Morgunblaðið - 18.07.1959, Blaðsíða 8
c
MORCVNTtT. 4 Ð1E
Laugardagur 18. júlí 1959
Hér sést kvikmyndaver Warner-bræðra í Hollywood. -- •^*****’’"
Kvikmyndaver Warner bræðra
tækinu enn í dag. Þeir hófu rekst
urinn með því að opna kvik-
myndahús í búðarholu í borginni
New Castle í Pensilvaníu fylki.
Um 1912 höfðu bræðurnir eign-
azt fimm sýningarhús og tekið
upp kvikmyndahöndlun í Balti-
more og Pittsburgh. >á sáu þeir
fram á það að eina leiðin til að
tryggja sér nægilegt magn af við-
unandi myndum var sú að fram-
leiða þær sjálfir. Svo bráðlega
eftir það hófu þeir verkið í
Brooklyn í New York.
Árið 1918 gerðu þeir fyrstu
stórmyndina, en hún var „My
Four Years in Germany, „byggð
á bók eftir James W Gerhard
sendiherra. Þegar við útkomu
myndarinnar varð hún mikill sig-
ur fyrir félagið og efnahagleg
undirstaða þess, sem síðar varð.
í ágúst 1926, komu Warner
bræður fyrstir manna fram á
sjónarsviðið með hljóðmyndir.
„Don Juan,“ fyrsta myndin með
áfastri hljómlist, var sýnd ásamt
nokkrum stuttum tal og músik-
myndum, og þessi atburður átti
eftir a^ skapa algjöra byltingu
á sviði kvikmyndagerðar. Fjórtán
mánuðu— seinna kom „Jass-
söngvarinn," fyrsta heila myndin
með söngvum og tali. Með henni
var mörkuð framtið kvikmynd-
anna, eins og þær eru í dag.
R H O
FYRIR röskum fimmtíu árum
kom uppgjafa herforingi nokkar
til smáborgar einnar á vestur-
strönd Ameríku og tók sér þar
bólsetu með hafurtask sitt, sem
samanstóð eigi af öðru enn or-
fáum dölum og nýlegri kvik-
myndaiökuvél. Þarna hóf hann
kvikmyndagerð, gerði eina mynd
og fór þvínæst á hausinn. Borgin
var hin fræga Hollywood og frá
komudegi þessa manns telur hún
sína ævidaga. Þó hún eigi kannski
tilveru sína meira ^ð þakkaflokki
manna er þar festist í leir og
for nokkru seinna. Menn þess-
ir voru að komú frá austur-
ströndinni í leit að heppilegum
stað til kvikmyndunar útiatriða
úr hrossa-óperu, er þeir hugðust
gera. Áður enn þeir höfðu fundið
ákjósanlegan stað skall regntíma-
bilið yfir og þar með urðu þeir
innlyksa í þessari smáborg, því
í þá daga voru vegir ekki steyptir
og malbikaðir sem nú er, heldur
moldargötur, sem urðu að ófæru
svaði um leið og himnagáttirnar
opnuðust. Þannig á sig komnir
ákváðu þeir að setjast þarna að
því þessi staður væri eflaust jafn
góður og hver annar og hófu þar
með byggingu hinna fyrstu kvik-
myndavera á vesturströndinni.
í dag er Hollywood harla frá-
brugðin því, sem hún hefur litið
út á þessum tíma. Nú festasi
menn ekki lengur í leir og for
þótt rigni og nú standa stórar og
reisulegar byggingar þar sern
trékumbaldarnir stóðu áður fyrr.
Um borgina hefur skapast ævin-
týralegur ljómi vegna auglýsinga
skrums. Flestum hrýtur sama
setningin af munni, þegar þeir
koma þangað fyrsta sinn, „Er
þetta Hollywood, ekki hélt ég hún
liti si svoi.a út“, en sannleikurinn
er sá að Hollywood lítur alveg
nákvæmlega eins út og allar aðr-
ar smáborgir á vesturströnd
Bandaríkjanna. Og þar rekast
menn ekl.i á kvikmyndastjörnur
á hverju götuhorni frekar enn í
Reykjavík eða á Akureyri, því
ef svo ólíklega vildi til að þekkt
kvikmyndapersóna þyrfti að fara
á sínum tveimur um götur borg-
arinnar um hábjartan daginn
mundi sú hin sama persóna setja
upp heljarmikil sólgleraugu og
láta hatt einn stóran slúta langt
fram svo ógerlegt yrði að þekkja
hana, úr öllum þeim hóp manna
er klæðist þessu sama „uniformi",
í þeim tilgangi að láta fólk taka
eftir sér og jafnvel halda, að þar
sé einhver frægur á ferð, er
ásjónu sína kjósi að hylja. Ár-
lega gera um fjórar milljómr
Bandarkjamanna ferð sína til
borgarinnar, annaðhvort í þeim
tilgangi að verða „frægir á einni
nóttu“ eða til að sjá einhvern
„frægan". Flestir fara fýluför
enn Hollywood-búinn græðir
drjúgan skilding á öllum hégóm-
anum.
í borgii.ni eru um eitt hundrað
og fjörutíu starfandi kvikmynda-
félög, en pláss hjá hinum stóru,
þegar á þarf að halda. Fæst stóru
verin eru í Holly od, en í öðr-
um smáborgum nokkuð í burtu.
Ein af þeim er Jurbank. Hún
stendu. : nærri tíu kílómetra
fjarlægð frá „kvikmyndaborg-
inni“, en þar eru staðsett Warner
Bros verin, ein hin stærstu og
fullkomnustu í heiminum.
Verkbóiið er í raun og veru
sjálfstæð borg innan Burbank
borgar. Hér vinna hart nær 3000
menn og konur úr allflestum
stéttum iðnaðar og lista, allt frá
tæknimönnum til frægra kvik-
myndastjarna og rithöfunda.
Aðalverkbólið tekur yfir 102
Lokað
vegna sumarleyfa frá 20. júlí til 11. ágúst.
G. Ólafsson & Sandholt
Lokað
vegna sumarleyfa til 8. ágúst.
EGILL KRISTJÁNSSON. heildverzlun
VERKSMIÐJAN HERCO H.F.
„Frönsk“ gata í kvikmyndaverinu.
kvikmynda og reksturs sliks
verkbóls.
Þessi „cellulósa" borg starf-
rækir sitt eigið lögreglu- og
slökkvilið, skóla, sjúkrahús, bóka
safn, kvikmyndahús og talsíma-
kerfi, Þvers og kruss neðanjarðar
liggja margra mílna langar
vatns- gas- og rafmagnsleiðslur.
Rafmagnsnotkunin gaéti fullnægt
borg með 40.000 íbúum. Á veit-
ingastofnun geta 1000 manns
snætt í einu. Meira en 300 bif-
reiðar eru hér til taks til að flytja
fólk og annað milli staða. Her
eru efnarannsóknarstofur og
verkstæði, sem geta framleitt allt
frá vasaú. i upp - flugvél, enda er
verkstæðisbyggingin sú stærsta
á öllu svæðinu. Þar eru við vinnu
um fjögur hur.druð manna er
hafa allar þær vélar til umráða,
sem nauðsynlegar eru til þessarar
stórtæku framleiðslu.
Þar eigi skammt frá stendir
önnur stórbygging, sem hefur
að geyma búningu og annað frá
gerð fyrri kvikmynda, sem áæti-
að er að sé um sjö milljón doil-
ara virði og mætti líklega klæða
sig vel upp fyrir minna.
Tökuskálarnir eru tuttugu og
einn alls. sá stærsti er nærri
37.000 fet að flatarmáli. Þar inni
er geysistór þró sem hægt er að
fylla af vatni ef með þarf fyrir
sérstakt atiði í kvikmynd. Segj-
um t. d. að lítill bátur hrekist í
stórsjó upp að klettóttri strönd.
Þá eru klettarnir málaðir á leik-
tjöld og þeim siðan stillt upp
meðfram þrónni endilangri. Síð-
an er þróm fyllt af vatni, sterk-
Þarna voru t. d. mörg atriði úr f
myndinni „Gamli maðurinn og
hafið“, tekin. Hinir skálarnir eru
nokkru minni, þeir eru allir hljóð
einangraðir fyrir utanaðkomandi
hávaða og gólfin eru þakin þykk-
um teppum er deyfa allan þann
hávaða, sem skapast af því er
menn ganga um og vélar eru
dregnar fram og aftur og þess
háttar meðan á upptöku stendur.
Þar eru ýmist byggð nokkur svið
í einu fyrir eina eða fleiri myndir
eða þá skálinn er allur lagður,
undir eitt stórt svið t. d. hús með j
garði, trjám, bilinnkeyrslu og1
öllu tilheyrandi.
Á baklóðinni standa eftirlík-
ingar af bæði erlendum og eins
„týpiskum" götum amerískra
borga. Þar getur maður á skönun
um tíma gengið á milli Parísar og
New York og síðaii skroppið inr.i
smáborg frá miðríkjunum og það
an haldið beint inn í villta vestr-
ið. Þessar götur nafa verið byggð-
ar til frambúðar o_ eru einungis
skreyttar á mismunandi hátt fyr-
ir hverja mynd.
Tuttugu mílum norðar, í San
Fernando dalnum . félagið 2800
ekru búgarð. Þetta svæði er að
mestu leyti óræktað og þrífst þar
mikið af villtum skógardýrutn.
Er svæði þetta notað til filmunar
á atriðum, er gerast í umhverfi
sem þessu, eins eru margar kúr-
ekamyndir teknar þarna.
Félagið var stofnað árið 1906
af fjórum bræðrum. Harry Al-
bert, Sam og Jack Warner. Þeir
eru nú allir dánir nema Jack
Warner og stjórnar hann fyrir
Ánæ^jule^t
afmælissamsæti
FYRIR skömmu héldu ferðafélag
ar og kunningjar Guðmundar
Jónassonar, ferðabílstjóra, hon-
um samsæti í tilefni af fimmtugs-
afmæli þessa kunna ferðamanns.
Var samsætið, sem var í Þjóð-
leikhúskjallaranum, mjög fjöl-
mennt, enda þótt margir af þeirn
sem vilja heiðra Guðmund séu
ferðafólk, sem á þessum tíma árs
er dreift út um landsbyggðina.
Sigurður Þórarinsson, jarðfræð
ingur var veizlustjóri. Flutti
hann ræðu til heiðurs afmælis-
barninu og afhenti Guðmundi að
gjöf silfurbakka og staup frá
Jöklarannsóknarfélagi íslancts,
sem þakklætisvott fyrir ómetan-
lega aðstoð, sem hann hefur á-
vallt veitt félagsmönnum í ferð-
um þeirra. Einnig afhenti hann
honum fálkaorðuna, sem Guð-
mundur var sæmdur er hann var
á ferðalagi uppi á jöklum.
Jón Eyþórsson, veðurfræðingur,
mælti fyrir munn frú Stefaníu,
konu Guðmundar, sem hann
kvað gæta hemilis þeirra hjóna
án þess að kvarta, meðan Guð-
rrrundur væri tímum saman uppi
í fjöllum með ferðamenn og vís-
indamenn. Nokkrir tóku aðrir til
máls.
Var samsætið mjög ánægjulegt.
Það setti mikinn svip á borð-
haldið, hve framreiðsla á ábætis-
rétti var frumleg og skemmtileg.
ekrur lands, þar standa risastór-
ir filmtökuskálar, skrifstofubygg
ingar, úiisvið, bininga og smækk
unarhús, og aðrar þær byggingar
nauðsynlegar fyrir framleiðslu
um ljósum beint yfir sviðið og
þvínæst taka öflugar viftur við
og blása vatninu upp. í öldur, pá
ér ekki annað eftir enn ýta kæn- |
unni á flot og hefja tökuna. |