Morgunblaðið - 22.02.1959, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 22.02.1959, Blaðsíða 24
V EÐRIÐ Allhvass suðvestan. Éljagangur. Reykjavíkurbréf Sjá bls. 13 44. tbl. — Sunnudagur 22. febrúar 1959 Langanesið fórst Vestmannaeyjar— Báturinn var 60 tonn að stærð og rúmlega 2ja ára í gær við Mannbjörg Vestmannaeyjum, 21. febrúar. UM KLUKKAN tvö í gærdag sendi vélskipið Langanes frá Neskaupstað út neyðarskeyti. Var báturinn þá orðinn hálffullur af sjó og báðu skipverjar, sem voru sex að tölu, nærstadda báta um að koma þegar til aðstoðar. Ann- ar bátur frá Neskaupstað bjarg- aði áhöfninni. í gærmorgun var bátaflotinn í Eyjum á sjó. Var góður afli fyrst um morguninn en fór minkandi eftir því sem nær dró hádegi, enda fór veður þá versnandi. Langanes, sem er 60 tonna bát- ur, rúmlega tveggja ára, var að draga línuna um 18 sjómílur norð vestur af Vestmannaeyjum. Var komið hvassviðri um kukkan tvö er hann sendi út hjálparbeiðnina. Skipverjar munu allir hafa ver- ið á þiljum uppi Við línudrátt. l>eir munu ekki hafa orðið varir við neitt óvenjulegt. En svo mun vélamaðurinn hafa farið niður í vélarúmið og er hann kom þang- að niður var þar kominn mikill Fæi t á fólksbílum frá Akui eyri til Húsavíkur FÆRÐ hefir að undanförnu verið ill á ýmsum fjallvegum, einkum norðanlands, þó hefir þetta verið mjög misjafnt. Um nokkurn tíma hefir verið sæmilega greiðfært fyrir jeppa yfir Vaðlaheiði til Húsavíkur. Sl. föstudag fór Jónas Sigurðs- son, bílstjóri á Akureyri, þessa leið á fólksbifreið og gekk ferðin vel. Aðeins á einum stað var svo- lítil fyrirstaða í gömlum skafli neðan við Birgishnjúk. Var Jónas rúmar 2 klst. á leiðinni. Bíllinn var keðjulaus en á snjódekkum. Sagði Jónas, að snjólétt væri nú á Vaðlaheiði. Þennan sama 'dag kom áætlun- arbíll frá Reykjavík og norður til Akureyrar, og gekk ferðalag hennar allvel. Áður hafði færi verið slæmt yfir öxnadalsheiði, en snjóhöftum var rutt af henni í vikunni. ÞÚFUM, 20. febr. — Á næstunni munu aðalfundir búnaðarfélag- anna hér í Djúpinu verða haldn- ir. Ráðgert er, að héraðsráðu- nauturinn, Jón Guðjónsson komi á fundina og sýni kvikmyndir, þar sem því verður við komið. Hreppsnefnid afgreiddi nú sveit- arsjóðsreikninga, og skattanefnd- arstörf eru hafin. — P.P. sjór. Skipsmenn yfirgáfu skipið að lítilli stundu liðinni og fóru í gúmbjörgunrbátinn og voru allir komnir heilir á húfi um borð í Goðaborg sem flutti skipbrots- mennina til Vestmannaeyja. Það leið aðeins skammur tími, frá því að Langanes sendi út neyðarkallið, unz skipið sökk. Munu skipverjar ekki hafa hug- mynd um hvar eða hvenær hinn mikli leki gerði vart við sig og munu því engar skýringar geta gefið á hvað valdið hafi. Langanes var eikarbyggður bátur og var eign þeirra bræðra Ársæls og Þorsteins Júlíussona í Neskaupstað, en þar var bát- urinn byggður 1956. Formaður á bátnum var Einar Guðmundsson, 1. stýrimaður Halldór Hinriksson, vélstjórar þeir Freysteinn Þór- arinsson og Bjarni Geirsson frá Borgarfirði eystra, en hinir eru búsettir í Neskaupstað. Ekki er blaðinu kunnugt um hverjir af hásetum þeim er á bátnum voru skráðir, voru með í þessari sjó- ferð. Hafa skipverjar allir orðið fyrir tilfinnanlegu tjóni. Þeir munu allir hafa búið um borð í bátnum og hafa því tap- að ýmsum eigum sínum með honum. Bj. Guðm. Bátar í íiski BÁTAR úr öllum verstöðvum hér við Faxaflóa höfðu verið á sjó í gær. Veður hafði verið all- hagstætt fyrir hádegið, en þá tók að hvessa af austri og suðaustri. Tregðaðist þá aflinn mjög. Var brátt komið hvassviðri og sums staðar stormur á miðunum síð- degis. Höfðu borizt fregnir af því að línutap hefði orðið vegna veðurs. Bátarnir voru með mis- munandi afla, frá 4—7 tonn. Að sögn sjómanna á miðum Vest- mannaeyjabáta virðist fiskilegt mjög á miðum þeirra, en þar var vonzkuveður síðdegis í gær, sjó- lítið að vísu, en veðurhæðin á miðunum 8—9 vindstig. Aðalfundur V. R. AÐALFUNDUR Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur verður haldinn annað kvöld kl. 8,30 í S j álf stæðishúsinu. Þar fara fram öll venjuleg aðalfundarstörf, lýst kjöri stjórn- ar, trúnaðarmannaráðs, laga- breytingar o. fl. — Flutt verður skýrsla um starfsemi félagsins sl. ár og verða önnur hagsmunamál verzlunarfólks til umræðu. í félaginu munu nú vera hátt á þriðja þúsund manns og er ekki að efa að aðalfundurinn verður fjölsóttur. Stjórnmálaskóli Varðar: Ólafur Björnsson, próf. talar annað kvöld Stjórnmálaskóli Varðar held- ur áfram annað kvöld og flytur þá Ólafur Björnsson, prófessor 5. erindi námskeiðsins. Fulltrúaráð Sjálfsfœðis- félaganna í Kópavogi FULLTRÚARÁÐ Sjálfstæðisfélaganna I Kópavogi heldur fund í Sjálfstæðishúsinu í Reykjavík í dag, sunnudaginn 22. febrúar. — Fundurinn hefst kl. 15:30. N Bjarni Benediktsson, ritstjóri, flytur aðalræðuna og talar um stjórnmálaviðhorfið. Að henni lokinni verða frjálsar umræður. — Auk þess verður rætt um félagsmál, og einnig fer fram kosning fulltrúa á landsfund Sjálfstæðisflokksins. Allir fulltrúaráðsmenn eru hvattir til að mæta á fundinum. Sfjórnarkosningu í Fél- agi járniðnaðarmanna lýkur í dag Listi lýðrœðissinna er B-listinn STJÓRNARKOSNINGIN í Félagi járniðnaðarmanna heldur áfram í dag. Kosið er í skrifstofu félagsins, Skólavörðustíg 3, og hefst kosningin kl. 10 árd. í dag og stendur til kl. 6 síðd. og er þá lokið. Tveir listar eru í kjöri: B-listi, sem skipaður er andstæðingum kommúnista í félaginu og studdur af lýðræðissinnum, og A-lsti kommúnista. B-listi lýðræðissinna er þannig skipaður: Loftur Ólafsson, form., Bæjar- smiðjunni. Þorvaldur Ólafsson, varafor- maður, Hamri. Ármann Sigurðsson, ritari, Héðni. Ingólfur Jónsson, vararitari, Kr. Gíslasyni. Rafn Sigurðsson, fjármálarit- ari, Héðni, og Sveinn Hallgrímsson, gjald- keri, Vegagerð ríkisins. Járnsmiðir! Vinnið ötullega að sigri B-listans og hindrið með því áframhaldandi misnotkun komm- únista á samtökum ykkar. Munið X B-listinn. I \ Orðsending til meðlimn full- trnoráðs Sjálfstæðislél. í Rvík Góðir fulltrúar. Ykkur hafa nú verið send nauðsynleg gögn varð- andi hina almennu fjársöfnun í kosningasjóð Sjálf- stæðisflokksins. Herðið söfnunina og sendið greiðsluloforðin inn til skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll, eða Sjálf- stæðisflokksins í Valhöll, eða Sjálfstæðishúsinu hjá ^ allra bráðasta. ) FJÁRSÖFNUNARNEFNDIN. Steinunn Briem heldur tónleika í BYRJUN þessa mánaðar hélt ungfrú Steinunn S. Briem píanó- tónleika í Rómaborg. Tónleikarn ir voru haldnir í hljómleikasal Engilsborgar (Castel S. Angelo) fyrir fullu húsi áheyrenda. Var það á vegum tónlistarfélags- ins Societá Amici di Castel S. Angelo. Listakonunni var mjög vel tekið. Á efnisskránni voru m.a. verk eftir þessa höfunda: Bach, Mozart, Chopin og De- bussy. Steinunn Briem stundar nú nám hjá Maestro Rodolfo Caporaii, og mun hún halda aðra tónleika í Róm í næsta mánuði. Róið frá öllum ver- stöðvum STYKKISHÓLMI, 21. febr. — Bátar voru á sjó frá öllum ver- stöðvum á Snæfellsnesi í gær. Er þetta fyrsti dagurinn, sem al- mennt er róið hérna, síðan óveð- urskaflinn dundi yfir. Stykkis- hólmsbátar fengu allt upp í 5 lestir, bátarnir frá Grafarnesi allt upp í 9 lestir, upp í 10 lest- ir á Sandi og upp í 12 lestir hjá Ólafsvíkurbátum. Heildarframleiðsla fiskafurða á s.I. ári hjá fyrirtæki Sigurðar Ágústssonar í Stykkishólmi, varð meiri en nokkru sinni fyrr. Fram leiddir voru 33 þús. kassar af frystum fiski, en árið 1957 voru framleiddir 14 þús. kassar. Fram- leiddar voru 30 lestir af frystu fóðri og 108 lestir af síld og beitu. Þá voru verkaðar 50 lest- ir af skreið og 50 lestir af salt- fiski. Prófessor Ólafur mun ræða um hver er þáttur hinna einstöku at- vinnugreina, sjávarútvegs, iðnað- ar, landbúnaðar og verzlunar í þjóðartekjunum. Jafnframt mun hann ræða um það hvernig þjóð- artekjurnar skiptast, um ráðstöf- un þjóðarteknanna til neyzlu og fjárfestingar, erlendar skuldir og þróun þeirra og þjóðhagsreikn- ingana og mikilvægi þeirra fyrir stefnuna í efnahagsmálum. Þetta er þriðja og síðasta er- indið í II. flokk Stjórnmálaskól- ans, en hann fjallaði um mikil- vægar staðreyndir um land og þjóð og efnahagsstarfsemina. Fyrsta erindið í II. flokki flutti Jóhannes Zoega, verkfræðingur og ræddi hann um vatns- og hita- orkuna og hagnýtingu hennar. Sl. föstudag flutti Guðjón Hansen, tryggingarfræðingur, erindi og gerði hann m.a. grein fyrir mann- fjölda á íslandi, aldursflokka, at- vinnustéttaskiptingu, fólksfj ölg- un og fólksflutninga milli byggð- arlaga og útskýrði hann félagsleg og efnahagsleg áhrif breytinga á þessum atriðum á næstu árum. Var erindi Guðjóns sérstaklega fróðlegt og skemmtilegt. Erindi Ólafs Björnssonar, próf- essors, annað kvöld, hefst kl. 8,30. Leki kom að Sæfaxa I GÆR kom töluverður leki að bátnum Sæfaxa frá Grindavík, er hann var að veiðum á miðum Grindavíkurbáta. Töluverður sjór kom í vélarrúm bátsins. Skipverj um tókst að gera við lekann til bráðabigða, og komst Sæfaxi til hafnar í Grindavík hjálparlaust, en annar bátur fylgdi honum eft- ir alla leiðina. Fundur um efnahagsmál í DAG kl. 14 hefst félagsfundur hjá Heimdalli um tillögur stefnuskrárnefndar í efnahagsmálum. Er þetta hinn fyrsti af þrem fundum, sem ákveðið hefur verið að efna til um stefnuskrá félagsins. Framsögumenn nefndarinnar eru: Sigurður Helgason, lögfræðingur, Pétur Sæmundsen, viðskiptafræðingur, Hafsteinn Baldvinsson, lögfræðingur, og Ágúst Hafberg, framkvæmdastjóri. 1 þeim tillögum, sem lagðar verða fram á fundinum í dag, koma fram skoðanir Heimdallar á því, hvernig æski- legast sé, að þessum málum verði skipað í framtíðinni. Hcimdcllingar og aðrir ungir Sjálfstæðismenn eru hvattir til þess að sækja fundinn, sem verður haldinn í fé- lagsheimili Sjálfstæðismanna, Valhöll, við Suðurgötu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.