Morgunblaðið - 19.07.1959, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.07.1959, Blaðsíða 6
e MORJZUNBT AÐIÐ Sunnuðagur 19. Júlí 1959 Æ Ritstjórar: Hörður Einarsson og Styrmir Gunnarsson. • • Ollum þykir vænt um gamla skólann Spjallað viíi nokkra stúdenta frá M.R. HINN 15. júní útskrifuðust 98 •túdentar úr Menntaskólanum í Reykjavík. Tíðindamaður blaðs- kis liefur átt tal við nokkra úr stúdentahópnum og spurt um skól ann, sem verið er að yfirgefa, og starfið, sem biður. Sagt er frá spj 'lli-ru hár á eftir. ★ Hugsar til kennara- prófs Ragnheiður Benediktsson er stúdent úr máladeild. „Hvað viltu segja um Mennta- skólann, Ragnheiður, nú þegar þú ert að yfirgefa hann eftir strangt nám og mikilvægt próf?“ „Menntaskólinn er mjög virðu- leg stofnun og í flesta staði ágæt- ur. Húsakynni eru að vísu ósköp léleg, en kennararnir eru prýði- legir og bæta það alveg upp. — Tungumálakennslu er nokkuð á- fátt. Þyrfti hún að vera líflegri, ' j|f og mætti gjarn- an lesa meira eftir nútímahöf- unda. — Vonandi tekur náttúru- fræðideild bráð- lega til starfa við skólann, og gefst þá . nemendum kostur á að velja úr fjölbreyttara námsefni. — Þrátt fyrir allt hef- ur verið mjög skemmtilegt í skól- anum og um hann er yfirleitt gott eitt að segja“. Er ekki mikið um skemmtanir í skólanum? „Félagslífið er mjög fjörugt. Um margra ára skeið hafa sels- ferðirnar verið einn vinsælasti liðurinn í skemmtunum skólans. En vel má vera, að íþaka, hið nýja félagsheimili, leysi selið að nokkru leyti af hólmi. Munu menntaskólanemar njóta góðs af íþöku á komandi árum“. „Hvað ætlarðu svo að leggja stund á í framtíðinni?“ „Næsta vetur ætla ég að taka kennarapróf og lesa einnig við heimspekideild háskólans. Seinna ætla ég að læra einhver tungu- mál mér til gamans, ef til vill frönsku. Ég vil nota tækifærið til að hvetja kvenþjóðina til að leggja stund á framhaldsnám meira en verið hefur til þessa. í þeim efn- um getum við fyllilega staðið jafnfætis karlmönnunum“. ★ Hin aldagamla yíirheyrsluaðíerð Hannes Hafstein er stúdent úr máladeild. „Hver er skoðun þín á mennta- skólanámi, eins og því nú er hátt- að, Hannes?" „Mér þykir nú kennsluformið ^ mÍMni.. að auglýsing í stærsta og útbreiddasta blaðinu — eykur söluna mest — reyndar orðið nokkuð úrelt og standast tæplega kröfur tímans. Það sem helzt má finna því til foráttu er hin aldagamla yfir- heyrsluaðferð, sem því miður virð ist vera að sliga námsáhuga nem- enda. — Hin ófullnægjandi húsa- kynni skólans eru þörfum nýj- ungum svo sem fyrirlestrahaldi og verklegri fræðslu Þrándur í Götu. Nemenda f jöldinn e y k s t svo ö r t með hverju ári, að vart munu líða nema tvö tu prjú ár, þar til skól- inn getur ekki veitt viðtöku öll- um þeim, sem hann vilja sækja. — Ber yfirvöldunum tvímæla- laust skylda til að sjá um það, að þessi elzta og virðulegasta menntastofnun þjóðarinnar geti áfram starfað af fullum þrótti". „Hvað viltu segja um stúd- entsprófið og gildi þess?“ „Með stúdentsmenntuninni er leitazt við að veita mönnum al- menna fræðslu, sem síðar verði undirstaða lengra náms. Stúdents prófið er þannig ekkert lokatak- mark,. heldur aðeins merkur á- fangi á langri leið“. „Og hvað viltu svo segja um framtíðina, hefurðu ákveðið, hvað þú tekur þér næst fyrir hend- ur?“ „Ég hef í hyggju að lesa lög við Háskólann, því að enn er nóg starf fyrir lögfræðinga, þrátt fyr- ir mikla aukningu þeirra stéttar hin síðari ár.“ ★ Efnafræði í Skotlandi Elín Ólafsdóttir er stúdent úr stærðfræðideild. Við spyrjum hana um álit henn ar á menntaskólanum. „Okkur þykir að sjálfsögðu öll- um vænt um gamla skólann, þótt honum sé í mörgu ábótavant. Að- búnaður allur er úreltur og ófull- keminn. Virðast allir sammála um það nema þeir, sem úr þessu geta bætt. — Námstilhögun má breyta í heild, nauðsynlegt er að auka verklega kennslu og þrengja þá að bóknáminu u m leið. Ætlunin var að stofna nátt- úrufræðideild við skólann nú í haust, en litlar horfur eru á að svo verði vegna ý m i s s a erfið leika, til dæmis þrengsla“. „Hvernig kunnirðu við skóla- félaga þína?“ „Prýðilega. Ég er viss um að félagsandinn í skólanum er ó- venju góður. Nemendur eiga mörg sameiginleg áhugamál. Þeir hafa stofnað með sér ótölulegan grúa félaga, sem starfa af miklu kappi. Hefur hið nýja félags- heimili átt þar mikinn hlut að“. „Hvað hefurðu áformað um framtíðina?“ „Ég er að hugsa um að lesa efnafræði í Skotlandi". „Er það ekki fremur sjaldgæft um stúlkur?“ „Jú, að vísu. En mér finnst, að kvenfólk eigi engu síður en karl- menn að stunda langskólanám, ef það langar til og aðstæður leyfa“. ★ Kennsla í hagnytum greinum Guðni Gíslason er stúdent úr stærðfræðideild. „Menntaskólinn er ágætur skóli“, segir hann í upphafi. „Samt sem áður er nauðsynlégt að breyta ýmsu, svo að skólinn stirðni ekki í gömlum og xireltum kennsluaðferðum. Vel gæti t.d. komið til mála að endurskoða málakennslu í stærðfræðideild með það fyrir augum, að menn einbeittu sér að færri tungumál- um og næðu betra valdi á þeim. — Einwig hefur verið bent á, að auka þyrfti kennslu í hag- nýtum greinum eins og bók- færslu og vélrit- un. Nokkur bók- færsla h e f u r reyndar v e r i ð kennd lengi, en vélritun fyrst í fyrravetur. Er hún ekki skyldunámsgrein. Ann- ars ber að varast að leggja of mikla áherzlu á þessi atriði, því að þá verður skólinn ekki leng- ur menntaskóli, heldur verzlun- arskóli“. Margir halda því fram, að stúdentsprófið eitt sé gagnslaust án frekari framhaldsmenntunar. Hver er þín skoðun á því máli?“ „Ég er þessu alls ekki sam- mála. Góð menntun er sérhverj- um manni holl, þótt ekki verði hún beinlínis í askana látin“. Hvað ætlarðu svo að stunda í framtíðinni?" „Helzt er ég að hugsa um hag- fræði eða löfe. Annars er ekkert hægt að fullyrða, það er úr svo mörgu að velja“. Nýtt félagsheimili Ólafur Pétursson er stúdent úr stærðfræðideild. Hvernig kunnirðu við þig í Menntaskólanum, Ólafur? „Alveg ágætlega. Menn lesa samvizkusamlega, þrátt fyrir mik ið félagslíf, eða svo á nú að heita. Meinið í félagslífinu er það, hversu illa hefur gengið að fá hina ýmsu árganga til að sam- lagast. Hið nýja félagsheimili ætti *>að bæta mjög félagsandann í skólanum, e f nemendur halda rétt á spöðun- um“. En hvað viltu segja um skóla- selið? „Það hefur ver ið mjög endur- bætt síðustu ár. Selið hefur löng- um verið snar þáttur í skemmt- analífi skólans, enda þótt það sé of lítið notað. Þar sem selið er of langt frá bænum, hefur kom- ið til tals að selja það. Annað sel yrði þá reist í stað þess vestan Hellisheiðar, þar sem unnt væri að fara á skíði“. „Hvað segirðu svo um námið sjálft?“ „Blessaður. Um það væri svo sem margt hægt að segja. Kenn- araliðið er skipað færum mönn- um hverjum í sinni grein. Að því leyti er vel að nemendum búið, en húsakynni eru öllu lak- ari“. „Hvað ætlarðu nú að gera að loknu stúdentsprófi, Ólafur?“. „Ég er að hugsa um að fara í verkfræði í Þýzkalandi, bygg- ingaverkfræði. Það eru áreiðan- lega næg verkefni framundan“. j jlpTÍi W •• •éjpl'jf iipp <ifiyÉsS djw m *** • F Ít v'., Yy Ásrún Hauksdóttir, Gerður Steinþórsdóttir og Gunnar Sigurðs- son — talið frá vinstri. Hlutu verölaun fyrir rit- geröir um íslenzka hestinn Urslit i ritgerðasamkeppni Æskunnar I SÍÐASTA tölublaði Æskunn- ar, júlí-ágúst hefti, er skýrt frá úrslitum ritgerðasamkeppni, sem blaðið efndi til meðal lesenda sinna, um íslenzka hestinn. — 80 ritgerðir bárust. Fyrstu verðlaun, sem eru ferð með skipi til Norðurlanda og heim aftur, hlaut Ásrún Hauks- dóttir (14 ára), Eskihlíð 6 B Reykjavík. — Önnur verðlaun, vikuferð um Fjallabaksveg á hest baki, hlaut Gerður Steinþórs- dóttir (14 ára), Ljósvallagötu 8, Reykjavík. Gerður vann til fyrstu verðlauna í ritgerðasam- keppni Æskunnar í fyrrasumar og hlaut utanferð að launum. — Þriðju verðlaun, nokkurra daga ferð um verzlunarmannahelgina, hlaut Gunnar Sigurðsson (13 ára) Ásgarði 6, Húsavik. — Verðlauna ritgerð Ástrúnar Hauksdóttur er birt í fyrrnefndu tbl. Æskunnar, en ritgerðir þeirra Gerðar og Gunnars munu birtast síðar. Það var Ferðaskrifstofa ríkis- ins, sem gaf hin góðu verðlaun í þessari ritgerðasamkeppni, og hefir hún ákveðið að gefa fimm aukaverðlaun, bækur, og hljóta þau eftirtalin börn: Ingibjörg Gerður Bjarnadóttir, Galtastöð- um, Hróarstungu, N.-Múl., Anna Soffía Sigurðardóttir, Hvítái'holti Hrunamannahreppi, Árnessýslu. Guðjón Ársælsson, Sólbergi, Höfn í Hornafirði, Soffía Ingi- björg Árnadóttir, Kópavogsbraut 48, Kópavogi og Sigurður Þóris- son, Fnjóskadal, S-Þing. Fyrrnefnt tbl. Æskunnar flyt- ur að vanda fjölbreytt og skemmtilegt efni við hæfi barna og unglinga. í skrifar úr daglego lífínu 4 Mýsla á ferðinni aftur ÞAÐ var orðið langt síðan Vel- vakandi hafði séð Mýslu litlu, vinkonu sína, sem nokkrum sinn- um hefur verið sagt frá hér i dálkunum, þegar hún kom trítl- andi á móti honum á götunm .í gær. — Hvar hefur þú haldið þig? spurði Velvakandi. — Ég fór í sveitina, til að koma í veg fyrir að Lögbergi yrði ýtt ofan í Ax- mannagjá, svargði Mýsla. Þegar ég sá á prenti að um það eða eitt- hvað álíka stæði slagurinn, þá tók ég mér far heim í sveitina mína, til að vinna að kosningun- um. Nú og svo ákvað ég að vera heima i sveitasælunni um hríð, og verða brún og lekker. Það getur engin ungfrú farið á Borg- ina með piltinum sínum á þess- um tíma nema vera kolbrún. Ferðafólk í sveitasælunni SVO skýrði hún frá því að hún hefði fengið far í bæinn um síðustu helgi. Á laugardaginn kom stærðar áætlunarbíll og stanzaði á balan- um framan við bústað músafjöl- skyldunnar. Dyrnar opnuðust og út steig ferðaklætt fólk. Nú fór heldur betur að verða líflegt • sveitinni. Fararstjórinn sagði: „Elsku vinir, nú skulum við byrja á því að tjalda“. Tjöldtn voru dregin úr umbúðunum og hrist út, en líklega hefur segla- saumarinn, sem gerði þau, verið rangeygður og sennilega örfhent- ur líka, því stögin flæktust öll og þau tjöld sem *komust upp, hölluðust eitthvað undarlega. Það setti ferðafólkið ekki fyrxr sig. Allir virtust hinir ánægðustu, föðmuðust og báðu fyrirgefning- ar á því að þeir hefðu einhvern tíma verið andstyggilegir á skrxf stofunni. Það hefði ekki verið meint neitt illt með því. „Þú ert svo ágæt — vélritar bara svo- lítið vitlaust, en það gerir ekkert til“. Um kvöldið fór hópurinn i fjallgöngu. Fararstjórinn sagði að það væri svo afskaplega fallegt útsýni af hæðinni. Sumir voru reyndar lagstir fyrir, ýmist í biln um eða út um holt og móa. En hinír stungu einhverju í vasann og héldu af stað. Daginn eftir voru menn hættir að segja „elsku vinur“, en sögðu í þess stað „æi, náðu í vatn handa mér“. Og er það fékk almennar undirtektir, að fara nú að koma sér af stað í bæinn, varð Mýslu hugsað til stælgæjans síns og hún laumaðist inn í bílinn. Hún vissi reyndar að músa- fjölskyll n mundi slá upp mikilli veizlu, um leið og bíllinn væri horfinn, því á balanum lágu efcir dósir með leifum af alls kyns góðgæti og í einhverjum bréf- unum leyndust vafalaust brauð- molar. Mýslu þótti heldur leict að ekki skyldi vera sungið „Mikil lifandis skelfing .. “ í bílnum. eins og þegar hann kom, því Mýsla er músikölsk. En líklega hafa raddböndin eitthvað veiið farin að bila í farþegunum. Aftur í bæjarmenníngunni OG nú er músin litla búin að hitta piltinn sinn aftur. Hún fór með honum á ball og var næst um litið yfir hana af hrifningu, þegar söngvarinn fór að syngja „Hún Dísa er sú skverlegasta skvísa“. Mýsla er nefnilega svo þjóðleg að hún vill hafa textana við dægurlögin íslenzka. Á eftir bauð pilturinn henni snöggvast upp á skrifstofu, eins og fínn maður, enda er þetta eng- in sveitamús, sem ekki veit hvað við á.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.