Morgunblaðið - 12.07.1959, Page 9
Sunnudagur 12. júlí 195S
MORCVNBLAÐIÐ
9
Gyðingar fyrirgefa Þjóðverjum
seint morðin á 6 millj, trúhræðrum
En Ben Gurson segir að Þýzkaland
nútísnans sé allt annað en Þýzka-
land Hitlers
GYÐINGAR hafa háð harða
baráttu fyrir tilverurétti sín-
um í landinu helga síðan þeir
stofnuðu sjálfstætt Ísraels-ríki
þann 14. maí 1948.
Alla tíð hafa þeir verið um-
kringdir og einangraðir af ara-
bískum fjandmönnum sínum,
sem voru miklu fjölmennari en
þeir -og hugðust kæfa ríki Gyð-
inga í fæðingu. Síðan hafa öll
landamæri ríkisins verið víglína,
þótt S. Þ. kæmu vopnahléi á og
landið eins og einar stórar her-
búðir.
Gyðingar eru þekktir að þraut-
seigju og kænsku um öll lönd, og
hafa sýnt frábæran dugnað við
uppbyggingarstörf heimafyrir.
Menning almennings er á miklu
hærra stigi, en í'nágrannarikjun-
um óg þarna hafa Gyðingar kom-
ið á.fót nýtízku tækniþjóðfélagi.
Érfiðleikarnir hafa að vísu verið
inargir, því að landnemarnir
hafa streymt þangað úr öllum
hlutum Iieims. Til þess að búa
þeim samastað hafa stórir eyði-
merkurflákar verið ræktaðir og
margs konar iðnaður verið settur
á fót. ísrael er harðbýlt og hrjóstr
ugt land. Þeir lífsafkomuleikar,
sem nú hafa skapazt þar fyrir 2
milljóna Gyðingaþjóð, er fyrst
.og fremst árangur þrotlausrar
iðjusemi og erfiðis.
EINN var sá iðnaður, sem Gyð-
ingar urðu frá byrjun að
leggja einna mesta áherzlu á. Það
var hergagnaiðnaðurinn, því að
þeim reyr.dist örðugt að fá keypt
vopn í öðrum löndum. Stjórn-
endur Sameinuðu þjóðanna, sem
töldu sig nokkra ábyrgð bera á
hernaðarástandinu í Palestínu
gerðu allt sem þeir gátu til að
hindra vopnasölur þangað. í byrj
un fengu Gyðingar helzt vopn frá
Skoda-verksmiðjunum í Tékkó-
slóvakíu, sem undir stjórn komm
únista hafa sætt færi á að græða
á vopnasölum til flestra óróa-
svæða í heiminum.
Á síðustu róstusömu valdaár-
um Breta í Palestínu, stofnuðu
Gyðingar leynifélög, sem stefndu
að því að hrekja Breta með
hermdarverkum brott frá land-
inu. Stærst þeirra var félags-
skapurinn Hagana, sem þá þegar
kom sér upp litlum vopnasmiðj-
um aðallega fyrir riffla og hand-
sprengjur. Og þegar styrjöldin
brauzt út milli fsraels og Araba-
ríkjanna spratt upp i landinu
urmull af litlum vopnasmiðjum,
sem framleiddu handvélbyssur,
sprengjuvörpur og skotfæri í all-
ar tegundir skotvopna. Síðan
hafa ísraelsmenn haldið áfram að
auka hergagnaiðnaðinn og geta
nú smíðað aliar stærðir af vél-
byssum, litlar fallbyssur, rakettu-
byssur og eru nú jafnvel að hefja
smíði á orustuþotum. Þeir eru og
sjálfum sér nógir með skotfæri.
Það kom í ljós í árásinni á
Egyptaland, þegar ísraels-
ménn gersigruðu eyðimerkurher
Egypta á skömmum tíma, að
vopnin sem þeir notuðu og höfðu
mest framleitt sjálfir voru öflug
og harðskeytt.
ISRAELSMENN vilja enn vera
við öllu búnir og starfrækja
áfram stórar vopnasmiðjur.
Stærð þeirra er miðuð við styrj-
aldartíma og því hefur það farið
svo, að þegar bardagar liggja
niðri, er offramleiðsla á vopnum.
Hafa Gyðingar því farið út á þá
braut, að seija vopn úr landi. Það
hefur tryggt þeim áframhaldandi
stárfsemi vopnasmiðjanua og
einnig gefið þeim góðar gjald-
eyristekjur til að draga úr vöru-
skiptahallanum. Má geta þess að
á síðasta ári seldu þeir vopn
fyrir 5 millj. dollara úr landi.
Aðrar þjóðir hafa sér í lagi sótzt
eftir hinni svonefndu Uzi-hand-
vélbyssu, sem ísraelskur herfor-
ingi. teiknaði. Hún þykir taka
flestum vopnum fram af þeirri
stærð.
Ben Gurion forsætisráðherra
skýrði frá því á ráðuneytisfundi
fyrir áramót, að Israelsmenn
hefðu gert samning við Vestur-
Þjóðverja um að selja þeim vopn
fyrir 2,8 millj. dollara. Frásögn
ráðherrans vakti enga sérstaka
á, ef ekki hefðu staðið fyrir dyr-
um þingkosningár. Þær skyldu
fara fram í nóvember nk. og fór
þegar í v„r að bera á spennu og
pólitískum æsingum vegna þeirra.
Vopnasölumálið varð tilvalið bar
áttuefni öfgaflokka. Ef kosningar
hefðu ekki verið fyrirhugaðar
ætla menn, að engra æsinga hefði
gætt, fremur hefðu Gyðingar
miklazt cf því, að vopnaiðnaður
þeirra þætti svo fullkomin, að
jafnvel háþróuðustu iðnaðarríkin
sæktust eftir framleiðslunni.
AÐ ríkisstjórn Israels hafa stað-
ið fjórir stjórnmálaflokkar,
en standa misjafnlega langt til
vinstri. Stærstur þeirra er flokk-
ur Ben Gurions forsætisráðherra,
Gyðingar hafa sett á fót margs konar vandaðan iðnað. Myndin
sýnir unga Gyðinga við nám í smíði nákvæmnistækja.
athygli þá og enginn ráðherranna
gerði neina athugasemd við það.
Upplýsingar voru einnig gefnar
um þetta í þingnefnd.
En í júní-mánuði sl. skýrði
þýzka vikublaðið „Der Spiegel
frá því í stuttri fréttagrein, að
Vestur-Þjóðverjar hefðu nýlega
undirritað samninga um kaup á
20 þúsund sprengjuvörpum frá
Soltan vopnasmiðjunni í Haifa í
ísrael. Var sagt, að tæki þessi
væru gerð af óvenjulegri hug-
kvæmni. Hægt væri að festa þeim
framan á hváða riffil sem er og
nota þannig til sprengjukasts.
Þessi liíla grein kveikti í púðr-
inu og olli svo miklum æsingum
heima í ísrael, að stjórnarsam-
starf sem verið hefur þar milli
fjögurra flokka splundraðist.
Heitar umræður stóðu um málið
í marga daga í Knesseth, en svo
nefnisf þjóðþing ísraels. Að vísu
samþykkti þingið vopnasöluna að
lokum með 57 a.kv. gegn 45, en
sjálfir stjórnarflokkarnir voru
sundraðir svo Ben Gurion for-
sætisráðherra varð að biðjast
lausnar.
ÞAÐ sem veldur ólgunni er að
vopnin voru seld til Þýzka-
lands. Gyðingar eru ekki reiðu-
búnir, þótt 14 ár séu liðin frá
stríðslokum, að fyrirgefa Þjóð-
verjum meðferð Gyðinga, en tal-
ið er að nasistar hafi samtals
myrt 6 milljónir Gyðinga á yfir-
ráðasvæði sínu i Evrópu. Þær eru
fáar fjölskyldurnar í ísrael, sem
ekki geta nefnt náin skyldmenni,
sem urðu nasistunum að bráð.
Þó telja kunnugir, að aidrei
hefði orðið úr þessu siikt póli-
tískt fárviðri, sem nú várð raunin
—- Mapai-flokkurinn sem hefur
40 þingsæti af 120 í þinginu. Hann
er hægfara Jafnaðarmannaflokk-
ur og sama er að segja um hinn
svonefnda Framsóknarflokk, sem
hefur 5 þingmenn. Hinir tveir
stjórnarflokkarnir eru róttækari
vinstri flokkar og kallast Ahdut
Avodad, sem hefur 10 þingsæti og
Mapam er hefur 9 þingsæti. Til
saman höfðu þeir þingmeirihluta
64 þingsæti.
Þegar þessi stjórn var mynduð
fyrir nokkrum árum, setti Ben
Gurion samstarfsflokkum sínum
að skilyrði, að þeir yrðu að
standa með stefnuákvörðunum
stjórnarinnar hverju sinni og
ella víkja úr stjórninni. Sam-
þykktu þeir þetta skiiyrði.
SKÖMMU eftir að fréttagreinin
birtist í þýzka blaðinu kvaddi
einn af foringjum Ahdud Avodad
flokksins sér hljóðs í þinginu ut-
an dagskrár. Maður þessi Jigal
Alon hershöfðingi er mikill kappi
úr styrjöldinni við Egypta og fór
hann óvægum orðum um vopna-
sölur til Þýzkalands. Minnti hann
á hörmungar þær sem Gyðingar
höfðu orðið að þola frá Þjóðverj-
um og sagði að vopnasalan væri
svívirðing við sögu Gyðingaþjóð-
arinnar og minningu þeirra sem
Þjóðverjar höfðu myrt.
Stærsti stjórnarandstöðuflokk-
urinn hinn þjóðernissinnaði
hægri-flokkur Cherut krafðist
sérstakra umræðna á þingi um
„vopnasölur til hinna þýzku morð
ingja“ eins og foringjar hans orð
uðu það. Blöð stjórnarandstöð-
unnar tóku að birta langar grein-
ar um Gyðii.gaofsóknirnar í
Þýzkalandi ásamt myndum af
fangabúðum og brennsluofnum.
Málgagn Ahduc. Avodad flokks-
ins sagði m. a.: „Okkur hefði
aldrei getað dreymt um það, ekki
einu sinni í verstu martröð, að
Israel myndi strax 20 árum eftir
að Hitler fór að slátra Gyðingum,
fara að afhenda vopn í stríðum
straumum til þýzku morðingj-
anna.
Róttæku flokkarnir tveir í
stjórninni kröfðust þess að vopna
sölur til Þýzkalands yrðu þegar
stöðvaðar, en Ben Gurion hinn
aldni forsætisráðherra snerist
hart gegn þvi. Hann sagði að
ísraels-menn myndu skilyrðis-
laust halda alla samninga, sem
þeir hafa gert við aðrar þjóðir.
Krafðist hann þess á móti, að
ráðherrar róttæku flokkanna
hlýttu stjórnarsáttmálanum og
véku þegar úr stjórn, þar sem
þeir hefðu snúizt gegn stefnu
stjórnarinnar í heild í þessu efni.
En þeir þverskölluðust við að
gera það. Varð það tilefni stjórn-
arslitanna þótt aðrir flokkar, að-
allega Zionista-flokkurinn styddi
Ben Gurion á þingi svo hann
hafði meirihluta að baki.
BEN GURION varði vopnasöl-
una í áhrifamiklum ræðum á
þingi. Hann sagði að þær hefðu
verið ísrael fyrir beztu. Með því
móti hefði verið hægt að starf-
rækja vopnasmiðjurnar áfram og
skapa mönnum áframhaldandi
atvinnu. Hann sagði líka að fjand
manna Gyðinga væri ekki lengur
að leita í Þýzkalandi, heldur með
al Arabanna og þessir samningar
hefðu styrkt Gyðinga í barátt-
unni gegn þeim. Hann fordæmdi
þá flokka sem reyndu hér að
færa sér í nyt viðkvæmar minn-
ingar manna og skirrðust ekki
við að ýfa upp gömul sár.
Forsætisráðherrann skýrði mál
ið einnig á athyglisverðan hátt í
blaðaviðtali, sem birtist í mál-
gagni ísraelsku verkalýðshreyf-
ingarinnar. Þar sagði hann m. a.:
— Ég átti sjálfur um sárt að
binda. Allir Gyðingar, öll ætt-
menni í heimabæ mínum, Plonsk
í Póllandi voru tekin og myrt af
nasistum. Bróðurdóttir min, mað-
David Ben Gurion,
forsætisráðherra ísraels.
ur' hennar og tvö börn þeirra
voru færð í brennsluofnana. Þeg-
ar hún var brennd með börnum
| sinum, var það sen. ég hefði misst
I dóttur mína og barnabörn.
Ben Gurion dró ekki úr því í
samtalinu, að Þjóðverjar bæru
sem þjóð ábyrgð á morðum 6
rtiilljóna Gyðinga, en héit síðan
áfram:
— Við verðum þó að skilja,
að það eru ekki sömu mennirn
ir, serr. leiddu hinar miklu
hörmungar yfir Gyðinga, og
þeir sem við skiptum nú við.
Þýzkaland nútímans, sagði
hann, er ekki sama og Þýzka-
land Hitlers. Munurinn stafar
ekki aðeins af því að stjórn
nasista er horfin og komin í
staðinn stjórn Ivristilega lýð-
ræðisflokksins, sem liugsan-
legt er að jafnaðarmenn taki
við. Munurinn felst fyrst og
fremst í grundvallarbreytingu
á viðhoríum og aðstöðu Þýzka
lands. Stjórnmálaleg og land-
fræðileg aðstaða Þýzkalands
hefur nú br^yzt svo, að það
getur aldrei framar náð sömu
áhrifum og völdum og það
hafði áður.
Þes vegna segi ég, hélt Ben
Gurion enn áfram, að þeir sem
ímynda sér að tími nasismans
og hermdarve'rka hans geti
aftur runnið upp í Þýzkalandi,
þeir skilja ekki þróu sögunn-
ar.
Húsgagnasmiðir
Viljum ráða húsgagnasmiði. Framtíðarvinna.
TKÉSMÍÐAVINNUSTOFAN SKJÖLDUR H.F.
Gránufélagsgötu 45 — Sími 1551,Akureyri.
Chevrolet '53
Skúffubíll til sölu og sýnis á Hringbraut 119, mánu-
dag. Tilboð skilist fyrir kl. 5, miðvikudag 15. þ.m.
til Jóhannesar Guðmundssonar, Búvélalagers SÍS,
Hringbraut 119.
= Simi 15300
| Ægisgötu 4
Iðnverkamenn, aðstoðarmenn við
blikksmiði og mann vanan málun
vantar nú þegar.