Morgunblaðið - 19.04.1959, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.04.1959, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 19. april 1959 — Reykjavíkurbréf Framh .af bls. 13 um 170 þúsund, sem þá verða búsettir hér á landi. Þetta eru því miður dapurlegar staðreynd- ir, sem við sem í sveitunum búum verðum að horfast í augu við, hjá því verður ekki komizt. Spurningin er: Hvernig á bsendastéttin að snúast við þeim vandamálum, sem leiða af þess- ari stórkostlegu röskun í þjóð- féiaginu? Mitt álit er að við verð- um meðal margs annars að átta okkur á því, að það er til of mikils ætlazt að 20 þús. manns geti sagt 150 þús. manns fyrir verkum. Okkur notast það heldur ekki til framdráttar til lang- írama, að bændastéttir inu sinni mikill meirihluti þjóðarinn- ar, og nær alls ráðandi. Þessu þurfum við sem í sveitunum bú- um að gera okkur grein fyrir. Um leið og við forðumst að vanmeta styrk bændastéttarinnar, en styrk ur okkar felst í þroska og mann- dómi stéttarinnar og gildi land- búnaðarins fyrir þjóðfélagið. Bændastéttin hefur því þrátt fyr- ir mannfæðina allgóða aðstöðu, ef hyggilega verður haldið á mál- um hennar framvegis." Hnefarétturinn dugar ekki Hér er vissulega allt annan boð skap að heyra en þann, sem Tím- inn hefur flutt, þegar hann hefur berum orðum sagt, að beita skyidi hnefarétti gegn kjördæmabreyt- ingunni. Jón Sigurðsson bendir á þá augljósu staðreynd, að ekki tjáir fyrir 20 þúsund manns að segja 150 þús. fyrir verkum. Þeir, sem slíkt viija, hafa auðsjáanlega misst alla dómgreind, eða allt annað vakir fyrir þeim en uppi er látið. Þeir menn hafa hótanir í frammi, að vísu ekki hótanir, sem nokkurn hræða, heldur ein- ungis skaða þá, sem þær taka sér í munn. í orðum Jóns Sigurðsson- ar fólst engin hótun, þó að Ey- steinn Jónsson skrökvi því til, heldur aðeins róleg íhugun stað- reynda. Jón sagði: „Ég hefi ávallt taiið að keppa bæri að góðri samvinnu bænda- stéttarinnar og annarra stétta. Þörfin fyrir góða samvinnu verð- ur skiljanlega því brýnni, sem við, er landbúnað stundum, verð- um fáliðaðri. Þetta vænti ég að allir geti skilið. Þess vegna eig- um við að taka vel og drengilega á sanngjörnum óskum þeirra, sem í þéttbýlinu búa, kjördæma- breytingum sem öðru. Ef við ger- um það, og bændastéttm gætir þess að láta ekki einangra sig, hvorki stéttarlega eða á stjórn- málasviðinu, þá kvíði ég engu um framtíð tiennar. Bændastéttin er og verður kjöl- festan í þjóðfélagi okkar. Hennar þörfum hefur verið og verður á- reiðanlega mætt af skilningi og velvild. Það er mín reynsla. En hér getur líka svo farið, sem stundum vill verða, að okkur Heimilisfœki H eimilistœki PROGRESS RYKSUGUR, eru sterkar, endingagóðar, þægilegai PROGRESS BÓNVÉLAR, léttar og meðfærilegar í notkun. Sunbeam hrærivélar. — Sunbeam skálar. Sunbeam rafm. pönnur. — Sunbeam þeytarar. Dormeyer hrærivélar með hakkavél. Beurer straujárn. — Elektra vöfflujárn. Þetta eru allt viðurkenndar góðar vörur. Hringflouroscent lampar í eldhús Philips rafm. rakvélar Vesturgötu 2. Sími 24-330 verði mælt í sama mæli og við mælum öðrum. Aðstaða þeirra sem í sveitun- um búa til kjördæmamálsins verð ur á vissan hátt prófsteinn á það, hvort sveitafólkið kýs að einangra sig í vonlausri baráttu, eða kýs drengilegt samstarf við þær stétt- ir sem í þéttbýlinu búa. Þeir bændur, sem hugsa. um þetta í alvöru, án allra flokks- sjónarmiða, og gera sér grein fyrir núverandi aðstöðu bænda- stéttarinnar, geta tæplega verið í vafa um, hvorn kostinn þeir eiga að velja‘\ Þannig lauk hinn margreyndi hyggni þingbóndi, Jón Sigurðs- son, ræðu sinni. /T\ (bayerj V E 7 \h-R y Rotvarnarefni grásleppuihrogn og aðrai* fisk- afurðir og í niðursuðu o. fl. Bjöm Kristjánsson Sími 10-2-10 Emangrun Framsóknar Uppgjöf Framsóknar gegn hin- um ótvíræðu rökum Jóns á Reyni- stað lýsir sér í fruntaskap Ey- steins Jónssonar. Svigurmælin munu þó ekki stoða Framsókn að þessu sinni. Eysteinn Jónsson minntist sjálfur á það, að nú hef- ur Framsókn ekki þingrofsrétt í hendi sér eins og 1931. Þá knúði hún fram kosningar, áður en al. menningur gat áttað sig á um hvað var að ræða. Nú verður kjördæmamálið skýrt frá öllum hliðum, áður en til kosninga verð- ur gengið. Enginn hefur þá afsök- un fyrir atkvæði sínu, að málið muni ekki liggja ljóst fyrir. Þeg- ar af þeirri ástæðu er barátta- Framsóknar vita vonlaus. Von- leysið verður enn berara, þegar íhugað er, að jafnvel þó að hún fengi eins mikla hlutfallslega aukningu nú, eins og hún fékk 1931, mundi fylgi hennar eftir sigurinn ekki verða meira en eitt- hvað h. u. b. 20% af öllum at- kvæðum. Enginn reikningslegur möguleiki er fyrir því, að Fram- sókn takist nú að tefja málið, hvað þá að eyðileggja það. Þetta kemur af því að kjördæmabreyt- ingin er gerð eftir kröfu almenn- ings í öllum þeim þremur flokk- um, sem henni eru fylgjandi. For- ystumennirnir hafa þar verið mun meira hikandi en fólkið sjálft. Það vill ekki lengur una við ranglætið. Hræðslubandalags- klækirnir 1956 skáru þar úr. Þeir sem slást í fylgd með Framsókn dæma þess vegna sjálfa sig til einangrunar og á- hrifaleysis. Ólafur Thors vakti athygli á höfuðatriðunum nú með þessum orðum: „Vald sitt tryggja sveitirnar þess vegna bezt og raunar aðeins með því móti að gera Sjálfstæðis- flokkinn og aðra þá, sem mestu ráða í þéttbýlinu, sér bæði vin- veitta og háða. Og þá jafnframt að forðast eftir föngum þá, sem með úlfúð og ýfingum hafa gerzt fjandmenn þéttbýlisins, svo sein Framsóknarmenn hafa gert.“ SýÁráO. fertítt ár nftrí 'er pakkað i loftpéffar umbúðir þessvegna hrökk-purt” Piltur eða stúlka óskast til afgreiðslustarfa í fatabúð hálf- an eða allan daginn. Tilb. sendist Mbl. merkt: „Ábyggileg — 9541“. Rúmgóð 2ja herbergja kjallaraíbúð í Vesturbænum etr til sölu. Laus til íbúð- ar. — Upplýsingar í síma 12175. Stóresar og biúsMÍudiikar Stífaðir og strektir. Fljót afgreiðsla. — Sörla- skjóli 32, símar 18129 og 15003. Austln A. 50 árg. 1955 1 mjög góðu standi, til sýnis og sölu á Flóka- götu 67. — Nánari upplýsingar gefur Skúli Sveinsson, sími 16023.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.