Morgunblaðið - 19.04.1959, Blaðsíða 2
2
MO»rrrivr*T 4f>|Ð
Sunnudagur 19. apríl 1959
Fyrsta hugsun skipstjórans eftir
óiagið, var hvort lofskeytaklef-
inn hefði skemmzt
Skipið Henry Denny fékk tvo brotsiói
a sig með 4 klst. millibili
Tvær hinna nýju dægurlagasöngvara. F. v. Jónína og Sigríður
Kristófersdætur.
Seytján nýir dægurlagasöngvarar
HOLLENZKA skipið Henry
Denny fékk tvisvar á sig áföll sl.
miðvikudag, er það var á siglingu
um 110 sjómílur suður af Islandi.
Fyrri brotsjórinn skall á það um
kl. 3 um daginn og sá seinni og
verri um kl. 7 um kvoldið.
Morgunblaðið átti í gær stutt
símtal við Tepping skipstjóra, þar
sem hann lýsti nokkuð þessum at-
burðum og fer frásögn hans hér á
eftir:
Skipstjðrinn segir að suðaustan
fárviðri hafi verið á föstudaginn
og sigldi hann vestur með landi
undan veðrinu. Þá skall brotsjór
yfir skipið aftanfrá um klukkan
þrjú á miðvikudaginn. Sjórinn
braut nokkrar hurðir sem liggja
að vistarverum skipshafnarinnar
Oig reif þær burt með dyrakörmum.
Við þetta kom mikill sjór inn í
káeturnar, svo að eftir þetta var
ekki hægt að hafast við í þeim.
í þessum brotsjó glasaðist ung-
ur háseti Carel Horsten, sem er 19
ára að aldri. Skipstjóri kveðst ekki
geta gert sér grein fyrir, hvern-
ig hann slasaðist, en þeir sáu
hann allt í einu ligigja á þilfarinu.
Var hann handleggsbrotinn og
meiddur á enni.
Skipstjóri segir, að vegna þess
að veðrið fór vaxandi hafi þeir
ékki þorað að lensa lengur, einkum
þar sem skipið var lítt hlaðið. Tókst
þeim um klukkan fjögur að snúa
skipinu upp í vindinn og reyndu
síðan aðeins að halda sjó.
En um klukkan 7 skall annað
reiðarslag yfir og nú að framan
vei'ðu yfir skipið. Segir skipstjór-
inn, að þeir hafi staðið fimm sam-
an í stjórnklefanum, þegar þeir
sáu báruna hefjast upp frá báð-
um hliðum samtímis, eins og hún
ætlaði að gleypa allt skipið. Þeir
fimmmenningarnir köstuðu sér
þegar í gólfið og telja að það hafi
bjargað þeim frá meiriháttar
meiðslum. Kraftur þessa brotsjós
var tröllaukinn. Hann molaði þak
skipstjórnarklefans, braut sex
glugga úr með öllum umgerðum
og braut vegginn milli skipstjórn-
arklefa og loftskeytaklefa. Skip-
stjórnarklefinn fylltist af sjó sem
mennirnir syntu í og rann sjórinn
síöan niður í klefana niðri fyrir og
vélarúmið. Enginn hinna fimm
manna sem í brúnni voru slasaðist
nema stýrimaðurinn, sem skarst á
hendi af glerbrotum.
Skipstjórinn segir að sín fyrst-a
hugsun eftir að brotsjórinn skall
á hafi verið að athuga loftskeyta-
klefann og hvort hægt væri að
senda neyðarskeyti. Þar var slæm
aðkoma, en þó tókst að senda neyð-
arskeytið, sem heyrðist kl. 7.
Önnur hugsun skipstjórans var
að hann sendi matsveininn, er ver-
ið hafði uppi í brúnni, niður í skip-
ið til að athuga liðan tveggja
kvenna og fjögurra bama. Voru
það kona skipstjórans og þrjú böm
og kona matsveinsins og eitt barn.
í fyrra áfallinu um daginn hafði
klefi þeirra fyllzt af sjó og lágu
þau í rúminu í klefa skipstjórans.
Var allt í lagi með þau, þó að
nokkuð vatn hefði komið inn á
gólfið.
'Skipstjórinn kvaðst dást að því,
hve skipslhöfn hans hafi verið æðru
laus og allir samtaka um að gera
það sem hægt var til bjargar skip-
inu. Unnið var að því að setja
hlera fyrir glugga og hurðir, en
sjór vildi streyma inn í skipið í
hverri ágjöf. Ekki var hægt að
elda mat, en fólkið lifði á brauð-
samlokum. Því leið illa, enda var
það allt meira og minna sjóblautt.
Þó var reynt að láta börnin og kon
urnar fá þurrustu fötin.
Hásetinn sem slasaðist liggur nú
í sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum.
Einar Guttormsson læknir sagði
Mbl. í gær, að honum liði vel eftdr
atvikum. Hann hefði verið hand-
leggsbrotinn sár væri á hægri auga
brún og mun vera brestur í höf-
uðkúpunni og verður hann þess
vegna að liggja um hríð í sjúlkra-
húsinu. En læknir taldi líklegt að
hann myndi ná sér eftir þetta.
Á HLJÖMLEIKUM sem Ráðn-
ingarstofa skemmtikrafta efnir
til í Austurbæjarbíói næstkom-
andi þriðjudagskvöld munu 17
nýir dægurlagasöngvarar koma
fram. Voru þeir valdir úr 60
söngvurum er gáfu sig fram á
reynsluæfingu, sem haldin var
fyrir nokkru. Hinir 17 hafa síðan
æft undanfarið með hljómsveit
Árna ísleifs, sem mun annast
undirleik á hljómleikum þessum.
Þarna mun verða mest um söngv
ara er syngja einir, en þó verður
þarna tvísöngur og ennfremur
þrísöngur. Alls munu verða flutt
25—30 lög og eru flest þeirra
sungin á íslenzku, jafnvél þó um
erlend rokklög sé að ræða. Þá
verða þarna og sungin tvö ný lög
eftir Árna Isleifs, sem væntan-
lega eiga eftir að ná sömu vin-
sældum og mörg hin þekktu lög
Árna. Kynnir á hljómleikum
þessum verður Svavar Gests.
Selfiskurinn hrotnabi í spón
á einu augnabliki sem hann
væri af eldspýtum gjör
Byggingarþjónusta
arkitekta opnuð
Skipshöfnin gekk i 2 klst. á isnum
yfir i næsta skip
í GÆR var opnuð svokölluð
„Byggingarþjónusta" Arkitekta-
félags íslands í stórum og vist-
legum sal að Laugavegi 18A —
yfir verzluninni Liverpool. ■—
Upplýsingarmiðstöð þessi, sem er
jöfnum höndum ætluð almenn-
ingi og þeim, sem um bygginga-
málefni fjalla, mun eftirleiðis
verða opin daglega kl. 1—6 síð-
degis, nema á laugardögum, þá
kl. 10—12 f.h.
Þarna eiga að verða til sýnis
flestar tegundir byggingarefna
og byggingarhluta, og sýna þar
ýmis fyrirtæki, byggingarefna-
Kvæðalesíur
ÁKVEÐIÐ er að prófessor dr. Jón
Helgason lesi upp úr kvæðasyrpu
sinni frá 17., 18. og öndverðri 19.
öld þriðjudaginn 21. apríl kl. 8,30
e.h í hátíðasal háskólans. Hann
hefur um margra ára skeið rann-
sakað kvæðáhandrit frá þessu tíma
bili og skrifað upp það, sem hon-
trm hefur fundizt athyglisvert. Á-
heyrendur munu fá að heyra úrval
þessara kvæða.
HÆSTIRÉTTUR kvað í gærdag
upp dóm í máli ákæruvaldsins
gegn Herði Ólafssyni, héraðs-
dómslögmanni. Er hér um að
ræða annað hinna svonefndu
okurmála, sem Hæstiréttur hefur
verið að fjalla um undanfarið.
Hæstiréttur staðfesti dóm undir-
réttar í öllum aðalatriðum, en
aðeins hækkaði hann fjársektina,
er Hörður Ólafsson var dæmdur
til greiðslu á til ríkissjóðs, en
það voru rúmlega 191,000 kr., en
hafði í undirrétti verið kr. 188
þús. — Herði var gert að greiða
salar, framleiðendur og innflytj-
endur, vörur sínar. Sýnendur eru
til að byrja með 46 talsins. —
Arkitektafélagið mun sjá um að
veita hlutlausar upplýsingar um
það, sem á sýningunni er, og
munu fulltrúar þess vera þar dag
lega til viðtals. — Agangur að
sýningunni og upplýsingar allar
verða veittar ókeypis.
Frá þessari merku nýjung verð
ur nánar sagt í blaðinu síðar.
NESKAUPSTAÐ, 18. apríl. —
Tvær húsmæður í Neskaupstað
tóku sig nýlega til og söfnuðu
undirskriftum útvarpsnotenda
Undir mótmælaskjal þess efnis,
að þeir neituðu að greiða afnota-
gjald útvarpsins fyrr en hlust-
unarskilyrði hefðu verið bætt.
Tvö hundruð og þrettán út-
málskostnað fyrir Hæstarétti alls
kr. 10,000 Greiðslufrestur sekt-
arinnar er 4 vikur, en þá komi
vararefsing til framkvæmda, sem
er 8 r.i'n. gæzluvarðhald.
Hörður Ólafsson var sýknaður
af þeim kæruatriðum, sem fram
komu á hendur honum fyrir til-
stilli okurnefndarinnar svo-
nefndu. Hann var aftur á móti
talinn hafa áskilið sér of háa
vexti af víxillánum, sem hann
hafði veitt Gunnari Hall for-
stjóra fyrirtækisins Ragnars
Blöndal h.f. Var þessi upphæð
nær 50,000 krónur.
FYRIR 10 dögum festist norskt
selveiðiskip „Selfisken“ að nafni
í ísnum um 200 mílur norður af
íslandi, mitt á milli Jan Mayen
og austurstrandar Grænlands.
Var það um 70 mílur inni í Norð-
urísnum. Skipshöfnin 16 manns
varð að yfirgefa skipið og í gær
kom hún til Reykjavíkurflug-
vallar. Skipstjórinn Kaare Pet-
ersen sagði fréttamanni Mbl. í
stuttu máli, hvað gerzt hafði.
varpsnotendur undirrituðu mót-
mælin, sem munu hafa verið
send stjórn útvarpsins. Eru það
langflestir þeirra útvarpsnotenda
í Neskaupstað, sem heima eru nú,
en margir eru að heiman á ver-
tið.
• ★ •
Á síðasta bæjarstjórnarfundi
var eftirfarandi tillaga sam-
þykkt:
„Bæjarstjórn Neskaupstaðar
lýsir yfir megnri óánægju yfir
því, að ekki skuli hafa verið
staðið við marggefin fyrirheit um
að bæta útvarpshlustunarskilyrði
í bænum. Skorar bæjarstjórnin á
Ríkisútvarpið að ráða fulla bót
á þessu ófremdarástandi fyrir
næsta vetur.
Jafnframt vill bæjarstjórn láta
í ljós þá skoðun, að ósanngjarnt
sé að krefja þá. sem við erfið
hlustunarskilyrði búa, um fullt
gjald fyrir útvarpsnot".
Hlustunarskilyrði hafa verið
afar slæm í vetur þrátt fyrir
ýmsar tilraunir Ríkisútvarpsins
til úrbóta undanfarið. Eftir gagn
semi þeirra að dæma virðast þær
hafa verið kák eitt.
— Fréttaritari.
Selfisken var 7. apríl s.l. á sigl
ingu eftir sundum sem lágu inn
á milli ísbreiðanna, þegar jak-
arnir tóku að færast saman. Ekki
stafaði það þó af veðri, því að
allan tímann var veðrið stillt.
Þannig mjókkaði sjóræman milli
jakanna smámsaman, lokaði skip
ið inn og þrýsti mjög á það.
Það gerðist allt á einu augna-
bliki, að mikill brestur kvað við.
Þilfar Selfisksins hafði lyfzt upp
við þrýstinginn og skyndilega
brotnuðu bönd og dekk bitar
eins og þeir væru af eldspýtum
gerðir, en í rauninni voru þetta
lVz feta þykkir bitar.
Petersen skipstjóri segir, að
skipið hafi ekki sokkið af því,
að ísinn hélt því í heljargreipum,
en skipsmenn voru ekki í nein-
um vafa um að Selfiskurinn væri
gereyðilagður. Þeir sendu út
neyðarskeyti, en fóru síðan frá
borði og út á ísinn og gengu eftir
honum tveggja tíma leið til
næsta selveiðiskips Nordlandet
I. Var færi á ísnum sæmilegt.
í FYRRA efndi Garðyrkjufélag
Islands til eins fræðslukvölds fyr
ir almenning, og var því svo vel
tekið, að nú hefur verið ákveðið
að halda fjögur fræðslukvöld,
þar sem höfð verður sýnikennsla
og færustu garðyrkjumenn flytja
erindi. Nú er einmitt sá tími árs,
sem fólk er farið að vinna að
ræktun og þarf helzt á leiðbein-
ingum að halda, og verður öllum
heimill ókeypis aðgangur að
fræðslukvöldum þessum, sem
haldin verða í stofu 202 í Iðnskól
anum.
Fyrsta fræðslukvöld Garð-
Skipshöfnin á Selflskinum
dvaldist í um 3 daga um borð
í Nordlandet og rómar Petersen
allan aðbúnað þar. Sigldi Nord-
landet áleiðis út úr ísnum, en á
móti þeim kom norska björgun.
arskipið Salvator. Það fór síðan
til Akureyrar með skipbrotsmenn
og köm þangað í gærmorgun. _
Fengu þeir sama dag flugfar til
Reykjavíkur, þar sem starfsmenn
norska sendiráðsins tóku á móti
þeim.
Selfiskurinn var frá Tromsö i
Norður Noregi, 136 tonna skip___
Kaare Petersen skipstjóri hefur
stjórnað selveiðurum síðan 1949.
Hann er 44 ára, en hefur frá 14
ára aldrei verið á selveiðum x
Norðurhöfum, lágvaxinn maður,
en stinnur og sterklegur og veð-
urbarinn í andliti.
Fréttamaður Mbl. spurði hann
að lokum: — Hvað segið þið í
Norður Noregi um 12 mílna land-
helgi?
Hann svaraði: — Mín persónu-
lega skoðun er að 12 mílna land-
helgi sé sjálfsögð. Við verðum að
fá hana og það strax í Norður-
Noregi til að vernda fiskveiðar
okkar.
yrkjufélagsins verður mánudag-
inn 20. apríl kl. 20,30. Þar fjallar
Óli Valur Hansson um vorundir-
búning í garðinum, sáningu, upp
eldi, j arðvegsundirbúning o.fl.,
Hannes Arngrímsson og kona
hans um pottaplöntur.
Á næsta fræðslukvöldi, mið-
vikudaginn 22. apríl á sama tíma,
verður: Útplöntun og svalaker,
Ólafía Einarsdóttir og Jónas Sig-
Jónsson. Mánudaginn 27. apríl
fjallar Óli Valur Hansson um trjá
gróður og runna og Jón H. Björns
son um trjáklippingu. Og mið-
vikudag'r n 29. apríl taiar Jón H.
Björnsson um skipulag skrúð-
garða og Einar Siggeirsson um
grasflatir o.fl.
Hœstiréttur kveður upp
annan okurmáladóm sinn
Norðfirðingar mótmœla
greiðslu útvarpsgjalds
vegna slæmra hlustunarskilyrða
Carðyrkjufélagið heldur
frœðslukvöld fyrir al-
menning