Morgunblaðið - 18.07.1959, Page 16

Morgunblaðið - 18.07.1959, Page 16
16 MOK'Crnvnr 4¥>IÐ Laugardagur 18. júlí 1959 SONN NJOSNAJZSAGA UR HEIMSSTYR.JÖLD/NN/ SÍÐARl hennar — já, hún sotlaði líka að spyrja, hvort það hefði tekizt að fá mátulegan einkennisbúning handa Englendir.gnum. Hún athugaði Hugo Bleicher um leið í leyni, en hann var að blaða í morgunblaðinu og svaraði stuttlega. í>egar hann var að opna bréf, sem hann fékk frá Þýzkalandi, tók hún eftir hönd- um hans. f»að voru sterkar, dug- legar hendur, sem grípa og sleppa ekki aftur — eins og maðurinn var sjálfur. Hann hafði eitthvað það við sig, sem ekki hleypti að neinum andmælum sem í einu sigraði og — verndaði. Osjálfrátt varð henni hugsað til handanna á Pierre de Vomé- court. Þær voru fíngerðar og grannar, nærri því kvenlegar. Þær voru eins og læknis- eða listamannshendur, liprar og sveigjanlegar, — eins og maður- inn allur, sem var tilfinninga- rikur, uppstökkur og samt und- aniátssamur. Nei, — hann var allt annar maður, þessi þýzki herðabreiði risi, hjá honum fann maður skjól og hlíf — yfirdrottnun en jaín- framt skilning. Hvers vegna hef- ir allt orðið að fara svona — hvers vegna? „Læðan“ strauk hendinni yfir augun, eins og til að sópa burt hugsuninni um nótt- 1 * * * ina sem leið. „Hvað er að þér?“ spyr Bleic- her hissa. Han: sá þessa hreyf- ingu og tók ef'.ir hinu starandi, undarlega augnaráði Matthildar. Hann lagði blaðið frá sér „Er eitthvað að þér — ertu ekki frisk?" „Læðan“ komst í bobba. Hún roðnaði upp undir hársræt- ur við þá tilhugsun, að Bleicher hefði getað ráðið í leyndustu hugsanir hennar. Hún var skjált hent, þegar hún skenkti honum kaffið. „Hvað er þetta — ætlarðu ekki að drekka uka?“ spyr Bleicher hissa, þegar „Læðan" lætur boll- ann sinn standa tóman. „Nei, þakka — ég er búin að borða morgunverb.“ „Það er undarlegt —“, tautar Bleicher og hristlr höfuðið. Það er eitthvað í framferði „Læð- unnar“, sem honum geðjast ekKÍ fyllilega. „Komdu, vertu mér til sam- lætis, — drekktu sopa með mér“, segir hann og réttir bollann að henni. Hann hefir allt í einu feng ið ógeðslegan grun. „Hvers vegra viltu endilega, að ég drekki aa- lítið“, spyr „Læðan“ önug. „Jæja, af því að mér kæmi það betur“ sagði Bleicher: „Þú veizt, að sið- an þessi herra Vomécourt kom hingað til landsins, þá er ég orð- inn dálítið tortrygginn varðandi 1 mat og drykk. Það er aldrei hægt að vita, hvað „góðir vinir“ hafa látið í hann“. Málrómurinn átti að vera spaugsamur, en augna- ráðið sýnai annað. „Læðan“ varð eldrauð í framan. Henni fannst hún vera staðin að verki. Hún hefði ekki verið kona, hefði henr.i ekki þótt hún vera grunuð rang- lega. Bleicher skal gjalda þess og meira að segja þegar í stað! Hún þreif bollann úr hendi Bleichers, hvolfdi í sig úr honum í flýti og sagði: „Svona — nú hefir þú fengið vilja þínum fram- gengt. Oz þú mátt vita það, það var eitur í bollanum — og nú — nú er allt búið — allt —“. Stynjandi kreppti hún sig sam an og átti örðugt um andardrátt. „Þú skalt líka vita — í gær- kvöldi — ég var hjá Vomécourt — alla nóttina — hann veit allt — af því að þú hefir yfirgef'ð mig •— Súsanna — og nú — nú dey ég — og það — það er þér einum að kenna." Hún hafði kastað sér á gólfið og veltist um eins og í krampa. Bíeicher stökk á fætur skelfdur og velti um borðinu á milii þeirra. Þvínæst þreif hann „Læð- una“ upp og bar hana á legu- bekkinn. „Hamngjan hjálpi mér, — K;ss mín — hvað Lefir þú gert — heimskinginn þinn. Ég fíflið — bölvaði asninn — já ég á sök á þessu öllu — vertu ekki vond, væna — guð minn góður, hvað á ég til bragðs að taka“, stamaði hann. f æsingu sinni tók hann ekki eftir því, að „La_ðan“ leit á hann í laumi og var bæði háð og kæti í augnaráðinu. Hin mikla blekk- ing hafði heppnazt. Þetta voru henni fullar bætur. Það var auð- séð, að honum var ekki sama um hana og nú fékk hann maklega áminningu. „Lækni — lækni", hrápaði Bleicher. Andartak hafði hann komizt úr jafnvægi. Hann blað- aði fljótlega í símaskránni, tók heyrnartólið og fór að velja núm- er. En lengra komst hann ekki Hann heyrði frekjulegan, háan hlátur fyrir aftan sig. Þegar hann leit undrandi við, sat „Læðan“ á legubekknum með fæturna undir sér og ætlaði að springa af hlátri. „Þarna sérðu — það var ber mátulegt“, segir hún. „Hélzt þú í alvöru, ,ð ég gæti nokkurn tíma byrlað þér eitur?" Hún vildi gleyma því, að henni var það efst í I uga fyrir fáeinum klukku stundum. Bleicher hikaði. Hann var ekki viss um, hvort han . ætti að reið- ast, eða — en hann varð sjálfur að hlæja að þessum hrekk. „Frekjuskepnan þín, þú — asninn þinn, illfyglið þitt! Hvern ig getur þér dottið í hug, að hræða mig svona! þú hefðir áreiðanlega verið efni í leikara“. Hann settist hjá henni, tók í axl- irnar á henni, kyssti hana á enmð og varð allt í einu alvarlegur aftur og sagði: „En segðu mér nú eins og er. Var það, sem þú sagðir um Vomé court, líka hluti af skrípaleikn- um — eða er eitthvað satt í því?“ „Læðan“ stirnaði snöggvast upp, þvínæst kveikti hún sér í vindling með titrandi höndum. Loksins leit hún á Bleicher stór- um, alvarlegum og ósegjanlega sorgmæddum augum. Hinar ó- skyldustu tilfinningar æddu um hug hennar eins, og hvirfilbylur: Angist . Drg örvænting, uppreisn, mótþrói, aiði og hatur. en því- næst komu í ljós viðkvæmar til finningar, vinátta til þessa manns, Hugo Bleichers, sem .,ún hafði verið hjá vikum saman svo ósegjanlega hamingjusöm. Hún sá, að hann horfði á hana, — nsi, hún gat ekki logið og hún vildi ekki Ijúga. Og — hún játaði allt. Hún sagði frá því, hvernig hún hafði beðið eftir honum, óþolin- mæði og símahringing um Vomé courts, samtalinu við fjúsönnu hvernig hún, móðguð og utan við sig af sársauka og reiði hafði þot- ið til Frakkans, að hún hafði heimtað af honum eitur, en hann ekki viljað láta hana fá það og hvernig hún að síðustu varð ást- mær Vomécourts. Bleichei hlustaði ótrúlega ró- legur á allt þetta. Hann varð ekki óður af bræði, hann brigzlaði henni ekki í reiði og hann ávitaði hana meira að segja ekki. Hann skildi, hvc mikið þessi kona hafði orðið að þola. Hanr. sér, að hún er leitandi kona, mjög óhamingju- söm og mjög einmana innst í hjarta sínu — anr.að ekki. Og á þessari stundu bölvaði Hugo Bleicher enn einu sinni þessu striði með sinni myrkrabaráttu, þar sem ekkert tillit er tekið til ástar, tilfinninga, mannlgera hjartna. Hann formaalti striðinu. þessum ógeðslega bölvaldi, sem gerir kröfur til kvennanna, sem þær aldrei geta orðið við, nema með því að fórna sjálfum sér. „Hlustaðu á mig“, sagði hann nærri því blíðlegu, þegar „Læð- an“ hafði lokið máli sínu. „Svona getum við ekki haldið áfram leng ur, það séi þú sjálf. Þú ljóstraðir fyrst upp um mig við Collin — gott og vel, ég fyrirgaf þér. Þú hefir ljóstrað upp um mig í annað skiptið við Vomécourt — og ég veit, að svona myndi því halda áfram, það yrði enginn endir á uppl j óstrunum.“ „Læðan“ ætlaði að þjóta upp, en Bleicher lagði höndina mjúk- lega á munn hennar. Forstöðukona óskast til að sjá um Hótel í fjarveru eiganda. Þarf að vera vön og fær í matreiðslu. Upplýsingar um fyrri atvinnu sendist afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir 25. þ.m. merkt: „Strax — 9196“. Laust starf Starf kjötmatsmanns við sláturhúsin í Vík í Mýrdal er laust til umsóknar. Umsóknir sendist fyrir 10. ágúst til kjötmatsformanns, Jónmundar Ólafssonar, Framleiðsluráði landbúnaðarins, Reykjavík, og veitir hann allar nánari upplýsingar. SLÁTURFÉLAG suðurlands. VERZLUNARFÉLAG V-SKATFELLINGA. 1) Markús býr til sleða úr vængbroti af flugvélinni. „Þetta gengur áreiðanlega allt vel, ungfrú Lean. Ég skal koma yður til læknis eins fljótt og mögulegt er.“ 2) „Þér hafið bjargað mér — bjargað lífi mínu. Ég — ég er yður svo þakklát." „Verið þér rólegar — reynið ekki að tala meira.“ 3) „Mér er svo afskaplega kalt.“ „Ég ætla að breiða útpuna mína yfir yður, þá ætti yður að hlýna ofurlítið.“ „Nei, vertu nú róleg Þú veizt sennilega ekki sjálf, hvað þú ger ir á morgun eða hinn daginn, þeg ar þú verður aftur afbrýðissöm. Trúðu mér, það er betra fyrir okkur bæði að skilja. Þú verður að komast burt úr öllu róti, þú verður að fara burt af Frakklandi — og það undireins.“ „En hvert þá? „Hvert?“ Bleicher hugsaði sig um. „já, hvert? Tii Spánar? Til Sviss? Hm — það er ekki tryggt. Það er ekki hægt að vita, hvert stríðið getur breiðst út á megin- landinu. Á óhersetna svæðið? Þar ert þú ekki heldur örugg fyrir S D. Þú verður að fara til Eng- lands. Það er einn staðurinn, þar sem ekki er hægt að ná þér“. „Til Engjands? Á töfraklæði? Hvernig r ugsar þf þér þetta allt í framkvæmd? „Læðan“ áttaði sig ekki á þessari hugmynd Bleichers og henni leizt ekki á fyrirætlui ina. „Það er ofurein- falt“, sagði Bleicher kæruleysis- lega, eins og verið væri að ræða um dálitla skemmtigöngu. „Með senditækinu heii.itum við hrað- bát á þeim forsendum, að þú vilj- ir fara yfir um til þess að gefa persónulega skýrslu um tilfellið með „Gneisenau“ og „Scharn- horst.“ Þeir eiga að sækja þig á einhvern stað við sundið. „And- artak“, tók „Læðan“ fram í, hvað verður þá un. Vomécourt?" „Já, einmitt það, hvað á að gera við Vomécourt?“, tautaði Bleic- her. „Hann hefir í rauninni bjarg að lífi mínu, bjargað mér frá þér .. “. Hann þagnaði og horfði hugsandi út um gluggann. „Læð- an“ reynir að tala. Hún er hrædd, skelfilega hrædd. Þá snýr Bleic- her sér að henni og það er ein- knnilegur glampi í augum hans. „Vomécourt þinn fer með þér til Englands. Ég verð að tala við ofurstann þegar í stað“. ★ Hugo Bleichc. lét tilkynna of- urstanum komu sína, til að skýra honum frá fyrirætlun sinni. Hann hafði ekki langan formála, en kom beint að efninu. „Herra of- ursti, ég Lið um leyfi til að sleppa „Læðunni" og de Vomécourt til Lundúna." „Hvað er það, sem þér viljið7" Ofurstinn hlammaði sér hissa nið ur í stólinn sin,- og horfði á Bleicher gegn um einglyrni sitt og skildi hvorki upp né niður. „Læðuna" og þenuan fallhlífar- maúnn til Lundúr.a? Kæri Bleic- her minn, þér eruð orðinn alveg geggjaður" BJeich-r lét þetta ekki á sig á .,Ég verð að skýra herra ofurst- anum frá því, að „Læðan" hefir tvisvar ljóstrað upp um okkur af hreinni afbrýðissemi. — og bað við Henri Collin úr annarri skrif- stofu og líka við de Vomécourt 3|Utvarpiö Laugardagur 18. júlí. 13.00 Óskalög sjúklinga (Bryn- dís Sigurjónsdóttir). 14.00 „Laug- ardagslögin“. 13.30 Tónleikar. 20.00 Fréttir. 20.30 Upplestur: „Spillt líf“, smásaga eftir Guy de Maupasscnt, í þýðingu Þorsteins Gíslasonar (Margrét Jónsdóttir). 20.50 Tónleikar: Svavar Gests kynnir lög eftir Irving Berlín. 21.25 Leikrit: „Geimfarinn", gam anleikur eftir Hreiðar Eiríksson (Áður útv. 9. júlí 1955). — Leik- stjóri: Þorsteinn Ö Stephensen. Leikendur: Þorsteinn Ö. Step- hensen. Leikendur: Þorsteinn Ö. Stephensen, Regína Þórðardóttir. Margrét Ólafsdóttir, Rúrik Har- aldsson og Arndís Björnsdóttir. 22.10 Danslög (plötur). — 24.00 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.