Morgunblaðið - 19.07.1959, Page 2
2
MORCUNBLAÐ1Ð
-----*-------
Sunnudagur 19. júli 1959
Vesturveldin orðin óþolinmóð
á Genfar-ráðstefnunni
Gromyko sat v/ð skrifborbiÖ á
timmtugsafmælinu
GENF, 16-Júlí (NTB) — Utan-
ríkisráðherrar Bretlands, Frakk-
lands og Vestur-Þýzkalands
gengu í morgun á fund Christ-
ian Herters utanríkisráðherra
Bandaríkjanna. Að fundi þeim
loknum fór Herter einn í heim-
sókn hjá Gromyko utanríkisráð-
herra Rússa, er hafði boðið hon-
um til hádegisverðar.
Var það mál manna, að hádeg-
isverðarboðið myndi vera mjog
þýðingarmikill fundur og þótti
Hertér rétt að hafa samráð yið
alla hina vestrænu fulltrúa áð-
ur en hann gengi til fundar.
Engin opinber tilkynning hef-
ur verið gefin út um hvert sé
ætlunarverk Herters á fundinum
með Gromyko, en almennt álíta
menn, að hann vilji að reiknings-
skil séu gerð um það, hvaða ár-
angur hafi náðst af Genfar-ráð-
stefnunni fram að þessu, eða
hvort nokkrar líkur séu til frek-
ari árangurs. Vesturveldin eru
orðin óþolinmóð að láta utanríkis
ráðherrana sitja svo vikum skipt-
ir árangurslaust við samninga-
borð.
í dag átti Gromyko fimmtugs-
afmæli. Sendinefnd Rússa á ráð-
stefnunni tilkynnir, að honum
hafi borizt heillaskeyti frá
Krúsjeff og öðrum valdamönnum
í Rússlandi. Einnig hafi hann ver-
ið sæmdur Lenin-orðunni, sem er
æðsta heiðursmerki Sovétríkj-
anna. Ekki er þess getið að
Gromyko ætli að halda upp á
afmælið með veizlu, þvert á móti
sagt, að hann verði við skrifborð
sitt í allan dag.
Innkaupastofnun Reykjavíkur hef-
ur mikilvægu hlutverki að gegna
Starfsreglur fyrir stofnunina samþykktar
á bæjarstjórnarfundi
A FUNDI bæjarstjórnar sl.
fimmtudag var til umræðu frupi-
varp að samþykktum fyrir Inn-
kaupastofnun Reykjavíkurbæj-
ar. Gunnar Thoroddsen borgar-
stjóri gerði grein fyrir frum-
varpinu og aðdraganda þess.
Kvað hann bæjarstjói.i hafa
fyrir nokkru kosið þriggja manna
nefnd til að undirbúa nýjar starfs
reglur fyrir Innkaupastofnun
Reykjavíkur. í nefnd þessa höfðu
verið kosnir þeir Guttormur Er-
ler.dsson, og hefði hann verið
formaður, Ingi R. Helgason og
Þorbjörn Jóhannsson. Þessi nefnd
hefði safnað ítarlegum gögnum
varðandi Innkaupastofnur.ina og
rekstur hennar og síðan skilað
tillögum til bæjarstjórnar, sem
bæjarfulltrúum hefði gefizt kost-
ur á að kynna sér. Rakti borgar-
stjóri þessar tillögur og nokkrar
breytingar, sem meirihluÞ bæjar-
stjórnar legði til að á þeim yrðu
gerðar. Kvað hann niðurstöður að
þessum athugunum ver„ þær, að
rétt væri að Innkaupastofnun
Reykjavíkur væri starfrækt og
væri það samróma álit kunnugra
manna að hún hefði mikilvægu
hlutverki að gegna.
Ingi R. Helgason skýrði frá
störfum undirbúningsnefrdarinn
ar og einnig tóku til máls bæj-
arfulltrúarnir Þórður Björnsson
og Magnús Ástmarsson.
Að umræðum loknum sam-
þykkti bæjarstjórn eftirfarandi
reglur fyrir Innkaupastofnun
Reykjavíkur:
1. gr.
Innkaupastofnun Reykjavíkur-
bæjar starfar eftir reglum þeim,
er greinir í samþykkt þessari.
2. gr.
. Verkefni stofnunarinnar eru
þau, sem nú verða talin:
1. Innkaup eða samningar
um kaup á vörum og þjónustu
fyrir bæjarsjóð Reykjavíkur og
stofnanir hans, eftir því sem
stjórn stofnunarinnar ákveður á
hverjum tíma.
2. Innkaup eða samningar um
kaup á vörr.m og þjónustu innan
lands, sem ekki falla undir 1.
tölulið, enda sé innkrupaverð
þeirra meira en 20 þús. kr., svo
og öll innkaup á vörum erlend-
is frá.
3. Leiðbeiningar og aðstoð um
4V
44
BRIDCE
4"
4*
Sennilega eru hinir ágætu,
ensku bridge-spilarar, Reese og
Schapiro, meðal frægustu núlif-
andi spilara. Þeir kepptu m. a.
fyrir England á Evrópumeistara-
mótinu í Ósló, sem fór fram í
ágúst sl., en eins og kunnugt er
náði England þar öðru sæti. —
Ekki alls fyrir löngu tóku þeir
þátt í keppni í Englandi, sem
nefnist „Gold Cup-keppnin“, en
voru slegnir út og ein orsökin
var eftirfarandi spil:
4 G 7 2
V 10 3
4 A 5
4 K D G 7 4 2
4 A 8 4
V ÁKG 9764
4 K 4
4 A
Schapiro sat í Norður og Reesé
f Suður og gengu sagnir þannig:
Þá er einnig fróðlegt að athuga
sagnirnar. Norður segir þrisvar
lauf og Suður finnst þrátt fyrir
það ekki ástæða til að velja lauf
sem tromp.
kaup á vörum og þjónustu, sem
ekki falla undir 2. tölulið, eftir
því sem til hennar verður leitað
í þeim efnum.
4. Vinna að samræmingu
(stöðlun) einstakra vörutegunda,
sem almennt eru notaðar í bæj-
arrekstrinum.
5. Ráðstöfun á tækjum og
vörubirgðum, sem ekki er leng-
ur þörf fyrir hjá einstökum stofn
unum eða í bæjarrekstrinum.
6. Útboð á verklegum fram-
kvæmdum.
Bæjarstjórn setur almennar
reglur um hvers konar útboð.
3. gr.
Stjórn stofnunarinnar er skip-
uð 5 mönnum. Borgarritari er
formaður stjórnarinnar, en fjóra
meðstjórnendur og varamenn
þeirra kýs bæjarstjórn úr hópi
bæjarfulltrúa eða varabæjarfull-
trúa.
Bæjarstjórn skipar stofnuninni
framkvæmdastjóra að fengnum
tillögum stjórnar hennar. Hann
skal hafa verzlunarrr.enntun.
Ekki má hann hafa hagsmuna
að gæta í verzlunarfyrirtækjum,
og gildir sama um aðra starfs-
menn stofnunarinnar. Forstjóra
stofnunarinnar ber að undirbúa
fundi stjórnarinar og mæta á
þeim.
4. gr.
Nú semur stofunin um kaup
á eða kaupir vöru og þjónustu,
og ákveður hún þá gjald fyrir
störf sín. Skal það lagt á vöruna
eða þjónustuna. Gjöld þessi skulu
miðuð við það, að þau nægi til
að standa undir rekstrarkostnaði
stofnunarinnar.
5. gr.
Samþykkt þessi tekur gildi 1.
september 1959.
Kemsley blaðahringurinn
seldur í einu lagi fyrir
750 millj. krónur
Norður
1 4
3 4
4 4
6 V
Suður
2 V
3 V
5 G
7 G
Þar sem hjarta-drottning var
völduð hjá Vestri og spaði kom
út, var sögnin 2 niður. — Segja
má að spil þetta sýni, að ekki sé
alltaf rétt það sem meistaramir
gera, því sjö lauf og 6 hjörtu
unnust á öðrum borðum.
London
KANADÍSKUR blaðakóngur
hefur keypt í einu lagi
hinn stóra og fræga Kemsley-
blaðahring í Englandi. Kaup-
verðið var rúmlega 11 millj.
sterlingspund, eða um 750
milljón krónur. Hér er um að
ræða einhver stærstu og þýð-
ingarmestu eigendaskipti í
sögu enskra dagblaða.
Kemsley-blaðahringurinn gef-
ur út þrjú ensk stórblöð, Sunday
Times, Empire News og Sunday
Graphic. Auk þess gefur hann út
tvö blöð í Skotlandi, fjölda tíma-
rita, rekur fréttastofu og ljós-
myndafyrirtæki.
Kaupandi blaðahrignsins er
Kanadamaðurinn Roy Thomson.
Hann var þegar einn af voldug-
ustu blaðakóngum heims. Atti
hann fyrir 25 dagblöð og þrjú
vikublöð, flest þeirra í Kanada.
Annars flutti hann árið 1943 til
Skotlands, er hann keypti hið
virðulega blað „The Scotsman".
Síðar fékk hann leyfi til að starf-
rækja auglýsingasjónvarp og
mun taka við öðru slíku leyfi
með Kemsley-hringnum.
Kemsley lávarður tilkynnti
skyndilega um söluna nú í vik-
unni. Hafði almenningur ekki
hugmynd um að nein sala væri
í vændum. Kemsley kveðst ætla
að hætta blaðamennsku. Synir
hans fjórir verða þó áfram starf-
andi við Sunday Times.
Keisari Eþíópíu heitir Haile Selassie. Hefur hann lengl stjórnað
ríki sínu og hefur þótt dugmikill. Nýlega tók hann upp á því að
ferðast til annarra landa, eins og tíðkast nú mjög upp á síðkastið
meðal heldri manna. Keisarinn ferðaðist m. a. til Rússlands, en
í leiðinni kom hann við í Egyptalandi, þar sem hann hitti
Nasser, eins og myndin sýnir.
Nýtt skip til Siglufjarðar
Viðtal víð Valdimar Björnsson,
Ytri-Njarðvík
Viðtal v ið V. B. Ytri Njarðvík2
SIGLFIRZKA bátaflotanum hef-
ur bætzt nýtt skip, m.s. Bragi
S.I. 44. Eigandi þess er sámnefnt
hlutafélag hér í bæ, en framá-
menn félagsins eru Valdemar
Björnsson, Ytri-Njarðvík, Daniel
Þórhallsson, útgerðarmaður og
Páll Pálsson, skipstjóri.
í tilefni þessarar skipskomu
sneri tíðindamaður Mbl. á Siglu
firði sér til eins eiganda þess,
Valdemars Björnssonar, og leit
aði upplýsinga varðandi hið nýja
skip.
— Hvar er Bragi smiðaður?
Hann er smíðaður í New Yórk
á árunum 1943-44 fyrir mig og
Hallgrím Oddson. Fór ég utan og
fylgdist með smíðinni og kom
með skipinu upp. Var það all-
sögulegt ferðalag, enda stríðstím
ar ríkjandi, en verður það ekki
frekar rætt að sinni.
.— Og útgerð skipsins?
Við gerðum skipið út í félagi
frá Reykjavík á árunum 1944-52,
aðallega á togveiðar. Var skipið
„toppskip" sum árin og reyndist
í hvívetna happaskip. — Árið
1952 skildu leiðir okkar Hall-
grims og átti hann skipið einn
til ársins 1956. Af ýmsum ástæð-
um var skipið ekki gert út á
þessum árum, en lá í Reykjavík-
urhöfn. Eyðilögðust í því vélar
og tæki þennan tíma.
__ Og síðan keyptir þú skipið
á ný?
Já, árið 1956 keypti ég skipið
á ný í þeim ásetningi að gera
það að góðu fiskiskipi aftur. Til
þess að svo gæti orðið þurfti að
fá í það nýjar vélar og tæki og
gera það upp. Og til að ná því
marki þurfti ég að selja nokkuð
'af skipinu. Var ég svo heppinn
að hitta á tvær góðar fjölskyld-
ur hér á Siglufirði, sem vildu
kaupa skipið á móti mér og
byggja það upp í félagi við mig.
Vil ég sérstaklega taka fram, að
ég tel mér það heppni að hafa
náð félagsskap þeirra Daníels
Þórhallssonar og Páls Pálssonar
og eiga þeir sinn veigamikla þátt
í hv vel hefur til tekizt með
uppbyggingu bátsins.
— Hvar var báturinn byggður
upp?
'i Skipasmíðastöð Njarðvíkur h.f.
sá um allt tréverk — en áður en
lengra er haldið vildi ég geta
þess, að við urðum fyrir miklu
óhappi 16. janúar 1958. Þá var
nýja vélin komin um borð, búið
að smíða undir hana og komið
að því að setja vélina á undir-
stöður, er eldur upp kom i skip-
inu. Brann allt fyrir aftan lest-
arþil og vélin skemmdist af hita
og vatni. Varð þetta tjón til mik
ils óhagræðs fyrir okkur og seink
aði því tilfynnanlega að skipið
yrði útgerðarfært.
— Vildirðu upplýsa okkur um
stærð skipsins, vélar og tæki?
Já skipið er 93 brúttótonn og
mun bera 850 til 900 mál síldar.
Vél er af Kromhout-gerð; Buch-
ljósavél 20 hestöfl. í skipinu er
Kelvin Hugh-radar, sem lýsir 43
mílur, og Asdik af Simrad-gerð,
eða af nýjustu og fullkomnus+u
gerð og mun aðeins leitarskip-ð
Fanney hafa sams konar tæki.
Eða m. ö. o. skipið er útbúið þéim
beztu tækjum, sei. völ er á; svo
og miðunarstöð og talstöð af full
komnustu gerð frá ^andssíma ís-
lands.
— Hvað vildurðu segja frekar
um skipið?
Ég get til viðbótar getið ess,
að vistaverur allar eru sem bezt
þekkist í íslenzkum fiskiskipum.
Þá er rétt að undirstrika að bát-
urinn er þannig byggður að hann
er sérlega vel fallinn til togveiða.
Og að lokum vildi ég færa fram
þakkir til þeirra lánsstofnana,
sem verið hafa okkur hjálpleear
við uppbyggingu skipsins en það
eru Fiskveiðisjóður íslands, Út-
vegsþankanum og Stofnlápade'ld
sjávarútvegsins, Landsbankan-
um.
Við þökkum Valdimar fyrir
upplýsingarnar, óskum hinum
nýju eigendum :il heilla með skip
ið og árnum því velfarnaðar í út-
gerð frá Siglufirði.
St.
VIÐ LAT KRISTJANS
H. BREIHDAL
Áttir gleði alltaf til.
Öðrum léztu hlýna.
Þeir sem greina á góðu skil
geyma minning þína.
Breiöfirðingur.