Morgunblaðið - 19.04.1959, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.04.1959, Blaðsíða 10
10 MORCUNBLAÐIÐ Sunnudagur 19. apríl 1959 k. f Bob Hope hefir miklar mætur ('& ítölsku leikkonunni Önnu 'Magnani. Hann kynntist henni, þegar hún lék í Rose Tattoo í Bandaríkjunum. Hins vegar hef- ir hann mjög gaman af að stríða henni með því, að hún sé farin að eldast. Nýlega var hann spurður að því, hvort hann vissi, hvað hún væri gömul, og svaraði hann spurningunni á þessa leið: — Nei, í hrein skilni sagt þá veit ég það ekki. Hins vegar skal ég segja yður það, að þegar ég var síðast í Rómaborg, fórum við saman að skoða Colosseum. Þegar lét í ljós hrifningu mína, leit hún kulda- lega á mig og sagði: — Þú ert sem sé hrifin af þvx, sem er nýtízkulegt Bob. Brezki kvikmyndaleikarinn sir Laurence Olivier var á sínum tíma meðal svæsnustu andstæð- Hann hefir nú runnið af hólm- inum og gengið sjónvarpinu á hönd. Basil Rath bone hefireinnig óspart úthúðað sjónvarpinu, en nýlega fór hann heim til Bret- lands frá Banda- ríkjunum í þeim Aprílheftið er komið G r e i n a r : X-15, fyrsta mannaða geimflugan Loftleiðir í Kaupmannahöfn Volvo — Ökugarpur án ökuleyfis Bílar úr alúmini Rafsegulgeimflaug HEIMASMlÐI — Nýtízku setbekkur tJTVARP — RAFTÓNTÆKNI — KVIK- MYNDIR. Segulbandshylkið frá RCA W-flugdrekinn Nælon-pylsan fer vel í sjó SMÍÐI í TÓMSTUNDUM VlÐS VEGAR AÐ Udet —■ frægasti fluggarpur, sem sögur fara af Aaage Grauballe — GEYSISSLYSIÐ 2 SMÁGREINAR OG MYNDIR: Ný gerð rennilása; Tízkufatnaður ?; Þríhjól úr tízku — 7. Þyrilfluga á mannaveiðum; Raf- knúið orgel í handtösku — 11. Ritar mælt mál; Lóðrétt flugtak; Rússneska gervihöndin — 12. Efnið í listaverkin sótt á skranhauga — 13. „Svarti riddarinn“ — 21. Bandarísk uppfinning — 22. Bílar, sem flytja geislavirk úrgangsefni — 23. Þyrlur á flugsýningu — 26. Furðulegt en satt; Ný sjónvarpsstöð BBC — 31. Þyrla knúin steinolíuhreyfli; Lítið raf- suðutæki — 34. Þröskuldurinn; Fiskurinn hef- ur fögur hljóð — 36. Smíði úr eldspýtum — 45. V tilgangi að koma nokkrum sinn- um fram í sjónvarpi. M.a. mun hann ef til vill leika hlutverk Sherlock Holmes, en það hefir hann jafnan þótt leysa af hendi með ágætum. Rathbone hefir sem sé einnig iátið í minni pokann fyrir sjónvarpinu. Frú Roosevelt lætur sér ekkert fyrir brjósti brenna og fjallar bæði í ræðu og riti um pólitísk o g stórpólitísk mólefni, en hún gleymir heldur ekki vandamál- um daglegs lífs. Nýlega komst hún svo að orði: — Einu kon- urnar, sem klæð ast svo að það er eiginmönnunum að skapi, eru þær, sem eru í kjól- um frá í fyrra. Shiv prins, sem nú gengur með grasið í skónum á eftir Evu Bar- tók, elti hana nýlega til Lund- úna. Blaðamenn gripu hann glóð- volgan, er hann kom til Lundúna og spurðu hann spjörunum úr. Að því er sagt er, hefir prins- inn ekkert á móti því að láta segja eitt- hvað smávegis um sig í blöðun- um. Hins vegar kom það honum óvart, er einn blaðamannanna spurði: — Eruð þér að hugsa um að fá yður einhverja vinnu hér í Lund- únum? — Hvað? spurði prinsinn, sem hélt, að honum hefði misheyrzt. — Vinnu? Starf. sagði blaða- maðúrinn til frekari skýringar. — Guð hjálpi mér, sagði prins- inn og ranghvolfdi í sér augun- um. Hvað í heiminum ætti ég svo sem að geta tekið mér fyrir hend ur? Ég hefi aðeins lært að sóa peningum — ekki að afla þeirra. Frank Lloyd Wright, einhver frægasti arkitekt í Bandaríkjun- um, lézt nýlega 89 ára að aldri. Um ævina gerði hann teikningar af meira en 700 byggingum, sem reistar hafa verið víðs vegar um heim. Meðal hinna frægustu eru Keisaralega hótelið í Tókíó, Guggenheimsafnið í New York og the Price Tower í Barlesville í Oklahoma. Wright var sæmdur gullverðlaunum Samtaka banda- rískra arkítekta árið 1948. Wright fæddist í Richard Center í Wis- consin 8. júní 1869 og stundaði nóm við Wisconsinháskóla. Hann var þríkvæntur og eignaðist sjö börn. Wrlght lézt í sjúkrahúsi í Phoenix í Arizona. í fréttunum Margir munu muna eftir Christinu Jörgensen, sem eitt sinn var bandarískur hermaður, en gekk undir marga uppskurði á árunum 1950-’52 til að geta skipt um kyn og orðið kona. Upp- skurðirnir voru framkvæmdir í Danmörku. Hún hefur nú trú- lofast manni að nafni Howard Knox. Myndin var tekin er hjónaefnin komu út úr skrifstofu borgardómara í New York, eftir að þau höfðu fengið leyfisbréfið. Chritina er 33 ára, en Howard 34.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.