Morgunblaðið - 11.04.1959, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 11.04.1959, Blaðsíða 6
e M o R c rn\ n r 4 f> i ð Laugardagur 11. apríl 1959 Afturelding 50 ára í dag A MÁNUDAGINN var rakst ég á rytjurnar af „Þrjátíu ævintýr- um“ í gömlum fórum. Þessa Því skal ekki haldið fram, að | hér sé allt æskufólk föðurbetr- ungar, þó að það sé margt til . . , , _ „ , fyrirmyndar um ráðdeild og bok las eg barn með firna-m.kl- ( manndóm; ekki heldur, að af- lim ahiiff q r\ cf Vioffli n V>nrr ó oíC —_t 1_i_____r • _ «• u um áhuga og hafði nú hug á að gjöra tilraun, hvort mín böi*h, 30—40 árum yngri, væru ekki algjörlega ónæm fyrir slíkri skemmtan vegna spiliingar þess- ara tíma! Ekki ber þó á öðru en þau kunni vel að meta, og því er nú lesið á hverju kvöldi, með- an bókin endist. Og þótt mér sjálfum þyki sögurnar ekki svo æsifengnar sem fyrrum, hrífa þær með nýjum hætti og ljúkast upp eins og kvæði, sem löngu var lært, en ekki skilið að sinni. Það mun hafa verið kvöldið, sem ég las Velvakanda og bræð- ur hans, að ég heyrði ávæning af því í útvarpi, að UMF Aftur- elding ætti fimmtugsafmæli í dag. Líklega þess vegna fléttast síðan í huga mér saman starfs- saga félagsins og uppistaða þessa forna ævintýrs. Einhvers staðar hefi ég séð í letur fært, að fyrsta ungmenna- félag á íslandi hafi verið stofn- að 1906, svo að „Afturelding" hlýtur að vera í hópi þeirra, sem fyrst voru stofnuð og enn standa með blóma. Þetta voru merkileg ár í sögu okkar, full grósku og baráttuvilja, er þjóð- inni tók að vaxa fiskur um hrygg, og hún réttir úr kútnum eftir aldalanga vesöld og kot- ungsbrag. Engin undur, þó að þau verði skeið mikilla hugsjóna og fagurra fyrirheita. Og mér skilst, að í þessum anda yrki Guðmundur skólaskáld þetta, sem ungmennafélagar sungu full- ir hrifningar fyrr á. árum: Vormenn íslands! — yðar bíða eyðiflákar, heiðalönd. Komið grænum skógi að skrýða skriður berar, sendna strönd! Og því verður kannski spurt: Hvar eru skógarnir ykkar, góðir hálsar, hvar hin græddu heiða- lönd um fimmtíu ár? Fram um aldamót var fjöl- breytni íslenzks atvinnulífs ekki meiri en svo, að hvar sæmilega verki farinn og skynbær maður gat innt af höndum þorra þeirra starfa, sem fyrir kom. Nú er öldin önnur og verkskipting vex í sífellu. Áþekku máli gegnir um þróun félagssmálastarfsemi okkar. Ungmennafélögin létu sig flest það varða, sem horfði til framfara og þrifnaðar og kusu sér að vígorði: Islandi allt; ann- að og minna samrýmdist ekki þeim hugsjónaeldi, sem þessu fólki brann í brjósti. Síðar hlaut þó að koma á daginn, að félags- skapurinn helgaði krafta sína tilteknum verkefnum öðrum fremur, þótt hugsjónum forvíg- ismannanna hafi engum verið lagt fyrir óðal, heldur hafi þær fundið margvíslegustu félags- samtök og áhugamannahópa að farvegi. Það hefir orðið þáttur „Aftur- eldingar" að beita sér einkum fyrir íþróttaiðkunum, leiklistar- starfi og hollu skemmtanalífi æskufólks og raunar fleiri, því að segja má, að félagsstarfið hafi náð bæði til ungra og gamalla í sveitinni. Og við þessi verk- efni öll, sem og fyrir áhrif heil- brigðs félagsanda, er þroskazt hefir í frjálslegum og góðum fé- lagsskap, hefir félagið lagt sveit sinni gull í hönd, sem hún hefði orðið af að öðrum kosti. Því að hversu mjög sem við metum efnislegar framfarir, og þær hefir „Afturelding" ekki heldur látið sér óviðkomandi, þá er „maðurinn gullið þrátt fyrir allt.“ mælisbarnið hafi um fram alla aðra glætt þröska sinna vildar- vina í hálfa öld. Hitt gefur auga leið, að hvert það byggðarlag, sem á innan vébanda sinna traustan og vökulan félagsskap vonglaðra manna, leggur sveit sinni drjúgum, þótt á skemmri tíma sé. Hver af öðrum hafa þeir risið á legg mennirnir, sem lögðu sitt pund á vöxtu hjá ungmennafé- laginu; þeir hafa komið hver um sig með skerf sinn, — smáir ein- staklingar, sem máttu sín lítils einn og einn. En það, sem einum var vant, lagði annar fram; þeg- ar einn var fátækur, var annar ríkur; ef einlfvern sigraði svefn, stóð annar vörð og vakti. Og það er ósk mín og von á þessum afmælisdegi „Aftureldingar", að ungmennafélagar megi sem fyrr, samhentir í átökum, hreppa sína kóngsdóttur í laun — og leggja enn um sinn sína hamingju við hamingju sveitarinnar. Bjarni Sigurðsson Mosfelli. Teikning af Hlégarði í Mosfellssveit Öflugs minnzt i starfs Aftureldingar veglegu afmælisriti I TILEFNI af 50 ára afmæli UMF. Aftureldingar gefur fé- lagið út veglegt og vandað af- mælisrit. Ýmsir forystumenn 1 þjóðmálum, íþróttamálum og héraðs Aftureldingar, rita þar um margvísleg störf félagsins. Afmælisritið er fagur vitnis- burður um hin miklu störf þess fjölda manna, sem á liðinni hálfri Frá leikstarfsemi Aftureldingar öld hafa gert Aftureldingu að leik, sem án efa verður nýstár- því góða afli sem hún hefur ver- ið í Mosfellssveit. Afturelding var stofnuð til að gefa fólki tækifæri til að starfa að áhugamálum sínum. Mörg verkefni lét félagið til sín taka, en íþróttir hafa jafnan verið einn aðalþátturinn í félagslífinu og Afturelding átt marga lands- kunna íþróttamenn í frjálsum íþróttum, glímu og sundi. Um þessar mundir ber hæst í félag- inu handknattleiksmenn og knattspyrnuáhugi fer mjög vax- andi. Félagið minnist afmælisins með hófi í hinu glæsilega félags- heimili sveitarinnar að Hlégarði. Þar hefur félagið aðalbækistöð sína og umhverfis það hús hefur á síðasta áratug og einkum þó síðari árum verið unnið geysi- mikið starf að byggingu fullkom- ins íþróttasvæðis. Er það mál nú vel á veg komið, og verður hluti þess tekinn í notkun í vor. Á mánudaginn er afmælismót félagsins að Hálogalandi. Leika þá í handknattleik Hafnfirðing- ar við úrvalslið og Afturelding leikur gegn Fram. Þá fer einnig fram í fyrsta sinn hérlendis markskotakeppni í handknatt- skrifar ur daglega lífinu : I\f' hún langt komin, þegar gildir fætur í háhæluðum inniskóm þustu framhjá: „Guð almáttugur, við verðum of sein í kirkjuna. Fermingin byrjar kl. 11 og hér erum við öll en» á náttfötunum. Trítlaði um bæinn á sunnudagsmorgni Ð vorinu fyllast allir ævin- týraþrá og langar til að fara að skoða sig um í heiminum. Þetta gerði lítil hagamús um dag- inn, og þannig vildi til að hún kom trítlandi inn í Reykjavík síð- astliðinn sunnudagsmorgun. Sem hún trítlaði nú inn í eitt af úthverfum bæjarins, og beygði fyrir horn, heyrði hún allt í einu 1 glamur í flöskum fyrir ofan sig. Hún flýtti sér að skjótast í felur og gægðist út úr fylgsni sínu. Þarna stóð hópur af fólki fyrir framan harðlæstar dyr með mjólk urflöskur í töskurn og net um. 1 „Ætla þær aldrei að opna? ! Hvers konar svefnpurkur eru þetta?“ sagði hvöss rödd. „Þær hafa ekki hlustað á út- varpið í gærkvöldi. Klukkunni var flýtt í nótt, án þess að al- mennileg aðvörun væri gefin. Ekki veit ég hvernig hefði farið, Aumingja stúlkurnar halda að ef hún systir mín hefði ekki að- klukkan sé að verða níu en ekki varað okkur um að klukkunni tíu“, svaraði önnur. Músinni litlu var flýtt í nótt. Halda mennirnir leizt ekkert á að ryðja sér braut að allir hlusti á hvert orð í kvöld- fram hjá öllum þessum hættulegu fréttum". Þessu fylgdu upphróp- fótum, enda hafði henni verið j anir úr öllum áttum og berir sagt það að mannfólkið brygðist j fætur, stórir og smáir, æddu fram stundum furðulega við, þegar í og aftur um gólfið. Músin litla það sæi lítið saklaust músarkríli. var dauðhrædd um að hún yrði Hún stakk sér því inn um næsta troðin, t. d. af karlmannafótun- kjallaraglugga og tritlaði sem 1 um með stóru uppbrettu tærnar. leið lá upp á hæðina. Ekki var I Hún forðaði sér því sem mest hún mátti, jafnvel þó búast mætti við kræsingum í húsi, þar sem ferming var í undirbúningi. Til að gera langa sögu stutta, skulum við hlaupa yfir hið langa ferðalag músarinnar þennan dag. Um átta leytið um kvöldið var hún stödd í nýju húsi, og ekki var þar friðsamlegra en annars staðar. Innan úr svefnherberginu barst org og grenj. „Hvað á þetta eiginlega að þýða? Vita krakka- skammirnar ekki að búið er að flýta klukkunni? sagði ergileg konurödd. „Nú er háttatíminn þeirra klukkutíma fyrr en áður. Geta þau ekki lokað augunum þegar klukkan er níu, ems og venjulega." J Mannfólkið er skrýtið A, mannfólkið er skrýtið, hugs- aði litla músin, svona fer það að því að reyna að afla sér meiri birtu. Þetta minnir mig á Bakka- bræðurna skemmtilegu. sem hún mamma sagði mér einu sinni frá. Hún hafði lært söguna, þegar hún var ung og bjó í holu í skóla- stofu, til að afla sér menntunar. Bakkabræðúrnir sælu hafa senni- lega verið brautryðjendur í því að reyna að ná sér í meira dags- ljós en manni ber samkvæmt nátt úrulögmálunum. Þeir reyndu að bera birtu í bæinn, mennirnir reyna að plata sjálfa sig með því að færa til vísana á klukkunni. leg. í sambandi við afmælið verður og leiksýning, en leik- flokkur félagsins hefur starfað af miklum krafti undanfarin ár, og einnig verður bridgekeppni, en Afturelding á góða sveit bridgemanna. Afmælisritið sem fyrr er nefnt er fjölbreytt að efni og gefur góða innsýn í starf félagsins á liðnum árum. Útgáfa afmælis- ritsins er merkileg út af fyrir sig, því að henni starfaði aðal- lega einn maður, Ásbjörn Sig- urjónsson, Álafossi, og leysti það verk af hendi á mettíma, 3 vik- um, en þó svo vel að eigi verður að fundið. í ritinu birtist for- síða úr 1. árgangi Dagrenningar — í janúar 1910. Útgáfa blaðs- ins 1910 er eitt af stórafrekum félagsins. Þá ritar forseti Islands, Ásgeir Ásgeirsson ávarp, þar sem hann m. a. óskar þess „að síðari aldarhelmingurinn megi líkjast hinum fyrra sem er genginn um garð“. Núverandi formað- ur félagsins, Guðjón Ó. Hjartar- son, ritar ávarp og sömuleiðis forseti ÍSÍ, Ben. G. Waage. Páll Ólafsson form. UMSK ritar greinina „Litið um öxl á hálfrar aldar afmæli" og kveðja er birt frá Frjálsíþróttasambandinu og Handknattleikssambandinu. — Steindór Björnsson frá Gröf rit- ar um Aftureldingu 50 ára og til- drögin að stofnun félagsins. — Grein er um blysförina til skálds ins að Gljúfrasteini, þá er hann hlaut Nóbelsverðlaunin. Guð- mundur frá Miðdal skrifar grein- ina „Bezti reynsluskóli lífs míns — 50 ára minning". Samtal er við Janus Eiríksson, einn af beztu frjálsíþróttamönnum fé- lagsins. Þorgils Guðmundsson skrifar um Aftureldingu og glím- una og Axel Jónsson um Aftur- eldingu og íþróttirnar. Grein er um handknattleikinn í félaginu og knattspyrnu innan þess og skrifað er um kvöldvökur fé- lagsins, um leikstarfsemina og „Drög að sögu“, eftir Guðmund Þorláksson, Seljabrekku. Þá er samtal við íþrótta- og hesta- mennina Einar Björnsson og Þor- geir í Gufunesi, greinar um skák og bridge innan félagsins og grein um íþróttasvæðið á Varmá. Þá er í ritinu brot úr Mosverja- sögu og Búendarímur eftir Örn á Leirulæk. Síðast en ekki sízt er þar grein eftir Halldór Kiljan Laxness um félagið. Niðurlag greinarinnar er svo: „Þó margt sé enn ógert, sem betur fer, þá held eg að það sem áunnizt hefur með einni saman tilvist svona félags, sem er inn- blásið af hugsjónum göfugustu æskumanna sveitarinnar, verði seint ofmetið. Það hefur stefnt að menningarlegri vakningu og plægt jarðveginn fyrir framfarir í sveitinni. Sá fyrirmyndarandi sem jafnan hefur ríkt í Aftur- Framh. á bls. 15.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.