Morgunblaðið - 01.02.1959, Page 24
VEDRID
Sunnanstormur rigning.
orjjMnMaí
26. tbl. — Sunnudagur 1. febrúar 1959
Reykjavíkurbréf
Sjá bls. 13
Hannibal sendir ung-
kommúnistum boðskap
Þaff var mikið annríki hjá starfsmönnum Skattstofunnar í gær, enda sá örlagaríki dagur upp
runninn, að ekki varð lengur hjá því komizt að skila skattskýrslunni. Þeir virðast vera marg-
ir, sem hugsa sem svo, þegar skatturinn er annars vegar: Frestur er á illu beztur. Þeir hafa líka
sjálfsagt ekki verið svo fáir, sem komust í klandur með að útfylla skýrsluna, og Skattstofan
gerði sitt bezta til að greiða götu þeirra. Á myndinni hér að ofan sést einn af starfsmönn-
um Skattstofunnar leiðbeina manni við þetta vandasama verk.
Um 350 Fœreyingar
komu með Heklu í gœr
HIÐ kommúniska heimssamband
„lýðræðissinnaðrar“ æsku WFDY
undirbýr nú æskulýðsmót í Vín-
arborg á sumri komanda. Hafa
samtökin haft á sínum snærum
sendiboða, sem farið hafa land úr
landi til þess að reyna að fá
æskufólk og samtök þeirra til að
sækja mótið — og hafa þeir jafn-
framt fengið ýmsa menn holla
kommúnistum til þess að gefa
út yfirlýsingar og hvatningarorð
til ungs fólks um að sækja þetta
áróðursmót kommúnista.
Heimssamband „lýðræðissinn-
aðrar“ æsku hefur eins og að
líkum lætur bækistöðvar í Búda-
pest og dafnar þar undir verndar-
væng Kadars.
Gefur sambandið reglulega út
fréttabréf þar sem skýrt er frá
ÞÚFUM, N.-ís., 31. jan. — Hinn
28. þ.m. var enn farið í eftirleit
í ísafjörð, og fannst ein kind á
svonefndum Glámuvöllum. Var
henni komið til byggða. — Þótt
snjólétt sé, varð ekki farið nema
stutt af leiðinni í jeppa, því að
fannbólgur teppa veginn í hlíð-
inni meðfram ísafirði. — P.P.
HÚSAVÍK, 31. jan. — Skarphéð-
inn Jónasson, bílstjóri, leggur í
kvöld upp í leiðangur til að reyna
au ná í hest, sem heldur sig á Mý-
vatnsfjöllum skammt frá Detti-
fossi og hefir ekki náðst í fjögur
ár þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Hesturinn hefir einu sinni áður
náðst, er hann var tveggja vetra,
og var hann þá vanaður. Náðist
hann þá við illan leik.
Er hesturinn ættaður frá Gríms
stöðum á Fjölluim og var reynt
að koma honum austur yfir Jök-
ulsá í haust, en menn urðu frá að
hverfa. Keypti Skarphéðinn þá
hestinn, en Skarphéðinn er mikill
hestamaður.
Lagt upp á tíu hjúla trukk
— með snjóbíl á palli
Hefir Skarphéðinn nú gert út
leiðangur, eins og fyrr segir, og
verður lagt af stað héðan í kvöld
á tíu hjóla trukk. Hafa leiðangurs
menn með sér snjóbíl á palli
trukksins. Ætla þeir í Mývatns-
sveit á trukknum, en síðan á snjó-
bílnum upp í öræfin. Búizt er við,
að leiðangursmenn komi hingað
aftur annað kvöld.
Hesturinn hefir ætíð verið mjög
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN á Akra
nesi halda spilakvöld í Hótel
Akranesi kl. 8:30 í kvöld.
Fjöltefli
Friðrik Ólafssen, stórmeist-
ari, teflir í dag fjöltefli við
Heimdellinga í Valhöll. Er þetta
fyrsta fjöltefli Friðriks eftir
hinn glæsilega sigur í Beverwejk.
Fjöltefli hófust á vegum Heim-
dallar í haust, en hafa nú legið
niðri um nokkurt skeið og verða
nú tekin upp að nýju. Þeir, sem
hug hafa á að þreyta tafl við
Friðrik Ólafsson í dag, eru beðn-
ir að taka með sér töfl, ef unnt
er og mæta stundvíslega. Fjöl-
teflið hefst kl. 14.
undirbúningi heimsmótsins og til
færð ummæli ýmissa manna. í
október-fréttabréfinu var skýrt
m.a. frá því, að danskur sendi-
maður samtakanna Jörgen Ljnd-
green að nafni hefði farið til ís-
lands og rætt við æskulýðssam-
tök um heimsmótið — og jafn-
framt heimsótt „Hr. Hannibal
Valdimarsson, félags- og mennta-
málaráðherra íslands", eins og
segir í fréttabréfinu. „Þeir ræddu
m.a. alheimssamvinnu æskunnar,
störf WFDY og undirbúninginn
að næsta móti. Hr. Valdimarsson
lýsti því yfir, að hann væri
hlynntur næsta mó1*. Auk þess
ræddi Jörgen Lindgreen við Hr.
Lúðvík Jósefssoa, sjávarútvegs-
málaráðherra".
f nóvember-fréttabréfinu er
m.a. greint frá hátíðahöldum í
Rússlandi í sanibandi við 40 ára
afmæli samtaka kommúniskrar
æsku. En þar er líka birtur hluti
af „boðskap Hr. Hannibals Valdi-
marssonar" þar sem hann lýsir
hrifningu ýfir hinu væntanlega
áróðursmóti kommúnista í Vín-
arborg og kveðst vona, að það
beri mikinn árangur.
var uim sig, hefir aldrei látið reka
sig með hestum og jafn-an forðazt
hestaslóð. Hefir hann löngum
haldið sig á sömu slóðum skammt
frá Dettifossi, og eru þarna sæmi-
legir hagar fyrir hesta.
FIÐLUSNILLINGURINN Tossy
Spivakovsky kemur hingað til
landsins í dag á vegum Tónlistar-
félagsins og heldur tónleika í
Austurbæjarbíói á þriðjudags og
miðvikudagskvöld kl. 7, fyrir
styrktarfélaga Tónlistarfélagsins.
Tossy Spivakovsky er kunnur
víða um lönd sem afburðasnjaU
fiðluleikari. Hann er fæddur í
Odessa í Rússlandi, en fluttist
með foreldrum sínum til Berlínar
er hann var aðeins tveggja ára
að aldri. í Þýzkaiandi stundaði
hann nám í fiðluleik hjá fræg-
ustu kennurum. Aðeins tíu ára
gamall kom Spivakovsky fyrst
fram á opinberum tónleikum, og
Ótemja slas-
ar mann
SELFOSSI, 31. jan. — Er Ágúst
Sigurðsson frá Birtingaholti var
að sækja ótemju að Blesastöðum
í Flóa í fyrradag, vildi það slys
til, að ótemjan sló Ágúst, og kom
höggið á brjóstið. Var Ágúst á-
samt nokkrum öðrum mönnum
að reyna að ná hestinum úr stóði,
er slysið var. Blóð gekk upp úr
Ágústi, og var sjúkrabíllinn á
Selfossi fenginn til að flytja hann
þegar í stað í Landsspítalann í
Reykjavík — G.G.
★
Samkvæmt upplýsingum frá
Landsspítalanum í gærkvöldi líð-
ur Ágústi vel eftir atvikum. At-
hugun á meiðslum hans er ekki
að fullu lokið, en svo virðist sem
hann hefði ekki rifbeinsbrotnað.
Ágúst er 22 ára að aldri.
M. S. Hekla kom til Reykjavíkur
um hálftíuleytið í gærkvöldi frá
Færeyjum. Samkvæmt upplýs-
ingum frá L. 1 Ú. komu um 3ö0
Færeyingar með skipinu. Hekla
kom til Vestmannaeyja í gær-
morgun, og fóru 136 Færeyingar
í land þar. Flestir Færeyinganna
fara til verstöðva í grennd við
Reykjavík. Þrettán fara til ver-
stöðva á Vestfjörðutn, 50 til ver-
stöðva á Snæfellsnesi, 29 til Akra
ness og hinir til verstöðva á Suð-
urnesjum.
sem „undrabarn" ferðaðist hann
víðs vegar um Evrópu og hélt
tónleika. Um nokkurra ára skeið
var hann konsertmeistari í hinni
frægu Fílharmonisku hljómsveit
í Berlín.
Síðar var Spivakovsky búsett-
ur í Ástralíu í nokkur ár, en
síðastliðinn 20 ár hefir hann ver-
ið búsettur í Bandaríkjunum, þar
sem hann nýtur geysimikils álits
sem framúrskarandi snillingur.
Tækni hans þykir einstök og
túlkunin frumleg og gædd sér-
stæðum persónuleika.
Undanfarið hefir Spivakovsky
verið á tóníeikaferð um Evrópu,
en kemur hér við á vesturleið.
Á efnisskránni á þriðjudags og
miðvikudagskvöld verður m. a.
Adagio í E-dúr eftir Mozart, són-
ata í d-moll eftir Brahms, Chac-
onne Bachs, Sónata eftir Debussy,
verk eftir Bela Bartok o. fl. Undir
leikari verður Ásgeir Beinteins-
son. Þetta verða einu tónleikarnir
sem Spivakovsky heldur að þessu
sinni.
ApóteKarar semja
við V. R.
TEKIZT hafa samningar milli
Verzlunarmannafélags Reykja-
víkur og Apótekarafélags íslands
varðandi kaup og kjör afgreiðslu-
stúlkna í lyfjabúðum. Varð sam-
komulag um það fyrir rúmu ári
að sérsamkomulag skyldi gert
varðandi kjör þessara stúlkna.
Hið nýja samningsuppkast verður
lagt fyrir fund afgreiðslustúlkn-
anna næstkomandi mánudags-
kvöld.
steinn þoskabítur beið í Reykja-
víkurhöfn í gærkvöldi eftir 14
Færeyingum, og togarinn Norð-
lendingur kom til Reykjavíkur
í gærkvöldi til að sækja 11 Fær-
eyinga.
Á UNDANFÖRNUM árum hafa
íslenzkir togarasjómenn öðlazt
allnáin kynni af siglingum fyrir
Hvarf, suðurodda Grænlands.
Siglingaleiðin út af Hvarfi er al-
kunn fyrir hin ofsalegu veður,
sem þar geisa tíðum og hættur,
sem stafa af borgarísjökum og
miklum straumi er þar er á
siglingaleiðum.
í gær átti Mbl. stutt samtal við
Hallgrím Guðmundsson skip-
stjóra, sem nú veitir forstöðu
Togaraafgreiðslunni. Hann er
einn þeirra mörgu togaraskip-
stjóra, sem hafa staðgóða þekk-
ingu á siglingaleiðinni, hættum
þeim sem þar eru, og hvernig ís-
lenzkir skipstjórar haga sér undir
slíkum kringumstæðum, til þess
að skapa sem mest öryggi fyrir
skip og skipsmenn.
Hallgrímur Guðmundss. kvaðst
hafa orðið nokkuð undrandi er
hann las um staðsetningu hins
týnda Grænlandsfars, Hans Hed-
toft. I slíkum veðrum, sem á slys-
stað virðist hafa verið, er sigling
svo grunnt undan Hvarfj mjög
hættuleg vegna borgarísjakanna.
Þó radartækið sé haft í gang’, þá
kemur það hvergi nærri að noc-
um, vegna þess að hinar himin-
háu öldur skyggja á ratsjána, og
svo bætist ofaná hríðarveður, sem
byrgir ratsjána alveg. Sjólag er
mjög slæmt út af Hvarfi vegna
mikils vetrarstorms. Má öllum
ljóst vera hvílík hætta þarna er
á ferðinni í stormi og stórsjó.
Ef íslenzkur togaraskipstjóri
hefði átt að sigla frá Júlíanehaab
og suður fyrir Hvarf, í veðri því
er Grænlandsfarið týnda var á
ferðinni í, þá hefði hann krækt
50 jafnvel 70 mílur suður fyrir
Hvarf til þess að vera öruggur
um að vera kominn út fyrir ís-
hættuna, sem eðlilega minnkar
eftir því, sem sunnar dregur. Þess
eru meir að segja dæmi, að tog-
ararmr hafi farið 100 mílur fyrir
sunnan Hvarf, til þess að vera
Mislingar
ÞÚFUM, N.-ís., 31. jan. — Misl-
ingar ganga nú hér í héraðinu.
Eru þeir m.a. komnir í héraðs-
skólann í Reykjanesi. Hafa nokkr
ir nemenda þar þegar tekið veik-
ina. — Hiti er yfirleitt allhár,
en hins vegar hafa engin slæm
eftirköst fylgt veikinni, svo kunn
ugt sé. — P.P.
öruggir um skip og skipshöfn.
En það kemur fyrir í björtu og
skaplegu veðri, að farið sé
grynnra fyrir Hvarf. En sú er
reynsla togaraskipstjóra að í
slæmu veðri eða tvísýnu þá sé
það ekkert áhorfsmál, að krækja
sem dýpst fyrir þetta alkunna
veðravíti, Hvarf á Grænlandi,
sagði Hallgrímur Guðmundsson
að lokum.
íslendingurinn, sem
brenndist í Þýzka-
landi, enn i lifs-
hættu
Móðir hans og bróðir
fóru til Þýzkalands
í gœrmorgun
EINS og sagt hefir verið frá í
fréttum vildi það hörmulega
slys til fyrir nokkru, að ungur
Islendingur, sem var við nám í
Beiersdorf í Þýzkalandi, skað-
brenndist. Ungi maðurinn, Sig-
urður Jóhannsson, var við nám
í tannlækningum í Beiersdorf.
Hann er enn talinn vera í mik-
illi lífshættu. Móðir Sigurðar
og bróðir hans fóru í gærmorg-
un flugleiðis til Þýzkalands
vegna þessa hörmulega atburð-
ar. Sigurður er sonur Jóhanns
Sigurðssonar, trésmíðameistara
á Akureyri.
ÞÚFUM, N.-fs., 31. jan. — Þessa
viku hefir verið frostlaust og
stundum þíðviðri. Er því lítill
snjór hér um slóðir og vegir yfir-
leitt greiðfærir. — Ágætir hagar
eru fyrir fénað, og ganga hestar
víða úti ennþá. Til dæmis eru
hestar og sauðir á útigangi í
Borgarey. — P.P.
Cerður út leiðangur til
að elta uppi hest, sem
ekki hefir náðst í 4 ár
Stykkishólmstogarinn Þor-
Frœgur fiðlusnillingur
heimsœkir Reykjavík
Togaraskipstjóri myndi
aldrei krœkja grunnt
fyrir Hvarf í roki