Morgunblaðið - 11.04.1959, Síða 9

Morgunblaðið - 11.04.1959, Síða 9
Laugardagur 11. apríl 1959 HfOncr’\nT4fíif) 9 a u m o r ð u m s a g t Ohö! súgði hann mér er ekkert ilia við þig, Gísii RabhaB við Císla 3. Johnsen á 60 ára afmœli verzlunar hans i. BLAÐAMENN eru eins og sel- irnir. Maður veit aldrei, hvar þeir skjóta næst upp kollinum. Ég sit hér inni í stofu hjá Gísla J. Johnsen í tilefni af því, að sextíu ár eru liðin frá því hann stofnaði verzlunarfyrirtæki sitt og spjalla við hann um heima og geima. Gísli segir mér frá orðatiltækinu „að hátta í björtu“, sem var oft notað í Vestmanna- eyjum á æskuárum han, en hefur einhverra hluta vegna ekki kom- izt á sinn stað í Blöndalsorðabók. Hann segir mér, að þetta orðatil- tæki hafi verið notað um menn, sem drukknuðu, Gísli hefur sýsl- að við margt á langri ævi. Hann segist hafa skrifað öll sín verzl- unarbréf sjálfur og 1906 fékk hann sér ritvél í því skyni. Hann segist hafa lært allt af sjálfum sér. Við byrjuðum rabb okkar með því að tala um gömlu Vest- mannaeyjar og hann sagði mér, hversu mikinn áhuga hann hefði haft á því að bæta kjör fólksins í Eyjum, með því að nýta sjávar- afurðirnar, eins og unnt var: — Það var mín lífsstefna, sagði hann, að bæta kjör fólksins, og ég tel, að ég hafi verið heppinn í þessu starfi mínu. í Eyjum er gott fólk og frámfarasinnað og skemmtilegt að vinna með því. Þar hafa verið margir ágætis- menn og félagsþroski eins og bezt verður á kosið. Mér kom í hug mormónatrú- boðið, þegar hann minntist á fé- lagsþroskann: — Jú, ég man vel eftir því, sagði Gísli. Þeir skírðu í Mor- monapolli vestur á Torfmýri, sem er einskonar mýrarfláki vestast á eyjunum. Þar var tekinn mór áður fyrr. Á okkar heimili var fólk, sem hafði verið skírt í Mormonapolli. Ég hafði komizt i kynni við hann unglingur, því við lærðum að synda í þessum polli, þegar ekki þótti fært að synda undan Heimakletti. Mormonatrú var ekki boðuð í Vestmannaeyj- um fyrir aldamót, svo ég muni, en aftur á móti komu nokkrir trúboðar upp úr aldamótunum og voru þá oftast tveir saman. Eitt sinn kom Loftur Bjarnason frá Hrísnesi í Austur-Skaftafells- sýslu. Hann var vel gefinn mað- ur. Hann varð síðar fræðslumála stjóri í Utah. Hann var enginn ofstækismaður. Hann sagði eitt sinn við mig: — Ég mundi engum ráðleggja að breyta um trú, en ég var beðinn um að fara hingað og boða mormonatrú og undan því gat ég ekki komizt. — Tóku margir Vestmannaey- ingar mormonatrú? — Já, þeir voru allmargir. Ég held þeir hafi aðallega tekið mormónatrú til þess að komast til Ameríku. Á þessum árúm var mikil vesöld í Vestmannaeyjum, og fóikið orðið beygt eftir alda- langa einokun. Menn áttu ekki einu sinni skó á fæturna. Ég spurði um ástæðuna. — Ég tel aðalástæðuna vera þá, að Vestmannaeyingar notuðu að- eins gamlar aðferðir við veið- amar: handfæri og beran öngul. Ef fiskur var mikill, var hann fljóttekinn með þessum hætt, en væri lítið um fisk, eins og oft var, fékkst ekki bein úr sjó. Á síðasta tug aldarinnar reyndi Jes Thomsen, verzlunarstjóri við Mið búðina í Eyjum, línustubba, en ' fór aldrei nema rétt út fyrir landssteinanna, og aflaði því sára lítið. Hann beitti ekki heldur réttri beitu, því síld var óþekkt til þeirra hluta í þá daga. Karl- arnir gerðu grín að þessari ný- breytni Thomsens og sögðu, að hann hefði ekki róið lengra- en út í „Skíthaugsmið". Þau höfðu fengið nafn af fjóshaug austasta býlisins í Eyjum, sem hét Gjá- bakki. — Það hafa búið margir dugn- aðarmenn í Eyjum á þessum ár- um? — Já, á þessum árum bjuggu dugandi menn i Eyjum og mér hefur oft dottið í hug, að ef þeir hefðu tekið upp aðferð Thomsen, beitt línuna, lengt hana og farið dýpra, þá hefðu þeir ekki þurft að flýja land. — En hvenær fóru menn að beita rétt? — Það var ekki fyrr en undir aldamót. Þá fóru þeir almennt að nota línu og beita síld. Eins og þér vitið kannske, hófust síld veiðar fyrr í Eyjum en annars staðar á Suðurlandi. Það var 1897. Ég spurði Gísla Johnsen, hvort mikil fátækt hefði verið á æsku- heimili hans. Hann svaraði: — Ojá, heldur var nú fátækt á heimilinu. Við bjuggum þó í einu stærsta timburhúsi á land- inu. Það hét Frydendal og er enn til. Faðir minn lét byggja þetta hús. Hann hefur verið allstórhuga og hef ég líklega erft fram- kvæmdaviljann frá honum. Hann ætlaði að reka þarna gistihús og ég man eftir því, að á æskuárum mínum fengu skipshafnir af frönskum skútum, sem strönduðu í Eyjum, oft hæli á heimili for- eldra minna. Húsið var tvær hæð ir, 12 álna breitt og 18 álna langt, og bar af öðrum íbúðarhúsum í Vestmannaeyjum, því á þessum árum bjuggu þar flestir í lélegum hýbílum. — Svo dó faðir yðar. — Já, stuttu eftir að hann hafði byggt húsið. Þá var ég 12 ára, elztur fimm bræðra. Þá horfði frekar illa fyrir heimilinu. Á- byrgðin hvíldi á mínum herðum. Strax í upphafi fékk ég áhuga á því að bæta verzlun eyjaskeggja og húsakynni og koma því til leiðar, að þeir bæru meira úr být- um og gætu sjálfir verkað afla sinn, sem varla þekktist áður, a. m. k. ef fátæklingar áttu í hlut. Ég spurði nú Gísla Johnsen, hvernig hann hefði fengið pen- inga til að ráðast i svo umsvifa- mikið fyrirtæki og verzlun var. Hann svaraði: — Ég spilaði á böllum og fékk aura fyrir það. 1897—’98 kenndi ég sund ásamt kunningja mínum og fékk 20 krónur í minn hlut. Vinur minn lánaði mér sínar 20 krónur og auk þess fékk ég 10 krónur í viðbót, og með þessa aura upp á vasann stofnaði ég eigin verzlun. Ég fékk svonefnt borgarabréf á nafn móður minn- ar, því sjálfur var ég ofungur. Það veitti mér heimild til að verzla. Svo verzlaði ég á nafni móður minnar, þangað til ég hafði fengið svonefnt myndugleikabréf. Ég skal sýna yður það. Það er senni- lega heldur sjaldgæft nú á dög- um, að menn eigi slík bréf. Kon- ungurinn varð að gefa út bréfið og það er undirskrifað af sjálfum Alberti, eins og þér sjáið hér. Landshöfðingi hafði ekki einu sinni heimild til að gefa út slíkt bréf. Svo illa vorum við ís- lendingar staddir, þegar ég var að alast upp. Bréfið er gefið út i Kaupmannahöfn 9. jan. 1902 og undirritað „efter Hans Kongelige Majestæts aller naadigste Befal- ing“. — Hvað voruð þér gamall, Gísli, þegar þér fenguð þetta bréf? — Ég var rúmlega tvítugur. Það var mjög sjaldgæft að fá slíka pappíra svo ungur, en ég hafði góð meðmæli. Upp úr þessu fór ég að verzla fyrir alvöru á eigin spýtur og eiginlega með þeim á- setningi að draga verzlunina úr höndum selstöðukaupmanna og láta arðinn af henni renna inn í landið. Það var ákaflega erfitt starf í fyrstu og mörg ljón á veg- inum, en ég átti hauk í horni, þar sem Tryggvi Gunnarsson banka- stjóri var. Hann sýndi mér alltaf mikla vináttu og hafði trú á þessari tilraun minni. Ég átti ekki í höggi við neinn minni karl en gamla Bryde, sem á þeim árum var talinn milljóneri, en líklega tók það þó ekki nema 10 ár að ná verzluninni úr höndum hans. — Hver haldið þér að hafi verið aðalástæðan til þess, að þetta l gekk svo auðveldlega. — Ja, ég held það hafi aðallega verið vegna þess að hann notaði gamaldags og úreltar aðferðir, flutti inn lítið vöruúrval og gaf ekki bændum og útgerðarmönn- um færi á að hagnýta aflann. Ég hófst þegar handa um að stofna ýms fyrirtæki, sem gætu lyft undir sjávarútveginn. Um aldamótin stofnaði ég t. d. lifrarbræðslu, sem framleiddi ein göngu meðalalýsi pg var slík bræðsla óþekkt fyrirbæri hér á landi um það leyti. Tel ég að lifr- arbræðslan hafi markað tímámót í sjávarútvegi okkar. — Hvernig datt yður þetta nú í hug, Gísli? — Ég var búínn að ferðast nokk uð og kynnast ýmsum verksmiðj um utanlands og mér varð ljóst, að gömlu aðferðirnar voru orðn- ar úreltar. — Áttuð þér engin skip um þetta leyti? — Jú, ég eignaðist part í báti 1897 og aldamótaárið smíða ég mitt fyrsta vertíðar- skip. Það hét Nýja öldin. Það var áttæringur. Formaður á skip inu var jafnaldri minn, korn- ungur maður, Björn Finnbogason að nafni, en á þeim árum var afar fátítt, að ungir menn væru ráðnir formenn á vertiðarskip. Þetta nýmæli gafst ágætlega, og útgerðin óx jafnt og þétt. Áður en lengra var haldið, spurði ég Gísla J. Johnsen um á- tök hans við Brydeverzlun, því þau eru merkilegur kafli í verzl- unarsögu þeirra ára. Ég spurði: — Hvernig tók Bryde brambolti yðar? Gísli svaraði: —• Þegar ég stofnaði verzlun mína, hafði Bryde lagt undir sig allar verzlunarlóðirnar í Vest- mannaeyjum. Ég reyndi að ná í eina af þessum lóðum og benti á, að landssjóður ætti þær allar nema eina, sem Bryde átti sjálf- ur og hafði fengið, vegna þess að hann var arftaki gömlu einokun- arkaupmannanna. Hinar tværátti landssjóður og hafði Bryde fengið þær á leigu með því að kaupa upp hús dönsku kaupmannanna, sem þar voru. Hann hugði sig því hafa náð algerri einokunar- aðstöðu í Vestmannaeyjum, enda voru þessar lóðir á bezta stað í bænum, við sunnanverða höfnina. Ég sótti um að fá miðlóðina und- ir mitt verzlunarhús, en tókst ekki í fyrstu atrennu að fá nema helminginn af henni. Amtmaður- inn fyrir suðuramtinu, Júlíus Havsteen, mælti svo fyrir, að ég skyldi fá þann part, sem fjærst væri Bryde-verzlun. Þessar lóðir voru allar lagðar stakkstæðum og Bryde ákvað að flytja allt grjót í burtu til þess að gera mér sem erfiðast fyrir. Skildi hann við lóð Brauð handa þröstunum. irnar eins og moldarflag. Þetta kostaði hann auðvitað ærna fyrir höfn og allmikla peninga, en bak- aði mér lítil óþægindi. Þegar á- kveðið hafði verið að ég fengi lóðina, gerði amtmaður það að skilyrði, að ég keypti eftir mats- verði öll hús og mannvirki, sem á henni stóðu. Það voru mörg hús og stór og fór hrollur um mig við þá tilhugsun að þurfa að greiða mikið fjármagn út í hönd, en þá kom Bryde sjálfur mér til hjálp- ar: hann var svo ,,hygginn“ að láta rífa öll húsin með miklum tilkostnaði. En þessi „grikkur" hins útsmogna kaupmanns bjarg- aði mér alveg út úr ógöngunum og hef ég oft síðan hlegið með sjálfum mér að þessu uppátæki hans. Ég byrjaði svo að flytja inn alls konar varning, því mikill vöruskortur var í Vestmannaeyj- um, eins og ég sagði yður áðan, og kostaði kapps um að hafa á boðstólum ýmis konar vörur, sem aldrei áður höfðu sézt í Eyjum, s. s. fatnað og skó. Þá flutti ég inn alls konar byggingar- vörur, þar á meðal nagla í skip, en slíkur „munaðarvarningur“ var óþekktur í Eyjum. Bátasmið- irnir urðu sjálfir að smíða saum- inn í bátana og það er í frásögur fært, að Ásgeir í Litlabæ hafi farið í smiðju sína til að smíða sauminn fyrir næsta dag, þegar hann sá ekki lengur til við báta- smíðarnar úti. n. 1904 átti Gísli frumkvæðið að því að fyrsti mótorbáturinn var tekinn í notkun hér við land. Hann var smíðaður hér. Það var sama árið og ísland fékk ráð- herra. Ég spurði Gísla hvort hon- um hefði þótt merkilegra að fá vélbát eða ráðherra. Hann svaraði: — Ég tel það jafnmerkilegan viðburð að fá vélbát til íslands og ráðherra inn í landið. Við urð um bjartsýnni, þegar við fengum ráðherrann. Við fengum meira traust á sjálfum okkur, og ís- lenzkur ráðherra var aflgjafi at- vinnuveganna, ef svo mætti segja. 1904 var afarmerkilegt ár í lífi mínu. Þá komst ég fyrst í blöðin. Póstafgreiðslumaðurinn í Eyjum hafði farið til Ameríku og ég var beðinn að taka við starfi hans. Launin voru 60 kr. um árið, en ég sagði Briem póstmeistara, að ég tæki þetta ekki að mér fyrir minna en 120 kr. Þar sem ég var í heimastjórnarflokkn um og ákafur stuðningsmað- ur, Hannesar Hafstein var talið, að ég hefði fengið bitling. Um það var svo skrifað í blöðin, en ég hristi allar árásir af mér, eins og ég hef ætíð gert. Þetta sama ár sendi ég líka fyrsta fisk- I . slattann beint til Spánar og var það held ég óþekkt áður. Ég leigði lítið norskt skip, sem hét Alden og kom upp síðla sumars með kolafarm og 50 tunnur af stein- olíu. Síðan sendi ég það til Spánar með 400 skippund af fiski og 200 tunnur af hrognum og þá varð mér fyrst ljóst, hvernig sel- stöðukaupmennirnir höfðu hagað málum Sínum, því sá sem keypti fiskinn á Spáni greiddi hærra farmgjald en ég þurfti að borga fyrir alla leiguna, Eftir þetta var ég aldrei hissa á því, að Bryde skyidi vera bendlaður við milljón ir. Loks fékk ég fyrsta timburskip ið til Vestmannaey-ja þetta sama ár. Þá byggði ég mér allstóra sölubúð og nokkuð stórt pakkhús, og upp úr því fóru Vestmannaey- ingar að hugsa um það alvarlega að yfirgefa torfbæina og húsa eyjarnar betur. — Einhverjar framfarir hafa nú orðið áður? — Jú, dálitlar. í Vestmannaeyj- um voru alltaf manndóms- og dugnaðarmenn. Um 1860 var út- lenzkur. sýslumaður í Eyjum. Hann þjálfaði menn í her- mennsku. Hann hét Kapteinn Kohl. Ég hygg, að þessar æfingar hafi stuðlað að því að gera menn úr Vestmannaeyingum. — Og hvers vegna tók sýslu- maður upp á þessum hermennsku látum? — Ég held það hafi verið vegna þess að Tyrkjaránið var mönnum enn i fersku minni, þó að langt væri liðið síðan Tyrkir gengu á land í Vestmannaeyjum. Það var eins og eimdi eftir af ótta við sjóræningja fram á 19. öld. En við vorum að tala um framfarirn ar. Upp úr aldamótum fóru bænd- ur að stækka tún hjá sér og þá var strandvegurinn lýstur með olíu- Ijósum. Þá voru aðalgöturnar jafnvel gerðar akfærar. Eftir aldamótin urðu framfarirnar í Vestmannaeyjum að sumu leyti meiri en í Reykjavík. Við kunn- um betur að hagnýta sjávarafl- ann. Ég hef oft hugsað um, hver ástæðan hafi verið og komizt að þeirri niðurstöðu, að hún hafi verið sú að við vorum yngri í Vestmannaeyjum, víðsýnni og meiri fullhugar en sjósóknarar og útgerðarmenn í Reykjavík. Við áttum frumkvæðið að márgskonar nýjungum, sem voru óþekktar í Reykjavík. Það var ekkert véla- íshús í Reykjavík 1908, þegar við byggðum okkar íshús í Vest- mannaeyjum og fluttum fyrstu frystivélina inn í landið. Mér varð snemma ljóst, að það var ekki að- eins nauðsynlegt að eiga bát og öngul, heldur líka frystihús þar sem hægt væri að geyma næga Framh. á bls. 14

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.