Morgunblaðið - 19.04.1959, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 19.04.1959, Blaðsíða 23
Sunnudagur 19. apríl 1959 'r MORGUNBLAÐ1Ð 23 Nokkru meiri afli í Eyjum en í fyrra VESTMANNAEYJUM, 18. apríl. — í gær var afli mjög misjafn á Vestmannaeyjabáta, og var sá bátur, sem mestan afla hafði, með um 4600 fiska. Aðrir voru með miklu minna, og sumir voru með engan afla. Voru þeir að róta í netadræsunum suður á miðun- um. í gær munu hafa komið hér á land 1000—11000 lestir af fiski. Á föstudagskvöldið var lifrar- magnið hér í Vestmannaeyjum orðið 2710 lestir, en hafði verið 2635 lestir á sama tíma í fyrra. Þar sem liframagnið er nokkuð öruggur mælikvarði á sjálft fisk- magnið, bendir það til þess, að nú sé kominn dálítið meiri fiskur á land, en um þetta leyti á ver- tíðinni í fyrra. Rétt er að gela þess í sambandi við fiskmagnið. að afli er að öllum líkindum nokkru minni hjá línu- og neta- bátum, en hann er nú ákaflega misjafn, og líklega aldrei mis- jafnari en einmitt nú. Afli færa- báta er hins vegar nokkru meiri nú en i fyrra. Á föstudagskvöldið var afla- hæsti báturinn í flota Vestmann- eyinga Gullborg með 872 lestir, en fast á eftir fylgir Stígandi. — Bj. Guðm. 11 togarar lönduðu hér síðustu viku 1 VIKUNNI, sem nú var að líða, lönduðu 11 togarar hér í Reykja- vík, ýmist ísfiski eða saltfiski, og er það fiskur af heimamiðum, nema fiskurinn, sem Fylkir land- aði, en hann kom í vikunni vest- an af Grænlandsmiðum, þar sem hann var í rannsóknarleiðangri, og hafði togarinn kastað er úti- vistinni þar var að verða lokið. Togararnir, sem lönduðu, eru þessir: Þorkell máni 47 tonnum af saltfiski og 33 af ísfiski. Marz 242 tonna ísfisksfarm, Skúli Magnússon var með 157 tonn af ísfiski og 97 af saltfiski, Egill Skallagrímsson 226 tonn af ís- fiski, Jón forseti 287 tonn, Pétur Halldórsson 90 tonn af ísfiski og 18 tonn af saltfiski, Fylkir 146 tonn, tfranus 206 tonn og Hval- fellið 137 tonn. I gær var verið að landa úr Geir um 200 tonnum og Ingólfi Arnarsyni, sem verið hafði með 140—150 tonn af ís- fiski og um 90 tonn af saltfiski. Bólusótt SINGAPORE 18. apríl. — Mikið magn af bóluefni við kúabólu hef ir verið flutt til Singapore vegna þess, að þar hefur orðið vart við allmörg bólusóttartilfelli und- anfarið. Ungur drengur, sem kom frá Indlandi fyrir þremur vikum, bar veikina til Singapore. T ómstundaheimili ungtemplara NÝLOKIÐ er öðru starfsári Tóm stundaheimilis ungtemplara í Rvík. Heimilið hóf starfsemi sína í októbermánuði s. 1. haust með námskeiðum í föndri, og stóðu þau yfir fram í miðjan desem- ber. Eftir áramótin var efnt til nýrra námskeiða og lauk þeim fyrir skömmu; Alls var starfað í 14 flokkum með samtals 220 þátt takendum, sem voru á aldrinum 12—25 ára. Þrír kennarar leið- beindu, þær Guðrún Júlíusdóttir, Ingibjörg Hannesdóttir og Sigrún Gissursdóttir. Undanfarna daga hefur staðið yfir í glugga verzl. Málarans í Bankastræti, sýning á munum, sem unnir hafa verið á námskeið um Tómstundaheimilis ungtempl ara. Þar má sjá marga haglega gerða hluti úr basti, tágum, garni, filti, hornum, íbenholti, beinum, kuðungum, skeljum og fleiru. Gluggasýningu þessari mun Ijúka í kvöld, sunnudag. „Húmar hægt að kveldi“ sýnt í Þjóðleikhúsinu í kvöld. — Myndin er af Val Gíslasyni í hlutverki James Tyrone í „Húmar hægt að kveldi“. — Leikritið hefur hlotið mjög lof- samlega dóma leiklistardómenda. Björguðu 16 gislum úr Montana-fangelsinu NEW YORK, 18. apríl. — Eins og kunnugt er, hafa fangarnir í rikisfangelsinu í Mcntana haft fangelsið á valdi sínu frá þvi á fimmtudag, en þá gerðu þeir uppreisn og tóku allmarga fanga- verði sem gisla. f átökunum skutu þeir aðstoðarmann yfirfanga- varðar til bana, en yfirfangavöið- urinn slapp með naumindum með aðstoð eins fangans. Þá slapp sálfræðingur fangelsins út í nótt og skýrði frá því að föngunum Verður félag væri alvara og þeir myndu láta skeika að sköpuðu. í nótt sprengdu her og lögreglu menn gat á einn vegginn á fang. elsinu og réðust með vélbyssum og táragasi inn og komu föngun- um í opna skjöldu og gátu bjarg- að 16 fangavörðum, sem þar var lxaldið sem gislum. — Nu hafa fangarnir búið um sig á öðrum stað í fangelsinu og eru hinir vígreifustu. — Dali Lama Framh. af bls. 1. ins gert sér grein fyrir þeirri hættu, sem Dalai Lama var í. Jón Einar Jónsson prenfari — minning ' HINN 7 apríl sl. andaðist hér | í bong Jón Einar Jónsson prent- ari í hárri elli, eða rúmlega ní- ræður. — Jón Einar, eins og hann var oftast nefndur af vin- um og samstarfsmönnum var einn í hópi mætustu manna sem „byggðu þessa borg“. Fæddur var Jón að Vestur- koti í Leiru, Garðahi-eppi. Inn- an fermingaraldurs fluttist hann hingað til Reykjavikur. Um fermingaraldur hóf hann prent- nám og gerði síðan hina göf- ugu prentiðn að lífsstarfi sinu. Að undanskildum 2 árum, sem hann starfaði austur á Seyðis- firði í prentsmiðju Skafta Jósepssonar hins þjóðkunna blaða manns og ritstjóra Austra, dvaldist Jón og starfaði eingöngu hér í Reykjavík og lengst eða um 60 ára skeið í Gutenberg og var hann einn þeirra prentara sem stofnuðu þá prentsmiðju. Iðjusemi og grandvarleiki ein- kenndu allt dagfar Jóns Einars, jafnt við vinnu sína sem önn- ur störf, er hann innti af hönd- um.... Hann var félagslyndur maður, góðgirni hans og réttsýni skip- uðu honum þar í öndvegi. Snemma tók hann sér stöðu í fylkingum bindindismanna og hvikaði þar aldrei eitt augnablik. Ungur gerðist hann félagi Góð templarareglunnar og hugsjón hennar varð honum innilegt á- hugamál, þar vann hann af þeim hug og þeirri fórnfýsi og mann- ást, sem honum var í blóð bor- íð, jafnt með eldri sem yngri, dáður af öllum. Dagfar hans og prúðmennska var sönn og fögur fyrirmynd öllum gem með hon- um störfuðu hvort heldur var að daglegum störfum eða að fram- gangi mannbóta- og menningar- mála, svo sem bindindismálsins. Jón Einar Jónsson var kjör- inn heiðursfélagi Hins íslenzka prentarafélags, svo og Stórstúku Islands og st. Verðandi nr. 9, en þar var hann félagi um ára- tugi. Það lætur að líkum að örlaga- nornirnar voru, öðrum eins manni og Jóni Einari vinveitt- ar. Þær létu honum líka í té i fagurt heimili og ágæta konu, dugandi börn og barnabörn, og I þær munu standa vörð um það að allir hans mörgu afkomend- ur, sem vera munu um 100, megi í dagfari og að Jxengskap líkjast honum í hvívetna. Vér, sem höfum starfað með Jóni Einari Jónssyni innan bind- indishreyfingarinnar þökkum honum nú er leiðir s'kilja um sinn, hlýju handtökin og blíða brosið, í einu orði sagt, samstarfið. Einar Bjömsson. Nýkomið allt mögulegt fyrir hárið: Hárkrem HárÍanolín Hárlakk Hárlagningavökvi Háralitur Hárspennur Hárklips Hárnet Hárgreiður Hárspangir Hárilmvötn Rúllur í hár Sliampoo mikið úrval. m.a. BANDBOX-KREM og Bandbox-shampoo fyrir feitt og þurrt hár, POLYCOLOR öll númer. Höfum mikið úrval af varalit. Einnig ekta varalit Day Dew make-up SNYRTIVÖRUBÚÐIN Laugav. 76, sími 12275 Hjartans þakkir til allra þeirra, sem glöddu mig á sjötugsafmæli mínu 6. apríl s.l. Kristín Stefánsdóttir, Ásum. skcmmtibáta-eig- endastoínað? HÉR í Reykjavík eru allmargir menn, sem eiga skemmtibáta, annað hvort vélknúna eða búna seglum. Þessum bátaeigendum hefur þótt á það skorta, að myndaður væri félagsskapur til þess að þeir geti þar í sameiningu unn ið að ýmsum aðkallandi málum. Nefna þeir t. d. a, hér í Rvík hafi bátarnir engan fastan sama- stað, en slíkt hlyti að takast ef félagsskapur væri stofnaður og hann ætti vinsamlegar viðræður við fulltrúa bæjaryfirvaldanna um það mál. Bátaeigendur benda á að siglingar séu vinsælar hér meðal æskufólks, en það hái á- hugasömum mönnum, að ekkert félag er starfandi. Svo mætti láta sér til hugar koma að þegar fram líða stundir, verði efnt til kapp- siglingar t. d. inni á Kleppsvík, eða Skerjarfirði. Geir P. Þormar bifreiðakennari Blönduhlíð 33, er einn þeirra manna, sem vilja reyna að stofna félag skemmtibátaeigenda og tel ur hann að innan vébanda þess gætu verið Hafnfirðingar og Kópavogsbúar ásamt Reykvíking um. Hefur hann beðið Mbl. að koma þeim boðum til þeirra, er hér eiga hlut að máli og áhuga hefðu á stofnun slíks félags, að þeir geri sér viðvart í bréfi. Fyrir S. Þ. Fréttamenn benda loks á, að í lok yfirlýsingar sinnar hafi Dalai Lama ekki minnst sérstaklega á sjálfsforræði Tíbeta, heldur talað um frelsi landsins og þykir það benda til þess, að hann muni sjálfur leggja mái þjóðar sinnar fyr- ir S. Þ. o o o Dalai Lama gaf fyrrnefnda yfirlýsingu sína á fundi með fréttamönnum í dag. Hann var glaður og reifur, en þó þreytu- legur. Hann gekk á milli frétta- mannanna og sagði eína og eina setningu á tíbetsku, en ráðherra í stjórn hans las yfirlýsinguna fyrir fréttamenn. ★ Dagens Neheter hefur það eftir fréttaritara sínum í Tezpur, að indverska stjórnin hafi tekið þátt í skipulagningu flótta Dalai Lama frá Tíbet. Segir fréttamað- urinn, að þetta hafi komið fram í Tezpur s.l. fimmtudag og lieim- ildir að þessum upplýsingum megi teljast góðar. Opinberir aðilar hafa hvorki viljað staðfesta þessa fregn né neita hcnni, enda hér um algert leyndarmál að ræða. Segir frétta maður Dagens Nyheter, að sögu- maður sinn hafi stranglega bann að sér að gefa upp nafn sitt því það mundi tekið hart á þessari uppljóstrun vegna þess hve að- staða Nehrus gagnvart Kínverj- um er veik um þessar mundir. Móðir okkar KRISTÍN BRANDSDÓTTIR ARNET lézt í Landsspítalanum föstudaginn 17. apríl. Þórarinn Pjeturss., Anna Pjeturss. Móðir okkar BJÖRG ISAKSDÓTTIR FINNBOG ASON andaðist á sjúkrahúsi Akureyrar 18. apríl. Rannveig Þór, Borghildur Jónsdóttir, Albert J. Finnbogson. Útför föður míns og tengdaföður BJÖRNS JÓNSSONAR fyrrum skósmiðs, fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 21. apríl kl. 2,30 eftir hádegi. Svava Bjömsdóttir, Einar Einarsson. Bálför mannsins míns, föður, tengdaföður og afa EIRfKS ÞORSTEINSSONAR fyrrum kaupmanns í Gerðum, fer fram frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 21. apríl kl. 1,30. Blóm afþökuð. Ragnhildur Davíðsdóttir, Ólafur Eiríksson, Lovísa Rögnvaldsðóttir, og börn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.