Morgunblaðið - 12.07.1959, Blaðsíða 24
VEÐRIÐ
Norðankaldi. Léttskýjað
147. tbl. — Sunnudagur 12. júlí 1959
Reykjavíkurbréf
Er á blo. 13.
||r !
S
S
s
s
s
i"
s
I
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
)
s
s
Uppljóstrun Tímans um
vissa samstöðu" sam-
vinnuhreyfingarinnar
„og Framsóknar-
flokksins44
í hverju er „samstadan" fólgin ?
Síldarskipin bíða lönd-
unar á Raufarhöfn
til þriðjudags
I gærdag var veiðiveður- á Miðsvæðinu
og sjóm.enn vongóðir
ÞEGAR Mbl. var fullbúið til
prentunar síðdegis í gær, voru
svo mörg síldveiðiskip komin til
hafnar á Raufarhöfn með
bræðslusíld, að þeim, sem síðast
komu, var tilkynnt að löndunar-
n------------------------□
100 þús. mál
ÞAÐ mun ekki fjarri lagi, að síld-
veiðiflotinn sé nú búinn að landa
nær 100.000 málum síldar.
Á föstudagskvöldið var búið að
landa á Raufarhöfn 23.000 mál-
um, og í gærmorgun voru komin
nær 43.000 mál til Siglufjarðar.
Auk þess hefur sem kunnugt er
verið landað á Austfjarðarhöfn-
um, og Eyjafjarðarhöfnum.
D--------------------□
bið yrði þar til á þriðjudaginn.
í gærdag var þorri þeirra skipa,
sem voru úti á Miðsvæðinu, en í
námunda við Grimsey, veiddist
íyrsta síldin í fyrrinótt. Var það
Keflavíkurbáturinn Helguvík,
sem fékk um 400 tunnur af mjög
faliegri síld og átti að salta hana
í gærdag á Siglufirði.
Bræla var sunnan Langaness,
og má segja að tekið hafi fyrir
veiðina að mestu um miðnætti i
fyrrinótt á Austursvæðinu. Aftur
á móti var veiðiveður milli Mel-
rakkasléttu og Grímseyjar. Sjó-
menn sögðu t.d. mjög líflegt
kringum Mánáreyjar, en þar
höfðu skip mælt á síld.
Fregnir bárust um að einstaka
skip hafi snemma í gærmorgun
fengið mjög stór köst, og hefðu
skipsmenn ekki við neitt ráðið og
orðið tjón á nótum. Einn þeirra
báta, sem í stórkasti lentu, var
Áskell. Hafði nótin hvolft út úr
sér tvívegis, enþrátt fyrir það
hafði skipsmönnum tekizt að ná ■
um 400 málum.
Búizt var við því á Raufarhöfn
í gær, að þau skip, sem á annað
borð eru ekki því hlaðnari, reyni
að komast með aflann til bræðslu
á öðrum höfnum t.d. Siglufirði.
Fréttaritari Mbl. á Siglufirði
sagði í gærdag, að þangað hefði
verið stöðugur straumur skipa í
fyrrinótt, og voru 5—6 löndunar-
kranar í gangi alla nóttina. Um
hádegisbilið voru engin síldar-
skip inni á Siglufirði.
Tjarnargarðurinn (eða Hljóm-
skálagarðurinn) hefur tekið
miklum breytingum undanfarin
ár og er nú orðinn hinn fegursti.
Berir steinhnullungarnir í skjól
garðinum eru hér gæddir lífi.
Litskrúðug blóm teygja sig upp
á milli þeirra — og það eigum
við m.a. þessum ungu og fallegu
stúlkum að þakka.
— Ljósm. Mbl.: Ól. K.M.
Kæra vegna kosn-
inganna í Austur-
Húnavatnssýslu
FORYSTUMENN Sjálfstæðisfé-
laganna í Austur-Húnavatnssýslu
hafa sent kæru yfir misferli, sem
þeir telja að hafi átt sér stað
í ákveðnum kjördeildum í Aust-
ur-Húnavatnssýslu í alþingis-
kosningunum 28. f.m.
Dómsmálaráðuneytið hefur
skipað Loga Einarsson, hrl., sctu-
dómara í máli þessu þar sem
Guðbrandur fsberg, sýslumaður,
baðst undan því að hafa rann-
sókn þess með höndum.
TtMINN er síður en svo á því í gær að biðja afsökunar á
því, að stjórn SlS skuli nú sem fyrr skipuð einlitum Fram-
sóknarmönnum og að Eysteinn Jónsson og Egill Thoraren-
sen skyldu kosnir þangað samtímis því, sem lýst var „fyrir-
litningu á“ „pólitískum áróðursmönnum" og „sérhagsmuna-
hyggju og gróðabralli“.
Tíminn ljóstrar því þvert á móti upp, að hér er unnið af
ráðnum hug og segir „það ekki undarlegt, þótt í stjórn SÍS
veljist Framsóknarmenn“ og telur „það fullkomlega eðlilegt,
að Framsóknarmenn veljist einkum til forystu í samvinnu-
hreyfingunni“.
Þá hælist hann um yfir „vissri samstöðu“ .samvinnu-
hreyfingarinnar og „Framsóknarflokksins“.
Enga grein gerir hann þó fyrir í hverju sú „samstaða“
sé fólgin. Þar er þó komið að meginatriði málsins, sem upp-
lýsa verður svo að almenningur geti áttað sig á því valda-
kerfi, sem hér hefur verið byggt upp.
Tíminn skrökvar hins vegar frá rótum, þegar hann segir:
„f Mbl. er nú farið að ympra á þeim skoðunum, að
starfsfólki kaupfélaganna verði bönnuð afskipti af stjórn-
málum“.
Á þessu hefur aldrei verið ymprað í Morgunblaðinu.
Afskipti af stjórnmálum eru auðveld án misnotkunar á trúu-
aðarstöðum hjá fyrirtækjum almennings.
Pótverjar hefja vöru-
flutninga til Islands
sem íslendingar hafa annazt til jbesscr
PÓLVERJAR hafa nú byrjað
reglubundar, mánaðarlegar áætl-
unarferðir flutningskipa til ís-
lands, og er fyrsta skipið, Liwiec
frá Szcezcin (áður Stettin), ný-
komið hingað. Var það með full-
fermi af timbri, vélum, pappír
o. fl. —
Skipum þessum er ekki ein-
göngu ætlað að flytja pólskar
vörur, því þau munu hafa við-
komu í Gdynia og Rostock í
Austur-Þýzkalandi og Ósló, ef
þurfa þykir. Þá hafa Pólverjar
Miklar fisklandanir tog-
ara hér í bœnum í sl. viku
Útsvarsskráin lögð fram
um miðjan ágúst
SVO SEM LÖG gera ráð fyrir
skal niðurjöfnun útsvara lokið í
júní ár hvert. Um langt skeið
tókst að ljúka þessu þannig að
skráin var lögð fram í júnímán-
uði.
Nú síðustu ár hefur þetta dreg-
ist meira og meira fram eftir
sumri. Eru nú t.d. taldar horfur
á því, að útsvarsskrá Reykjavík-
ur verði ekki lögð fram fyrr en
um miðjan ágústmánuð.
Ástæðan til þessa mun vera sú
að skattstofunni hefur eigi unn-
izt tími til að yfirfara framtöl,
þar eð verulegur hluti af tíma
hennar á þessu ári hefur farið í
það að reyna að greiða úr þeim
óteljandi ágreiningsatriðum er
upp hafa komið í sambandi við
álagningu stóreignaskattsins.
ÞAÐ hefur verið mikil vinna í
kringum landanir togaranna í
vikunni, sagði Hallgrímur Guð-
mundsson forstjóri Togaraaf-
greiðslunnar. Hingað hafa kom-
ið nokkrir togarar með isvarinn
fisk og tveir að loknum saltfisk-
veiðum.
Togararnir hafa verið ýmist
hér við land, vestur við Græh-
land eða á Nýfundnalandsmiðum.
Þeim hefur gengið misjafnlega
vel, sumir verið heppnir og lok-
ið veiðiförinni á skaplegum
tíma, en öðrum gengið seinna að
fá í sig. Þannig hefur þetta verið
hjá togurunum nú undanfarið.
Hér kom t.d. með fullfermi og
fisk á þilfari rúmlega 300 tonn
togarinn Askur, sem var við
Grænland og lauk veiðiförinni á
12 dögum Þá kom Jón forseti með
rúmlega 290 tonn af heimamiðum
og hafði lokið veiðiförinni á 15
dögum og Marz sem einnig var á
miðunum hér við land kom með
192 tonn eftir 10 daga úthald. Af
Nýfundnalandsmiðum komuEgill
Skallagrímsson með 315 tonn og
Hvalfell 272. Enn er heldur
dauft yfir veiðinni þar vestra og
fara stundum allt upp £17 dagar
í veiðiförina, en stundum eru þeir
líka heppnir eins og t.d. Geir
sem kom í gærmorgun með nær
300 tonn, eða fullfermi af Ný-
fundnalandsmiðum og hafði
gengið mjög sæmilega.
Togararnir Skúli Magnússon og
Þorsteinn Ingólfsson komu með
saltfisk af Grænlandsmiðum.
Þangað fóru um og upp úr miðj-
um maímánuði. Höfðu þeir orðið
fyrir nokkrum töfum vegna þess
að ís var á miðunum.
Vegna ísfisklandananna hefur
verið mikil atvinna í hraðfrysti-
húsunum hér í bænum og við
hann.
LONDON 10. júlí — Smá fegrun-
aðgerð var gerð á andliti hertoga-
frúarinnar af Windsor í dag. Þeg-
ar hún var í flugvél á leið yfir
hafið á dögunum hraut hún um
ferðatözku og skall á dyraum-
búnað og hlaut smáskurð á enni.
Sérfræðingar munu nú „breiða
fyrir“ skrámuna.
og í hyggju, að annast síðar
meir að einhverýu leyti flutn-
inga á vörum frá Tékkóslóva-
kíu. Héðan ætla þeir að flytja
útflutningsvörur íslendinga,
svo sem síld, fiskimjöl, gærur,
garnir, lýsi, húðir, fiskflök og
fleira.
Hingað til hafa fslendingar ein-
ir annast þessa flutninga. Um-
boðsmaður Pólverja var staddur
hér fyrir nokkrum vikum, og leit
aði þá fyrir sér bæði hjá Eim-
skipafélagi fslands og Skipadeild
SÍS um að taka að sér umboð
fyrir hið pólska skipafélag, en
hvorugt félagið vildi sinna því.
— íslenzk stjórnarvöld létu einn
ig uppi þá skoðun sína, að þau
teldu eðlilegast að íslenzk skipa
félög önnuðust þessa flutninga
áfram.
Herbíll veltur
í Bægisá
AKUREYRI, 11. júlí. — Laust
fyrir kl. 4 í gærdag fór amerísk-
ur herbíll út af brúnni við Bæg-
isá. Orsök þess voru þau, að
vagn, sem var aftan í bifreiðmni,
mun hafa rekizt í brúarstó'pann
og við það kom slynkur á bíl-
inn, svo að bílstjórinn missti
stjórn á honum með fyrrnefnd-
um afleiðingum. Steyptist bíllinn
ofan í gilið, sem er um þriggja
metra fall.
í bílnum voru tveir menn fyr-
ir utan bílstjórann. Einn mann-
anna var aftan á pallinum og
mun hann hafa slasazt nokkuð á
höfði. Hinir sluppu ómeiddir. —-
Sjúkrabíll frá Akureyri og lækn-
ir fóru á staðinn og var maður-
inn fluttur í sjúkrahúsið. — Mag.