Morgunblaðið - 22.02.1959, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.02.1959, Blaðsíða 1
*!4 síðuff M. árgrangur 44. tbl. — Sunnudagur 22. febrúar 1959 PrentsmiSja MorgunblaSshui Macmillan er kominn í opin- bera heimsókn fil Moskvu Misskilningur milli stórveldanna gæti orsakað styrjöld, sagði hann i ræðu i gær Land Dickens er annað en Bretland nútímans IiUndúnum og Moskvu, 21. febr. (Reuter) MACMILLAN og föruneyti kom til Moskvu í morgun og var brezka forsætisráðherr- anum vel fagnað. í för með honum eru Selwyn Lloyd, ut- anríkisráðherra Bretlands, að stoðarmenn og um 100 frétta- menn. Sagt er, að Rússar muni afnema ritskoðun á fréttaskeytum fréttamann- anna, meðan á heimsókninni stendur. — Heimsóknin mun standa yfir í 10 daga. „Gerum okkar bezta" Macmillan sagði m.a. á flug- vellinum, skömmu áður en hann lagði af stað í þessa Rússlandsför sína, að hann mundi ekki fara til Sovétríkjanna í því skyni að semja þar um deilumálin, því bann hefði ekki umboð til þess, heldur mundi hann kappkosta að kynnast sjónarmiðum rússnesku leiðtoganna, því að nauðsynlegt væri, að gagnkvæmur skilningur ríkti þjóða í milli á slíkri öld kjarnorku og vetnisvopna, sem nú er. Forsætisráðherrann sagði, að persónulegar viðræður væri mjög mikils virði í sambandi við lausn alþjóðlegra deilumála. Hann sagði, að för sín til Sovétríkj anna væri könnunarför. Hann væri þess fullviss, að báðir aðilar vildu frið og nauðsynlegt væri að kanna, hvernig bezt væri hægt að stuðla að því, að friður héld- ist í heiminum. Ég veit ekki, hélt hann áfram, hversu vel tekst til í þessari ferð, en við munum reyna að gera okkar bezta. Ræða Krúsjeffs Þegar Macmillan gekk út úr þotunni á Moskvuflugvelli, var hann fyrsti brezki forsætisráð- herrann, sem kemur til Sovét- ríkjanna á friðartímum. Krús- jeff, forsætisráðherra Sovétríkj- anna, var meðal þeirra, sem tóku á móti Bretunum á flugvellinum. Forsætisráðherrarnir horfðu á 100 hermenn úr Rauða hernum, sem gengu gæsagang fram hjá þeim, en að því búnu tók Krús- jeff til máls. Hann lagði áherzlu á friðarvilja Sovétríkjanna og sagði, að Sovétstjórnin vildi betra og nánara samband við brezku stjórnina. Þá sagðist Krús jeff vonast til þess, að þeim Mac- millan yrði eitthvað ágengt í því að leysa alþjóðleg deilumál Til þess að undirstrika orð sín um friðarvilja Rússa sagði Krúsjeff, að þeir væru nú önnum kafnir við að byggja upp nýtt kommún- Færcyingar vilja flugsamgöngur KAUPMANNAHÖFN, 20. febr. — Einkaskeyti til Mbl. — Lögþingið ræðir nú tillögu um að þess verði farið á leit við dönsku stjórnina, að flugsamgöngum verði komið á við Færeyjar — í sambandi við fyrirhugaðar flugsamgöngur við Grænland. Bent er á í tillögunni, að á Vogey sé flugvöllur frá styrj- aldarárunum og kostnaðarlítið sé að lagfæra hann í samanburði við áður framkomnar hugmyndir um að byggja flugvöll á Sandey. istíkst þjóðfélag og til þess að það mætti takast, yrði íriður að haldast í heiminum. Land Dickens Macmillan svaraði ræðu Krús- jeffs nokkrum orðum. Hann kvaðst vona, að heimsókn sín mundi gefa Rússum gleggri hug- myndir um Bretland en þeir nú hefðu. Ég býst við því, sagði hann ennfremur, að kynnast hér landi, sem er eins ólíkt Rússlandi eins Framh. á bis 23. Macmillan Hver verða örlög Grivasar? Búizt við, að hann taki á móti Maka- riosi við komuna til Kýpur NICOSIA, 21. febr. (Reuter). — Sir Hugh Foot, landstjóri Breta á Kýpur, lofaði í dag, að gera allt, sem í hans valdi stendur til að flýta fyrir því, að allar öryggisreglur á Kýpur verði numdar úr gildi. Einnig sagði hann, að gerð yrði gangskör að því að leyfa Makaríosi erkibiskupi að koma til eyjarinnar, eins fljótt og auðið yrði. — Ekki dags töf Foot sagði á blaðamanna- fundi í Nicosia í dag, en þang að er hann nýkominn frá Lundúnum, að ekki verði dreg ið degi lengur en nauðsyn krefur að stofna lýðveldi á Kýpur og kvaðst hann vona, að það yrði í brezka samveld- inu. Aftur á móti sagðist Aver off, utanríkisrá'ðherra Grikkja í útvarpsviðtali í gær, ekki hafa hugmynd um, hvort eyj- Manchester Uiiited aftur á toppnum LONDON, 21. febr. — Knatt- spyrnuliðið Manchester United, sem missti 8 af leikmönnum sínum í flugslysi í Þýzkalandi fyrir ári, hefir nú komizt á topp- inn aftur með því að vinna í dag Wolverhamton með 2 mörkum gegn 1. Hinir ungu leikmenn „Busby Babes“ skoruðu sigur- markið þegar 30 sekúndur voru eftir af leik. Sýndi hin snögga framlína sérstaklega góðan leik, einkum Bobby Charlton, sem slapp í flugslysinu. Er hann nú talinn ein bezta skytta Englands, en það var hann, sem skoraði sigurmarkið, og ætluðu hinir 62 þúsund áhorfendur þá bókstaf- lega af göflunum að ganga. Ávarp til íslendinga SKAMMT hefir orðið milli hörmulegra sjóslysa undanfarna daga, er togarinn Júlí og vitaskipið Hermóður hafa farizt með allri áhöfn, alls 42 mönnum. Hafa þessir atburðir vakið sái-ustu sorg á mörgum heim- ilum og auk þess svipt fjölda manns fyrirvinnu. Islenzka þjóðin hefir jafnan verið fús tii að sýna hlut- íekningu sína í verki við slíkar aðstæður, og mun svo vissu- lega enn. Slysabætur ríkisins til aðstandenda ná skammt og því brýn þorf á meiri hjálp til margra heimila, sem eiga við erfið kjör að búa. Vér undirritaðir viljum vinna að því, að fjársöfnun verði hafin með þjóðinni, til styrktar þeim, sem erfiðast eiga, enda hafa oss þegar borizt óskir um það, og vér vitum vilja þjóðarinnar. Prestar eru vinsamlega beðnir þess, að veita gjöfum við- töku, ennfremur blöð landsins. Biskupsskrifstofan, Bæjar- útgerðin í Hafnarfirði, Vitamálaskrifstofan og vér undir- ritaðir munum einnig veita gjöfum viðtöku. Reykjavík, 21. febrúar 1959 an yrði í brezka samveldinu. Það er undir bræðrum mínum á Kýpur komið, sagði ráð- herrann. Asmundur ðuðmundsso isson .biskup Islsnds Aðalsteinn ðullusson vltamálastjóri Garöar íorsteinsaon prófastur ádo^f Bjí^nsson formaour útgeróarráos íœjarútg. HafnarfJ. Petur Sigfnrðsson forst J. landhelgisgajsl. Grivas Blóðsúthellingar í 4 ár Öryggisreglur hafa gilt á Kýp- ur síðan í nóvember 1955, en á eyjunni hafa verið látlausar blóðs úthellingar undanfarin fjögur ár eins og kunnugt er. í marzmán- uði 1956 var Makaríos rekinn i útlegð og hefur ekki komið til eyjarinnar síðan. Örlög Grivarar? Food sagðist ekkert vita um það, hver yrðu örlög Grivasar, foringja uppreisnarmanna EOKA en uplýsti, að ekki hefði honum verið veitt sakaruppgjöf enn sem komið er að minnsta kosti. Gert er ráð fyrir, að Grivas, sem nefndur hefur verið „skuggi sext- ugt grísks liðsforingja", muni e. t. v. koma ofan úr fjöllunum, þegar Makaríos kemur til Kýpur og fagna honum. Er gert ráð fyrir, að Makaríos komi upp úr næstu helgi. Hann hyggst dveljast í Lundúnum þangað til. • Averoff var spurður um það í fyrrnefndu útvarpsviðtali, hvað yrði um Grivas. Hann kvaðst ekki vita um það, en bætti því við, að hann væri þess fullviss, að Bretar litu hann aðdáunar- augum fyrir það, hve oft hann hefði leikið á þá, eins og sýndi sig í því, að þeir hefðu aldrei getað haft hendur í hári hans þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Framh. á bls. 23. Höfðingleg gjöf fil íslands Varpar Ijósi á etna- hagslífið ettir 1800 BREZKA stórblaðið Daily Telegraph skýrði frá því í síð- ustu viku, að Landsbókasafn- inu í Reykjavík berist um þessar mundir höfðingleg gjöf frá Bretlandi. Hér er um að ræða handrit Sir Henrys Hollands, sem heimsótti ísland 1810. — Er handritið á leiðinni til lands- ins. Gefandi er sonarsonur Sir Henrys, Mr. David Holland, sem starfar við bókasafn brezka þingsins. Sir Henry skrifaði um efna- hagslífið á íslandi og viðskipti og segir blaðið, að athuganir hans hafi mikla sögulega þýð- ingu. Blaðið segist hafa þessar upplýsingar frá gefandanum sjálfum. Sunnudagur 22. febrúar 1959 Efni blaðsins er m.a.: BIs. 3: Þjóðarsorg (Kirkjuþáttur). Úr verinu. — 6: Heimsókn í KrabbameinsstðV- ina. — 8: Reglur um vernd mannslífa á hafinu úreltar. — 10: Fólk í fréttunum. — 11: Bæjarmálaræða Þorvalds tt. Kristjánssonar. Forystugreinin: Hvað er „vinstri“-stjórn? Kvöldið sem Hans Hedtoft fórat (Utan úr heimi.) Reykjavíkurbréf. — 15—16: Barnalesbók. — 22: Skákþáttur. — 12: — 13:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.