Morgunblaðið - 22.02.1959, Síða 10

Morgunblaðið - 22.02.1959, Síða 10
10 MORCUNBLAÐIÐ Sunnudagur 22. febr. 1959 Narriman, fyrrverandi drottn- ing af Egyptalandi, opnaði ný- lega snyrtistofu í Beirut i Líban- on. Hún auglýsir snyrtistofu sína á eftirfarandi hátt: — Jafnvel vandlátustu hefðar- frúr Parísarborgar myndu ekki skammast sín fyrir útlit sitt eftir að hafa sótt snyrtistofu mína heim. Narriman er sjálf mjög falleg kona, og það eitt er ágætisaug- lýsing fyrir starfsemi hennar. N.k. miðvikudag fá brezkir út varpshlustendur tækifæri til að heyra aftur ræðuna, sem Hertog- in af Windsor flutti þann 11. des. 1936, er hann sagði • af sér konungdómi. í 23 ár hefir þessi sögulega upp- taka verið geymd í safni brezka útvarps- ins, en henni verður nú út- varpað að nýju í dagskrárlið, er nefnist Glefsur úr dagskrá útvarpsins 1936. Italski skáldsagnahöfundurinn Alberto Morav.ia sagði nýlega er rætt var um hugmyndir og hugmyndaauðgi manna: — Það er nauð synlegt að taka á móti hugmynd um sínumásama hátt og tekið er á móti góðum gestum •— vin- gjarnlega. En samt sem áður verður maður að vera ákveðinn í að láta þær ekki kúga sig. H afnarfjörður Börn, unglinga eða fullctrðið fólk vantar til blaðburðar á Hvaleyrar og Hólabraut Talið strax við afgreiðsluna Álfaskeiði 4. Sími 50930. ívrrr'" Nýju tékknesku postulíns stellin í gerð- inni CLEOPATRA eru smekkleg og vönduð. Þau eru fáanleg í margskonar nýtízku skreytingum. CLEOPATRA matarstelL CLEOPATRA kaffistell. Umboðsmenn: JÓN JÓHANNESSON & CO. Sími 15821 Reykjavík. ©t < P fPIAfí n f CZECHO- SIOVAKIA Karim, Aga Khan IV. er við nám í Harvard. I miðsvetrarleyf- inu brá hann sér til Gestaad í Sviss til að*fara á skíði. Þar hitti hann Sylvíu Casabiancas. Eins og menn munu minnast var mik- ið talað um kunningsskap þeirra var mikil listsýning í París, að Utrillo stóð þéttkendur við inn- göngudyrnar, veifaði í sífellu verkum sínum framan í gestina, sem voru að koma á sýninguna og hrópaði: í fréttunum i ——————————— Sylvíu og Karims, er þau kynnt- ust fyrir ári eða svo. Myndin er tekin, er þau voru að fara í skíða lyftu upp í fjöllin. Karim bregð- ur hendinni fyrir andlitið. Sól- skinið er bjart, og hann er orð- inn þreyttur á að láta blaðaljós- myndara taka af sér myndir. I sambandi við sýningu á verk um Utrillos, sem nýlega var stofn að til í París, hefir rithöfundur- inn Roger Dorgeles sagt eftir- farandi söngu: Eitt sinn bar svo við, er haldin — Þið g e t i ð fengið þessa fyr ir 100 sous. Það er miklu lægra verð en á nokkru verki, sem er þarna inni! Hann seldi enga mynd. Ekki er ólíklegt, að ýmsir þeirra, sem gengu framhjá honum án þess að líta við verk- um hans, nagi sig nú í handar- bökin fyrir að hafa ekki notað MARKADURIIHIH Hafnarstræti 11. tækifærið. Dorgeles hefir einnig skýrt frá ástæðunni fyrir því, hvers vegna Utrillo málaði svo margar af myndum sínum frá Montmartre eftir póstkortum: Þessi sérkennilegi maður fékk aldrei að vera í friði á götunni með trönurnar sínar fyrir for- vitnum götustrákum. Þeir gerðu hróp að honum og köstuðu jafn- vel grjóti í hann, og Utrillo hafði sig á burt. ★ Brezkt kvikmyndafélag bauð ný lega óperusöngkonunni Maríu Callas að leika Önnu Boleyn í kvikmynd, sem taka átti á veg- um félagsins.Ætl unin var, að Laurence Oli- vier léki á móti henni. Callas svaraði tilboð- inu með svo- felldum orðum: — Ég get því aðeins tekið til- boðinu, að saminn verði nýr end- ir á kvikmyndina. Áheyrendum mun finnast það óhugsandi, að kona, sem býr yfir annarri eins raddfegurð og ég, endi ævi sína á höggstokknum. ☆ Hertogafrúin af Windsor er orðin blaðakona. Hún hefir gert samning við eitt að ítölsku stór- blöðunux* um að skrifa vikulega dálk um „óvenju lega ré<tti“. Fyr- ir nokkru skrif- aði hún um tvo mjög sérkenni- lega rétti: Villi- önd, steikt með appelsínum og borin fram með ristuðu brauði í þykkum rjóma, og grænar baunir, soðnar með lauk og eplum í hvítvíni! Sophia Loren er nú orðin Ijós- hærð, og heita má, að Ijósi hára- liturinn hafi gert hana svo til óþekkjanlega — en hún kvað ekkert kæra sig um, að fólk kann ist við hana. En ekkert er við þvi að segja, þegar starfið er annars vegar. Hún er að leika í kúrekamynd um þessar mund- ir, og söguhetjan verður að vera Ijóshærð. Sophia huggar sig við það, að hún þurfti ekki að láta lita á sér hárið, en fékk að notast við hárkollu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.