Morgunblaðið - 19.03.1959, Qupperneq 2
2
MORGUNBl 4fílÐ
Fimmtudagur 19. marz 1959
A Borgartúni:
Bílaárekstrar, slys
og ölvun við akstur
Við Miklatorg er nú risið biðskýli og sölujurn, sem Gils Sigurðsson á. Myndin að ofan er af þessu
nýja biðskýli, sem er einkar vistlegt.
H ugmyndasamkeppni
um minnismerki sjó-
manna í Hafnarfirði
Þrenn verðlaun veitt
Á HÁTfÐARFUNDI bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í tilefni af 50
ára afmæli Hafnarfjarðarkaupstaðar, hinn 1. júní sl., var samþykkt
„að gert verði opið svæði, þar sem reist yrði táknrænt merki til
heiðurs og viðurkenningar hafnfirzkri sjómannastétt fyrir hinn
mikla og sérstæða þátt hennar í uppbyggingu Hafnarfjarðarkaup-
staðar. Jafnframt verði látin fara fram hugmyndasamkeppni um
geið merkisins."
KLUKKAN rúmlega 10 í fyrra-
kvöld dró til tíðinda á mótum
Nóatúns og Borgartúns. Rókust
þar saman tveir bílar. Var lög-
reglan kvödd á vettvang. Áður
en hún hafði leitt þetta mál til
lykta, varð þar annar árekstur,
þar sem maður slasaðist, og loks
var á sama stað maður handtek-
inn, grunaður um að hafa ekið
bíl undir áhrifum áfengis.
Klukkan að ganga II í fyrra-
kvöid tók skyndilega að snjóa.
Varð víða flughálka á götunum,
t. d. á Borgartúns- og Nóatúns-
mótum. Þar varð árekstur klukk-
an um 10,10. Fólksbíll og sendi-
ferðabíll rákust þar á. Borgartún
er aðalbraut. Skemmdir urðu
ekki ýkjamiklar á bilunum.
Bílstjórarnir stóðu við bílinn,
sem komið hafði eftir Borgar-
túni, og báru saman bækur sín-
ar út af árekstri þessum. Allmikil
umferð bíla var þarna á meðan.
Allt í einu var ekið aftan á bíl-
inn, sem mennirnir stóðu við.
Kastaðist bíllinn nokkuð til og
Á FUNDI bæjarráðs síðastliðinn
þriðjudag var samþykkt að gefa
Verkamannafélaginu Dagsbrún
kost á lóð við Borgartún norðan-
vert nálægt Skúlatorgi til að
l>yggja Þar samkomu- og skrif-
stofuhús, enda afsali félagið sér
þá tilkalli til lóðar þeirrar í
Skólavörðuholti, sem því var á
sínum tíma gefinn kostur á.
Á 50 ára afmæli félagsins fyrir
nokkrum árum var félaginu gef-
inn kostur á lóð við Skólavörðu
torg og Frakkastíg ofanverðan.
Athuganir, sem fram hafa farið,
hafa leitt í Ijós, að töluverðir erf-
iðleikar eru á því að byggja þar
svo mikið hús, sem félagið ráð-
gerir, og koma þar til greina
bæði skipulagsástæður og umferð
arástæður.
Það varð því að samkomulagi
milli bæjaryfirvalda og forráða-
Kaffisala til ágóða
fyrir sjóslysasöfn-
unina.
KONUR í Kvennadeild Slysa-
varnafélagsins eru kunnar að því
hversu duglegar þær eru að safna
fé, þegar þess er þörf í þágu
slysavarna. Nú hafa þær hug á
að láta ekki sitt eftir liggja,
þegar safnað er fé til styrktar
aðstandendum þeirra, sem farizt
hafa nýlega í sjóslysum. Því hef-
ur Kvennadeildin ákveðið að
efna til kaffisölu í Sjálfstæðis-
húsinu n.k. sunnudag, og láta
allan ágóðann renna í söfnunina
vegna sjóslysanna.
Vill stjórn deildarinnar því
heita á félagskonur að vera dug-
legar að baka og á bæjarbúa að
styðja þessa viðleitni með því að
drekka hjá þeim síðdegiskaffi á
sunnudaginn.
Dagskrá Aljjingis
í DAG eru boðaðir fundir í báð-
um deildum Alþingis kl. 1,30. Á
dagskrá efri deildar er eitt mál.
Skipun prestakalla, frv. — 3. um-
ræða.
Þrjú mál eru á dagskrá neðri
deildar. 1. Firmu og prókúruum-
boð, frv. — 3. umr. 2. Veitinga-
sala o. fl., frv. — 3. umr. 3. Veit-
ing ríkisborgararéttar, frv. — 2.
umr.
kom aftur á bílinn, sem hann
hafði áður lent á. í þessum
árekstri varð annar ökumann-
anna, Kristján Jónsson, Baugs-
vegi 17 A, sá sem ekið hafði
eftir Borgartúni, fyrir bíl sínum,
með þeim afleiðingum að hann
skaddaðist mikið í andliti. Mun
hurð á bílnum, sem var opin,
hafa skollið á andlit hans. Var
hann allþungt haldinn í fyrri-
nótt vegna þessa áverka, en hann
hafði misst meðvitund.
Þegar lögreglan var að gera
ýmsar nauðsynlegar athuganir á
slysstaðnum, var bíl ekið þar hjá.
Þótti óöruggur akstur bílstjórans
gefa tilefni til frekari afskipta.
Var lögreglubill sendur á vett-
vang. Er bíllinn hafði verið stöðv-
aður, kom í ljós að ökumaðurinn
virtist ekki að öllu leyti vel fyrir
kallaður. Var hann kærður fyrir
meint brot vegna ölvunar við
akstur. Það kom og í ljós, að svo
gáleysislega hafði maðurinn ek-
ið, að við borð lá að slys yrði á
vegfarendum á árekstursstaðn-
um, er hann ók þar hjá.
manna félagsins að freistað yrði
að finna stað er hentaði betur.
Hafa ýmsir möguleikar verið at-
hugaðir, og varð niðurstaðan sú,
að bæjarráð samþykkti að gefa fé
laginu kost á áðurnefndri lóð við
Borgartún, enda yrði þá afsalað
tilkalli til lóðarinnar í Skóla-
vörðuholti. Á framhaldsaðalfundi
Dagsbrúnar siðastliðið mánu-
dagskvöld voru umrædd lóða-
skipti samþykkt af félagsins
hálfu.
SALISBURY í Suður Ródesíu,
18. marz. (Reuter). — Stjórnin
í Suður Ródesíu lagði í dag fyrir
þingið frumvarp að nýjum lög-
um, sem ætluð eru til að koma í
veg fyrir uppreisn svertingja í
landinu.
Samkvæmt frumvarpi þessu
eru svertingjar sviptir pólítískum
réttindum. Stjórnmálaflokkur
þeirra og félagssamtök eru bönn-
uð og stjórnarvöldum er heimilt
að grípa til óvægilegra ráða, ef
þau telja að hætta sé á ferðum.
M. a. er heimilt að handtaka
grunaða svertingja og hafa þá í
haldi án þess að sérstakur dóm-
úrskurður komi tiL
Handtökuskipun má þó áfrýja
til sérstakrar fimm manna nefnd
ar þingsins, en málsmeðferð fyr-
ir nefndinni verður ieynileg.
Perth lávarður, aðstoðar-ný-
lendumálaráðherra Breta er nú
á ferð um Ródesíu til að kynna
sér ástandið. Hann kom í dag
með flugvél til Lusaka, höfuð-
borgar Norður Ródesíu og sagði
hann við fréttamenn að hann
teldi að bráðlega færi að kyrr-
ast um í Njassalandi. Yfirvöldin
þar séu þess umkomin að ráða
við ástandið. Þó mætti enn bú-
ast við erjum í nyrzta hluta
Njassalands, sem er erfitt lands-
svæði.
Lávarðurinn kvaðst vera þess
fullviss, eftir upplýsingar, sem
hann hefur fengið, að svertingj-
ar i Njassalandi hefðu undirbú-
ið ofbeldisárásir á hvíta menn í
landinu.
í dag tilkynnti stjórnin i Blan-
tyre, höfuðborg Njassalands, að
herlögregla hefði haldið áfram
handtökum á leiðtogum svert-
Samkvæmt þessu hefur ís-
lenzkum myndlistarmönnum ver-
ið boðið til hugmyndasamkeppni
um gerð minnismerkis til heið-
urs og viðurkenningar hafnfirzkri
sjómannastétt, en það mun verða
reist í garði sunnan Þjóðkirkj-
unnar og neðan væntanlegs ráð-
húss Hafnarfjarðar. Samkeppnin
er ekki bundin við styttu eða
höggmynd, heldur koma allar
hugmyndir til greina. Þátttak-
endum skal skylt að skila líkani
að tillögum sínum, er ekki sé
ingja. Fjórir svertingjar féllu í
dag í átökum sem urðu við Bang
welu-vatn í Norður Ródesíu. Hér-
aðsstjórinn þar, hvítur maður,
særðist alvarlega af spjótsstúngu.
NÝJA DELHI, 18. marz. Reuter).
— Bandaríkin undirrituðu í dag
samning við Indland um að veita
200 milljón dollara lá til bygg-
ingar á orkuverum og áveitum
í Indlandi. Lán þetta er viðbót
við 28 milljón dollara lán sem
Bandaríkjamenn veittu nýlega til
sömu framkvæmda.
ÓLAFSVÍK, 18. marz. — Vegna
þess hve hafnarskilyrðin hér í
Ólafsvík eru í alla staði óhag-
stæð, stóð löndun úr bátunum 12,
sem hér leggja upp, frá því um
kl. 8 á þriðjudagskvöld og allt
fram til kl. 6 í morgun.
Þetta ófremdarástand er eðli-
lega mjög á dagskrá hér hjá okk-
ur í dag, þegar verið er að vinna
úr mesta fiskafla, sem borizt hef-
ur á land í einum róðri.
Ólafsvík hefur látið steypa tvö
stór steinker, 12x12 metra. Var
það gert í Grundarfirði. Er búið
að fléyta öðru hingað, en hitt er
þar enn.
Héðan er nú farin til Reykja-
víkur sérstök sendinefnd til að
kanna möguleika á fjárfestingu
til þess að koma þessum stein-
nökkvum báðum niður við brim-
minna en Vs hluti af ráðgerðri
stærð verksins, ásamt greinar-
gerð fyrir fullnaðarframkvæmd
þess. Tillögurnar skulu auðkennd
ar dulnefni, en höfundarnafn
fylgja í lokuðu umslagi. Skila-
frestur er til 1. október 1959.
Þrenn verðlaun veitt.
Dómnefnd er heimilt að veita
verðlaun, samtals kr. 40.000,00,
er skiptast þannig: 1. verðlaun:
kr. 25.000,00; 2. verðlaun: kr.
10.000,00 og 3. verðlaun: kr.
5.000,00.
Dómnefndina skipa: Björn Th.
Björnsson listfræðingur, formað-
ur, Eiríkur Smith listmálari,
Friðþjófur Sigurðsson mælinga-
maður,. Valgarð Thoroddsen raf-
veitustjóri, allir tilnefndir af
bæjarstjórn og bæjarráði Hafnar-
fjarðar. Ennfremur Friðrik Á.
Hjörleifsson, tilnefndur af Sjó-
mannadagsráði Hafnarfjarðar.
í FYRRADAG flaug Sólfaxi,
Skymastervél Flugfélags fslands,
til Meistaravíkur. Flutti flugvélin
brjótinn, sem er aðallöndunar-
bryggjan hér. Nauðsynlegt er
að einnig fáist fé til þess að láta
steypa þriðja steinkerið til hafn-
arinnar. Er þetta mál mjög að-
kallandi fyrir útgerðina hér, sem
farið hefur vaxandi og reynslan
hefur sýnt, að héðan er hag-
kvæmt að stunda mikla útgerð,
þegar hafnarskilyrðin hafa verið
Mikil hrögð
að inflúenzu
á Siglufirði
SIGLUFIRÐI, 18. marz. — Bæj-
artogarinn Elliði losaði hér í gær
302 lestir. Aflinn fór til vinnslu
í frystihúsunum og 1 skreið. Tog-
arinn fór aftur á veiðar í gær-
kvöldi.
Mikil brögð eru hér að inflú-
enzu, og hafa margir legið rúm-
fastir. Barnaskólanum var lokað
fyrir nokkru, og hefir lokunin
verið framlengd fram yfir páska.
Fiskileysi er hér á línu og eins
hjá þeim bátum, sem hafa farið
með færi. Er kennt um loðnu,
sem hefir gengið hér á miðin.
Afli Stykkis-
hólmsbáta rýr
STYKKISHÓLMI, 18. marz. —
Togarinn Þorsteinn þorskabítur
landaði í Stykkishólmi í gær og
í dag 175 lestum af fiski. Fór
togarinn aftur á veiðar í kvöld.
Aflinn var allur veiddur á heima
miðum og fór til vinnslu í fisk-
vinnslustöðvarnar hér.
Sex bátar róa nú frá Stykkis-
hólmi, og hafa allir þegar tekið
net, en afli hefir verið rýr eða frá
4—12 lestum á sólarhring. Um
áttaleytið í kvöld voru tveir bát-
ar komnir að landi og hafði ann-
ar 12 lestir enn 14. — Árni.
farþega og birgðir fyrir Norræna
námufélagið. Kom Sólfaxi aftur
frá Grænlandi í gærmorgun.
Á næstunni verður mikið um
Grænlandsflug á vegum F. f. Mun
Sólfaxi fara fjórar ferðir til Kulu
suk og Syðri-Straumfjarðar —
tvær í þessum mánuði, n.k. laug-
ardag og n.k. mánudag, og tvær í
byrjun næsta mánaðar. Einnig er
áætlað, að ein af Dakotavélum
F.í. fari til Meistaravíkur mið-
vikudaginn 1. apríl og flytji þá
vörur og farþega fyrir Norræna
námufélagið.
Mikið var flogið innanlands í
gær, enda ágætt flugveður. Tvær
ferðir voru farnar til Vestmanna
eyja og Akureyrar, og einnig var
flogið til Sauðárkróks og Blöndu
óss, Þingeyrar, Flateyrar og ísa-
fjarðar.
bætt. — B. Ól.
Aðstandendur Hermoðsmanna þakka
INNILEGA hjartans þökk flytjum við hér með öllum þeim er á
margvíslegan hátt hafa vottað okkur samúð sína vegna hius svip-
lega og sorglega Hermóðs-slyss.
Guð blessi ykkur öll.
Aðstandendur.
Dagsbrúnarhúsið verður
við Skúlatorg
Svertingjar sviptir rétt
indum í Ródesíu
Aðkallandi er að bœta
hafnarskilyrði í Ólafsvík
Fimm ferðir á vegum F.í.
fil Grœnlands á nœstunni
Sólfaki flaug til Meistaravíkur í fyrradag