Morgunblaðið - 19.07.1959, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.07.1959, Blaðsíða 16
16 MORCinsntAÐlÐ Sunnudagur 19. Júlí 1951 Calvanhúðaður saumur í flestum stærðum. Heildsala — Smásala. H. Benediktsson h.f. Sím 11228 — Reykjavík N AV I X: Sólar — skum Sólar — olía Sólar — spray, er komið, og fæst í öllum helztu snyrtivörnverzlunum og Apótekum. Hafið það við hendina, þegar sólargeisli kemur, og þér verðið brún á mettíma. Einkaumboð: Heildv. Péturs Péturssonar Hafnarstræti 4 — Sími: 11219 & 19062. Rauft er í tísku Við höfum nú aftur fengið ekta MISS CLAIROL háralitinn í eftirtöldum litum: Vinarkveðja Minnzt tveggja bœnda á Hólsfjöllum Red Ginger — . no: 47 Sparkling sherry — 45 Flame.............— 33 Goffee Brovn .... — 57 Topaz .......... no: 40 Golden Apricot .. — 41 Coppertone......— 44 Sun Bronze.......— 43 Black Veivet .... — 51 Mlnnst tveggja bænda á Hólfsfj. Á ÞESSU ári, sem nú er að líða hefi ég spurt lát tveggja vina minna frá uppvaxtarárum mínum norður á Fjöllum. Með því að ég á þeim þakklætisskuld að gjalda og foreldrar mínir, ef lífs væru, margháttaða vinaþökk, sendi ég frá mér þessa kveðju. En þá, sem lesa línur þessar, verð ég að biðja afsökunar, því að þar sem ég er staddur nú eru mér engar heim- ildir tiltækar, öll daga og ártöl eru fjarri hendi. Eg styðst því aðeins við hvikult minni og mæt ar minningar. * Björn Sigvaldason, bóndi á Víðihóli lézt öndverðan s. 1. vet ur, þá orðinn 77 ára að aldri. Hann var öxnfirðingur að upp- runa. Hóf hann búskap á Víði- hóli, að ég ætla, vorið 1909. Kvæntist þá Guðnýu Þorsteins- dóttur, ættaðri úr Mývatnssveit, systur öðlingsbóndans Sigurðar í Hólsseli Þorseinssonar. Hún var kona mæt, dugandi og frábær búhyggindakona. Mér eru þau hjón í barnsminni, hve þau voru samhuga og samhent og undu glöð við sitt, greiðvikin, gestrisin, skemmtin og óádeilin. Eins sonar varð þeim auðið, er Þorsteinn heitir. Hefir Ingólfur læknir Gísla son skrifað um ferð sína um Haugsöræfi, þá er hann fór að bæta úr nauð þeirra mæðgina. Er sú frásaga ein inna sönnu hetjusagna um íslenzka lækna, þegar þeir lögðu í alla hættu í ófæru öræfaveðri, knúnir vitund inni um, að „kona í barnsnauð bíður mín banvæn hinumegln". Björn á Víðihóli bjó jafr.an góðu búi, ávalt birgur um hey föng, forsjáll um hvaðeina, er bú hans varðaði. Góður granni í hvívetna. Eins og menn munu vita, eru Hólsfjöll ein in allra afskekktasta byggð þessa lands, og var þó miklu meir í þá daga, sem hér um ræðir. Einn Þorláksmessu- dagur er mér einkar minnistæð- ur. Og kom Björn þar við sögu. Er atvikið ekki mikilvægt og helzti persónulegt til þess að verða skráð á þessum stað. Veður voru ill og fannkingi fádæma mikil. En þennan dag bar Björn á Víðihóli að garði í Fagradal um hádegisbil og var þó meir en hálfrokkið í baðstofunni, því að hvorttveggja var, að dimmt var í lofti og fennt á glugga. En erindi hans var það eitt að bera á milli bæja til okkar eina jólakveðju, sem dönsk börn sendu þá íslenzk um börnum. Eitt lítið blað — ódæma snjólög og dimmviðri. — En Bjöín vissi, að þetta myndi eina jólakveðjan um þessi jól. Hún varð „margra kveltja jóla- eldur“ þessi litla bók. Þegar mér kemur þ)etta atvik í hug, fyllist ég þakklátsemi til Björns á Víði hóli., sem mat ill veður, kafalds ófærð og erfiði sem ekki móts við það, að gleðja fárra barna geð með lítilli sendingu um heilög jól. En svo liðu ævidagar. Björn missti konu sína og tregaði mjög, tók að lýjast og eldast. Brá hann þá búi og fluttist í ið litla þorp við Axarfjörð, Kópasker. Þar dvaldist hann til æviloka. En síðustu árin, all mörg, var heilsan biluð. Hann fékk „slag’* og missti mál og taum á réttri hugsun. En þó mun hann hafa „fylgst með“, fleiru en margur ætlaði. Lýsti Vernharður kennari Þorsteinsson eitt sitt fyrir mér atviki úr ævi Björns. Hann kom að Víðihóli, jörðinni, sem hann elskaði, eftir margra ára burtu- veru. Var hann þá farinn að heilsu. En þegar hann kom á bæjarhólinn sinn gamla, fylltist hann þvílíkri gleði, að máttvana limir og tunga fengu hreyfingu nokkra og augun ljómuðu líkt og þess manns, sem aftur mætir heit mey sinni eftir langa skilnað. Þegar nú þessi gamli granni minn skilst við þennan heim, þakka ég honum fyrir mig og systkini mín, en einkum fyrir foreldra mína, sem áttu jafnan góðs að minnast frá þriggja ára tuga nánum kynnum og grann- býli. Það var Björn á Víðihóli, sem móðir mín minntist og talaði um einna lengst, þegar hún var að missa minnið og hverfa inn í óminnisheim. Fari hann í frði. t Sigurður Kristjánsson, hrepp- stjóri á Grímsstöðum andaðist nú um miðjan júní s.l. Hann var og bóndi þarna á Fjöllum öll mín dvalarár þar. Og er mér minning hans jafn hugstæð og hugþekk sem þess, er ég minnist fyrr. Hann var fæddur um Jónsmessu leyti 1880 og því tæpra 80 ára gamall. Ættaður var hann innan úr Laxárdal í S-Þing., en fluttist með föður sínum, Kristjáni Sig- urðassyni, að Grímsstöðum fyrir aldamót og dvaldist á þeim stað æ síðan. Á ungum árum sótti hann bændaskólann á Hólum um tveggja vetra skeið, en kvæntist að námi loknu Kristjönu Pa;s- dóttur, hreppstjóra á Austara- Landi í Axarfirði. Þóttu þau hjón samvalin að öllum dugnaði og myndarskap. Bjuggu þau fyrst í stað í sambýli við föður Sigurðar. En vorið 1914 reistu þau stein- hús, ið fyrsta á Fjöllum sinnar tegundar. Er það enn til og hef ur margur ferðalangur hvílt þar og matazt fyrr og síðar. Gríms- staðir eru í þjóðbraut við veg- inn milli Austur- og Norðurlands. Mun einmæli, að á þeim stað hafi gestum og gangandi verið tekið með rausn og höfðingslund bæði fyrr og síðar. Var oft harla gest- kvæmt meðan landpóstar fóru þarna um. En svo háttaði til, að þeir mættust þar Austur-landpóst ur, sem kom frá Seyðisfirði og Norður-landpóstur, sem kom frá Akureyri. Voru öræfi og fjall- vegir á báða vegu, og margt manna jafnan á Grímsstöðum um póstkomur. Fór heimili þeirra Sigurðar og Kristjönu ekki var hluta af átroðningi manna um þær mundir. Þegar síminn var lagður 1906 frá Seyðisfirði vestur um land til Akureyrar og þaðan suður til Reykjavíkur, var símstöð opnuð á Grímsstöðum og gjörðist Sigurð ur þá stöðvarstjóri. Var hann það til æviloka eða 53 ár. Sama skeið sinnti hann þjónustu vegna veð urathugana. Hann var hreppstjóri þeirra Fjallamanna 3—4 áratugi, odd- viti, sýslunefndarmaður o.m.fl. Auk þess var hann ráðhollur vín ur og hjálpfús þeim er leituðu hans í þörf. Þau Kristjana bjuggu góðu búi við mikla rausn. Eign- uðust þau þrjá sonu og tvær dætur. Búa aynir þeirra tveir á Grímsstöðum, dóttir þeirra er gift irm í Aðaldal. Hin tvö dóu uppkomin, bæði mjög harmdauði foreldrum sínum. Kristjaua and aðist eftir langa legu fyrir mörg um árum. Lifði Sigurður og vann og tregaði sem títt er um þá, er unna djúpum huga og heilu hjarta. Ég ætla, að Sigurður hafi verið dulur, skapríkur þó, manna góð- gjarnastur, hrifnæmur, tilfinn- ingar heitar og viðkvæmar. Ég þakka honum gömlu, liðnu árin. Það var gott að eiga sitt mál und ir drengskap hans. Gunnar Jóhannesson frá Fagradal. Moon Gold.....— 42 Það færist nú mjög í vöxt að jafnt ungir sem gamlir liti hár sitt, enda er góður háralitur algjörlcga skað- laus, þó um stöðuga notkun sé að ræða MISS CLAIROL er einn af þekktustu hára- litum Bandaríkjanna, og nafnið MISS CLAIROL er trygging yðar fyrir 1. fl. háralit. Snyrtivöruúrvalið er hjá okkur Þér eigið alltaf leið um Laugaveginn Clausensbúð Snyrtivörudeild — Laugavegi 19. Framfíðarvinna óskar eftir að ráða flugvélavirkja á Keflavíkurflug- völl. Umsóknir sendist til skrifstofu minnar á Kefla- víkurflugvelli fyrir 1. ág. 1959. Flugvallarstjórinn, Keflavíkurflugvelli H jólbarðaviðgerðsr Opið allar helgar á kvöldin (sunnud.). Fljót og góð afgreiðsla. MJÓLBARÐAVIÐGERÐIN jræðraborgarstíg 21. Sími 13921. Fittings nýkominn svartur og galvaniseraður A. Jóhannsson & Smith h.f. Brautarholti 4 — Sími 24244. Rennilokar Vz tommu til 2ja tommu fyrirliggjandi. A. Jóhannsson & Smith h.f. Brautarholti 4 — Sími 24244. HRINOUNUM FRÁ C/ C7 HAFNARSTR.4 i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.