Morgunblaðið - 11.04.1959, Blaðsíða 16
VEÐRIÐ
NA-goIa — léttskýjaff.
I fáum orðum sagt
Sjá bls. 9.
81. tbl. — Laugardagur 11. apríl 1959
Ljósmæðurnar undírbúa merkjasöluna.
Árlegur merkjasöludagur
LjósmœÖrafélags Rvk.
Á MORGUN, sunnudaginn 12.
apríl, hefur Ljósmæðrafélag
Reykjavíkur sinn árlega merkja-
söludag til ágóða fyrir hvíldar-
heimili ljósmæðra. Er félagið nú
að innrétta lítið hús í Hvera-
gerði, þar sem ljósmæður geta
dvalið sér til hvíldar. Hefur
hvíldarheimili þetta hlotið nafnið
Ljósuland.
Ljósmæðrafélag Reykjavíkur
starfar af miklum krafti, þó fá-
Enn geisa misling-
ar á ísafirði
ÍSAFIRÐI, 10. april. — Mislinga-
faraldur geisar enn hér í .bænum
og hefur barnaskólinn verið ó-
starfhæfur síðan 1. apríl. Á mánu
daginn kemur á að reýna að taka
til starfa á ný. Hefur það verið
reynt tvisvar áður, en veikin var
það útbreidd í bæði skiptin, að
ótækt reyndist að hefja skóla-
starfið á ný.
Það eru einkum börn, sem taka
veikina, en hér herjuðu misling.
ar síðast fyrir 5 árum. Taki ung-
lingar á aldrinum 14—15 ára
veikina, hafa þeir allir orðið mjög
veikir. —G.
mennt sé. Fyrir nokkrum árum
gaf félagið kr: 10,000 til Hall-
veigarstaðaheimiiisins. Og eftir
að hið litla hvíldarheimili er
fengið, liggur næst fyrir að koma
upp ljósmæðrasafni, þar sem
geyma á ýmsar minjar um ljós-
mæður og starf þeirra.
Stjórn félagsins skipa Helga
Nielsdóttir, form.; Guðrún Hall-
dórsdóttir, ritari og Margrét
Larsen gjaldkeri.
Vill félagið koma á framfæri
þökkum til allra, sem hafa stutt
það fyrr og síðar og vonast til
að bæjarbúar bregðist vel við og
kaupi merki félagsins og leyfi
börnum sínum að selja merkin,
sem afhent verða í öllum barna-
skólunum frá kl. 9 árdegis.
Málflutningi í tyrsta
okurmálinu lokið fyrir
Hœstarétti
í GÆR lauk í Hæstarétti mál-
flutningi í hinu fyrsta af þrem
svonefndu okurmálum, sem Hæsti
réttur mun á næstunni kveða upp
dóma í.
Fyrst þessara mála. en það er
ákæruvaldið, sem höfðar þau öll,
er gegn Brandi Brynjólfssyni hdl.
Málflutningur fyrir Hæstarétti
hófst í þessu máli árdegis á þriðju
daginn var. Hefur honum verið
haldið áfram óslitið síðan dag
hvern. Sækjandi fyrir hönd
ákæruvaldsins er Rannveig Þor-
steinsdóttir, sem nú er að ljúka
prófmálum sínum fyrir Hæsta-
Byr jað á mæling-
um við loranstöð
SANDI, 10. apríl: Hingað vestur
eru komnir 8 menn á vegum Að-
alverktaka, til þess að hefja und-
irbúningsframkvæmdir að bygg-
ingu nýrrar loranstöðvar fyrir
flugþjnóustuna, en stöðin verður
reist á kostnað varnarliðsins. —
Hún verður hér í um það bil 2
km fjarlægð frá þorpinu. Menn-
irnir átta vinna við mælingar og
staðsetningu ýmissa bygginga. —
Fyrsti áfanginn er að koma upp
íbúðarskálum og mötuneyti fyrir
þá, sem að mannvirkjagerðinni
eiga að starfa. —R.
Hefir fengið 9 tonn að
jafnaði í róðri
SANDI, 10 .apríl: — í vetur hafa
sex bátar stundað róðri frá Rifs-
höfn en afli bátanna fluttur hing-
að til vinnslu. Um síðustu mánaða
mót höfðu bátar þessir landað
alls 1789 tonnum í 255 róðrum.
Aflahæsti báturinn er Ármann,
36 tonna bátur. Um síðustu mán-
aðamót var hann kominn með
500 tonna afla. Skipstjóri á bátn-
44
„Pa jakt efter runstenar
Háskólafyrirlestur Sven B. F. Jansson
PRÓFESSOR fil. dr. Sven B. F.
Jansson frá Stokkhólmi er stadd-
ur hér í Reykjavík í boði Há-
skóla íslands. Próf. Jansson er
mörgum kunnur hér og hefir
verið hér fjórum sinnum áður,
var t. d. um skeið sendikennari
við Háskólann.
Prófessor Jansson mun halda
hér fyrirlestur laugardaginn 11.
apríl kl. 5 e. h. (stundvíslega)
í I. kennslústofu Háskólans. —
Fyrirlesturinn, sem verður flutt-
ur á sænsku, nefnist Pá jakt efter
runstenar.
Dr. Jansson er þekktasti rúna-
fræðingur Svía og er prófessor í
rúnafræði. Fyrirlesturinn mun
fjalla um rúnasteina, sem fundizt
hafa á síðari árum og eru m. a.
merkilegir vegna litar síns. Hef-
ir tekizt að sýna fram á, hver
upprunalegi litur þeirra var og
hvert efni notað var til þess að
lita steinana. Skuggamyndir
verða sýndar með fyrirlestrin-
um, og sést á þeim upprunalegur
litur steinanna, sem eru beztu
heimildir um málaralist víkinga-
aldar.
Próf. Jansson mun einnig
skýra frá því, hvernig steinar
þessir fundust, en stundum var
það við hinar skringilegustu að-
stæður.
Öllum er heimill ókeypis að-
gangur að fyrirlestrinum.
um er ungur, mjög dugandi for-
maður, Sigurður Kristjónsson. í
gærkvöldi var afli Ármanns kom
inn upp í 583 tonn í 64 róðrum.
Að meðaltali hefur afli í róðri
hjá Sigurði og skipsmönnum hans
verið 9,1 tonn.
Sem fyrr greinir, er aflinn tek-
inn til vinnslu hér, fluttur 3 km
leið á bátum, fyrst til frystingar,
herzlu og söltun.r.
Trillubátar hafa verið með mok
afla svo og handfæfabátar. Sem
dæmi um fiskgengdina inn á
grunnmiðin má geta þess, að einn
maður á trillubát sínum fékk
í gær 2,5 tonn af fiski. —R.
Lá \ið slysi
í GÆRKVÖLDI milli klukkan
7 og 8 munaði litlu að banaslys
hefði orðið á götu hér í bænum.
Lítill 4 ára drengur hafði komið
hlaupandi afturundan vörubíl,
út á götuna. í sömu svipan bar
að lítinn bíl og skipti það eng-
um togum að litli drengurinn
lenti framan á bílnum, og féll
í götuna. Virtist auðsætt að bíll-
inn hefði farið yfir fætur drengs-
ins, en þótt ótrúlegt megi virð-
ast, mun barnið ekki hafa fót-
brotnað við þetta.
Slys þetta gerðist á Njálsgöt-
unni, skammt frá heimili drengs-
ins, en hann heitir Kristján
Sveinsson Njálsgötu 50. Hann var
þegar fluttur í slysavarðstofuna.
rétti. Mun hún fyrst íslenzkra
kvenna hljóta öll réttindi til mál-
flutnings fyrir Hæstarétti íslands.
Hún er einnig sækjandi í hinum
okurmálunum tveim, en þau eru
gegn Eiríiii Kristjánssyni kaup.
manni og Herði Ólafssyni hdl.
Verjandi Brands Bryjólfssonar
fyrir Hæstarétti er einnig að ljúka
prófmálum sínum fyrir dómnum.
Er það Sigurður Hafstað fulltrúi
í utanríkisráðuneytinu. Búizt er
við dómi í máli Brands um miðja
næstu viku eða svo.
Arsþingi iðnrek-
enda að ljúka
f DAG, laugardag, lýkur ársþingi
Félags ísl. iðnrekenda. Síðasti
fundurinn hefst á hádegi í dag
í Þjóðleikhúskjallaranum. Verður
þar fjallað um rannsóknir- og
tæknimál ,svo og almenn félags-
mál. Þá mun dr. Jóhannes Nordal,
bankastjóri, flytja erindi.
f gær, föstudag, sátu fulltrúar
hádegisverðarboð borgarstjórans
hér í Reykjavík.
Ársþingið hefur gert ýmsar
samþykktir varðandi hagsmuna
mál ísl. iðnaðar, sem birtar munu
verða síðar.
Kvikmyndir um nýjung-
ar í byggingartœkni
BYGGINGARTÆKNIRÁÐ IMSÍ
mun halda kvikmyndasýningu í
dag, laugardag 11. apríl, kl. 2 í
Nýja Bíói. — —Sýndar verða
þrjár kvikmyndir um nýjungar
í byggingartækni.
Fyrsta myndin er tekin í Ráð-
stjórnarríkjunum og skýrir ýms-
ar nýjungar í byggingartækni. —
Önnur myndin er frá byggingar-
framkvæmdum við Milestedet í
Kaupmannahöfn, en þar var reist
bæjarhverfi fyrir 10 þús. íbúa.
Byggingarnar voru reistar úr
einingum, sem framleiddar voru
á staðnum. — Þriðja myndin er
frá Viborg á Jótlandi, en þar voru
byggðar 564 íbúðir, flestar í
þriggja hæða húsum með 12 íbúð
um.
Tilgangurinn með þessari sýn-
ingu er að kynna byggingartækni
og gefa mönnum, einkum þeim
sem við byggingar fást, tækifæri
til að kynnast byggingaraðferð-
um þeim, sem hafa rutt sér til
rúms í Evrópu eftir stríð, en í
byggingariðnaðinum hafa orðið
stórstígar framfarir á tiltölulega
stuttum tíma. — Ný tækni hefur
rutt sér til rúms. Byggingarnar
eru teiknaðar eftir mátkerfi. Hús
inu er skipt í einingar, sem eru
framleiddar við hagstæð skilyrði
og settar saman á byggingarstað.
Á vegum Byggingartækniráðs
og Iðnaðarmálastofnunar hefur
verið unnið að stöðlun í bygging-
ariðnaði, en mátkerfi er grund-
völlur fyrir stöðlun á stærð
byggingareininga. —. Myndir
þessar skýra í einstökum atrið-
um, hvernig einingar eru fram-
leiddar í smáum eða stórum stíl
og reist stór og smá hús.
Öllum fullorðnum er heimill
ókeypis aðgangur, meðan húsrúm
leyfir. — Sýningargestir fá prent
aðar efnisskýringar, en auk þess
verður rússneska myndin að lík-
indum skýrð jafnóðum.
(Frá IMSÍ.)
Málverkasýning
tveggja ungra
listmálara
TVEIR ungir listmálarar sýna
um þessar mundir málverk í
Mokkakaffi á Skólavörðustíg. —
Eru það þeir Þorlákur R. Hall-
dorssen og Guðmundur Karl Ás-
björnsson. Sýna þeir þar 13 mál
verk, olíumálverk, pastelmyndir
og teikningar.
Verða þessi verk til sýnis næstu
daga. My-dirnar eru til sölu.
Varðarkaffi í Valhöll
í dag kl. 3-5 s.d.
★
, HLUTAVELTA Sjálfstæðis-
' kvennafélagsins Hvatar verður
á morgun í Listamannaskálanum.
í dag frá kl. 10 f.h. verður tekið
á móti munum á hlutaveltuna.
Orðsending fró fjóröflunnr-
nefnd Sjólfstæðisfélugannu
ÞEIR, sem lofaff hafa aff greiða mánaðarlega í kosningasjóð
og eiga eftir aff greiða aprilgreiðsluna, eru vinsamlega beðnir
að gera þaff sem fyrst í skrifstofunni í Sjálfstæðishúsinu eða
Valhöll. Einnig eru þeir fulltrúar, sem eiga eftir að skila
greiðsluloíorðum, beðnir að gera það sem fyrst.
FJÁRÖFLUNARNEFND
Karl Kvaran opnar
málverkasýningu í dag
KARL KVARAN listmálari opn-
ar málverkasýningu í bogasal
Þjóðminjasafnsins kl. 2 e. h. í
dag. Á sýningunni verða alls 23
myndir, 5 vatnslitamyndir og 18
guaschemyndir. Þær eru allar
málaðar á síðustu tveimur árum.
Karl Kvaran hefur áður hald-
ið þrjór sjálfstæðar sýningar, þá
fyrstu árið 1951. Auk þess hefur
hann tekið þátt í samsýningum
bæði hérlendis og erlendis. Hann
hefur átt mólverk á íslenzkum
myndlistarsýningum í Rómaborg,
Gautaborg og Kaupmannahöfn,
og á sýningunni sem send var
til Sovétríkjanna á dögunum átti
hann fimm myndir.
Sýning Karls Kvarans í boga-
salnum verður opin næstu tvær
vikur.