Morgunblaðið - 19.02.1959, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.02.1959, Blaðsíða 2
MORCVNBLAÐJÐ nmmtudagur 19. febr. 1959 Eisenhower segir um Berlinardeiluna: Ef einhverjir skjóta, jbd verða Ibað Rússar Washingrton, 18. febr. — Eisen- hower Bandaríkjaforseti lýsti því yfir á blaðamannafundi í dag, að ef valdbeiting ætti sér stað í sambandi við Berlínardeiluna, þá verði það Rússar, sem til hennar grípa. Þetta er fyrsta svarið við hinni harðorðu ræðu Krúsjeffs í Tula í gær. Forset- inn bætti því við, að Vesturveld- in hefðu ekki í hyggrju að brjótast Inn í Berlín. Aftur á móti mundu þau ekki hlaupast burt frá þeirri ábyrgð, sem þau hefðu tekið á sinar herðar fyrir fólkið í borg- Inni. Ef Vesturveldin eru hindr- nð í þvi að uppfylla loforð sín, eru það ekki þau, heldur Rússar sem nota valdbeitingu. Þá sagði Eisenhower, að þegar Krúsjeff talaði um að skjóta í rseðu sinni, þá hlyti hann að eiga við það, að Rússar ætluðu að skjóta til að hindra Vesturveldin í því að standa við skuldbindingar sínar. Þegar forsetinn var spurður um væntanlega heimsókn Mac- millans til Moskvu, sagði hann að ráðherrann mundi tala fyrir munn brezku stjórnarinnar, en sjónarmið hennar í Berlínardeil- unni væru hin sömu og sjónar- mið annarra stjórna á Vesturlönd um. Hann sagði, að Vesturveldin væru alltaf reiðubúin að ræða Þýzkalandsmálið í heild og öryggi Evrópu, og þau vildu kom- ast að sanngjarnri niðurstöðu í þessu máli. Þá var forsetinn spurður um veikindi Dullesar. Hann sagði, að breytingar yrðu ekki í utan- ríkisráðuneytinu. Utanríkispóli- tík Bandaríkjanna byggði á Innanlandsflug hefur leg- ið niðri í 6 sólarhringa Miklar tatir í milli- landafluginu Illviðrið undanfarna daga hef- ur mjög hamlað öllum flugsam- göngum innanlands og til og frá landinu. Ekkert hefur verið flog- ið innanlands frá því á föstu- daginn, eða í sex sólarhringa og eru um 170 manns á biðlista hjá Flugfélaginu eftir fari út á land. Millilandaflugið hefur ekki held- ur gengið snurðulaust. Flugvélar Flugfélagsins hafa nokkurn veg- inn staðizt áætlun, en flugvél- ar Loftleiða hafa átt í miklum erfiðleikum vegna storma á leið þeirra vestur til Bandaríkjanna. Hafa flugvélarnar verið meira og minna á eftir áætlun og flug- vél Loftleiða, sem áætlað var að reynslu Dullesar í sex ár og þar væri samvalið og gott starfslið, sem Dulles sjálfur hefði skipað. Það mundi fært um að vinna þau störf, sem vinna þyrfti, í veikind- um utanrikisráðherrans, en auð- vitað mundi Eisenhower sjálfur hafa hönd í bagga með starfsem- inni í utanríkisráðuneytinu. (í dag ræddi Dulles í tíu mínútur við ritara sinn í síma um heims- vandamálin. Á morgun hefjast geislalækningarnar, og verður notað tæki, sem framleiðir millj. volta spennu. Dulles leið vel í dag eftir atvikum). Eisenhower var að því spurð- ur, þegar hann hafði rætt um utanríkisráðuneytið, hvort Dulles mundi fara frá. Hann svaraði því neitandi. Ég vonast til þess, að Dulles haldi áfram að gegna embætti utanrikisráðherra, sagði forsetinn, á meðan hann treystir sér. Og hann bætti við: — Ég þekki engan mann, sem hefur eins mikið vit á utanríkis- málum og jafngóða reynslu á þeim sviðum. Makarios Verkfall í Belgíu BRÍÍSSEL, 18. febr. — Náma- menn í Belgíu eru í verkfalli. Verkfallið mun breiðast út á morgun, því að landssamband námamanna, sem stjórnað er af sósíaldemókrötum, hefur ákveð- ið að allir námamenn landsins leggi niður vinnu á morgun, en þeir eru um 170 þús. — í dag gerðu fjölmörg iðnaðarmanna- félög samúðarverkfall með náma mönnum. Námamenn höfðu sig í dag mjög í frammi í syðsta hluta landsins, þar sem þeir unnu spjöll á járnbrautinni til Parísar. Verkfallið verður til umræðu í neðri málstofu þingsins á morgun og búast margir við pólitisku uppgjöri milli þingflokkanna. í stjórn eru kaþólskir og frjáls- lyndir, en kratarnir eru í stjórn- arandstöðu. Dagskrá Alh’mgis í DAG eru boðaðir fundir í báð- um deildum Alþingis kl. 1,30. Á dagskrá efri deildar eru tvö mál. 1. Tekjuskattur og eingarskatt ur, frv. 2. umr. 2. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, frv. 3. umr. Fjögur mál eru á dagskrá neðri deildar. 1. Listasafn Islands, frv. — 1. umræða. 2. Sauðfjárbaðanir, frv. — 1. umræða. 3. Áfengis og tóbakseinkasala ríkisins, frv. 1. umr. (Ef deildin leyfir). 4. Skipun prestakalla. frv. • 3. umræða. kæmi frá Evrópu í gærkveldi, var orðin meira en sólarhring á eft- ir áætlun. Flugvél þeirra, sém lagði upp til Bandaríkjanna í fyrrakvöld var 11 stundir á leið til Goose Bay á Labrador, en venjulega tekur það flug um 7 stundir. Hafa Loftleiðir þurft að hýsa tugi farþega næturlangt hér undanfarnar nætur vegna taf- anna. Lítil umferð hefur verið um Keflavíkurflugvöll að undan- förnu og Katalínubátarnir tveir frá danska sjóhernum, sem hing- að komu til leitar að Hans Hed- toft, hafa verið lokaðir inni í flug skýli alla tíð síðan. Segja má, að ekki hafi verið fært að opna skýlið. Flugstefnuvitinn á Suðurnesi skemmdist eina nóttina, er eld- ingu sló niður í vitann — og valda þessar skemmdir nokkrum erfiðleikum í aðflugi að Reykja- víkurflugvelli. Nýr bátur til Siglufjarðar SIGLUFIRÐI, 18. febr. — Laust eftir hádegi í dag kom hingað nýr bátur frá A-Þýzkalandi, Mar- grét SI. 4, 250 lestir að stærð og með 850 hestafla vél. Eigandi er Útver h.f., en framkvæmdastjóri þess er Árni Friðjónsson. Skip- stjórinn, sem sigldi bátnum hing- að upp og verður með hann i vet- ur, er Helgi Jakobsson, frá Dal- vík. Skipið var 5% sólarhring á leiðinni og fékk vont veður, eink- um frá Færeyjum hingað til lands, Skipið verður gert út héð- an á togveiðar í vetur. — Guðjón Enn meiri skemmd- ir á Douglasvélinni Douglasflugvélin Gunnfaxi, sem skemmdist vegna ofviðris á flugvellinum í Vestmannaeyj- um nú fyrir skemmstu varð enn fyrir skemmdum í fyrrinótt. Hún fauk að vísu ekki á loft, en hlið- arstýrið laskaðist mikið — og aðrar smáskemmdir urðu. Flug- vélin er nú með öllu stýrislaus og því lítt vænleg til langferða eins og stendur. Það kom fram í blaðinu í gær, að vel gæti verið, að frekar borgaði sig að kaupa nýja vél en að gera við þessa. Og hafa þær líkur nú enn styrkzt. Enn er afstaða Makaríosar óviss Sdgusagnir um, að hann sé andvígur samkomulaginu Lundúnum, 18. febr. í KVÖLD klukkan 8 var Kýpurráðstefnan kölluð sam- an hér í kvöltf til að ræða ný viðhorf í Kýpurmálinu eftir að talsmaður Grikkja hafði lýst því yfir, að habb væri komið í bátinn, þar sem Makarios væri sennilega ekki reiðubúinn að fallast á sam- komulag það, sem náðst hef- ur, Talsmaður Makariosar lýsti því hins vegar yfir, að þetta væri rangt. — Málin standa því þannig, að algjör- lega er óvíst um afstöðu erki- biskupsins til Kýpuráætlunar innar nýju. Talsmaður brezku stjórnarinn- ar sagði í kvöld, að samkomulag væri milli stjórna Bretlands, Grikklands og Tyrklands um lausn Kýpurdeilunnar, en reynt mundi verða að fá fulltrúa grísku og tyrknesku þjóðabrotanna á eyjunni til að fallast líka á þetta samkomulag. Eins og kunnugt er, lenti Menderes, forsætisráðherra Tyrk lands, í hræðilegu flugslysi í fyrradag, þegar hann var á leið til Lundúna að sitja Kýpurráð- stefnuna. Hann komst lífs af, en mun hafa fengið taugaáfall og hefur ekki enn getað tekið þátt í viðræðunum í Lundúnum. Fundurinn um Kýpur, sem boðað var til klukkan 8 í gær- kvöldi, stóð yfir í tvo tíma. Versto vcjur SANDGERÐI, 18. febr. — Undan- farið hefir verið hér versta veð- ur, og lítur enginn við sjó eins og er. f dag er útsynningur og foráttubrim. — Axel. Ekki náðist algjört samkomu- lag, en fréttamenn segja, að samningaviðræður hafi ekki heldur farið út um þúfur. Nú er nokkurt þóf um málið. Nýr fundur verður haldinn á morg un. .—• Aferoff, utanríkisráð- herra Grikkja, sagði eftir fundinn í gærkvöldi, að möguleikarnir á samkomulagi nú væru 50:50. Makarios, erkibiskup, var hinn eini, sem lét í ljós nokkra óánægju með sam- komulagsdrögin á fundinum í gærkvöldi. Þess er vænzt, að hann leggi fram tillögur sínar og álit á nýjum fundi í dag. Aferoff skoraði á erki- biskupinn að fallast á drögin að samkomulagi til þess að stofna ekki málinu í hættu. Biskupinn kvaðst líta svo á, að þetta væru úrslitakostir og sagðist vísa þeim á bug. Seinnihluta dags í gær sagði Makarios, að gríska stjórnin hefði ekki heimild til að gera neitt samkomulag fyrir hönd grískumælandi manna á Kýpur, því hann einn væri fulltrúi þeirra. Miklar skemi**'1^ á Bíldudal BÍLDUDAL, 18. febr. — Miklar skemmdir urðu hér í kauptúninu af völdum vatns, grjóts og aurs, er Búðagil og Gilsbakkagil hér fyrir ofan þorpið hlupu fram í gærkvöldi. Einkum urðu miklar skemmdir á götum í kauptúninu, sem grófust sundur í vatnsflóð- inu, og með flóðinu kom mikið af grjóti og aur, og olli það skemmdum á túnum og görðum. Einnig kom vatn í kjallara í nokkrum íbúðarhúsum á Bíldu- dal. I dag er hér mjög vont veð- ur, rok og rigning. Undanfarið hafði nokkur snjór legið á jörðu, þar til í gærmorg- un, er tók að rigna. Mun þá hafa myndazt stífla í gilunum, er olli hlaupi. f kvöld er aftur tekið að snjóa hér. --- Hannes. Særok gekk yfir Húsavík í gær HÚSAVÍK, 18. febr. — Allan þennan mánuð hefur verið hér ris jótt veður, og veðrabrigði hafa verið tíð og snögg. Veður þessi hafa ekki valdið tjóni fyrr en í morgun, að í suðvestanroki urðu dálitlar skemmdir á húsum. Járn fauk af þökum, og tvær stórar rúður brotnuðu hjá Kaupfélagi Þingeyinga. Veðrið var verst um áttaleytið í morgun eða um það leyti, sem margt fólk var að fara til vinnu sinnar. Stóðu menn varla í rokinu, og meiddust nokkrir, vegna þess að þeir fuku um koll. Munu meiðslin ekki hafa verið stórvægileg. Fylgdi veðrinu svo mikið sæ- rok, að það var sem rigning væri yfir svo til allan bæinn og alveg upp að fjallsrótum í norðanverð- um bænum. Rúður í gluggum eru svo sæbarðar, að glerið lítur út eins og það sé sandblásið. Sæ- rok er sjaldgæt hér i þessari átt. Veðrið fór að ganga niður um hádegið, og er nú orðið sæmilega gott. — Fréttaritari. Athugasemd frá skipstjóranum á Lagarfossi Herra ritstjóri: Viljið þér gera svo vel að birta fyrir mig eftirfarandi athuga- semd. í tilefni af grein í blaði yðar í dag viðvíkjandi 30 kössum af áfengi, sem varpað var í sjóinn af Lagarfossi, skal eftirfarandi tekið fram: Allir skipverjar, sem hlut áttu að máli, voru það heiðarlegir að skila þessu áfengismagni sjálfir persónulega á einn stað í skipinu, án þess að til leitar þyrfti að koma. Var því síðan varpað fyr- ir borð, eins og áður er getið. Reykjavík, 18. febrúar 1959. Óskar Sigurgeirsson. Krúsjeff stórorður, beitir hótunum LUNDÚNUM, 18. febr. — Krús- jeff flutti ræðu í gær (sjá frétt um blaðamannafund Eisenhow- ers annars staðar í blaðinu) og réðist harkalega á stefnu Vest- urveldanna í Berlínarmálinu. Hann sagði, að Rússar mundu ekki leyfa Vesturveldunum af halda uppi loftbrú til borgarinn- ar, þegar Austur-Þjóðverjar hefðu tekið við yfirráWum borg- arinnar af þeim. Þá sagði hann, að ef einhver byrjar að skjóta, þá muni það verða upphaf heims stríðs, því að svarað yrði í sömu mynt. Fréttamenn í Moskvu benda á, að í ræðunni hafi Krús- jeff gefið í skyn, að svo gæti farið, að Rússland og leppríkin geri sér friðarsamning við Aust- ur-Þýzka!and. Stjórnmálamenn á Vesturlönd- um segja, að hótanir Krúsjeffs séu liður í taugastríði Rússa gegn Vesturveldunum í sambandi við Berlínardeiluna og Þýzkalands- málið allt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.