Morgunblaðið - 12.07.1959, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.07.1959, Blaðsíða 2
2 MORCVNBIAÐIÐ Sunnudagur 12. júlí 1959 Öðrum togoroúfgerðum verði gefinn kostur ú hlutdeild í kuupunum EINS og skýrt var frá hér í blað- inu í gær hefur útgerðarráð Reykjavíkurbæjar samþykkt að mæla með því við bæjarsjóð að Fiskiðjuver ríkisins verði keypt vegna bæjartogaranna. Einn út- gerðarráðsmanna, Kjartan Thm-s framkvæmdastjóri, gerði á þess- um fundi útgerðarráðsins grein fyrir atkvæði sínu og fer grein- argerð hans hér á eftir: „f>ar eð ég tel að það geti ráð- ið úrslitum um afkomu sérhvers útgerðarfyrirtækis, að það ráði yfir sem víðtækustum möguieik- um til verkunar aflans, tei ég rétt að Bæjarstjórn Reykjavíkur samþykki tilboð það er hér liggur fyrir, ef athugun leiðir í ljós, að matsVerð eignarinnar sé sann gjarnt. Af sömu ástæðum tel ég einnig sjálfsagt að bæjarstjórnin gefi samtímis þeim togurum, sem gerðir eru út frá Reykjavík og ekki eiga neina hlutdeild í frysti- húsi, kost á að gerast þátttakend- ur í kaupunum. — í þessu sam- bandi ber að athuga, hvort gagn- stæð afstaða til einstaklingsfram- taksins gæti ekki leitt til þess að eigendur hlutaðeigandi skipa, leituðu þeim heimilsfangs annars staðar þar sem þir teldu sig eiga meiri skilningi að fagna af hendi bæjaryfirvaldanna — en á þess- um skipum hvíla engin bönd um útgerð frá Reykjavík. Danskir kvikmynda- tökumenn í HvaSfirði Afriði úr færeyskri mynd kvikmyndað i hvalstöbinni í GÆRMORGUN fóru héðan kvikmyndatökumenn frá Nordisk Film, og höfðu með sér kvik- myndafilmu, sem þeir höfðu tek- ið á í hvalstöðinni í Hvalfirði. Er það atriði úr mynd, sem annars gerist í Færeyjum. En gleymzt hafði að tilkynna Erik Balling, stjórnanda myndarinnar, að hval stöðin á Suðurey hefði verið lögð niður og því v#,r ekki um neina slíka stöð að ræða í Færeyjum, þegar kvikmyndafólkið var þar fyrir nokkrum vikum. Fékk Balling því leyfi hjá Lofti Bjarnasyni til að mynda hvalskurðaratriði í hvalstöðinni hér og fyrir nokkrum dögum kom hann hingað með tvo leik- ara, þá Gunnar Lauring og Louis Miehe-Renard, ásamt kvikmynda tökumanni og aðstoðarmanni. Um hádegi í fyrradag voru þeir komnir með sitt hafurtask upp í Hvalfjörð, en þurftu að bíða til klukkan að ganga átta eftir að hvalur bærist á land. Þá komu tveir bátar með tíu mínútna milli- bili. Voru leikararnir tveir í hlut- verkum gamallar hvalskyttu og ungs Færeyings í þjóðbúningi, og var sá gamli að sýna hinum hval- skurð. í baksýn sáust svo starfs- menn hvalstöðvarinnar við vinnu sína. Heldur var dimmt í veðri og voru kvikmyndamennirnir ekki sem ánægðastir með það, þar eð um litkvikmynd var að ræða, en vonuðu þó að sæmilega hefði tekizt. Þeir félagar fóru utan í gær- morgun með flugvél frá Flugfé- lagi Islands. Með um 1600 mál SNÆFELLIÐ frá Akureyri, mun til þessa á yfirstandandi síldar- vertíð hafa komið með mestan afla að landi, allra síldarbátanna. Kom skipið inn til Krossanes- verksmiðjunnar á fimmtudags- kvöldið með síld til bræðslu. Hafði aflinn verið um 1600 mál alls. Síðan hafa þangað komið með bræðslusíld Kristján 1000 mál, og Sigurður Bjarnason með á 12. hundrað mál. Gert er ráð fyrir að Krossanesverksmiðjan hefji bræðslu síldarinnar á mánu daginn. MYNDIN hér fyrir ofan er af því þegar Solveig Danielsen var krýnd „Sommerens Grammofon- pige“ á Dyrehavsbakken í Kaup- mannahöfn árið 1957, eftir harða samkeppni. Keppt var um samn- ing við hljómplötufyrirtæki. Síð- an hefur Solveig sungið á skemmtistöðum og í óperettum í Danmörku, og nú er hún hingað komin og ætlar að syngja í Lídó. Byrjar hún á sunnudagskvöld. — Solveig er 19 ára gömul, Iagleg stúlka, sem kann að „bera á borð“ lögin sem hún fer með. Undanfarinn hálfan mánuð hefur ensk söngkona, Jaekie Linn sungið með hljómsveitinni í Lídó og verður hún fram í miðja næstu viku. Syngja þessar tvær útlendu söngkonur því með hljóm sveitinni fyrri hluta vikunnar. t sumar hefur verið tekin upp sú nýbreytni í Lídó, að gefa mat- argestum kost á að sitja áfram til kl. 1, þau kvöld sem dansleikur er, án þess að borga sig inn á dansleikinn. Mikl ar anmr Afmœlis íslenzka lýðveld- isins minnzt í V-Dakota í innanlandsflugi SL. VIKU hafa farþegar í innan- landsflugi verið óvenjumargir og hafa flugvélar Flugfélags íslands farið allmargar aukaferðir, þar sem áætlunarferðir hafa ekki annað eftirspurn eftir flugfari. Mjög margt síldarfólk á leið til Raufarhafnar hefir verið flutt til Kópaskers, sérstaklega síðari hluta vikunnar og hafa ferðirnar verið bæði frá Akureyri og Reykjavík. Þá hefir einnig verið mjög margt farþega til Egilsstaða, en margir nota sumarfríið til dvalar í Hallormsstaðarskógi og á Aust- fjörðum. Um þessa helgi er hestamanna- mót á Sauðárkróki og var margt farþega þangað fyrir helgina. Eftir rð vegurinn yfir Mýr- dalssand brast, jukust flutningar austur af miklum mun og hafa flugvélar Flugfélagsins farið aukaferðir og komið við á Kirkju bæjarklaustri í hverri ferð til Fagurhólsmýrar og Hornafjarð- ár. Svo virðist, sem fólk sé nú almennt byrjað að fara út á land í sumarfrí og eru líkur til þess að flugfarþegar verði óvenju margir á innanlandsflugleiðum á næst- unni. FIMMTÁN ára afmælis hins ís- lenzka lýðveldis var minnzt með sérstakri hátíðarguðsþjónustu í Víkur kirkju að Mountain, Norð- ur-Dakota, kl. 2. e.h., sunnu- daginn 21. júní. Sóknarpresturinn, séra Ólaf- ur Skúlason, þjónaði fyrir altari og stjórnaði messugjörðinni, er hófst með því, að Guðmundur J. Jónasson, forseti Þjóðræknis- deildarinnar „Bárunnar“, las bæn í kórdyrum. Blandaður kór, er saman stóð af fólki víðsvegar úr íslenzku byggðinni, söng íslenzka sálma undir stjórn Theodores Thorleif- son frá Garðar. Ræðuna við guðsíþjónustuna flutti dr. Richard Beck, ræðis- maður íslands í Norður-Dakota, er hóf mál sitt með því áð flytja kveðju og heillaóskir forseta íslands. Annars var ræðu efnið „Þá hugsjónir rætast“, og lýsti ræðumaður stofnun ís- lenzka lýðveldisins að Lögbergi þ. 17. júní 1944; lagði hann á- herzlu á það, hver virðuleiki og söguleg helgi hefði hvílt yf- ir þeirri athöfn, og hve sterk- lega forráðamenn þjóðarinnar hefðu, í ræðum sínum á þeim miklu tímamótum í sögu henn- ar, slegið á trúarlega strenginn. Dr. Beck minnti einnig á það, að lýðveldisstofnunin hefði á áhrifamikinn hátt dregið athygli íslendinga hvarvetna og um- heimsins almenntr að sögu hinn- ar íslenzku þjóðar og menningar- legum afrekum hennar. Hátíðarguðsþjónusta þessi var prýðilega sótt, nálega hvert sæti skipað í kirkjunni, eða um 150 manns, hvaðanæva úr byggð- inni. Þar sem hún fór fram samdæg- urs biskupsvígslunni á íslandi, minntist séra Ólafur Skúlason hins nýja biskups, herra Sigur- bjarnar Einarssonar, íslenzku kirkjunnar og heimaþjóðarinnar, sérstaklega í ávarpsorðum sín- um og bænum, bæði við um- rædda hátíðarguðsþjónustu og annars staðar 1 kirkjum sínum þann dag. Geta má þess ennfremur, að í ræðu á ensku, er hann flutti við guðsþjónustu í Vídalín- kirkju x Akra-Hensel byggð- inni fyrir hádegi, vék dr. Beck einnig stuttlega að lýðveldis- stofnuninni og fimmtán ára af- mæli hennar. En á sjálfan þjóð- hátíðardaginn, þ. 17. júní, hafði hann flutt útvarpserindi um það efni frá Útvarpsstöð Ríkisins ■skólans (University of North Dakota) í Grand Forks. Fjölsótt samkoma Sjálfstæðismanna í Hlégarði í FYRRAKVÖLD efndu Sjálf- stæðisfélögin í Gullbringu- og Kjósarsýslukjördæmi norðan Hafnarfjarðar til kvöldfagnaðar í Hlégarði fyrir starfsfólk við ný- afstaðnar Alþingiskoningar. Var húsið þétt skipað. Jón M. Guðmundsson á Reykj- um setti samkomuna og stjórn- aði herrni, en ávörp fluttu þeir Axel Jónsson og þingmaður kjör- dæmisins Ólafur Thors. Var máli þeiira mjög vel fagnað og mik- ill áhugi á að halda áfram í haust sókninni í kosningunum í sumar og efla þá flokkinn enn meir. Árni Jónsson, óperusöngvari, söng einsöng við undirleik Fritz Weisshappel og leikararnir Bessi Bjarnason, Steindór Hjör- leifsson og Knútur Magnússon fluttu ýmsa skemmtiþætti, við ágætar undirtektir. Að lokum var stiginn dans. Var samkoman á allan hátt hin ánægjulegasta. Tveir Finnar á frjáls- íþróttamóti Ármanns ÁRMANN gengst fyrir afmælis- móti í frjálsum íþróttum á Laugardalsvellinum í þessari viku. Verður mótið á miðvikudag og fimmtudag. Auk íslenzkra frjálsíþrótta- manna verða tveir finnskir gestir meðal þátttakenda, þeir IBorje Strand, sem er í hópi heztu spretthlaupara Finna og I ;tkvi Hoo-ppu, sem keppir í köstum. Keppt verður í öllum venju- legum hlaupum frá 100 til 3000 m, köstum og stökkum. Mót þetta er einn liður I há- tíðahöldum Ármanns vegna 70 ára afmælis félagsins á s. I. vetri. Hafnorijöiðui vann Kópavog Fyrrf dagur: 100 m: 1. Ingvar Hallsteinsson H 11,3. 2. Unnar Jónsson K 11,4. 3. Bergþór Jónsson H 11,9. 4. Friðb. Guðmundss. K 12,4. Ingvar og Unnar hlupu mjög vel. Kúluvarp: 1. Ármann Lárusson K 13.37 2. Arthúr Ólafsson K 1299 3. Ingvar Hallsteinss. H 12,94 4. Sigurður Júlíusson H 12,66 Spennandi keppni. Ármann ætti að geta kastað miklu lengra með lagfærðum stíl. Langstökk: 1. Ingvar Hallsteinsson H 6.20 2. Unnar Jónsson K 5.93 3. Egill Friðleifsson H 5,77 4. Friðb. Guðmundss. K 5,45 Þrístökk: 1 Kristján Stefánsson H 12,75 2. Egill Friðleifsson H 12,05 3. Arthúr Ólafsson K 12,01 4. Unnar Jónsson K 11,91 Brautin var hörð og því ekki eins góður árangur og skyldi. Sleggjukast: 1. Ólafur Þórarinsson H 38,40 2. Ármann Lárusson K 28,66 3. Ingvar Hallsteinss. H 27,20 4. Ingvi Guðmundsson K 20,81 Skátamót að Úlfljóts- vatni um aðra helgi Héraðssamband skáta í Árnes- sýslu efnir til skátamóts að Úlf- Ijótsvatni dagana 16—19 júli eða um aðra helgi. Fer mótið fram í Borgarvík, sem er mjög skemmti legur mótsstaður. Öllum skátafélögunum á Suð- vesturlandi hefur verið boðin þátttaka og munu þau væntan- lega öll efna til hópferða á mótið. Auk innlendu skátanna er búizt við, að flestir erlendu skátarnir, sem sóttu landsmótið í Vagla- skógi, taki þátt í mótinu, einnig dveljast margir skátar fyrir á staðnum, svo búizt er við miklu fjölmenni að Úlfljótsvatni um helgina. Á mótinu verða íþróttir, skátaleikir, gönguferðir, varðeld- ar og næturleikir og útiguðþjón- usta á sunnudagsmorgun. Þetta er í þriðja sinn, sem skát ar í Árnessýslu gangast fyrir sam eiginlegu móti og hafa verið á hxnum fyrri um þrjú hundruð skátar og er búizt við fleiri skát- um nú. Á sunnudag er almenn- ingi boðið að koma á mótsstaðinn. 4x100 m boðhlaup: Hafnarfjörður 46,0 Kópavogur 49,9 Stig eftir fyrri dag: Hafnar fjörður 39 — Kópavogur 27. Síðari dagur: Kringlukast: 1. Þorsteinn Alfreðss. K 42,10 2. Ármann Lárusson K 39,28 3. Sigurður Júlíusson H 38,88 4. Edvard Ólafsson H 36.,30 Gestur var Halldór Halldórs- son, Keflavík, og kastaði hann lengst 42,22 m. Sentimetrastríð var um 2. og 3. sæti. Spjótkast: 1. Ingvar Hallsteinss. H 54,00 3. Arthúr Ólafsson K 46,06 2. Kristján Stefánsson H 51,00 4. Ármann Lárusson K 32,75 Gestur Haldór Halldórsson, Keflavík, kastaði 53,20. Ingvar náði sér aldrei vel upp, greinilega þreyttur eftir fyrri daginn. Hástökk: 1. Ingvar Hallsteinss. H 1,63 2. Egill Friðleifsson H 1,63 3. Arthúr Ólafsson K 1,53 Grétar Kristjánsson K 1,53 Stangarstökk: 1. Páll Eiríkssön H 3,15 2. Jóhann Harðarson K 2,95 3. Ingvar Hallsteinsson H 2,95 4. Grétar Kristjánsson K 2,85 400 m hlaup: 1. Ragnar Jónsson H 55,0 2. Ragnar Magnússon H 56,5 3. Daði Jónsson K 63,8 4. Gunnar Jónsson K 64,7 Úrslit: Hafnarfjörður 73 stig. Kópavogur 48. Keppnin var skemmtileg og spennandi og allgóður árangur náðist. Veður var sæmilegt, en þó háði kuldi nokkuð keppend- um seinni daginn. Keppt var um bikar, er Blikksmiðjan Vogur í Kópavogi gaf, og vinnst hann til eignar, ef hann er unninn 3 ár í röð eða 5 sinnum alls. Hlutu Hafnfirðingar nú bikarinn að 'þessu sinni. <*

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.