Morgunblaðið - 19.03.1959, Page 10

Morgunblaðið - 19.03.1959, Page 10
10 MORCVNBLAÐ1Ð Fimmtudagur 19. marz 1959 Utg.: H.f. Arvakur. Reykjavík Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. UTAN UR HEIMI Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Hitstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Einar Asmundsson. Lesbók: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargald kr. 35,00 á mánuði innamands. í lausasölu kr. 2.00 eintakið. FRAMSÖKN EINANGRAR SIG í KJÖRDÆMAMÁLINU TLIJN Framsóknarbrodd- anna var sú, að komast í gegnum flokksþing sitt, án þess að þar yrðu samþykkiar nokkrar tillögur um hvað Fram- sókn vildi sjálf gera í kjördæma- málinu. Fulltrúar víðs vegar að kváðu aftur á móti upp úr um það, að slíkt gengi ekki. Fram- sókn slyppi aldrei með það eitt, að gagnrýna tillögur annarra. Flokksþingið yrði að marka stefnu í málinu. Niðurstaðan varð sú, að valin var eins konar millileið. Nokkur meginatriði voru ákveðin, en oni ur látin bíða betri tíma, svo að margt er enn á huldu. Nóg er þó nú þegar fram komið til þess að ljóst er, að Framsókn hefur al- gjörlega einangrað sjálfa sig í þessu mikla velferðarmáli þjóðar innar. ★ Ályktun flokksþings um kjör- dæmamálið hljóðar svo, að sögn Tímans: „12. flokksþing Framsóknar- manna leggur á það megin á- herzlu að vernda beri rétt hinna sjálfstæðu, sögulega þróuðu kjör- dæma til þess að hafa sérstaka fulltrúa á Alþingi. Jafnframt tel- ur það rétt að fjölga kjördæma- kosnum þingmönnum fjölmenn- ari byggðarlaga, þó þannig að tekið sé eðlilegt tillit til aðstöðu- munar kjósenda í einstökum byggðalögum til áhrifa á þing og stjórn. II. Flok’ sþingið telur að stefna beri að því að skipta landinu í einmenningskjördæmi utan Reykjavíkur og þeirra kaupstaða annarra, sem rétt þykir og þykja kann að kjósi fleiri en einn þing- mann. Með hæfilegri fjölgun kjördæmakjörinna þingmanna falli niður uppbótar landkjörið. Telur flokksþingið að einmenn- ingskjördæmi sem aðalregla sé öruggasti grundvöllur að traustu stjórnarfari." Auk þessa er að því vikið, að endurskoða þurfi stjórnarskrána í heild, og réttast sé að gera það á sérstöku stjórnlagaþingi. Hvort tveggja eru þetta gamalkunn ráð Framsóknar, sem miða að því einu að fresta kjördæmabreyt- ingu og flækja málið svo, að sem allra erfiðast verði um lausn þess. ★ Eins og sjá má af framan- greindri ályktun er ærið margt í henni óákveðið. Ekki er sagt í hvaða byggðarlögum eigi að fjölga kjördæmakosnum þing- mönnum, né hve mikil fjölgunin skuli vera. Talað er um „hæfilega fjölgun kjördæmakjörinna þingmanna“, en engin leiðbeining gefin um, hvað hæfilegt skuli teljast. En í skjóli allrar þessarar óvissu á að byggjast brottfall uppbótarþing- mannanna! Gefið er í skyn, að utan Reykja- Víkur séu einhverjir kaupstaðir „sem rétt þykir og þykja kann að kjósi fleiri en einn þingmann". en ekki er skýrt frá hverjir þessir kaupstaðir séu og þá vitanlega ekki heldur, hversu marga þing- menn Framsóknarherrunum þókn ist að úthluta þeim. ★ Um þingmannafjölda Reykja- víkur er ekkert sagt, aðeins kem_ ur óbeint fram, að henni séu þó fyrirhugaðir fleiri en einn þing- maður. Má vafalaust telja það til einstaks örlætis miðað við þann anda, sem ríkti á meðal höfuð- paura þingsins. Einn þeirra rit- aði svo í Tímann sama dag og kjördæmaályktunin var birt: „Víst lætur það vel í eyrum, að allir skuli hafa jafnan rétt. En þess ber að gæta, að „jöfnun“ kjördæma eftir fólksfjölda er ekki sama og jöfnun áhrifa. Eða skyldi það vera einskær tilviljun eða athugaleysi að sjálf höfuð- borg Bandaríkjanna, þeirrar miklu lýðræðisþjóðar, hafi eng- an þingmann? Hún verður að láta sér nægja að hafa þingið og ríkis- •stjórnina innan sinna vébanda". En þó að úthluta eigi Reykja- vík einhverjum þingmönnum, þá á hún samt að hafa sérstöðu, á- samt öðrum kaupstöðum, sem „kynnu að fá fleiri þingmenn en einn“. í þessum kjördæmum á sem sé að vera hlutfallskosning, en alls staðar annars staðar ein- menningskjördæmi. ★ Ekki þarf lengi að leita ástæð- unnar fyrir þessum mismun. Framsókn telur sig nú vonlausa um að ná meirihluta í nokkrum kaupstað. Þar getur hún því ein- ungis komið að þingmanni, ef hlutfallskosning gildir. í litlu kjördæmunum úti á landi telur hún sig aftur á móti víða hafa vonir um að fá meiri- hluta og þeim mun meiri vonir, sem kjördæmin eru minni. Þess vegna vill hún hafa þau sem flest og minnst, og þar með skapa sér möguleika til að fá hreinan meiri hluta á A!þingi, þó að fylgi henn- ar sé einungis einhvers staðar milli 15—20%. Ofstæki Framsóknar gengur svo langt, að hún sýnist ætla að láta öll tvímenningskjördæmin, sem nú eru, una við það að fá einungis einn þingmann hvert. Öðru vísi verður samþykktin ekki skilin, nema ætlunin sé að kljúfa tvímenningskjördæmin í tvennt. En hvað verður þá um „hin sjálfstæðu, sögulega þróuðu kjör- dæmi“? Að því ógleymdu, að hin I sögulega þróun á rætur sínar að ! rekja til erlends valds og er með öllu úr tengslum við þá skipun, | er gilti meðan íslendingar nutu •! frelsis á sínum mesta frægðar- i tíma, því að stóru kjördæmin j minna einmitt mjög á skipun hinna fornu fjórðunga. ★ Þegar á þessar samþykktir Framsóknar er litið, verður því ekki neitað, að þær eru einhver furðulegasti samsetningur sem sézt hefur í íelenzkum stjórnmál- um, enda fá þær kaldar undir- tektir hjá öllum, einnig þeim, sem Framsókn hefur mest treyst á í kjördæmamálinu. Þjóðviljinn kallar ályktunina t. d. í gær „fer- legar afturhaldstillögur" og er þá fokið í öll skjól fyrir Fram- sókn, ef kommúnistar neita henni um stuðning til að hindra fram- gang réttlætisins. Anne Heywood lukur fyrsta hlutverk sitt sem kynbomba * A næstunni mun hún leika i ítalskri stórmynd ásamt Daniel Gelin ANNE Heywood hefir undanfar- ið verið í hópi þeirra brezku leik kvenna sem kvikmyndaframelið- endur hafa sótzt eftir að fá til að leika í myndum sínum. Hins veg ar mun hún vera stórum eftir- sóttari, síðan hún lék í fyrsta sinn kynbombu í einni af nýjustu kvikmyndum Rank-kvikmyndafé lagsins. Kynþokkinn varð til þess að koma Anne Heywood á hátind frægðarinnar. Kvikmynd þessi heitir Flóð óttans og bandaríski kvikmyndaleikarinn Howard Keel leikur á móti Anne. í myndinni leikur Anne banda- ríska stúlku og drífur ýmislegt á daga hennar. Myndin gerist við stórfljót í Bandaríkjunum. Fljót ið flæðir yfir bakka sína, og Anne er í mikilli lífshættu, en Howard Keel bjargar henni á síð ustu stundu. Síðar í kvikmynd- inni bjargar hann Anne í annað sinn, þegar hún er í hættu stödd, er maður ætlar að ráðast á hana. Eins og sjá má, er efni mynd- arinnar „vel kryddað". Hins veg- ar hefir kvikmyndaleikstjóran- um Charles Crichton tekizt að gæða myndina listrænu ívafi, sem ætti að nægja til þess að koma henni víðast hvar í gegnum nál- araugu kvikmyndaeftirlitsins. Anne Heywood hefir í mörg Rætt um flota Frakka PARÍS, 17. marz. — Nokkurrar óánægju hefur gætt í London og Washington með þá ákvörðun Frakka að taka Miðjarðarhafs- flota sinn undan stjórn Atlants- hafsbandalagsins. I dag gekk Debré, forsætisráðherra Frakka, ásamt helztu ráðamönnum í her- málum Frakka á fund Norstad, yfirherforingja bandalagsins, til að ræða málið. — Talsmaður franska utanríkisráðuneytisins gerði í dag lítið úr þessum breyt- ingum. Hann kvað Frakka ekki hafa tekið ákvörðunina vegna óánægju í sambandi við NATO eða bandamenn sína — það væri einfaldlega hagfelldara að hafa þetta þannig. horn að líta um þessar mundir. Nú er verið að ljúka við nýjustu kvikmyndina, sem hún leikur í hjá Rankfélaginu. Hinn vinsæli, enski söngvari, Frankie Vaughan leikur á móti henni og myndin heitir The Heart of a Man. Viðamesta hlutverkið, sem hún leikur í ár, er þó vafalaust aðal- kvenhlutverkið í sögulegri ítalskri stórmynd, sem tekin verð ur af Galone/Lux kvikmyndafé- laginu í Róm. Myndin heitir Karþagó brennur og verður í lit- um og á breiðtjaldi. Anne er á samningi hjá Rankfélaginu, sem veitti henni heimild til að taka til boðinu frá Galone/Lux. Hafizt verður handa um töku kvikmyndarinnar á Ítalíu í maí- mánuði. Áðúr en Anne fer til Ítalíu, leikur hún í einni kvik- mynd til viðbótar fyrir Rankfé- lagið. Það er gamanleikur á nú- tímavísu. Michael Craig og franska kvikmyndaleikkonan My lene Demongeot leika einnig í þessari kvikmynd. í ítölsku mynd inni leika auk Anne Frakkinn Daniel Gelin, Spáverjinn José Saurez og ítalinn Folco Lulli. Anne Heywood vakti fyrst at- hygli kvikmyndaframleiðenda, er hún var kjörin fegurðardrottning Englands. Henni bárust margvís- leg tilboð, en hún tók þann kost- inn að byrja á því að stunda leik listarnám. Þetta var mjög hyggi legt, þar sem henni bauðst hag- kvæmari samningur vegna þessa. Anne Heywood í kvikmyndinni Flóð óttans. Flugan og varömadurinn VARÐMAÐURINN fyrir framan Buckinghamhöllina í Lundúnum á ekki alltaf sjö dagana sæla. Ag inn er strangur, og hermaðurinn með bjarnarskinnshúfuna má Hvað er þetta? Fluga. Hún lætur sér hvergi bregða þó að ég yggli mig! hvorki hreyfa legg né lið, meðan hann stendur á verðinum, hvað sem að höndum ber. Hvorki stór- viðburðir eða smá atvik mega Hamingjan hjálpi mér! Nú þykir mér skörin vera farin að færast upp i bekkinn. Ég þarf að hnerra, en ég má það ekki. raska ró hans, þá á hann á hættu að missa stöðuna. Fyrir skömmu munaði minnstu, að ein lítil fluga yrði til þess að koma einum varð mannana úr jafnvægi. Loksins — Guði sé lof! Þarna hypjaði hún sig. Framtíð minni er borgið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.