Morgunblaðið - 11.04.1959, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.04.1959, Blaðsíða 1
16 síður og Lesbók <6. ársrangnr 81. tbl. — Laugardagur 11. apríl 1959 Frentsmiðja MorgunblaðsiM Samkomulag þriggja flokka um kjördæmamálið: Landinu skipt ■ 8 kjördæmi með hlutfallskosningu 49 kjördæmakosnir þingmenn og ellefu landskjörnir Þingmenn Reykjavíkur verða 12 Frumvarp um stjórnarskrdrbreytiiigu verður lagt íram d Alþingi í dag SAMKOMULAG hefur nú tekizt milli Sjálfstæðisflokksins, Alþýðuflokksins og Alþýðubandalagsins um frumvarp að nýrri kjördæmaskipun. Mun þetta frumvarp til breytingar á stjórnarskránni verða lagt fyrir neðri deild Alþingis í dag. Flutningsmenn þess eru þeir Ólafur Thors, formaður Sjálfstæðisflokksins, Emil Jónsson, formaður Alþýðuflokks- ins og Einar Olgeirsson, formaður Sósíalistaflokksins. Gert er ráð fyrir að málið verði tekið til 1. umræðu á mánudag eða þriðjudag í næstu viku og fara þá fram um það út- varpsumræður. — Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að öllu landinu verði skipt í 8 kjördæmi með hlutfalls- kosningu. Kjósa 5 þeirra 5 þingmenn hvert, 2 kjördæmi kjósa 6 þingmenn hvort og 8. kjördæmið, sem er Reykjavík, kýs 12 þingmenn. Samtals verða kjördæmakosnir þingmenn þá 49, en eru nú samkvæmt gildandi kjördæmaskipun 41. TRYGGÐUR FRAMGANGUR Þá er í hinu nýja frumvarpi lagt til, að landskjörnir þing- menn, eða svokallaðir uppbótarþingmenn, verði 11 eins og þeir eru nú. Samtals munu þá þingmenn samkvæmt hinni nýju kjördæmaskipun verða 60 í stað 52, eins og verið hefur síðan kjördæmaskipuninni var síðast breytt árið 1942. Með samkomulagi hinna þriggja flokka er framgangur kjördæmamálsins tryggður á þessu þingi. Þegar það hefur verið samþykkt og Alþingi lokið öðrum nauðsynlegum störfum, svo sem'setningu fjárlaga, mun þing verða rofið og efnt til kosninga, sem sennilega fara fram síðari hluta júnímánaðar. sýslu. Kýs þetta kjördæmi 6 þing menn og er það einum þingmanni fleira en kjördæmin á þessu svæði kjósa nú. Austurlandskjörðæmi, sem nær yfir Norður-Múlasýslu, Seyðisfjarðarkaupstað, Suður- Múlasýslu og Austur-Skaftafells- sýslu. Kýs þetta kjördæmi 5 þingmenn eða einum þingmanni færra en það kýs nú. Verður það eina kjördæmið, sem kýs færri þingmenn eftir hinni nýju kjördæmaskipun en það hefur nú. — Suðurlandskjördæmi, sem nær yfir Vestur-Skaftafellssýslu, Vestmannaeyjakaupstað, Rang- árvallasýslu og Árnessýslu. Kýs þetta kjördæmi 6 þingmenn eða jafnmarga þingmenn og það kýs nú. — Reykjaneskjördæmi, sem nær yfir Gullbringu- og Kjósarsýslu og Hafnarfjarðarkaupstað. Kýs þetta kjördæmi 5 þingmenn og er það 3 þingmönnum fleira en kjördæmin á þessu Xandsvæði kjósa nú. Kjördæmabreytingin 1942 Síðan kjördæmaskipun lands- ins var síðast breytt eru nú liðin um það bil 1T ár. Þá var sú breyting gerð að þingmönnum Reykjavíkur var fjölgað um 2, Siglufjörður var gerður að sér- stöku kjördæmi og teknar voru upp hlutfallskosningar í tvímenn ingsk j ör dæmunum. Gera má ráð fyrir, að Al- þingi ljúki afgreiðslu kjör- dæmamálsins að þessu sinni í kringum næstu mánaðamót. Ennfremur má telja líkiegt, að samþykkt fjárlaga verði lok- ið um svipað leyti. Ætti Al- þingi þvi að geta lokið störf- um um næstu mánaðamót. Talið að Adenauer ætli að auka völd sín, sem forseta BONN, 10. apríl. — (Reuter). — Umræddasta atriði í Þýzka landi í dag er 59. gr. stjórn- Hin einstöku kjördæmi Samkvæmt ofansögðu mun skiptingu landsins í kjördæmi samkvæmt hinni nýju kjördæma skipun verða hagað á þessa leið: Reykjavíkurkjördæmi, sem kýs 12 þingmenn í stað 8 samkvæmt núgildandi kjördæmaskipun. Mið-Vesturlandskjördæmi, sem nær yfir Borgarfjarðarsýslu, Mýrasýslu, Snæfells- og Hnappa- dalssýslu og Dalasýslu. Kýs. þetta kjördæmi 5 þingmenn en þær 4 sýslur, sem þar nær yfir kjósa nú samtals 4 þingmenn. Vestfjarðakjördæmi, sem nær yfir Barðastrandarsýslu, Vestur- Isafjarðarsýslu, ísafjarðarkaup- stað, Norður-Isafjarðarsýslu og Strandasýslu. Kýs þetta kjör- dæmi 5 þingmenn eða jafn marga og Vestfjarðasýslurnar kjósa nú. Norðurlandskjördæmi, sem nær yfir Vestur-Húnavatnssýslu, Austur-Húnavatnssýslu, Skaga- fjarðarsýslu og Siglufjarðar- kaupstað. Kýs þetta kjördæmi 5 þingmenn eða jafnmarga og kjör- dæmin á þessu svæði kjósa nú. Norð-Austurlandskjördæmi, sem nær yfir Eyjafjarðarsýslu, Akureyrarkaupstað, Suður-Þing- eyjarsýslu og Norður-Þingeyjar- Ludwig Erhard efnahagsmála- ráðherra Þýzkalands er nú tal- inn liklegastur eftirmaður Ad- enauers sem forsætisráðherra. arskrár Vestur-Þýzkalands, sem segir m. a.: „Forseti Þýzkalands fer með þau mál sem snerta alþjóðasamninga. Hann gerir samninga við önnur ríki fyrir hönd Þýzka- lands.“ Stjórnmálamenn í Þýzkalandi lesa nú þessa grein upp aftur og þýzk blöð rökræða um hana. Spurning- in er, hvort Adenauer geti byggt á henni yfirráð yfir utanríkismálum Þýzkalands jafnvel eftir að hann verður kosinn forseti. Það sem veldur fyrst og fremst öllum þessum heilabrotum, er ræða, sem Adenauer flutti í þýzka útvarpið daginn eftir að tilkynnt hafði verið að hann mundi verða í framboði fyrir Kristilega lýðræðisflokkinn í for- setakosningunum í júlí n. k. I þessari ræðu sagði Adenauer m. a.: „Staða forsetans, hlutverk hans og starf sem þýzks þjóðhöfð ingja hefur verið sorglega van- metið bæði í Þýzkalandi og utan þess. Vald hans er miklú meira en fólk almennt heldur.“ Eftir þessi ummæli Adenauer* grunar menn, að hinn aldni for- ustumaður ætli sér meiri völd I forsetaembættinu en Theodor Heuss forseti hefur tekið sér á þeim tíu árum, sem hann hefur gegnt embættinu. Er álitið að Adenauer vilji koma á forseta- valdi í Þýzkalandi í líkingu við það sem de Gaulle stofnaði 1 Frakklandi með nýju frönsku stjórnarskránni. Mörg þýzku blaðanna eru mót- fallin slíkum breytingum og segja að stjórnarskrá Þýzka- lands geri ráð fyrir að hið póli- tíska vald sé í höndum Sam- bandsþingsins og ríkisstjórnar- innar. Jafnaðarmenn hafa farið ó- fögrum orðum um þá hugmynd Adenauers að auka völd forset- ans. I fréttabréfi flokksins, sem út kom í dag segir m. a.: „Aden- auer er jafnvel áður en hann er kosinn forseti farinn að velta því fyrir sér hvernig hann eigi að brjóta stjórnarskrá Þýzka- lands.“ Föi Doki Loma gengnr vel Japanir fagna brúöhjónum ákaft En tilræðismaður kastaði grjóti að þeim TOKÍÓ, 10. apríl. (Reuter). — Klukkan 6,30 í morgun kvaddi Michiko Shoda 24 ára malaradótt ir foreldra sína og tárfelldi öll fjölskyldan. Síðan ók hún til japönsku keisarahallarinnar. Þar var hún í þrjár klukkustund- ir að skrýðast brúðarskarti sínu. Klukkan nákvæmlega tíu gekk hún og Akihito kónprins Japans inn í litla Shinto-musterið við keisarahöllina. Þau voru alein þar inni með prestunum og voru gefin þar saman í heilagt hjóna- band. Foreldrar þeirra fengu ekki einu sinni að fara inn í musterið til að verða viðstödd at- höfnina og engin ljósmynd var tekin af giftingarathöfninni, sem er of heilög í augum Japana til þess að nokkur fái að sjá hana. Eftir hjónavígsluna óku ungu hjónin um 10 km leið eftir stræt- um Tokíó og var ákaft fagnað. Höfðu milljónir manna safnazt saman meðfram leiðinni. Brúðhjónin urðu að framfylgja margháttuðum hjúskaparathöfn- um í dag og var þar blandað saman gömlum og nýjum siðum. Við giftinguna klæddust þau fornum búningum, en fóru síðan í vestræn föt. Michiko Shoda er af ótignum ættum og er það í fyrsta skipti í 200 ár sem meðlimur keisarafjölskyldunnar gengur að eiga ótigna mey. Voru gamlar reglur brotnar á margan annan hátt við hjúskaparathafn- irnr í dag, enda eru bæði Aki- hito krónprins og brúður hans Michiko nýtízkuleg í sér. Það kom í ljós, að öllum Japön- um þótti nýi tíminn ekki enn hafa hafið innreið sína nóg. Því að sá atburður gerðist er brúðhjónin óku eftir götum Tokíó að ungur japanskur námsmaður að nafni Kensetu Nakayama hljóp allt í einu fram úr mannþrönginni, kastaði steini að vagni brúðhjón- anna og munaði minnstu að hann hitti þau. Síðan hljóp námsmað- urinn upp á vagninn og virtist sem hann ætlaði að meiða þau. Framh. á bls. 2. NÝJU DELHI, 10. apríl. (Reuter) Dalai Lama kom óvænt í dag til bæjarins Bombdila í Assam, en það er tveim dögum á undan áætlun. í þessum bæ mun Dalai hvíla sig í nokkra daga og þar er búizt við að hann hitti sér- legán sendiboða indversku stjórn arinnar, sem hefur meðferðis einkabréf frá Nehru forsætisráð- herra Indlands. Síðar mun Dalai halda ferðinni áfram til járn- bruatarstöðvarinnar Tezpur. Bróðir Dalai Lama, sem hefur búið sem flóttamaður í Indlandi í nokkur ár fór í dag með bifreið frá Tezpur upp í rætur fjallanna. Er talið að hann sé á leiðinni til Bombdila. Fregnir frá Tíbet herma, að liðsstyrkur uppreisnarmanna í Suður-Tíbet herma, að liðsstyrkur uppreisnarmanna í Suður-Tíbet eflist stöðugt og hermir orðróm- ur að þeir hafi nú náð á vald sitt flugvelli kommúnista skammt frá Lhasa. Nýjustu fréttir herma, að flugvélar kínverskra þjóðern- issinna séu nú farnar að varpa vistum og skotfærum niður úr lofti til uppreisnarherjanna. Hafa kommúnistar flutt orrustuþotur til Tíbet í þeim tilgangi að skjóta flutningaflugvélar Þj óðernissinna niður. Panchen Lama, sem kínverskir kommúnistar hafa nú gert að þjóðhöfðingja Tíbets, er farinn frá Lhasa og er á leiðinni til Pek- ing. Þar á hann að sitja þjóð- þing Kína. *--------------------------★ Laugadagur 11. apríl. Efni blaðsins m.a.: Bls. 3: Merkileg sýning á mikilli gjöf, eftir Veturliða Gunnarssou. — 6: Afturelding 50 ára. — 8: Ritstjórnargreinin: — Þögntm stoðar ekki. Utan úr heimi: Bandarfkja- menn hafa sent Salk-bóluefnl til 90 landa. — 9: í fáum orðum sagt: Rabbað vll Gísla J. Johnsen á 60 ára af- mæli verzlunar hans. L E S B Ó K fylgir blaðinu í rtag. Efni hennar er m.a.: Úr sögu Reykjavíkur. Húsin me9 mörgu nöfnin. Furðuskepnur og vísindi. Annáll marz-mánaðar. Bernskuminningar, eftir Sigur* borgu Jónsdóttur. Bridge — Fjaðrafok.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.