Morgunblaðið - 11.04.1959, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 11.04.1959, Blaðsíða 15
Laugardagur 11. apríl 1959 15 M O R G 'VWB'l. AÐIÐ '• Ölafur Einarsson frá Vindási — minning — Minning Framhald af bls. 3 gerði húa alltaf strangastar kröfur til sjálfrar sín og hlífði sér aldrei. Viljafestan var svo mikil. Kom hún eins og aðrar manndyggðir snemma fram, enda var uppeldi hennar vel til þess fallið að þroska þær. Hólmfríður fæddist að Lækj- ardal í Axarfirði 27. ágúst 1874, og voru foreldrar hennar Þor- lákur Einarsson trésmiður þar og kona hans, Margrét Guð- brandsdóttir, síðar húsfreyja í Skoruvík á Langanesi. Þegar Hólmfríður var á þriðja ári, missti hún föður sinn og ólst að mestu upp hjá fósturforeldr- um, hjónunum Sigurði Rafnssyni og Sigurlaugu Benjamínsdóttur, á Snartarstöðum í Núpasveit, frábæru rausnarheimili. Þar kynntist hún snemma gestrisni, eins og hún var mest og bezt í sveit á íslandi fyrir síðustu alda- mót. Hólmfríður hafði oft orð á því, að hún hefði í æsku haft meira yndi af að taka á móti gestum en nokkru öðru. Og sú dyggð þróaðist með árunum, eft- ir að hún eignaðist sjálf sitt heimilL Hólmfríður var tvígift. Fyrri maður hennar var Ásgrím- ur Magnússon, en hinn síðari ísleifur Jónsson, báðir skóla- stjórar og valinkunnir sæmdar- menn. Stóð Hólmfríður ávallt ótrauð við hlið manna sinna við fræðslustörf þeirra og önnur verkefni og annaðist sjálf kennslu við skólann áratugum saman. Stærst var þó Hólmfríð- ur sem húsmóðir, gestgjafi og hjálparhella öllum þeim, sem til hennar komu eða hún vissi, að þörfnuðust aðhlynningar, fyrir- greiðslu og húsaskjóls. Þeir verða ekki taldir, sem áttu at- hvarf í húsinu Bergstaðastræti 3 öll þau ár, sem Hólmfríður réð þar ríki. Fyrst og fremst voru það auðvitað hennar kæru Núp- sveitungar, en þó engu síður sýslungar Ásgríms og Isleifs, að ógleymdum nemendum skólans, sem voru eins konar börn henn- ar, en einnig fjöldi annarra vina, sem nú eru margir horfnir bak við tjaldið. Fyrir hönd skjólstæðinga ís- leifs og Hólmfríðar vil ég þakka alla þá góðvild, hlýju og yndi, sem við nutum á heimili þeirra. Hólmfríði varð ekki barna auðið. En hún og Ásgrímur tóku sér kjördóttur, Ásfríði Sig- valdadóttur frá Gilsbakka í Ax- arfirði. Henni gekk Hólmfríður sannarlega í móður stað, enda naut hún þess í þrautum ellinn- ar, ekki sízt í hinni löngu og erfiðu banalegu. Árið 1918 tóku þau Hólmfríður og ísleifur mun- aðarlausa stúlku, Elísu Pálsdótt- ur, sem hjá þeim dvaldist, þar til hún giftist. Er hún nú látin fyrir mörgum árum. Hólmfríður var trúkona mik- fl, en frjálslynd í skoðunum, mun þó hafa átt við sínar efasemdir að stríða og íhugaði mjög hinztu rök lífsins. Óháð var hún á allan hátt og dró frjálsar ályktanir af því, sem hún las og heyrði. Hún var dul í skapi og ræddi ógjarn- an sín innstu vandamál við aðra en tryggustu vini sína. Lotning hennar fyrir höfundi tilverunn- ar og dásemdum lífsins var djúp. Engan hef ég heyrt tala af slíkri undrun og aðdáun um barnssálina og Hólmfríði Þor- láksdóttur. Ég held, að henni hafi fundizt barnið vera ímynd hins æðsta. Síðustu orð hennar í þessu lífi við dóttur sína voru: „Guð blessi þig.“ Ég læt þau einnig vera hinztu kveðjuorð mín til Hólmfríðar: Friður guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Þóroddur Guðmundsson frá Sandi. Skíðaferðir um helgina. Mosfellsheiði (Skálafell) laug- ardaginn 11. apríl kl. 1,30, 2,30 og 6. Sunnudaginn 12. apríl kl. 9. Hellisheiði. laugard. 11. apríl kl. 2 og 6, sunnud. 12. apríl kl. 10. Ferðir frá BS.R. Skíðafélögin í Reykjavík. Á RÚMUM 4 mánuðum, hafa lát izt 8 manns, konur og karlar, héðan úr sveitinni. Svo ört hefir dauðinn kvistað niður hina eldri árganga, sem nú eru, sem óðast að falla í valinn. Og má þó kall- ast góð ending, að ekki skyldi fyrr vera. Sérstaklega þegar mið- að er við þau lífskjör, sem þetta fólk varð að alast upp við. Bæði við mikla vinnu, og einnig skort á brýnustu lífsnauðsynjum. Flest af þessu fólki var að visu flutt héðan í burtu. En hafði samt óskað sér, að mega eiga hér sitt síðasta hvílurúm. Þrír af þessum 8 hafa verið jarðsettir í Reykjavík. En 5 á Reynivöllum. Aldur þessa fólks, var frá tæpra 70 ára aldurs, upp í 93 ár. Eða að meðaltali 81 og Yz ár. Og mun þetta mega teljast allgóð ending. Sá síðasti í þessu hóp, var Ólaf ur Einarsson fyrr bóndi á Vind- ási í Kjós. En hann andaðist 3. þ.m. Þá fullra 90 ára að aldri. F. 7/2. 1869 að Flekkudal í Kjós. Voru foreldrar hans þau hjónin Úlfhildur Guðmundsdóttir og Ein ar Jónsson. Árið 1902 giftist Ól- afur frændkonu sinni, Helgu Bjarnadóttur frá Sandi. Tápmik- illi og góðri konu. Og varð hjóna band þeirra mjög farsælt. Hófu þau búskap að Grjóteyri. Fluttu þvínæst að Vindási, og bjuggu þar í hartnær 40 ár. En Helga andaðist árið 1936. Var Ólafur á Vindási nokkur ár eftir það, unz hann fluttist 'að Króki í Flóa vorið 1944, til Bjarna sonar síns og konu hans Guðríðar Þórðardóttur þar, sem að hann var umvafinn ástúð og umhyggju. Ólafur og Helga, eign uðust 10 börn, og eru 7 þeirra á lífi. Auk þess ólu þau upp 2 fósturbörn. Börn þeirra, Helgu og Ólafs, voru þessi. Bjarni, sem fyr getur. Kristín búsett á Sel- fossi, Jóna og Þórdís ljósmóðir í Reykjavík, Úlfhildur, Sigríður og Herdís allar á Akranesi. En meðal systkina Ólafs voru þessi. Kristín móðir sr. Magnúsar í Ól- afsvík o.fl. Ólafur bóndi Flekku- dal, sr. Guðmundur síðast prest- ur á Mosfelli, Jón og Einar báðir sjómenn. Munu margir Reykvík- ingar kannast við Einar skip- stjóra. Einar í Dal, eins og hann var stundum nefndur. En yngstur þeirra bræðra var Sólmundur. Öll voru þessi systkini fallin frá á undan Ólafi. Áður en Ólafur hóf búskap, og allmörg ár eftir það stundaði hann sjó. Reyndist hann þar sem annars staðar af- burða duglegur, end karlmenni að burðum svo að af bar. Eitt sinn, sem oftar, lenti skip það er hann var á, í hörðu veðri, og lá þá undir áföllum. Skipstjór inn á skipinu varð fyrir áfalli, og einhverjir fleiri af áhöfninm. Leit þá óvænlega út. Tók Ólafur þá á sér stjórn á skipinu, þó að óiærður væri. Batt sig við stýrið, og stóð þar svo að skipti mörgum klukkutímum. Tókst honum að koma skipi og mönnum til hafn- ar. Var þetta lengi rómað, sem vert var. Sýnir þetta atvik, hreysti hans og dugnað. Enda þurfti hann oftar á því að halda. Svo var lífsbaráttan oft hörð um æfina. Þrelci og kröftum hélt hann furðu lengi, miðað við svo háan aldur. Nú er þessi góði og dáðríki drengur fallinn frá, sem skilað hefir löngu og heillaríku dagsverki, með miklum sóma. Slíkra góðra drengja er holt að minnast, fyrir þá, sem eftir lifa. St. G. — Afturelding Frah. af bls. 6 eldingu, hefur verið nokkurs konar súrdeig og gagnsýrt þetta byggðarlag af félagsdyggðum eins og bræðralag, samhjálp og þeim anda að einn sé fyrir alla og all- ir fyrir einn í sveitinni, og eng- inn út undan. Ég hef sterkan grun um að þær sveitir séu fleiri en skyldi þar sem þessi andi er varla til ,nema á frumstigi. Þessi andi hefur verið fóstraður hér af sérlega vel innrættum félögum, sem orðið hafa farsælir í sveit- inni; ég vona að það skari ekki eldinn frá afmælisbarninu, þó Kvenfélag Lágafellssóknar sé nefnt í þeirri veru í sömu and- ránni. Allir, sem fara að eiga hér heima, verða ósjálfrátt snortnir af þessum anda góðs félagsskap- ar. Menn vilja helzt ekki fara héðan, af því þeir kunna svo vel við andann hér. Ég er sannfærð- ur um að ungmennafélagið Aft- urelding hefur átt sinn þátt í því að skapa þennan góða anda.“ Ford Fairlane 1959 til sölu og sýnis í dag við Leifsstyttuna frá kl. 2—4. — Tilboð óskast. Atvinna Ung stúlka, með stúdentspróf og próf í ensku frá amerískum háskóla, óskar eftir framtíðarat- vinnu. Tilboð óskast send afgreiðslu blaðsins fyrir 1. maí, merkt: Framtíðaratvinna — 9511. Chevroðet ‘55 er til sölu. Verður til sýnis að Reynimel 38, laugár- dag og sunnudag. — Tiiboð óskast. Ég þakka hjartanlega gjafir og góðar óskir á 60 ára afmæli mínu 21. marz sl. Guðný Sigurðardóttir, Krossbæ, Hornafirði. Mínar innilegustu þakkir til allra sem glöddu mig á 50 ára afmæli mínu 3. apríl sl. Fanney Friðriksdóttir, Welding, Njálsgötu 50. Okkar innilegustu þakkir sendum við öllum sem glöddu okkur á 70 ára afmæli okkar með heimsóknum, gjöfum, blómum og skeytum. Gæfan fylgi ykkur öllum, kæru vinir. Addy Árnadóttir og Gísli Guðmundsson, Esjubergi. Ollum þeim, sem minntust mín á sextugsafmæli mínu, sendi ég innilega kveðju og þökk. Guðmundur Dagsson. Öllum vinum mínum, sem heiðruðu mig með heilla- óskaskeytum, heimsóknum og stórgjöfum á sjötíu ára afmæli mínu 2. april sl., sendi ég mitt innilegasta þakk- læti og óska þeim af heilum hug, heilsu og hamingju um alla framtíð. Benedikt Jónsson. BiMifðulningsleyfi fyrir bifreið frá U. S. A. óskast keypt. — Tilboð sendist afgr. blaðsins merkt: „U.S.A. — 5904“. Sérfræðingafirma í sjóntækjum í Evrópu leitar sam- bands við fyrirtæki eða einstaklinga, sem geta unnið og flutt út SILFURBIERG (Calcite-Kristalle) í gfeðum: Ia, Ila og Illa. Tilboð merkt: „Z. B. 6011“ sendist til: Mosse-Annoncen, Ziirich 23, (Sviss). Móðir okkar ELÍN GUÐBJÖRG GUÐMUNDSDÖTTIR frá Háeyri, lézt 9. apríl. Börnin. Maðurinn minn og faðir VAUDIMAR BJARNASON sem lézt af slysförum 3. apríl verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 14. apríl kl. 1,30 e.h. Athöfninni veður útvarpað. Steinunn Pálsdóttir Beck, Páll Beck Valdimarsson. Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim, sem auðsýndu mér samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför hjart- kærrar dóttur minnar ÖNNU AÐAI.HEIÐAR ÁRNADÓTTUR Guð blessi ykkur öll. Guðbjörg Jónsdóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar GUÐRlÐAR GUÐMUNDSDÖTTUR Sigrún Einarsdóttir, Guðmundur Einarsson. Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og hluttekningu við andlát og útför sonar okkar og bróður HREINS ÞORSTEINSSONAR Sandbrekku. Ingibjörg Geinnundsdóttir, Þorsteinn Sigfússon, og systkinin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.