Morgunblaðið - 06.02.1959, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 06.02.1959, Blaðsíða 18
íe M O R C r v n r A Ð 1Ð Föstudagur 6. febr, 1959 Fargjöld strætisvagnanna lækka í dag Blaðinu barst í gær svohljóð- andi fréttatilkynning frá Strætisvögnum Reykjavík- ur: „Ákveðið hefur verið, að frá og með 6. febrúar lækki fargjöld með strætisvögnum Reykjavíkur nokkuð frá því, sem verið hefur. I dag hefur verið gefin út aug- lýsing um hið nýja verð farmiða. Lækkunin verður með því móti að einstök fargjöld fullorðinna verða kr. 1.70 í stað kr. 1.75 sem verið hefur. Notuð verða fyrst um sinn sömu farmiðaspjöld og verið hafa, en aukið við 2 farmiðum. Verð farmiðaspjaldanna verður kr. 50.00. Vegna áðurgreindra breytinga á einstökum fargjöldum þykir sýnt, að peningaskipti með þeim hætti, sem verið hefur ,séu með öllu útilokuð. Því hefur verið á- kveðið að útbúa nýja gerð far- miðaspjalda með 6 miðum. Verð þessara spjalda verður kr. 10.00. Einstök fargjöld barna lækka úr kr. 0.60 í kr. 0.50. Verð far- miðaspjalda barna með 10 far- miðum verður kr. 5.00“. Dolores Mantez og K. K. ¥>•.. • íí r „Djorgvm ur rsta róðri- b DALVÍK, 5. febr. — í dag kom Björgvin, hið nýja togskip, sem hingað kom fyrir skömmu, úr sinni fyrstu veiðiför. Aflinn var 17 lestir af vænum þorski eftir 8 daga útivist. — Undanfarið hafa verið stöðugir stormar á miðunum, og þurfti skipið alltaf öðru hverju að leita í landvar. Sömu sögu er að segja af heimamiðunum hér, að bátar þeir, sem stunda línuveiðar, hafa sáralítið getað róið, sakir ógæfta, þar til í sl. viku. — Veiði er mjög treg, 3—6 skippund í róðri, og fiskurinn rýr. Til landsins hefur tíðin verið öllu hagstæðari, samfellt þíð- viðri undanfarinn hálfan mánuð. Snjór er að mestu horfinn af beitilöndum, og vegir allir eru auðir sem um hásumar. — S.P.J. Ensk dœgurlagasöng- kona komin til landsins í GÆR kom til landsins ung, ensk söngkona, Dolores Mantez að nafni, og ætlar hún að syngja hér í a. m. k. einn mánuð með KK-sextettinum og híjómsveit Andrésar Ingólfssonar í Iðnó og Alþýðuhúsinu. Fréttamaður átti tal við ung- frú Mantez rétt eftir að hún steig út úr flugvélinni. Kvaðst hún ætla að syngja tvisvar á hverju kvöldi, 15—20 mínútur í senn, og byrja í Iðnó næstkomandi laugardagskvöld. Dolores Mantez er dökk á hör- und, faðir hennar er afríkansk- ur en móðir hennar ensk. Hún er alin upp í Englandi, þar sem hún hefur sungið í Aristocrat Club í London, á ýmsum skemmtistöðum, í söngleiknum „Lady at the wheel“ og í kvart- ett, sem nefnist Dominos-kvart- ettinn. Nœstkaldasti janúar- mánuður á þessari öld SAMKVÆMT upplýsingum frá Veðurstofunni var sl. janúarmán- uður sá kaldasti á þessari öld hér í Reykjavík. — Meðalhiti mán- aðarins var mínus 3,8 stig, en lægstur meðalhiti í janúar á þess- ari öld var 1918 — mínus 7,3 stig. — Árið 1920 var janúar álíka kaldur og nú. — Hitinn var neðan við frostmark alla daga fram til 24. janúar, nema hinn 12. og á hvgrjum sólarhring fór frost nið- ur fyrir 5 stig. Kaldast var aðfaranótt 21. jan- úar, þá var 12,7 stiga frost. — Úrkomulaust var lengst af mán- aðarins, eða fram til 23. Síðustu dagana rigndi hins vegar talsvert, og komst heildarúrkoman upp í 39 mm. — f meðalárferði mælist hins vegar 92 mm úrkoma í Reykjavík. Geta má þess í þessu sam- bandi, að á Akureyri var meðal- hitinn í janúar sl. mínus 5,7 stig. Síðan árið 1918 hefir janúar að- eins einu sinni orðið kaldari þar nyrðra. Var það árið 1936, en þá var meðalhitinn í þessum mánuði minus 6 stig. Áður en hún kom til íslands hafði hún nýlokið við að leika hjúkrunarkonu í kvikmyndinni „Saphire“. Aðrir tónleikar fiðluleik arans Spivakovskys í KVÖLD heldur fiðlusnillingur- inn Tossy Spivakovsky aðra tón- leika sína í Austurbæjarbíói á vegum Tónlistarfélagsins. Fyrri tónleikar hans á vegum félagsins voru sl. miðvikudagskvöld. Var hvert sæti í húsinu skipað og fiðluleikaranum frábærlega vel tekið, enda þykir tækni hans ein stök og túlkunin frumleg. Tón- leika Spivakovskys má vafalaust telja mjög merkan viðburð í tón- listarlífi bæjarins. Blaðamenn ræddu við Spivak ovsky í gær, og gat hann þess fyrst orða, að hann hlakkaði mjög til að hlusta á Sinfóníu- hljómsveitina leika (í gærkvöldi), þar sem það myndi gefa honum nokkra hugmynd um tónlistarlíf- ið í borginni. En einkum hlakk- aði hann til að heyra þar verk ís- lenzkra höfunda. Spivakovsky lét vel af því að leika fyrir íslenzka áheyréndur. Efnisskráin var „þung“, en áheyr- endur kunnu að meta hana. Spivakovsky er rússneskur að uppruna, en fluttist barnungur til Berlínar með foreldrum sínum. Hann hélt opinbera tónleika í fyrsta sinn 19 ára gamall og ferð- aðist síðan sem „undrabarn" um Evrópu. Um nokkurra ára skeið var hann kensertmeistari við Fíl- harmonísku hljómsveitina í Ber- lín. Þar lærði hann fyrrum hjá ýmsum frægum kennprum í fiðlu leik. Spikovsky fluttist til Banda ríkjanna fyrir rúmum 20 árum og er nú búsettur í Westport í Connecticut. Að þessu sinni heldur Spivak- ovsky aðeins tvenna tónleika hér. Kvaðst hann harma það að hafa ekki tök á að dveljast hér lengur og lét í ljós von um, að sér myndi gefast tími og tækifæri til að koma hingað aftur. Hann mun halda tónleika í Bandaríkjunum innan skamms, og þar mun hann flytja nýtt tónverk eftir banda- ríska tónskáldið Roger Sessions, 1 sem er eitt þekktasta núlifandi tónskáld Bandaríkjamanna. Spi- vakovsky fer héðan n.k. sunnu- dag. Þess má geta, að Spivakov- sky varð 51 árs s.l. miðvikudag. Tónleikarnir í kvöld hefjast kl. 7. Undirleikari er Ásgeir Bein- teinsson. Ásgeir er í hópi yngstu píanóleikara okkar, en er þegar þekktur hér af hljómleikum, sem hann hefir haldið, m.a. á vegum Tónlistarfélagsins. Spivakovsky fór mjög lofsamlegum orðum um Ásgeir og komst m.a. svo að orði að hann væri mjög gáfaður og næmur tónlistarmaður. // Landsliö - 17:17 — ýmsir gallar á leik landsliðsins bl aöalið 44 Macmillan fer í boði til Moskvu í þessum mánuði LUNDÚNUM, 5 febr. — Harold Macmillan, forsætisráðherra Bret lands, hefur þegið boð Rússa um að koma í opinbera heimsókn til Sovétríkjanna. Hann fer þangað flugleiðis 21. þ.m., og dvelst þar í viku til tíu daga. Selwyn Lloyd, utanríkisráðherra, verður í för með honum. Macmillan gerði grein fyrir för sinni í neðri málstofunni í dag. Hann kvaðst vona, að ferð gæti kynnzt betur ráðamönnum Sovétríkjanna og rússnesku þjóð inni. Þetta verður í fyrsta skipti, sem brezkur forsætisráðherra kemur til Moskvu, síðan Chur- chill fór þangað til skrafs og ráðagerða í síðustu styrjöld. í dag ræddi Macmillan Þýzka- landsmálin við Dulles. Hinn síð- arnefndi er væntalegur til Par- ísar á morgun og ræðir þar m. a. in bæri góðan árangur og hann i við de Gaulle. Á þriðjudagskvöldið fóru fram að Hálogalandi leikir landsliða karla og kvenna gegn liðum er íþróttafréttamenn höfðu valið. Leikur landsliða karla var síð- asta „æfing“ þess fyrir þriggja- landsleikja förina til Norður- landa: Úrslit urðu þau að í karla- flokki skildu liðin jöfn 17:17 en í kvennaflokki vann landsliðið með 19:15. Leikur karla Leikur „blaðaliðsins" í karla- flokki kom mjög á óvart. Það veitti landsliðinu ekki aðeins mót spyrnu, heldur sýndi á köflum fullt eins góðan og stundum til- brigðaríkari leik en landsliðið sýndi. Var leikurinn hörkuspenn- andi frá upphafi til enda og tví- sýnn allan tímann. í hálfleik stóðu leikar 10:9 fyrir landsliðið. Það er margt sem athygli vek- ur við þessi óvæntu úrslit þessa leiks. 1. Þó landsliðið næði í byrjun betri tökum á leiknum, urðu yfirburðirnir aldrei afger- andi, og það var eins og lið- ið missti móðinn við það mót læti, sem það átti við að stríða. 2. Landsliðið náði miklum hraða í leik sinn — en „blaða liðið svaraði með ekki minni leikhraða, og þar sem blaða- liðið sýndi árangursríkari leik til að dreifa vörn mót- herjanna, tókst þeim að jafna 3 marka forskot rétt fyrir leikhlé í eins marks forskot. 3. Landsliðinu tókst ekki að halda þessu forskoti, heldur þvert á móti — blaðaliðið . skoraði 3 fyrstu mörkin í síð- ari hálfleik með því að taka leikinn fastari og ákveðnari tökum en landsliðið. 4. Úthaldið, sem landsliðið var talið eiga í ríkum mæli eftir 2 mánaða sérstakar æfingar framyfir flesta liðsmenn „blaðaliðsins“ reyndist lítils- virði — þvert á móti jafnaði „blaðaliðið" á síðustu mínút- um og sótti á í leikslok. Allt þetta er áminning til lands liðsins og landsliðsmanna. Nú átti landsliðið ekki lakan leik, heldur blaðaliðið umfram vonir, en þó var eins og neistann til að ná afgerandi sigri og berjast til síðustu mínútu vantaði í lands- liðið. Vera má að þreyta eigi sök á þessu að nokkru leyti — þreyta, sem horfin verður er liðið mætir Norðmönnum n. k. þriðjudag. En grunur minn er að rangar skipt- ingar leikmanna og illa undirbú- in leikaðferð hafi 'og ráðið miklu um það hvernig fór. Ef svo er verður úr að bæta. Áberandi galli á stjórn liðsins vár það, að Hjalti Einarsson, ann ar markmaður liðsins, skyldi ekki fá að reyna sig eina einustu mín- útu. Hann hefur aldrei keppt með liðinu, sem hann nú fer utan með. Vera má að Guðjón meiðist og Hjalti verði við að taka — kannski heilum leikjum. Ráð- legra hefði því verið að gefa hon- um tækifæri til reynslu. Beztu menn „blaðaliðsins voru Kristófer Magnússon í markinu, sem sýndi einhvern bezta leik, sem ísl. markvörður hefur sýnt. M. a. varði hann tvær vítaspyrn- ur skotvissra landsliðsmanria. Þá áttu óg góðan leik í blaðaliðinu „landsliðsmennirnir" Rúnar, Guðjón Jónsson og Matthías, að Þóri Þorsteinssyni ógleymdum, sem enn sem fyrr var markhæsti maður blaðaliðsins. Hann sýndi enn og sannaði, hve fráleitt það var, að gefa honum ekki tækifæri til að æfa í 20 manna hópi. Þar var lítið reynt til að njóta góðs kraftar. Vörn landsliðsins var veikari hlekkur þess, enda varnarleikað- ferðin ekki valinn í samræmi við staðhætti í Hálogalandi. Leikur framherjanna var helzzt til ein- hæfur en fram úr sköruðu Gunn- laugur, aðalskytta liðsins, Ragn- ar Jónsson, og Hermann. Vonandi eru þessi úrslit liðinu heppileg áminning um að vanda allan undirbúning og stjórn leik- anna, sem bezt og liðinu fylgja utan beztu óskir um gott gengi í erfiðri raun. Leikur kvenna „Blaðaliðið" í kvennaflokki hafði lengi vel forustuna. Náði t.d. 5:1 forskoti í byrjun, og í hálfleik eins marks forskot. Leik ur þessi var mjög góður og ein- hver bezti kvennaleikur (beggja liða) sem hér hefur sézt. Sýnir það örugga framför í handknatt- leik kvenna. Enska bikarkeppnin: fulham Birming- ham 2-3 í AUKALEIK, úr 4. umferð bik- arkeppninnar ensku, sigraði Birm ingham City Fulham með þremur mörkum gegn tveimur. Leikurinn fór fram á leikvelli Fulhams, Graven Cottage í London. í 5. umferð leikur Birmingham á heimavelli gegn Nottingham For- est.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.