Morgunblaðið - 22.02.1959, Síða 12

Morgunblaðið - 22.02.1959, Síða 12
ir MORGVNBLAÐIP Sunnudagur 22. febr. 1959 Utg.: H.f. Arvakur. Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður. Bjarnason frá Vigui Einar Asmundsson. Lesbók: Árni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargald kr 35,00 á mánuði innamands. 1 lausasölu kr. 2.00 eintakið. HVAD ER „VINSTRI" STJÖRN? Í-^NDA þótt hin svokallaða ( „vinstri“ stjórn sé farin A frá völdum, er þjóðinni nauðsynlegt að kryfja þá spurn- ingu til mergjar, hvers konar stjórn þetta hafi eiginlega verið. Þetta er nauðsynlegt vegna þess, að reynslan er ævinlega traust- asti grundvöllurinn, sem hægt er að byggja á, þegar fólkið tekur í framtíðinni afstöðu til þess, hverjum það eigi að fela umboð til þess að fara með stjórn lands- ins. Fyrst er þá rétt að athuga, hvað flokkar vinstri stjórnarinn- ar sögðu um eðli hennar, hlut- verk og starfsháttu í þann mund, sem stjórnin tók við völdum. Af stefnuyfirlýsingu vinstri stjórnarinnar má fyrst og fremst ráða, að hún skyldi verða ríkis- stjórn, sem útrýmdi verðbólgu og dýrtíð og tryggði kaupmátt launa og mjög bætt lífskjör alls almennings í landinu. Þetta skyldi framkvæmt með nýjum leiðum og varanlegum úrræðum, sem ekki bitnuðu á almenningi, heldur fyrst og fremst á hinum „ríku“. í öðru lagi skyldi vinstri stjórn in vera stjórn, sem lækkaði skatta á almenningi og þá sér- staklega tolla á öllum almennum neyzluvörum. í þriðja lagi skyldi vinstri stjórnin vera stjórn, sem beitti sér fyrir stórfelldri uppbyggingu atvinnulífsins, með kaupum 15 stórra og fullkominna togara. í fjórða lagi skyldi vinstri stjórnin vera stjórn, sem út- rýmdi öllu „hermangi“ og ræki hið ameríska varnarlið burtu af íslandi. í fimmta lagi skyldi vinstri Stjórnin vera stjórn, sem nyti trausts og virðingar hjá verka- lýðssamtökunum og tæki ákvarð- anir sínar í efnahagsmálum í sam ráði við þau. í sjötta lagi skyldi vinstri Btjórnin vera stjórn, sem kæmi nýju skipulagi á útflutningsverzl- unina og afnæmi margra áratuga „arðrán auðhringa". í sjöunda lagi skyldi vinstri stjórnin vera stjórn, sem útrýmdi öllum milliliðagróða og hvers konar braski í þjóðfélaginu. í áttunda lagi skyldi vinstri Stjórnin vera stjórn, sem endur- skoðaði stjórnarskrána og tryggði þjóðinni í leiðinni réttláta kjör- dæmaskipun. í níunda lagi skyldi vinstri stjórnin vera stjórn, sem tryggði þjóðinni örugga og ábyrga fjár- málastjórn. Óhlutdirægasti dómarinn Hér að ofan hefur í stðrum dráttum verið dregin upp mynd af því, sem flokkar vinstri stjórn- arinnar sögðu að stjórn sín ætti að gera og verða. Næst liggur þá við að ganga á fund þessa dóm- ara, sem allir viðurkenna að er sannsöglastur og óhlutdrægastur. En það er sjálf reynslan af starfi og stefnu þessarar fyrrverandi ríkisstjórnar. Hvað segir svo þessi óhlut- drægi dómari um það, hvað vinstri stjórnin hafi í raun og veru verið? Hann segir það í fyrsta lagi, að í því hálfa þriðja ári, sem stjórn in fór með völd, hafi hún verið ríkisstjórn sem leiddi yfir þjóð- ina „nýja verðbólguöldu", svo notuð séu orð sjálfs forsætisráð- herrans, er hann tilkynnti Al- þingi, að stjórnin hefði sagt af sér 4. desember s.l. Þessi „nýja verðbólgualda" hafði í för með sér gífurlega dýrtíð og skerðingu á kaupmætti launa og lífskjör- um alls almennings í landinu. í öðru lagi segir reynslan, hinn raunsæi og sannsögli dómari, þjóðinni það, að vinstri stjórnin hafi verið stjórn, sem hækkaði tolla og skatta á almenningi meira en nokkur önnur ríkis- stjórn hefur á jafnskömmum tíma gert áður. í þriðja lagi var vinstri stjórnin stjórn, sem gleymdi eða lét und- an fallast að kaupa einn einasta af þeim 15 nýju fullkomnu tog- urum, sem hún hafði lofað að láta smíða og flytja til landsins. í fjóðra lagi var vinstri stjórnin stjórn, sem lét allt „hermang“ halda áfram og samdi um áfram- haldandi dvöl hins ameríska varn arliðs í landinu um óákveðinn tíma. f fimmta lagi var vinstri stjórn in stjórn, sem leiddi yfir þjóðina stöðugan ófrið milli verkalýðs og vinnuveitenda, og milli verka- lýðssamtaka og ríkisvaldsins. Verkföll voru í stjórnartíð henn- ar algengari en oftast áður, og niðurstaðan varð sú, að vinstri stjórnin féll eftir að þing Alþýðu- sambands fslands hafði neitað for sætisráðherra um eins mánaðar frest til þess að finna þau „varan- legu úrræði“ í efnahagsmálun- um, sem vinstri stjórnin hafði ekki fundið í hálft þriðja ár. Gleymdi milliliðagróðanum í sjötta lagi segir reynslan, hinn óhlutdrægasti allra dómara, að vinstri stjórnin hafi verið ríkis- stjórn, sem breytti í engu skipu- lagi útflutningsverzlunarinnar, en skipaði þess í stað þriggja manna nefnd reynslulausra manna til þess að veita framleið endum „leyfi“ til útflutnings á vörum sínum. í sjöunda lagi var vinstri stjórn in stjórn, sem hætti að minnast á milliliðagróða, eftir að hún var setzt í valdastóla. í áttunda lagi var vinstri stjórn in ríkisstjórn, sem snerti ekki við endurskoðun stjórnarskrárinnar og gerði enga tilraun til þess að koma á nýrri og réttlátri kjör- dæmaskipun. í níunda lagi var vinstri stjórn in stjórn, sem safnaði á rúmlega hálfu kjörtímabili um það bil 700 millj. kr. nýjum erlendum skuld- um, eða meiri skuldum en nokk- ur önnur ríkisstjórn. Þessir örfáu drættir í mynd- inni af því, sem vinstri stjórn in sagðist ætla að verða og það sem reynslan sýnir að hún í raun og veru var, nægja til þess að svara þeirri spurn- ingu, hvers konar stjórn „vinstri" stjórnin hafi verið. íslenzka þjóðin mun svo draga sínar ályktanir af dómi reynslunnar og miða afstöðu sína til manna og málefna í íslenzkum stjórnmálum við það. - UTAN UR HEIMI Kvöldið, sem Hans Hedtoft sökk, rakst Jóhannes Kruss á stóran ísjaka Skioið nötraði stafna á milli, en eng- inn leki kom oð Jbví — Við erum allir hér um borð mjög daprir yfir því, að ekki tókst að bjarga neinum af Hans Hedtoft. Hvers vegná á að sýna okkur sóma? Ég bið yður í öllum bænum að koma í veg fyrir hvers konar opinbera heimsókn . . . . Við höfum ekki gert annað en það, sem hver maður er skyld- uður til að gera, þegar slíkt ber að höndum, sagði Albert Sierck, skipstjórinn á þýzka togaranum Jóhannesi Krúss, í símasamtali, er skipið var á leiðinni upp Weser fljótið til Bremerhaven sl. mánu- dagskvöld. Jóhannes Krúss var að koma heim úr veiðiferðinni, sem hann var í, er Grænlands- farið Hans Hedtoft fórst. Eins og menn munu minnast, kom Jó- hannes Krúss fyrstur á slysstað- inn. Fjöldi manna var saman kominn á hafnargarðinum, er tog- arinn lagði að. Það vekur jafnan aðdáun manna og virðingu, þegar lítið skip býður stormi og stórsjó byrginn til að reyna að korna stóru skipi í hafsnauð til bjargar. Sierck skipstjóri og útgerðar- maðurinn Carl Kámpf fóru til Kaupmannahafnar um miðja sl. sem til var tekinn í staðarákvörð- uninni, þegar sást móta fyrir stóru, dökkleitu bákni á ratsjár- skífunni. Héldu skipverjar, að þetta væri Hans Hedtoft. Jó- hannes Krúss stefndi að þessu bákni á fullri ferð — 12 sjómílna hraða á klukkustund, — en á síð- asta andartaki uppgötvaðist, að þetta var ísjáki, og sett var aftur á bak í skyndi. Danski loftskeytamaðurinn var var mjög rólegur. Foresti réttarins spurði Nejedlo. hvort skeytin frá Hans Hedtoft hefðu gefið nokkar hugmynd um hvernig mönnum var innan- brjósts á danska skipinu? Og Nejedlo svaraði stilli’ega: Danski loftskeytamaðurinn var mjög rólegur. Ekki var hægt að merkja það af neinu, að hann eða aðrir um borð á Hans Hed- toft vissu, að dauðinn var svo skammt undan. Sú staðreynd, að hann komst þannig að orði í síð- asta skeytinu: Við sökkvum hægt, bendir ekki til þess, að hann hafi verið hræddur eða honum hafi verið ljóst, að endalokin voru Þýzki togarinn Jóhannes Krúss Albert Sierck, skipstjóri Prins Christianssund, sem hafði um Grimby fengið tilkynningu um, að þar hefðu neyðarskeyti heyrzt og að staðarákvörðunin væri samkvæmt því 59,05. Bæði Prins Christiansund, Jó- hannes Krúss og þýzka fiskveiði- skipið Stadt Herten, sem sendi neyðarskeytið áfram til allra fiskiskipa og togara, töldu sig hafa heyrt, að staðarákvörðun danska skipsins hefði verið 59,5, og sama var að segja um banda- ríska björgnuarskipið Campbell eftirlitsskipið Poseidon og veður skipið Bertha. Nejedlo lofskeytamaður sagði: „Ég held, að engin líkindi séu til þess, að staðarákvörðun Hans Hedtofts hafi verið röng. Ekkert bendir til þess. Það er öðru nær. Miðunarmerki frá Hans Hedtoft urðu æ sterkari, því meir sem við nálguðumst þær slóðir, sem til- teknar voru í staðarákvörðun- inni sem við heyrðum. Það er enginn efi á því, að við vorum mjög nálægt staðnum — svo að segja á staðnum — þegar Hans Hedtoft sendi út síðasta skeytið. Er Jóhannes Krúss hélt áfiam leitinni, fylgdi hann einnig stað- arákvörðuninni 59,05, en þar fannst ekkert heldur. Lítill planki. viku. Á fimmtudagsmorgun tók Danakonungur á móti skipstjór- anum á Amalieiiborg og sæmdi hann riddarakicssi Danr.ebrogs- orðunnar. Sannkallað helvíti. Nokkrum klukkustundum áður en Hans Hedtoft rakst á ísjak- ann 30. jan. sl., hafði loftskeyta- maðurinn á Jóhannesi Krúss, Rudof Nejedlo, sent útgerðar- manni skipsins þau skilaboð frá skipstjóranum, að vitlaust veður væri komið á þessum slóðum. Skeytið hljóðaði svo: „Hér eru 10 vindstig — lélegt skyggni — mikið af ís. Þetta er sannkallað helvíti. Við erum ekki farnir inn á miðin. Það er ómögulegt að fara þangað í þessu veðri. Ég fer eindregið fram á, að okkur verði skipað að bíða“. Útgerðarmaðurinn spurði, hvort þeir gætu ekki reynt, en skip- stjórinn svaraði um hæl: „Ég neita að taka á mig þá ábyrgð. Við verðum að komast héðan burt“. Og útgerðarmaðurinn féjlst á það. Tveimur klukkustundum síðar kom neyðarskeytið frá Hans Hedtoft, og þá hikaði Sierk skip- stjóri ekki. Hann stýrði umsvifa- laust litla togaranum inn á svæð- ið sem hann hafði rétt áður líkt við helvíti. Fyrir sjórétti í Bremerhaven skýrðu þeir Sierck og Nejedlo svo frá, að togarinn hefði verið um þrjár sjómílur frá þeim stað, að nálgast. Varla er nokkur vafi á því, að skipið hefir velkzt í haf- rótinu með vélarrúmin full af vatni — og síðan hefur sennilega vatnsþétt skilrúm brostið. Að líkindum hefur þetta gerzt á nokkrum sekúndum. Sierck skipstjóri var að mat- ast, þegar honum var fengið neyð arskeytið í hendur. Hann þaut upp í brúna, þar sem hann og stýrimaðurinn voru næstu tvo sólarhringana. Fimm menn voru allan tímann á verði á hvalbakn- um og við skjólborðin, en engan vörð var að hægt að hafa aftur á vegna þess að ískaldur sjórinn gekk sífellt yfir skipið að aftan. Áfram á fullri ferð. Um miðnætti sama kvöldið og Hans Hedtoft sökk, rakst Jóhann- es Krúss stóran jaka sem gnæfði 6—7 metra yfir yfirborð sjávarins. Skipið nötraði stafna á milli, en það kom enginn leki að því. Og fyrirskipun skipstjór- ans var: „Áfram á fulla ferð. Beinið ljóskösturunum til vest- urs. Verið á varðbergi, svo lengi, sem þið getið haldið augunum opnum“. Rétt staffarákvörðun. Þegar ekkert heyrðist frá Hans Hedtoft, þó að Jóhannes Krúss kallaði í sífellu, tóku skipverjar á togaranum að efast um, að gefin hefði verið upp rétt staðar- ákvörðun. Jóhannes Krúss hafði samband við loftskeytastöðina í Það eina, sem fannst eftir tveggja sólarhringa leit, var lítill planki. Var plankinn um lVz m á lengd og 2V2 m á breidd, að þvi er Sierck skipstjóri sagði. Við sáum báðar hliðar hans og gátum gengið úr skugga um, að hann var Ijósgrár öðrum megin, en ómál- aður hinum megin. Því miður tókst okkur ekki að ná honum um borð. Við sáum heldur enga flugelda frá Hans Hedtoft, hélt Sierck skipstjóri áfram. Og við vitum, að þeir sáu ekki ljóskastara okk- ar, því að loftskeytamaðurinn á Hans Hedtoft tjáði okkur það. í sambandi við þetta benti Sierck á nauðsyn þess, að hafa um borð í skipum eins sterka ljóskastara og mögulegt væri. Rétt áður en Jóhannes Krúss lagði upp í þessa för hafði verið komið fyrir á togaranum fimm sterkum Ijós- kösturum samkvæmt ósk skip- stjórans. Þeir reyndust betur en ratsjáin í þessari ferð. sagði Sierck. Þrátt fyrir hríðina, sáum við 200 m fram fyrir skipið. — Hvað hefðuð þér ger„ ef þér hefðuð fundið Hans Hedtoft, áð- ur en skipið sökk? spurði forseti réttarins. — Við hefðum haft nóg rúm bæði fyrir áhöfn og farþega, svo að engin vandkvæði hefðu orðið á því, ef á annað borð hefði reynzt mögulegt að bjarga þeim í slíkum veðurofsa. Okkur hefði áreiðan- lega tekizt að bjarga einhverjum, en því miður átti það ekki að fara svo.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.