Morgunblaðið - 19.02.1959, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 19.02.1959, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 19. febr 1959 WORCVNBLAÐIÐ 13 ÁfengisverzluninogTóbakseinka- salan gerðar að einu fyrirtæki í GÆR var útbýtt á Alþingi frumvarpi til laga um Afengis- og tóbakseinkasölu ríkisins. — Flm.: Magnús Jónsson og Pétur Ottesen. — Frv. er í 16. grein- um. 1. gr. frv. er á þessa leið: Ríkissstjórnin rekur verzlun, sem nefnist Áfengis- og tóbaks- einkasala ríkisins. Skal hún ann- ast innflutning og sölu á þeirri vöru, er ríkisstjórnin hefur rétt til einkasölu á samkvæmt 2. gr., svo og tilbúning þeirrar vöru, er um getur í lögum þessum. I 2. gr. segir: Ríkisstjórnin ein má flytja Gerðftir Helgadóttir Magnús Jónsson og Pétur Ottesen flytja frv. þess efnis á Alþingi þetta hingað frá útlöndum eftirtalda vöru: 1. Áfengi og vínanda, sem leyft er að flytja til landsins og í er meira en 2Vi% af vínanda að rúmmáli. 2. Tóbak og tóbaksvörur hvers konar. 3. Eldspýtur og vindlingapappír, allar tegundir. 4. Ilmvötn, hárvötn, munnvötn, andlitsvötn, bökunardropa, kjarna (essensa) til iðnaðar og pressuger. Sömuleiðis er ríkisstjórninni heimilt að framleiða ofangreinda vöru. I greinargerð fyrir frv. segir á þessa leið: Arið 1950 var lagt fram á Al- þingi stjórnarfrv. um að sameina í eina stofnun Áfengisverzlun ríkisins og Tóbakseinkasölu rík- isins. í greinargerð með því frv. segir m. a.: „Ríkisstjórnin hefur leitazt við að finna leiðir til þess að draga úr kostnaði við ríkisreksturinn og gera hann hagfelldari. Hefur verið skýrt frá nokkrum ráð- stöfunum, sem ríkisstjórnin hef- ur ýmist gert í þessu skyni eða mun gera tillögur um. Ein þeirra er sú að sameina þessi tvö fyrir- Cerður Helgadóttir í þýxku sjónvarpi í dag Sést þar vinna að fyrsta Skálhalts- glugganum I DAG sendir sjónvarþið í Köln út um Þýzkaland þátt um ís- lenzka listakonu við vinnu sína. Það er myndhöggvarinn Gerður Helgadóttir og listaverkið, sem hún sést vinna að, er fyrsti glugg- inn í Skálholtskirkjuna. Eins og kunnugt er hlaut Gerð- ur fyrstu verðlaun í samkeppni, sem fram fór milli listamanna hér heima um tillögur að skraut- glugga í hina nýbyggðu kirkju, en tveir danskir kaupsýslumenn ætla að gefa alla gluggana í kirkj una. Og nú er Gerður semsagt að byrja á verkinu, sem unnið verð- ur í þekktu gluggagerðarverk- stæði í Linnich, skammt frá Köln, en eigandi þess heitir Oidtmann. Tildrög þess að sjónvarpið í Köln fékk áhuga á málinu eru þau, að Gerður fór fram á að fá sjálf að mála á glerið, til að vera viss um að fá þann blæ sem hún óskaði eftir, en hún hefur tals- verða reynslu í þessum efnum, vann lengi í glergluggagerð í París og hefur m. a. gert hinn stóra skrautglugga í Saurbæjar- kirkju á Hvalfjarðarströnd og tvo glugga í Elliheimilið í Reykja vík. Hún fór því til Linnich, til að mála fyrsta gluggann, og þeg- ar sjónvarpið í Köln komst á snoðir um það, var sendur heill hópur af myndatökumönnum á vettvang. Þeir þustu inn í verk- stæðið með kvikmyndavélar, lampa og annað hafurtask og unnu í fimm tíma við að mynda Gerði meðan hún málaði glerið og höfðu viðtal við hana. í dag á svo að sjónvarpa þættinum. Því má skjóta hér inn í, að morguninn sem Gerður ætlaði að taka lestina frá Linnich til Par- ísar, tafðist hún við að líta í síð- asta sinn eftir Skálholtsmyndinni, og missti af lestinni. En sú lest rakst á aðra, og fórust nokkrir menn og fjölmargir slösuðust, eins og áður hefur verið getið í fréttum. Gerður Helgadóttir er búsett i Paris, þar sem hún á litla vinnu- stofu, og mun hún á næstu mán- uðum vinna þar að uppdráttum að gluggunum í Skálholtskirkju. Annað verkefni á hún fyrir höndum í sambandi við kirkju- skreytingu. Hún hefur verið ráð- in til að gera IVz m. háan kross, sem nota á til skreytingar í kirkju eina í Þýzkalandi. Hafði prestur kirkjunnar séð frummynd af grip, nánar tiltekið líru, sem Gerður smíðaði til verðlauna- veitingar á tónlistarhátíð á Ítalíu fyrir einu eða tveimur árum. Varð hann svo hrifinn af líru- myndinni, að hann kom því til leiðar að listakonan yrði fengin til að gera krossinn í kirkjuna. tæki, svo sem frumvarp gerir ráð fyrir. Telja menn sig mega vona, að af þessu leiði sparnað í beinum rekstrarkostnaði stofnananna. Frumvarpinu er ætlað að koma í staðinn fyrir þau lög, sem nú eru í gildi um þessar tvær stofn- anir. Eru því aðalatriði gildandi lagaákvæða um áfengisverzlun og tóbakseinkasölu tekin upp I frumvarpið, en þó voru ákvæðin endurskoðuð í samráði við for- stjóra þessara stofnana og fengna reynslu. Breytingar, sem gerðar eru á einstökum atriðum, eru ekki svo veigamiklar, að ástæða sé til að rekja þær í einstökum atriðum í athugasemdum. Höf- uðatriði frv. er að sjálfsögðu sameining þessara tveggja fyrir- tækja.“ Á næstsíðasta þingi flutti flm. þessa frv. og þm. N-ísf. till. til þál. um sameiningu þessara tveggja stofnana. Var sú tillaga flutt með hliðsjón af því, að þá losnaði framkvæmdastjóra- staðan við annað fyrirtækjanna og þvi hentugt tækifæri til að sameina fyrirtækin. Töldu flm. ekki ósennilegt, að þáverandi fjármálaráðherra, sem einmitt stóð að flutningi frv. um sam- einingu fyrirtækjanna 1950, mundi nú vilja nota tækifærið til að koma þessari sparnaðartil- lögu í framkvæmd, en reyndin varð önnur og tillagan náði ekki samþykki. Þar sem einmitt nú virðist mikill áhugi á að' freista allra úrræða til þess að draga úr út- gjöldum ríkissjóðs, hafa flm. þessa frv. talið rétt að taka upp frv. frá 1950 um sameiningu þess- ara tveggja ríkisstofnana, og er það því endurflutt hér efnislega óbreytt. Mænusóttarbólusetning. — Mænusóttarbólusetning í Reykja- vík fer enn fram í Heilsuvernd- arstöðinni við Barónsstíg alla þriðjudaga kl. 4—7 e. h. — Sér- staklega er vakin athygli þeirra Reykvikinga, sem aðeins hafa fengið fyrstu, eða fyrstu og aðra bólusetningu, á því að rétt er að fá allar 3 bólusetningarnar, enda þótt lengra líði á milli en ráð er fyrir gert. Þróftur rœðir hagsmuna- mál sín FRAMHALDSAÐALFUNDUR Vörubílstj órafélagsins Þróttar var haldinn siðastliðinn sunnudag. Fundurinn var einn sá fjölmenn- asti sem haldinn hefir verið í félaginu. Á fundinum voru gerðar fjöl- margar ályktanir sem stjórn fé- lagsins bar fram, m. a. var sam- þykkt áskorun á bæjarstjórn Reykjavikur varðandi skiptingu á allri vörubílavinnu sem Reykja víkurbær og bæjarfyrirtækin kaupa út, og að félaginu verði sköpuð aðstaða til að fylgjast með þeirri vinnuskiptingu. Tillagan, sem var samþykkt að afloknum ! mjög fjörugum og hörðum um- ræðum með 102 atkv. gegn 48, I hljóðar svo: | „Framhaldsaðalfundur Vöru- bílstjórafélagsins Þróttar, hald- inn sunnudaginn 17. febrúar 1959, samþykkir að setja fram þá J áskorun til bæjarráðs og bæjar- stjórnar Reykjavíkurbæjar, að nú þegar verði allri vörubílavinnu sem bærinn og bæjarfyrirtækin kaupa út, skipt jafnt millí þeirra félagsmanna Þróttar sem skráðir eru atvinnulausir hverju sinni. Jafnframt setur félagið fram þá ósk, að því verði veitt aðstaða til að fylgjast með framkvæmd vinnuskiptingarinnar.“ Þá var einnig gérð samþykkt varðandi akstur til Keflavíkur- flugvallar, á þá lumj að frá deg- inum í gær er félagsmönnum Þróttar, sem þennan akstur stunda, óheimilt að taka á bif- reiðar sínar meiri hlassþunga en 7 tonn, og sama bifreið skal að- eins fara eina ferð á dag. Einnig var samþykkt svehljóð- andi áskorun á ríkisstjórnina og verðlagsyfirvöldin: „Framhaldsaðalfundur Vöru- bílstjórafélagsins Þróttar, nald- inn sunnudaginn 15. febrúar 1959, samþykkir að skora á ríkisstjórn- ina að hlutast til um að nú begar verði framkvæmd lækkun á benz- íni og brennsluolíu, í samræmi við þær lækkanir sem fram- kvæmdar hafa verið á gjaldtöxt- um vörubifreiða. Jafnframt skorar fundurinn á verðlagsyfirvöld landsins, að herða til muna eftirlit með verð- lagi bifreiðavarahluta." Auk nefndra tillagna og áskor- ana voru sem fyrr segir, sam- þykktar fjölmargar tillögur og ályktanir frá stjórn félagsins, sem allar miða að lagfæringu frá því ástandi, sem nú ríkir innan stéttarinnar. Rvik, 17/2. 1959. Vörubílstjórafélagið Þróttur. STÚ LKU R óskast til starfa í Dósaverksmibjunni h.f. Borgartúni 1 — Sími 12085 Baðvatnsgeymar ’TDEAL" 100, 150 og 200 lítra fyrirliggjandi. J. Þorláksson og Morðmann h.f Skúlagötu 30 — Bankastræti 11. Plast — gólfdúkur Sérstaklega sterkur og góður á eldhús, stiga, bað- herbergi og skrifstofur fyrirliggjandi. J. Þorláksson og IVorðmann h.f Bankastræti 11. Grœnmeti þurkað SÚPUJURTIR R A U Ð K Á L LAUKUR GULRÆTUR Blandað GRÆNMETI BIÁBER Eggert iiristjánsson & co h.f símar 1-14-00. einangrunarplötum Birgðir fyrirliggjandi Mars Trading Co. h.f. Sími 1-73-73 - Klapparstíg 20. Czehoslovan Ceramis Prag Einangrið hús yðar með WELLIT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.