þeir vilja. Síldarréttirn-
ir eru fjölbreyttastir og humar-
inn þykir góður, margs konar
steikt kjöt og salöt og svo við
gleymum ekki íslenzka matnum:
Hvalnum, laxinum, slátrinu og
kviðsviðunum.
— Aðsóknin yfirleitt’? Hún hef
ur ekki minnkað hér að því er
mér finnst, þrátt fyrir tilkomu
nýju veitingahúsanna. Að vísu
er þetta lakasti tími ársins svo
að enn er ekki hægt að segja
neitt, því að í desember eru menn
önnum kafnir við að koma sér í
skuldir — og í janúar enn ákafari
við að losna úr skuldum. Þá er
líka mikil gleði í heimahúsum
og menn fara ekki að sækja
skemmtistaðina fyrir alvöru aft-
ur fyrr en upp úr janúar. En
kalda borðið bíður sem sagt fyrir
menn, sem búnir eru að losa sig
úr jólaskuldunum, sagði hann.
Síðasta œfing landsliðsins í hand-
knattleik fyrir utanförina er leikur
gegn ,,blaðaliði"
Dagskrá Alþingis
Á MORGUN eru boðaðir fundir
í báðum deildum Alþingis kl.
1:30. Tvö mál eru á dagskrá efri
deildar:
1. Sjúkrahúslög, frv. — 3. umr.
2. Hafnargerðir og lendingar-
bætur, frv. — 1. umr. Ef deildin
leyfir.
Á dagskrá neðri deildar eru
þrjú mál:
1. Veitingasala o. fl., frv. — 2.
umr.
2. Dýralæknar, frv. — Ein umr.
3. Búnaðarmálasjóður. frv. —
3. umr.
Á ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ fara
fram að Hálogalandi kappleikir
landsliðs kvenna og karla gegn
liðum, er blaðamenn hafa valið.
Leikir í karlaflokki verða síðustu
leikirnir og síðasta æfing — lands
liðsins. Viku eftir þennan leik
heyja landsliðsmenn sinn fyrsta
landsleik í þriggja landa keppn-
inni, sem þeir leggja upp í á
sunnudaginn.
Landliðsnefnd HSÍ hefir valið
11 manna lið úr þeim 14 manna
hópi, sem utan fer til landsleikj-
anna þriggja. Lið landsliðsnefnd
ar í „pressuleiknum" er þannig:
Markmenn: Guðjón Ólafsson
KR, Hjalti Einarsson FH.
Bakverðir: Hörður Felixsson
KR, Einar Sigurðsson FH, Heinz
Steinman.
Framlína A: Gunnlaugur
Hjálmarsson ÍR, Karl Benedikts-
son Fram, Pétur Sigurðsson ÍR.
Framlína B: Ragnar Jónsson
FH, Karl Jóhannsson KR, Her-
mann Samúelsson ÍR.
Gegn þessu liði hafa blaða-
menn valið eftirfarandi lið:
Markverðir: Kristófer Magnús-
son FH, Bövar Böðvarsson ÍR.
Bakverðir: Hörður Felixson
Fram, Þórir Þorsteinsson KR,
Hilmar Ólafsson Fram.
Framlína A: Rúnar Guðmanns
son Fram, Reynir Ólafsson KR,
Matthías Ásgeirsson ÍR.
Framlína B: Pétur Antonsson
FH, Geir Hjartarson Val, Jón
Óskarsson FH.
Fyrirliði liðsins utan vallar er
Hallsteinn Hinriksson, en á velli
Hilmar Ólafsson.
Sama kvöld fer fram leikur
landsliðs kvenna gegn pressu-
liði. í landsliðinu eru: Erla ísak-
sen KR, Gerða Jónsdóttir KR,
Katrín Gústafsdóttir Þrótti,
Helga Emilsdóttir Þrótti, Perla
Guðmundsdóttir KR, Sigríður
Lúthersdóttir Ármanni, Ólína
Jónsdóttir Fram.
Gegn þessu liði hafa blaðamenn
valið eftirfarandi lið: Rut Guð-
mundsdóttir Á, Inga Magnúsdótt
ir og skemmtilegir og marga
Þrótti, María Guðmundsdóttir
KR, Líselotte Oddsdóttir Á, Guð-
laug Kristinsdóttir KR, Ingi-
björg Hauksdóttir Fram, Ingi-
björg Jónsdóttir Fram, Sigríður
Fundur mennta-
málaráðlierra
Norðurlanda
FUNDUR menntamálaráðherra
Norðurlanda verður haldinn í
Ósló dagana 2.—4. febrúar n.k.,
en slíkir fundir hafa að undan-
förnu verið haldnir annað hvort
Gylfi Þ .Gíslason, menntamála-
ráðherra, getur ekki komið því
við að sækja fundinn og mun því
Birgir Thorlacius, ráðuneytis-
stjóri, sitja hann fyrir íslands
hönd.
(Frá menntamálaráðuneytinu).
Sextug er í dag Fríða Aradótt-
ir, Barónsstíg 10. Hún dvelst í
dag á heimili sonar síns að Laug-
arnesvegi 88.