Morgunblaðið - 22.02.1959, Side 6

Morgunblaðið - 22.02.1959, Side 6
MORCTiy TiL AÐIÐ Sunnudagur 22. febr. 1959 legt að fólk sem hefur fastsett tíma til læknisskoðunar, A'aeti á tilsettum tíma. Ef fólk mætir ekki einhverra orsaka vegna, veldur slíkt miklum óþægindum fyrir lækna og annað starfslið og það fer ekkj hjá því, að slíkt hefur í för með sér töluverðan auka- kostnað. Fyrst framan af var töluvert af fólki hér á biðlista hjá okk- ur. En starfsskilyrðin hafa verið bætt og aukin, svo fleiri komast- nú að en áður. Er nú svo komið, að fólk, sem til stöðvarinnar leit- ar, þarf nú að heita má ekkert að bíða unz rannsóknin getur farið fram. Læknarnir töldu það ekki fara milli mála að almenningur hefur áhuga á þessari nýju starfs^mi. — Er öruggt að hægt sé að finna krabbamein? Að sjálfsögðu er ekki hægt a3 ábyrgjast að nein skoðun sé ein- hlít, sögðu þeir. Við vonum auð- vitað að aukin reynsla og bætt starfsskilyrði megi fullkomna enn betur þetta starf okkar hér. Og nú gátu læknarnir þess að frá því stöðin tók til starfa hefðu um 800 manns leitað þangað. — Hve mörg krabbameinstil- felli hafa fundizt? Það er í raun og veru ot snemmt að fara með slíkar tölur, því til þess þarf tala þeirra, er Framh. á bls. 23. Starfsfólk leitarstöðvar Krabbameinsfélags fslaids. Við smásjárnar á borðinu sitja Sigríður Pétursdóttir, til vinstri, og Lovísa Bjarnadóttir. Aí baki þeirra eru læknarnir Gunnlaugur Snædal og Richard Thors, en á milli þeirra er spjaldskránaldarinn, Halldóra Thoroddsen. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) Stutt kvöldheimsókn í leit- arstöð Krabbameinsfélagsins Merkilegt starf til aukinnar heilsu- verndar er miðast við að finna krabbamein á byrjunarstigi KRABBAMEIN er nú orðin helzta dánarorsökin hér á landi. Fyrir allmörgum árum var stofn- að Krabbameinsfélag Reykjavík- ur. Verksvið þess var fyrst og fremst það, að reyna að sporna við hinni ægilegu sókn þessa ill- kynjaða og mannskæða sjúk- dóms. Þetta félag átti frumkvæð- ið að því, að koma á fót sérstakri krabbameinsleitarstöð, sem allur almenningur gæti leitað til, og látið sérfræðiriga framkvæma læknisskoðun með það fyrir aug- um að reyna kom í veg fyrir- að krabbamein gæti bú- ig um sig í fólki. Þess eru mýmörg dæmi, að fullfrískt fólk hefur allt í einu þuift að horfast í augu við þa stað- reynd, að vera haldið krabba- meini, á svo háu stigi að batavon »é tvísýn. Slíkri leitarstöð hefur verið komið upp hér í bænum. í fyrstu var það Krabbameinsfélag Reykjavíkur sem hana rak, síðar tók Krabbameinsfélag ísiands við rekstri hennar. Þar starfa nú tveir læknar, þeir Gunnlaugur Snædal og Richard Thors. Á rannsóknarstofu stöðvarinnar starfa tvær sérmenntaðar kon- ur, Lovísa Bjarnadóttir, er vinnur við allar almennar rannsóknir með meiru og frú Sigríður Pétursdóttir, sem fram- kvæmir frumurannsóknir. Fyrir nokkrum dögum brá ég mér ásamt Ijósmyndara Mbl. Ól. K. M. í stutta heimsókn í stöðina. Hún er .11 húsa í norðurálmu Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíginn. Ég hafði fyrir nokkru lagt drög að því, að fá að koma í heimsókn og ræða við læknana. Það er svo annað mál, að læknar yfirleitt sýna blaða- mönnum fullmikið tómlæti. En «f, og þegar þeir fást til þess að ræða við blaðamenn, kemur skiljanlega strax í ljós að þeir sitja inni með margt og mikið er almenning varðar. Svo var einnig í þetta skipti, er ég ræddi við þá collegana Gunnlaug og Richard. Þeir kváðu tilganginn með starfi stöövarinnar vera þann, að finna krabbamein á byrjun- arstigi. Við leggjum áherzlu á að rannsaka það fólk sem við mæt- um í dag á götunum, sem ekki veit annað, en að það sé fílhraust og muni ciga fyrir höndum langa starfsævi og góða heilsu. Því beinist athygli okkar að þessu fólki, að alla áherzlu verður á það að leggja, að sé um krabba- mein að ræða, þá verður að kom- ast fyrir meinsemdina meðan hún er á byrjunarstigi og krabba- meinið læknanlegt. Möguleik- arnir fyrir varanlegri lækningu minnka eftir því, sem lengra líð- ur frá byrjun æxlisvaxtarins. Þessi leitarstöð, sem læknarn- ir Ólafur Bjarnason og Alfreð Gíslason unnu svo ötullega að því að koma ipp, er ekki rekin með hagnað fyrir augum. Fólk greiðir sanngjarnt verð fyrir læknissitoð . unina, en þann kostnað, sem um- fram er, borgar Krabbameinsfé- lagið. — Koma þeir hingað helzt, sem kenna sér lasleika? Ekki kváðu lækarnir svo vera. Þangað leitar fólk á ýmsum aldri, því krabbameinið er ekki bundið . við fullorðið fólk. Þangað leitar j heilbrigt fólk, sem kemur af eigin j hvötum, vegna þess að það lang- ar til að fá nokkra vitneskju um heilsu sína. Góð heilsa er undir- staða allrar lífshamingju. Því er í fyllsta máta eðlilegt og sjálf- sagt fyrir fólk að láta skoða sig reglulega í þessari leitarstöð Krabbameinsfélagsins. Þetta á | ekki sízt við, þegar fólk tekur að reskjast. Gangur rannsóknanna í leitar- stöð Krabbameinsfélagsins er í stuttu máli sá, að í skrifstofu félagsins er í samráði við spjaid- skrárhaldara, ungfrú Halldóru Thoroddsen, fastákveðinn tíminn, er viðkomandi skal mæta til rann sóknar. í fyrra skiptið fara fram ýmsar grundvallarrann- sóknir. Á seinni skoðunardegi ræða læknarnir ítarlega við þann sem skoða á, og fer þá einnig fram nákvæm líkamsskoðun. Ef ástæða þykir til, fara siðar fram mynda tökur og aðrar sérstakar rann- sóknir og er slíkt gert í samráði við heimilislækni viðkomandi, sem og ef um áframhaldandi rannsóknir er að ræða, eða ef vísa þarf viðkomandi til séfræðinga. Þar sem hver starfsdagur leitarstöðvarinnar er fast ákveð- inn fram í tímann, frá degi til dags, er skiljanlega nauðsyn- Lovísa Bjarnadóttir mælir blóðþrýsting. [ skrifar úr daglega lífina Hörmuleg sjóslys. ASjómannadaginn í fyrra voru sjö stjörnur í fánanum, sem sjómenn báru til minningar um þá félaga sína, sem farist höfðu á árinu. Nú, rúmum átta mánuðum seinna, hafa 47 vaskir drengir látið lífið í baráttunni við Ægi. Á hálfum mánuði hafa 42 menn horfið fyrirvaralaust í sjóinn, auk eins sem lét lífið af slysförum um borð í skipi sínu. Þetta er til- finnanlegri blóðtaka smárri þjóð en ókunnugir gera sér ljóst. Þetta samsvarar því, að Bandaríkja- menn hefðu misst í einu 43000 manns, Frakkar rúmlega 10.000 eða Englendingar allt að 10.000. En við íslendingar vitum vel hví- líkt afhroð þjóðin hefur goldið við missi 43 hraustra manna á bezta aldri. Og öll þjóðin sam- hryggist ástvinum hinna látnu, því þeirra er að sjálfsögðu miss- irinn mestur. Einu sinni áður á þessari öld hafa jafnmargir sjómenn látið lífið í einu. Það var í Hala- veðrinu mikla 8. febrúar 192ö. Þá fórust 74 menn í aítaka- veðri af landnorðri, sem gekk yfir lar.dið vestanvert, en togararnir voru flestir á veiðum á Halamiðum. Tveir togarar komu aldrei aftur, Leifitr heppni úr Reykjavík og enski togarinn Robertson, sem gerður var út frá Hafnarfirði. Með Leifi fórust 33 menn, en hirium 35, þar aí 29 íslenzkir. í sama veðri fórst einnig vélbáturinn Sólveig frá Reykjavík, sem strandaði á Staf- nesskerjum. Með honum fórust 6 menn. Það er einkennilegt, að Ný- fundnalandsveðrið, sem varð ís- lenzku skipi svo örlagaríkt, skuli einmitt hafa borið vpp á sama mánaðardag. í rauninni er það þó ef til vill ekki eins undarlegt og í fljótu bragði virðist. Febrúarmánuður hefur löngum verið íslenzkum sjómönnum þyngstur í skauti Á þessari öld hafa orðið fimm meiri háttar sjóslys i þeim mán- uði fyrir utan þau tvö, er þegar hefur verið getið. Fiskiskipið Geir fór frá Hafnarfirði 11. febr. 1912 og kom ekki aftur. Með því fórust 27 menn, þar af 15 úr Hafn- arfirði. í óveðrinu, sem geisaði hér við land dagana 27. febrúar til 1. marz árið 1940 fórst togar- inn Gullfoss með 19 manna áhöfn. 2. desember 1941 fórst Sviði frá Hafnarfirði með 25 manna áhöfn og 17. febrúar 1943 fórst vélskipið Þormóður út af Stafnesi með 31 mann, þar af voru 22 frá Bíldu- dal. Desembermánuður hefur einnig reynzt hættulegur mánuður ís- lenzkum skipum, eins og dæmin sanna. í aftakaveðri í desember- byrjun árið 1930 hvarf togarinn Apríl á rúmsjó með 18 manna áhöfn og fjórtánda desember 1935 fórust 23 menn á fimm smábátum eða tók út af skipum sínum í fárviðri og í desember- lok árið 1944 fór Max Pember- ton á veiðar með 29 manna áhöfn og kom ekki aftur. Þó þessir tveir mánuðir virðist hafa orðið skipum okkar hættu- legastir það sem af er þessari öld, er að sjálfsögðu von á hættu- legum veðrum alla vetrarmánuð- ina og langt fram á sumar. í ofsaveðri 7. apríl 1906 fórust 68 sjómenn. Tvö þilskip fórust við Mýrar með 48 manna áhöfn, en þau hétu Emilie og Sophie Wheatley, og sama dag gerðist sá hörmulegi atburður að ekki reyndist unnt að bjarga 20 skips- verjum af þilskipinu Ingvari, sem strandaði á Viðeyjarsundi, steinsnar frá Reykjavík. Og 13. maí 1922 fórust þrjú skip í voðaveðri, Samson frá Siglu firði, Maríana frá Akureyri og Alden frá Akureyri. Fór ust þar 34 menn. Af skipum sem farizt hafa í haustveðrunum má nefna togarann Ólaf, sem fórst á Halamiðum 2. nóv. 1938 með 21 mann innanborðs og togarann Jón Ólafsson, sem hyarf með 13 manna áhöfn 21. okt. 1942. Þessi þungbæru slys rifjast upp, þegar enn einu sinni er höggvið skarð í sjómannastétt okkar. Fyrsti góudagur. Idag er fyrsti góudagur, konu. dagurinn, eins og hann er stundum kallaður. Fyrsta þorra- dag var frá því sagt hér í dálk unum hvernig bóndinn átti að fagna þorra hér áður. Á góudag átti húsfreyjan að fagna góu á sama hátt, hoppa fáklædd kring um bæinn og heilsa góu með vísu. í sambandi við vísuna, sem fylgdi rabbinu um þorra gamla, hefur Velvakanda borizt bréf frá konu, sem hafði lært sömu visu þannig: Þurr skyldi Þorri, þey-söm Góa, votur Einmánuður, þá mun vel vora.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.