Morgunblaðið - 06.02.1959, Side 9
Fostudagur 6. febr. 1959
MORGVNBLAÐH
9
Landsmalafélagið Vcrrður
Stjórnmálaskóli Varðar
Landsmálafélagið Vii'rður efnir til stjórnmálafræðslu fyrir
I.
Flutt verða eftirtalin erindi:
Stjómlög og stjórnskipun hins íslenzka lýðveldis.
1. erindi. Mánudaginn 9. febrúar.
Bjarni Benediktsson, ritstjóri:
Lýsir þrem þáttum ríkisvaldsins, sem er réttur til laga-
setningar (Alþingi), framkvæmdarvald (Ríkisstjórn) og
dómgæzla (Dómstólar). Alþýðleg fræðsla um þá meginþætti
stjórniaga iandsins, sem hverjum manni er nauðsynlegt að
kunna skil á. Skýrt hvernig handhafar ríkisvaldsins fá
umboð sitt frá þjóðinni með kosningum, sem byggðar eru
á almennum og jöfnum kosningarrétti.
2. erindi. Miðvikudaginn 11. febrúar.
Gunnar Thoroddsen, borgarstjóri:
Skýrir ákvæði stjórnarsltrárinnar um mannréttindi, upp-
runa og þýðingu ákvæðanna um trúfrelsi, málfrelsi, rit-
írelsi, atvinnufrelsi, friðhelgi eignarréttarins, um þrískipt-
ingu rikisvaldsins og nauðsyn óháðra dómstóla til að tryggja
borgurunum þessi réttindi.
félagsmenn sína 9. fehrúair til 22. marz n.k.
IV
Andstæðingar Sjálfstæðisflokksins.
8. erindi. Föstudaginn 6. rnarz.
Magnús Jónsson, alþingismaður:
Rakin verður í stórum dráttum saga Framsóknarflokks-
ins og Alþýðuflokksins og skýrt frá helztu stefnumálum
þeirra. Gerð verður grein fyrir tengslum Framsóknarflokks-
ins við samvinnuhreyfinguna og hversu áhrifavald flokks-
ins hefir byggzt á misnotkun hennar og ranglátri kjördæma-
skipan. Skýrt verður samband Alþýðuflokksins við verka-
lýðshreyfinguna, gerð grein fyrir breytingum á afstöðu
flokksins til þjóðnýtingar og ræddar orsakir þess, að flokk-
urinn hefir ekki náð svipaðri aðstöðu hér og hliðstæðir
flokkar á Norðurlöndum.
9. erindi. Mánudaginn 9. marz.
Jóhann Hafstein, bankastjóri:
Um kommúnisma — hugsjónir og kenningar — vest-
rænt og austrænt lýðræði — um öreiga og alræði og sögu-
lega þróun — hlutverk kommúnismans i íslenzkum stjórn-
málum — Kommúnistaflokkur á íslandi — Getur þetta
gerzt hér?
II.
Mikílvæffpn* staðreyndir um land og þjóð og efnahags
starfsemina
S. erindi. Mánudaginn 16. febrúar.
Jóhannes Zoega, verkfrseðingur:
Almenn lýsing landgæða, en sérstaklega rætt um vatns-
Og hitaorku og hagnýtingu hennar.Skýrð nauðsyn þekking
ar á þessum efnum og þýðing rannsókna í þágu atvinnu-
veganna, sérstaklega með tilliti til þess að upplýsa um
hagkvæmni framkvæmda í einstökum atvinnugreinum og
samanburð á framleiðni þeirra.
4. erindi. Föstudaginn 20. febrúar.
Guðjón Hansen, tryggingafræðsngur:
Gerð verður grein fyrir mannfjölda á Islandi, aldurs-
flokka og atvinnustéttaskiptingu, fólksfjölgun og fólks-
flutninga milli byggðarlaga og útskýrð félagsleg og efna-
hagsleg áhrif breytinga á þessum atriðum á næstu árum.
Raunhæf þekking á þessum atriðum er ásamt öðru sá grund-
völlur, sem byggja verður á aliar tillögur um umbætur í
félags- og efnahagsmálum.
5. erindi Mánudaginn 23. febrúar.
ólafur Björnsson, prófessor:
Hver er þáttur hinna einstöku atvinnugreina, sjávarút-
vegs, iðnaðar, landbúnaðar, verzlunar í þjóðartekjunum?
Hvernig skiptast þjóðartekjurnar? Ráðstöfun þjóðartekn-
anna til neyzlu og fjárfestingar. Erlendar skuldir og þróun
þeirra. Þjóðhagsreikningar og mikilvægi þeirra fyrir stefn-
una í efnahagsmálum.
III.
S j álf stæðisstef nan
6. erindi. Föstudaginn 27. febrúar.
Birgir Kjaran, hagfræðingur:
Sjálfstæðisstefnan er raunhæf þjóðmálastefna, grundvöl.
uð á þekkingu á staðreyndum, en byggir ekki á draumóra-
kenndum hugmyndum um sæluríki. Hún er hreinræktað
íslenzkt fyrirbæri og sniðin eftir íslenzkum þjóðfélags-
háttum. Kjarni Sjálfstæðisstefnunnar er mannhelgi — frelsi
og sjálfstæði einstaklinganna.
7. erindi. Mánudaginn 2. marz.
Ólafur Björnsson, prófessor:
Þau höfuðmarkmið, sem flestir eða allir starfandi stjórn-
málaflokkar á Vesturlöndum vilja keppa að, eru framfarir,
frelsi, réttlæti og öryggi. Ágreiningur er hins vegar
um það, hversu þessum markmiðum skuli ná. Stefnan í
efnahagsmálum, eins og aðrir þættir stjórnmálanna, hlýtur
að mótast af viðhorfum til ofangreindra markmiða. Ræðu-
maður skýrir stefnu Sjálfstæðisflokksins i efnahagsmálum
og hver rök hníga að því, að hún megi tryggja framgang
ofangreindra markmiða.
V.
Nokkrir þættir þjóðmála.
10. erindi. Föstudaginn 13. marz.
Svavar Pálsson, viðskiptafræðingur: Skattamálin.
Skýrir nauðsyn skattálagningar og ræðir kosti og galla
hinna ýmsu skattforma. Bendir á, hvernig oft er horfið frá
meginmarkmiði skattálagningar, sem er tekjuöflun fyrir
hið opinbera, og reynt að ná alls óskyldum markmiðum.
Skýrir mismun skattpólitískra og skatttæknilegra vanda-
mála..
11. erindi. Mánudaginn 16. marz.
Þorvaldur Jón Júliusson, hagfræðingur: Viðskiptamálin.
Skýrir hlutverk viðskipta milli einstaklinga, fyrirtækja
og þjóða, milliliðakostnað, gjaldeyrisviðskipti, gengi, vöru-
skipta- og greiðslujöfnuð og stefnur í viðskiptamálum.
12. erindi. Miðvikudaginn 18. marz.
Gunnar Helgason, erindreki: Verkalýðsmálin.
Rekur sögu og skýrir starfshætti og skipulag verkalýðs-
samtakanna og þýðingu þeirra fyrir Jaunþega og þjóðar-
heildina. Skýrir hvernig heilbrigð verkalýðsbarátta miðast
við að tryggja launþegum réttlátan hlut þjóðartekna og
stuðla að aukningu þeirra með uppbyggingu atvinnuvega og
bættri tækni til framleiðslu.
13. erindi. Föstudaginn 20. marz
Þorvaldur Garðar Kristjánsson, lögfr. Félagsmálin.
Gerð grein fyrir því hlutverki þjóðfélagsheildarinnar, að
tryggja öllum einstaklingum lágmarkslífskjör eða félags-
legt öryggi. Rætt um leiðir að því marki, svo sem almanna-
tryggingar gegn sjúkdómum, örorku, elli, ómegð og atvinnu-
leysi og opinberar ráðstafanir í húsnæðismálum. Rakin í
stuttu máli saga trygginga- og framfærslumála á íslandi
og afskipta ríkisvaldsins af húsnæðismálum. Skýrt ástand
þessara mála í dag og bent á helztu framtiðarverkefni.
14. Sunnudaginn 22. marz kl. 8,30 verður kaffikvöld og
þá teknar ákvarðanir um málfundi fyrir þátttakendur
og leiðbeiningar í ræðumennsku.
Ég undirritaður óska að taka þátt í stjórnmálanámskeiði
Landsmálafélagsins Varðar:
(Þátttakendur séu ekki yngri en 21 árs.).
Nafn:....................................
Heimili:...................................
Erindin verða öll flutt í Vallh öll við Suðurgötu og hefjast
kl. 8,30 e.h. Eftir hvert erindi, sem tekur um það bil 45
mín., verður fy»rirspurnum svarað.
D Er Varðarfélagi.: ' Óska að gerast Varðrfélagi.
Til Landsmálafélagsins Varðar, ValhöII við Suðurgötu, Reykjavík.