Morgunblaðið - 19.04.1959, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 19.04.1959, Blaðsíða 8
8 HORGUNRLAÐlfi Sunnudagur 19. apríl 1959 (^ncla ueit óenniíegci enc^inn lii/ernicý lici^ra- c^rciu t ^rönóLi u ur er ct fronónu ÞAÐ er venja á sjónum að kenna matsveininum allt, sem miður fer. Fáist ekki bein úr sjó bölva „karlarnir" „eiturbrasaranum", eins og þeir nefna matsveininn oft, segja að hann sé fjandans fiskifæla. — En ef vel fiskast er „körlunum“ trúandi til þess að gera mikið veður út af því, að „kokksræfillinn" fái heilan hlut. Hálfur hlutur væri nóg fyrir hann, segja þeir og bölva hraustlega. Samt er það svo, að allir við- urkenna innst inni, að matsveinn inn sé eini maðurinn, sem sé ómissandi á hverju skipi — og þ^gar í land kemur er matsveinn inn kallaður vingjarnlegum nöfnum eins og „kokkurinn" eða „kokksi". Sannleikurinn er sá, að ekkert skip legði úr höfn án þess að hafa matsveininn innan- borðs. Frekar væri hægt að fara skipstjóralaus, því að enginn heilbrigður háseti nennti að elda mat sinn, en allir vilja auð- vitað verða skipstjórar. gerðia að gefa eitthvað í aðra hönd. En við töldum, að slíkt mundi vekja óánægju. — Já, sagði hann, hjá þeim, sem ekki kæmust á togarana. ☆ ☆ Ekki vitum við hvort þetta er ástæðan til þess, að Geir Þórð- arson frá Hafnarfirði, sem byrj- aði „eiturbrösun“ á sjó aðeins 16 ára, tók pokann sinn og fór í land um tvítugt og fór að „læra“ matseldun á Hótel Borg. Eða — ætli ástæðan sé sú, að „ein tog- araáhöfn þarf meira í eina mál- tíð en þéttsetið Naust“. Þetta sagði Geir, þegar við hittum hann í vikunni uppi í Nausti, en þar hefur hann verið yfirmat- sveinn í þrjú ár, Við vorum þá ekki lengur í vafa um það hvers vegna togararnir eru reknir með tapi og spurðum hann, hvort hann gæti ekki gefið togaraút- gerðinni neitt ráð til þess að vega upp á móti fæðiskostnaðinum. — Það er ekkert auðveldara, sagði hann. Setja upp vínbar um borð í hverju skipi og hafa opið allan sólarhringinn. Þá færi út- Við ætluðum alls ekki að ræða áfengismálin, heldur aðeins að gægjast inn í eldhúsið á þessum vinsæla veitingastað, rétt til þess að finna matarlyktina og sjá hvernig hún verður til. Lyktin var góð að vanda og við spurð- um af hverju hún væri. Geir rétti fram matseðilinn og benti á réttinn. Eins og þið vitið — þá eru allir matseðlar skrifaðir á frönsku. Þetta var sem sé frönsk lykt. — Hver semur matseðlana? — Matsveinarnir. — Þurfa þá ekki allir mat- sveinar að vera eldklárir frönsku menn? — Það væri auðvitað æskilegt, svarar Geir, sérstaklega á síld- inni — þar er sami maturinn oft í viku. — En, gamanlaust. Valda franskir matseðlar ekki oft erfið- leikum? — Nei, ekki held ég. Gestirnir spyrja þá þjóninn, hann kynnir sér venjulega allt, sem hann þarf að vita til þess að geta leyst úr slíkum spurningum. Mikið er komið undir góðri sam- vinnu þjóna og matsveina og hér er hún framúrskarandi góð. ☆ — Er mikið um kvartanir yfir matnum — eins og á síldinni? — Nei, hér er sárasjaldan kvartað. Hins vegar er það sjálf- sagt að gestir kvarti, ef þeir eru óánægðir — og við viljum að þeir kvarti, ef svo er. Það getur auð- vitað verið dálítið erfitt, þegar tveir menn sitja saman við borð Kaupmannahöfn Herbergi til leigu hjá íslenzkri fjölskyldu , Kaup- mannahöfn fyrir íslenzkt ferðafólk. Skrifið tíman lega. — Heimilisfang: Johansen, Ole Suhrsgade 16 IV. Telefon: Byen 494Y. Geymið heimilisfangið, ef þið hafið í huga að fara til Kaupmannahafnar. AÖalgjaldkera vantar í stórt iðnfyrirtæki í Reykjavík. — Um- sækjendur um starfið sendi umsögn um fyrra starf og meðmæli, ef eru fyrir hendi, á afgr. Morgunblaðsins, merkt: „Aðalgjaldkeri — 5951“. Skrifstofustarf Lífeyrissjóður verksmiðjufólks ætlar að ráða starfsmann nú í vor. Umsóknir ásamt meðmæl- um sendist í pósthólf 653 fyrir þriðjudagskvöld. Þaulvanur skrifstofumaður óskar eftir atvinnu. — Tilboð leggist inn á afgr. blaðsins merkt: „F»ramtíð 5953“. Geir Þórðarson og biðja um sömu steikina á1 einu fati. Svo finnst öðrum allt of mikið steikt, en hinum allt of lítið. Öðrum sósan of sterk, en hinum of dauf. En við reynum samt að bæta úr öllu. — En, ef einhver pantar eftir þessum franska matseðli — og hann fær allt annað en hann hélt að hann hefði pantað. Hvað ger- ið þið fyrir manninn? — Nú, honum er auðvitað boð- ið meira — og hann þiggur það, því að honum finnst þetta svo ljómandi gott, segir Geir og brosir. — Hver er þá uppáhaldsrétt- urinn þinn? ☆ Geir hikar svolítið, en segir síðan: — Hér í Naustinu er búinn til margur ágætismatur, en ég nýt þess aldrei að borða það, sem ég hef sjálfur matbúið. Við erum tveir matsveinarnir hér — og tveir lærlingar. Mér þykir þó skárra að borða það, sem þeir matreiða. Satt að segja þykir mér alltaf bezt að borða heima — og borða þann mat, sem ég hef alizt upp við, en fæ sjaldan hér í Naustinu. Eg er ókvæntur og borða í foreldrahúsum, þegar ég get. Þar snerti ég aldrei á matseldun, ég man ekki til, að mamma hafi beðið mig þess. Og þegar ég fæ hjá henni siginn fisk, signa grásleppu eða eitt- hvað því um líkt, þá borða ég reglulega mikið. — Þú ert þá kannski líka æst- ur í hafragraut? — Nei, ekki segi ég það. Mað- ur varð að borða hann á hverj- um morgni hér áður og fyrr, en ég býð mínum gestum aldrei hafragraut. Ef ég væri beðinn sérstaklega, þá gæti ég auðvitað búið hann til. En þessi ár, sem eg hef verið hér, hefur enginn beðið um hafragraut og mér finnst það benda til þess, að hann sé enn píndur ofan í stráka á morgnana. — Ég varð því oft hissa, þegar ég var að læra hjá þeim Friðrik Gíslasyni og Ger- hard Smidt á Borginni. Þeir höfðu nefnilega oft hafragraut á morgnana — og hann var etinn. — Nei, hafragrautur og lýsi er eitt af því fáa, sem aldrei er á matseðlinum hjá mér, enda veit sennilega enginn hvað hafra- grautur er á frönsku. — tJr því að þú borðar ekki hafragraut, hvaða súpur finnst þér þá beztar? Sveppasúpur taka öllu fram, en það eru ekki allir sem kunna að meta þær. Sveppir eru soðnir í léttum vínum og. smjöri áður en þeir eru settir í súpuna. Af- bragðsmatur. ☆ — Hvaðan fáið þið sveppina? — Þeir koma niðursoðnir, frá meginlandinu. — Engir íslenzkir? —• Jo-ú. — Hvar eru þeir ræktaðir — og hvernig? Husgagriaverzlun Hafnarfjarðar Sími 50148 Úrval nýrra húsgagna. Þrjár gerðir borðstofusett, tek. Sófasett, svefnherbergissett. Svefnsófar, eins og tveggja manna. Sófaborð, stakir stólar. Franskar kommóður. Beztu fáanlegir greiðsluskilmálar. Lítið í gluggann. Húsgagnaverzlun Hafnarfjarðar Sími 50148. — Eigum við nokkuð að hafa það með? — Nei, nei, við getum sleppt því úr viðtalinu ef þú vilt. — Já. íslenzku sveppirnir eru annars ræktaðir í hrossataði í rökum og dimmum kjallara hér í bænum. En hreinasta hnoss- gæti. — Hnossgæti? Þú átt við sveppina? — Já, og það eru þeir beztu, sem við höfum fengið. — Auðvitað, og þið ræktið kannski eitthvað annað í þessum kjallara? — Nei. En við notum margt annað, sem er ekki daglega á borðum almennings. Timijan- jurtina t. d. í sósur. Paprika, rauðan pipar, líka í sósur — og hvítlaukur er líka mikið notað- ur. Að vísu borða margir Nátt- úrulækningafélagsmenn hvítlauk sér til hressingar, en hér borða allir hvítlauk þó margt annað sé líka á boðstólum til hressing- ar. Við stingum lauknum í kjöt, t. d. í franska lambasteik. Hann gerir mjög gott bragð. ☆ — En hver nýtur þeirra hlunn- inda að fá að bragða á réttunum áður en þeir eru bornir fram? —• Við matsveinarnir gerum það sjálfir. Annars er það ekki talið til neinna hlunninda hér. — Þá að láta kvenfólkið gera það? — Kvenfólkið, sem hér vinn- ur, kemur aldrei nálægt mat- seldun. Karlmennirnir sjá um •matinn, en þegar við erum yfir þessum veizlumat daglega, vilj- um við miklu frekar heimilis- mat, eins og sagði áðan. Um daginn var t. d. fínasti hamborg- arhryggur, en þá fékk starfs- fólkið saltfisk. Og ég er viss um, að engan í eldhúsinu hefur lang- að í hrygginn. Jafnvel kjallara- meistarinn okkar, hann Gísli, sem einn hefur lykil að vínkjall- aranum, er stækur bindindis- maður. s ' ' s A Ð mcðaltali verður eitt ! i dauðsfall þriðju hverja J ■ mínútu í Indlandi vegna s s slöngubits og 15. hverja sek- i i úndu er Indverji bitinn af • ■ slöngu. Þar í landi eru 300 s s slönguteg., 40 af þeim eitur- i s slöngur, en aðeins 5 lífshættu- ■ ■ legar. Fleiri deyja þar af s s slöngubiti en i nokkru öðru S \ landi — og margir deyja úr ■ 1 hræðslu, ef þeir sjá slöngu — ; ; og eru látnir áður en slang- s an bítur. EIN stærsta fánaverksmiðja Bandaríkjanna verður gjald- þrota, ef nýju bandarísku þjóð- fánarnir með 49 stjörnunum selj- ast ekki. Sem kunnugt er var Alaska fyrir skemmstu gert að 49. ríki Bandaríkjanna og þar með var gamli fáninn með 48 stjörnunum úreltur orðinn. All- ar fánaverksmiðjur framleiddu nú 49 stjörnu fána hver í kapp við aðra. En þá kom bobbi í bát- inn. í bandaríska þjóðþinginu var samþykkt ,að Hawai-eyjar skyldu verða 50. ríki Bandaríkj- anna. Þá er nýi 49. stjarna fán- inn líka orðinn úreltur — og þorri landsmanna, sem ekki hafði keypt hann, bíður nú og flaggar enn með 48. stjarna fán- anum þar til 50 stjarna fáninn kemur á markaðinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.