Morgunblaðið - 12.07.1959, Page 3

Morgunblaðið - 12.07.1959, Page 3
Sunnudagur 12. júlí 1959' MORCUNBLAÐIL 3 Sr. Óskar J. Þorláksson: Hin innri harátta Torodd Miirer DAGANA 25—27 júní sl. var 12. umdæmisþing íslenzku Rotary- klúbbanna haldið á Sauðárkróki. Sóttu þingið fulltrúar frá hinum einstöku klúbbum, en alls eru í umdæminu 14 klúbbar með 440 félögum og hafði þeim fjölgað nokkuð á árinu. Viðfangsefni Rotaryklúbbanna almennt er að auka og efla kynn- ingu og samstarf, bæði milli full- trúa einstakra starfsgreina og á breiðaxa grundvelli þjóða í milli. Alls eru starfandi rúmlega 10 þús. klúbbar í 110 löndum, með alls um 470.000 félaga. Hefur fé- lagsstarfsemi þessi breiðst mjög ört út hin síðari ár, á Norður- löndum eru t. d. um 20 þús. Rot- ary-félagar. Rotaryklúbbarnir halda uppi mjög víðtæku menningarstarfi með erindaflutningi í klúbbun- um, vinna að þjóðmálaþjóriustu, seskulýðsmálum og alþjóða sam- starfi og friðarmálum. Rotary-stofnunin svonefnda er nú þekkt orðin um allan heim fyrir hjálparstarfsemi sína, og fyrir námsstyrki þá, sem veittir eru til framhaldsnáms úrvals námsmanna frá ýmsum löndum. Á þessu ári nýtur íslenzkur kandi dat í læknisfræði, Jónas Hall- grímsson frá Reykjavík, styrks frá stofnun þessari, til framhalds náms í læknisfræði við háskólann í Minneapolis, en þrír Islendingar hafa áður notið slíks styrks, auk annarra námsmanna, er notið hafa styrkja frá einstökum um- dæmum. Á umdæmisþinginu á Sauðár- króki voru ræda mál, sem um- Smíóníuhljóm- sveitinni vel íagn- að á Húsavík HÚSAVÍK, 11. júlí. — Sinfóníu- hljómsveitin, sem er á hljóm- leikaferð um landið og á austur- leið, hélt hljómleika í samkomu húsinu hér á Húsavík í gærkvöldi undir stjórn Robert A. Ottósson- ar. Einsöngvarar með hljómsveit inni voru Guðmundur Jónsson og Sigurður Björnsson. Var húsfylli og áheyrendur mjög hrifnir. ■— Fjölgar greinilega áheyrendum, sem ánægju hafa af því að hlusta á hljómsveitina, í hvert skipti sem hún kemur, og kann fólkið úti á landsbyggðinni vel að meta það að fá tækifæri til að heyra í henni. Sr. Friðrik A. Friðriksson, prófastur, ávarpaði hljómsveit- ina í lok hljómleikanna, og þakk aði henni fyrir komuna í þetta sinn, svo og fyrri heimsóknir hennar hingað. Jón Þórarinsson, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljóm sveitarinnar, svaraði fyrir hönd hljómsveitarinnar. - Fréttaritari. Olle Norman dæmið varða og flutt fræðandi erindi um alþjóðasamstarf og samband Rotaryklúbba á Norður 29. FTJNDUR Sambands Vest- firzkra kvenna, var haldinn á Flateyri, dagana 4. og 5. júlí sl. Mættir voru 25 fulltrúar auk stjórnar, frá 13 félögum. Skýrslur frá þessum félögum bera það með sér, að kvenfélögin hvert á sínum stað bera hag síns byggðalags fyrir brjósti, einnig ber mikið á liknar- og mannúðar- málum. Sum félögin hafa látið sig varða uppeldismál og önnur menningarmál — sum gefið til sjúkrahúsa og sum til elliheimila, önnur til barnaleikvalla og fl. og fl. Saumanámskeið hafa verið haldin einnig matreiðslunám- skeið, einnig hafa sum félögin unnið að garðrækt og vefnaði. Sum eru að koma upp félags- löndum, starfsemi klúbbanna, en auk þes.s eru umdæmisþingin mikilsverð kynningarmót fyrir félagana. Að þessu sinni mættu tveir ágætir fr Iltrúar erlendir á um- dæmisþinginu. Fulltrúi forseta Rotary International Clifford Randalls, var Torodd Miirer, bankastjóri frá Risör í Noregi, kunnur Rotaryfélagi í heimalandi sinu og fyrrverandi umdæmis- stjóri og Olle Norman, ofursti frá Uppsölum í Svíþjóð, sem var fulltrúi norræna Rotary-ráðsins, og fyrrverandi formaður þess. Báðir þessir menn fluttu er- ind á umdæmisþinginu og tóku þátt í umræðum um málefni þingsins. Þá gafst þeim nokkurt tæki- færi að kynnast landinu, og hr. Olle Norman, sem dvaldist hér nokkuð lengur heimsótti all- marga klúbba og flutti þar erindi um Rotarymál. Umdæmisstjóri íslenzka Rotary umdæmisins var sl. starfsár sr. Helgi Konráðsson, prófastur á Sauðárkróki, er lézt 30. júní sl., en viðtakandi umdæmisstjóri er Halldór Sigurðsson, sparisjóðs- forstjóri í Borgarnesi. heimilum ásamt öðrum félögum. Kosin var nefnd er athuga skal orlofsmál húsmæðra. Samþykkt var að halda í haust á Isafirði námskeið fyrir handa- vinnukennara á barna- og ungl- ingastigum. Samþykkti fundurinn einnig, að skora á þing og stjórn að auka svo fjárframlög til kvenfélags- sambands íslands, að það sjái sér kleift að hafa fleiri heimilisráðu- nauta á sínum vegum framvegis, en þann cina, sem nú er. í landhelgismálinu kom fram svohljóðandi tillaga: „29. fundur Sambands vestfirzkra kvenna, haldinn á Flateyri 4. og 5. júlí 1959, vítir harðlega aðgerðir Breta í íslenzkri landhelgi, og I. Hið góða, sem ég vil geri ég ekki, en hið vonda, sem ég vil ekki, það gjöri ég. (Róm: 7. 19) OFT hafa menn hugsað um þessa játningu Páls postula, þar sem hann talar um hið mikla ósam- ræmi í sínu eigin lífi, milli þess, sem hann vill gera og þess sem hann gerir í veruleikanum. Hér var þó ekki á ferð neinn lausingi, heldur maður, sem kunnugur var að vitsmunum og siðferðilegri festu. Það, sem felst á bak við þessi orð Páls er ekki nein fjarlæg heimspeki eða vafasamur orða- leikur, heldur veruleiki í lífi flestra manna. Vér þekkjum öll þessa baráttu í siðferðilegum efn- um, þetta ósamræmi milli þess, sem vér viljum og gerum. Það er sjaldnast neinn vandi að vita hvað er rétt, svo mikið skorar eindregið á ríkisstjórn fs- lands, að gera sitt ýtrasta til þess að afstýra þeim aðförum, og hvika í engu frá 12 mílna land- helginni. Gestir fundarins voru: frú Aðalbjörg Sigurðardóttir fyrir hönd Kvennfélagssambands ís- lands, og frú Sigríður J. Magn- ússon fyrir hönd Kvenréttinda- félags íslands, og fluttu þær báð- ar ýtarleg erindi hvor fyrir sitt Samband. Að fundarstörfum loknum, bauð kvenfélagið „Brynja“ á Flat eyri í skemmtiferð um Önundar- fjörðinn og hlýddu konur messu í Holti hjá séra Jóni Ólafssyni. Um kvöldið var setið við veizluborð í góðum fagnaði. Stjórn Sambar.dsins skipa nú: Frú Sigríður Guðmundsdóttir formaður ísafirði, frú Unnur Gísladóttir ritari ísafirði, frú Elísabet Hjaltadóttir gjaldkeri Bolungarvik. þekkjum vér til sanninda kristin- dómsins, að vér vitum hvaða kröf ur hann gerir til vor, en hitt reyn ist meira vandamál, að fylgja því, sem vér vitum sannast og réttast fyrir augliti Guðs. Einu sinni voru menn svo bjartsýnir á mannlegt eðli, að þeir trúðu því, að það myndi þró- ast ört í átt til hins góða, fyrir áhrif þekkingar og vísinda, og þess myndi ekki langt að bíða, að mennirnir yrðu sannir englar og hið þráða þúsundáraríki friðar og kærleika yrði að veruleika meðal mannanna. Hið illa í manneðlinu virðist þó enn furðu lífseigt. Styrjaldir og uppreisnir síðustu ára hafa sýnt manneðlið í sorglegu ljósi. Fanga búðir, fjöldamorð og pyntingar samfara óskiljanlegum kvala- þorsta sýnir glöggt tvískiptingu manneðlisins, og varpar skugga á þá bjartsýni á eðli mannsins, sem þó er veigamikill þáttur fagnað- arerindisins. Vér hljótum því að komast að þeirri niðurstöðu, að í hverjum manni býr gott og illt og að siðgæðisuppeldi er hverjum manni nauðsynlegt, til þess að göfga hinar æðri hvatir mann- eðlisins, og halda hinum lægri hvötum þess í skefjum. Og reynslan hefur sýnt, að þar er það trúarsamfélagið við Guð, sem er oss bezta hjálpin. „án Guð náðar er allt vort traust, óstöðugt veikt og hjálparlaust.“ (H.P.) II. Það er ekki óeðlilegt, að vér hugsum um þetta mikla ósam- ræmi í lífi vor mannanna, milli þess, sem vér viljum og gerum. Allir þekkja, hvernig ágætis- menn fórna hamingju sinni og ástvina sinna fyrir stundargleði áfengisnautnarinnar. Aðrir grípa til svika og óráðvendni, til þess að veita sér stundar hagnað eða þægindi, þó að þeir hljóti að gera sér ljóst, að áður en varir eru þeir flæktir í sínum eigin svika- vef og mannorðið glatað. Að vita hið sanna er því engan veginn nóg til þess að frelsa menn undan oki hins illa, heldur sú ábyrgðar- tilfinning fyrir Guði og vilja hans, sem nær að móta viljalíf mannsins. Það var þetta, sem að lokum mótaði alla lífsreýnslu Páls post- ula, svo að hann gat sagt: „Sjálfur lifi ég ekki framar, heldur lifir Kristur í mér.“ Eina leiðin til þess að sigra hinar lægri hvatir í sál sinni, er að komast undir sterk áhrif Guðs anda, taka sinnaskiptum, eins og það er orðað í Nýja Testament- inu. Ég veii, að þú sem lest þessa hugleiðingu mína í dag, átt oft í baráttu við sjálfan þig. Það eru allir, sem finna til þessa ósam- ræmis í lífi sínu, milli þess, sem þeir vilja og gera. Þessi barátta er oft persónuleg, það er ekki víst að neinn viti um þá baráttu, sem fer fram í sál þinni, húg getur snert þín eigin siðferðilegu vanda mál. En minnstu þess, að þú mátt koma fram fyr.r Guð með öll vandamál þín, það er líka þitt einkamál, en þú verður styrkari og glaðari, því oftar, sem þú leit- ar samfélags við hann. Þetta er leyndardómur trúarlífs- ins, uppsx retta þeirrar blessunar, sem vér eigum kost í baráttu og vandamálum lífsins. Ég veit að vér þráum öll meira samræmi í líf vort, milli þess, sem vér vitum að oss er fyrir beztu og þess, sem vér gerum í reyndinni. En hví þá ekki að fara þær leiðir, sem kynslóðirnar hafa bor ið vitni um, að sé leiðin til ham- ingju og 1 elsis? Ó. J. Þ. Umdœmisþing Rotary klúbbanna haldið á Sauðárkróki Það kemur vatn fram í munninn á fslendingnum, þegar hann sér mynd af appelsínu- eða epla- trjám, þar sem greinar þeirra svigna undan gómsætum ávöxtum. Ætli blámönnunum í Afríku yrði ekki eitthvað svipað við ef þeim gæfist kostur á að sjá þessa mynd — af íslenzkri skreið. Ljósm.: Elvar Bjarnason. Somband vestfirzkra kvenna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.