Morgunblaðið - 06.02.1959, Blaðsíða 20
VEÐRIÐ
Vaxandi suðaustanátt
Dómurinn
yfir Birni Bjarnasyni form. Iðju
30. tbl. — Föstudagur 6. febrúar 1959
Kona Valafellsskip
sijórans áhyggjufull
Reutersfréttastofan símaði
f nótt, að Ronald Pretious,
skipstjóri á Valafelli, væri
þrítugur að aldri. Þegar hann
tók fyrst að sér skipstjórn á
togurum, var hann aðeins 23
ára og einn af yngstu skip-
stjórum í Grimshy.
☆
Reuter segir, að þessi ferð hafi
verið fyrsta ferð hans á Valafelli
|Geir Sigurðssonj
skipstjóri
EINN kunnasti útgerðarmaður og
skipstjóri hér í bæ, Geir Sigurðs-
son, lézt í fyrrakvöld. — Geir
fæddist að Skiphyl í Hraunhreppi
í Mýrasýslu- 8. september 1873,
og var því rúmlega 85 ára að
aldri, er hann lézt. Foreldrar
hans voru hjónin Sigurður Jóns-
son (Sigurðssonar í Hjörsey) og
Hólmfríður Sigurðardóttir (Jóns-
sonar bónda í Tjaldbrekku).
Geir Sigurðsson tók próf frá
Stýrimannaskólanum árið 1895.
Var hann síðan um margra ára
skeið skipstjóri á þorsk- og síld-
veiðum og síðan athafnamikill
útgerðarmaður í Reykjavík. —
Þess má geta, að hann var
meðal stofnenda síldveiðifélags-
ins Draupnis 1904 og Fiskifélags
íslands 1911. Þá var hann og í
stjórn ýmissa útgerðarfélaga, og
mörg ár var hann í stjórn skip-
stjórafélagsins Öldunnar. •—
Lengi var Geir bæjarfulltrúi í
Reykjavík, svo og í hafnarnefnd
um margra ára skeið og fleiri
nefndum á vegum bæjarins. í
sjódómi Reykjavíkur átti hann
sæti frá stofnun hans, og í stjórn
Slysavarnafélags íslands var
hann um 10 ára skeið.
Geir Sigurðsson var kvæntur
Jónínu Jódísi Ámundadóttur (út-
vegsbónda í Hlíðarhúsum Á-
mundasonar), en hún lézt árið
1918.
og ber þannig ekki saman við
fréttina frá Seyðisfirði. Pretious
hefur aðallega stjórnað togurum
af Northernflokknum. — Hann
er kvæntur og á þrjú börn.
☆
Kona Pretions, Olga, sagði í
gærkvöldi, að heimili þeirra í
Cleethorpes, útborg Grimsby:
„Eiginmaður minn hefur aldrei
Ient í neinum vandræðum. Þetta
er í fyrsta skipti, sem hann lend-
ir í landhelgisdeilu (limits disp-
ute). Ég er hræðilega áhyggju-
full vegna orðróms um, að hann
kunni að verða dæmdur í fang-
elsi. Ég vona, að öll beizkja í
fiskistríðinu bitni ekki á mann-
inum mínum“.
Lældvað verð
á miilendum
niðursuðuvörum
INNFLUTNIN GS'SKRIFSTOF AN
gaf í gær út tilkynningu um nýtt
hámarksverð á niðursuðuvörum.
Samkvæmt tilkynningu skal
smásöluverð eftirtalinna niður-
suðuvara eftirleiðis vera sem hér
segir:
Heildós af fiskbollum kostar
hér eftir kr. 14,65 í smásölu (hálf-
dós kr. 9,90), heildós af fiskbúð-
ing kr. 17,10 (hálfdósin kr. 10,40),
heildós af grænum baunum kr.
11,30 (hálfdós kr. 7,30), heildósin
af gulrótum kr. 17,05 (hálfdós kr.
10,90), heildós af blönduðu græn-
meti kr. 16,05 (hálfdósin kr. 9,85)
og heildósin af rauðrófum kr.
22,55 (hálfdós kr. 13,00).
Hér eru aðeins tekin nokkur
dæmi um hið nýja og lækkaða
verð, sem nú gengur í gildi, en
aðrar innlendar niðursuðuvörur
lækka tilsvarandi.
Meðvitimdarlaus
MORGUNBLAÐIÐ spurðist í gær
kvöldi fyrir um líðan bandaríska
piltsins, sem hrapaði í Þyrli sl.
þriðjudag. Frá slysinu var sagt
í blaðinu í gær. — Samkvæmt
upplýsingum yfirlæknis hand-
lækningadeildar Landakotsspítal-
ans, hafði pilturinn ekki komið
til meðvitundar seint í gærkvöldi.
— Sagði læknirinn, að hann væri
þungt haldinn, og væri ekki unnt
að segja neitt um batahorfur.
Ljósmynd þessa tók danski ljósmyndarinn Engman frá Billed-
bladet í fyrradag yfir Grænlandshafi. Sýnir hún bandaríska
eftirlitsskipið Campbell við leit að leifum danska skipsins
Hans Hedtofts.
V ör uskipta j öfimð-
urínn 1958 óhag-
stæður um 33ó8
ffiilljónir
HAGSTOFA íslands hefir gefið
út bráðabirgðaskýrslu um verð-
mæti innflutnings og útflutnings
í desember s.l. og á öllu árinu
1958. — Samkvæmt skýrslu þess-
ari nam útflutningur í desember
1958 102,9 millj. kr., en innflutn-
ingur 212,6 millj. kr. Þar af eru
skip fyrir 54,2 millj. kr. — Hefir
vöruskiptajöfnuður desember-
mánaðar þannig orðið óhagstæð-
ur um 109.7 millj. kr.
Á árinu 1958 varð vöruskipta-
jöfnuðurinn óhagstæður um 336,8
millj. kr. — Inn voru fluttar vör-
ur fyrir 1.405,9 millj. kr. — þar
af skip fyrir 992,6 millj. kr. —
en útflutningurinn nam samtals
1.069,1 millj. kr.
Árið áður, 1957,
skipta j öf nuðurinn
um 374,1 millj. kr.
varð vöru-
óhagstæður
<S>-
Sáu viðarstykki sem
siglutré á floti v/ð
líktist
Hvarf
Lýsing dansks blaðamanns á leitar-
flugi með flugvél frá Keflavíkur-
flugvelli
í FYRRADAG sáu leitarmenn á bandarískri Skymasterflugvél frá
Keflavíkurflugvelli langt viðarstykki á reki nokkuð austur af
staðnum þar sem talið er að skipið Hans Hedtoft hafi farizt. —
Viðarstykki þetta líktist hluta af siglutré, en gæti þó verið hluti
af stórum björgunarbát að sögn leitarmanna.
Léttur blær og gott skyggni
Þarna voru fjórar Skymaster-
flugvélar að leita og skiptu þær
leitarfluginu í tvennt, tvær og
tvær saman. Austarlega á leitar-
svæðinu var bandaríska strand-
Lagt upp frá Goose Bay
Tveir danskir blaðamenn, Lar-
sen frá BT og Engman frá
Billedbladet, voru með leitar-
flugvél þessari. Þeir dvöldust á
Hótel Borg í gærkvöldi og lýsir
Larsen leitinni svo:
Við lögðum af stað með hinni
bandarísku leitarflugvél frá
Goose Bay í Labrador kl. 12,05 á
miðvikudaginn. Upphaflega höfð-
um við lagt upp frá Keflavík
fimm dögum áður, en flugvélin
farið til Labrador.
Þegar við höfðum flogið 1500
km frá Goose Bay vorum við
komnir á leitarsvæðið og hófum
þá þátttöku í skipulagðri leit fyr-
ir sunnan Hvarf.
Rysjótt tíö SV-lands
Hlýrra og lygnara norÖan- og austanlands
Ánægjulegir
tónleikar
TÓNLEIKAR Sinfóníuhljómsveit
arinnar í Þjóðleikhúsinu í gær-
kvöldi voru vel sóttir og frábær-
lega vel tekið. Stjórnandi sveit-
arinnar var Paul Pampichler og
voru viðfangsefni hennar létt sí-
gild verk. Einsöng sungu Þuríð-
ur Pálsdóttir og Guðmundur
Guðjónsson. Söngvarar og hljóm-
sveitarstjóri voru klöppuð fram
hvað eftir annað og varð hljóm-
sveitin að endurtaka nokkur lög.
SÍÐAN hlýnaði í veðri eftir frosta
kaflann mikla, hefir tíð verið um-
hleypingasöm um allt land.
Hér sunnanlands hefir ýmist ver-
ið asahláka á sunnan með 6—8
stiga hita eða útsynningsveðrátta,
kastað úr éljum og hiti verið um
frostmark. Tíðin hefir verið
miklu rysjóttari suðvestan en á
Norður- og Austurlandi. Þar hefir
marga daga verið hlýtt og blítt,
hitinn stundum orðið 10 stig og
miklu rysjóttari suðvestanlands
vestanlands, þar sem oft hefir
verið hvasst. Síðdegis í gær voru
10 vindstig á hásunnan á Hellis-
sandi og víða 9 vindstig annars
staðar vestanlands. í gær var
mestur hiti á Akureyri, 9 stig, en
víða var 8—9 stiga hiti. Horfur
eru á, að þetta veðurlag haldist,
að því er Veðurstofan tjáði blað-
inu í gær. Búizt var við hvassri
sunnanátt og jafnvel roki í nótt
og votviðri sums staðar, en suð-
vestanátt og kólnandi veðri í dag.
V iðskiptasamning-
ur við Finnlaiid
ÞRIÐJUDAGINN 3. febrúar var
undirritaður í Helsingfors samn-
ingur um viðskipti milli fslands
og Finnlands á tímabilinu frá 1.
febrúar 1959 til 31. janúar 1960.
Samninginn undirritaði fyrir
hönd íslands Magnús V. Magnús-
son, sendiherra, og fyrir hönd
Finnlands T.O. Vahervuori, for-
maður finnsku samninganefnd-
arinnar.
(Frá utanríkisráðunevtinu).
gæzluskipið Campbell og skýrðu
þeir okkur frá því að við hafið
væri 10 stiga frost og 4 metra
háar bylgjur, en vindhraðinn
væri 5 hnútar (2 vindstig).
Skyggni var gott.
Hrikaleg strönd
Flugstjóranum á okkar vél,
kafteini Harold Owens, voru gef-
in fyrirmæli um að hefja leit á
ákveðnu svæði suðaustur af
Hvarfi (Kap Farvel). Flaug
hann í 6 klst. til skiptis inn að
og út frá hinni hrikalegu en
fögru Grænlandströnd, þar sem
þúsundir lækja renna til sjávar
og hafa grafið djúp gil í snar-
brattar fjallshlíðarnar. Við og
við gengu hríðarél yfir fjalla-
tindana og teygðust út á hafið,
þar sem þau leystust upp.
Við mættum hinni flugvélinni
sem leitaði með okkur alltaf á 20
mínútna fresti. Það var líka Sky-
mastervél, silfurgrá að lit, en
stélið á henni litað sterkrautt, en
þannig eru flugvélar bandarísku
björgunarsveitanna málaðar. Sú
flugvél var frá Goose Bay og
stýrði henni flugliðsforingi að
nafni Emerson Fitzgerald. Það
var þessi flugvél sem hafði dag-
inn áður komið óljóst auga á ein-
hvern hlut sem líktist björgunar-
bát. Flaug hún þrisvar yfir þenn-
an hlut, en þá hvarf hann í þok-
una. Hin flugvélin flaug nú í 800
feta hæð, en við í 1200 fetum.
Klettar sem líkjast bátum
Uppundir Grænlandsströnd eru
mörg sker og smáklettar í sjón-
um og líkjast margir þeirra úr
lofti smábátum á siglingu. Könn-
unarmennirnir hjá okkur voru
alltaf að reka augun í þá og þótti
þeim stundum sem sumir þeirra
hlytu að vera bátar. Lækkuðu
þeir þá flugið, en komust þá að
hinu sanna. Þá settu þeir fullan
kraft á hreyflana aftur og þeir
þrumuðu meðan 5800 hestöfl
þeirra lyftu flugvélinni aftur
upp í rétta hæð.
Tré sést á floti
Það var kl. 17,49, sem einn
könnunarmaðurinn flugmaður að
nafni Richard Slater kom auga
á viðarstykkið, þar sem það flaut
í úfnum sjónum. Það var engum
blöðum um það að fletta, það var
einhvers konar viðarstykki, líkt-
ist einna helzt trjábol eða siglu-
tré, gat jafnvel verið borðstokkur
af stórum björgunarbát.
Flugvélin sveimaði yfir þessum
hlut í eina klukkustund og horfð-
um við margsinnis á hann. Var
nú varpað niður reykblysi, sem
er notað við staðarákvörðun. Var
erfitt að ákveða staðinn vegna
þess að sólin var björt út við
sjónrönd og súst reykurinn frá
blysinu illa, þar sem hann átti að
bera í sólina.
Það mun hafa verið ákveðið að
bandaríska eftirlitsskipið Camp-
bell skyldi leita á þessum slóðum
næsta dag.
í heimskautsnóttinni
Myrkrið skall yfir'. Dagsverk-
inu var lokið. Flugvélin féKk
stefnumiðun og veðurlýsingu frá
loftskeytastöðinni í Kristjáns-
sundi í Suður-Grænlandi.
Yfir okkur lýstu norðurljósin
með björtu skini, en hafið líktist
í birtu þeirra víðum grundum,
þöktum snjó. Inn á milli norður-
Ijósanna lýstu stjörnurnar eins
og perlur í brúðarslæðu heim-
skautanæturinnar.
Flugvélin lenti seint um kvöld-
ið í Keflavík. Hún hafði flogið
3320 km um daginn.
★
Eftirlitsskipið Campbell leitaði
á þessum slóðum í gærdag. Það
fann engan trjábol, en olíubrák
var þar á sjónum. Er skýrt frá
því á öðrum stað í blaðinu.