Morgunblaðið - 19.07.1959, Síða 22
22
MOKCVTSBLÁÐlh
Sunnudagur 19. júlí 1959
íslandsmötið í knattspyrnu:
Fram vann Þrótt
Hafnfirðingar með annan verðlaunabikarinn.
fslandsmótið í handknattleik
karla utanhúss hefst í dag
Mótið fer fram í Hafnarfirði og stendur
í vikutíma -
1 DAG hefst í Hafnarfirði 12.
Handknattleikmeistaramót ís-
lands í leik karla utanhúss. Fer
mótið fram að Hörðuvöllum og
itendur í viku — lýkur næstkom-
andi sunnudag.
í mótinu taka nú þátt 5 félög.
Fyrst skal fræga telja liðsmenn
Fimleikafélags Hafnarfjarðar,
sem sigrað hafa á þessu móti 3
s.l. ár. Þá taka þátt í mótinu lið
Ármanns, Fram, Aftureldingar og
íþróttafélags Reykjavíkur.
Mótið hefst £ dag kl. 4 e.h.
Setur það Þorgeir Ibsen form.
Í.B.H. en síðan fara fram tveir
leikir, hinn fyrri milli Aftureld-
ingar og Fram og hinn síðari milli
Ármanns og FH.
Á mánudagskvöldið leika fyrst
ÍR gegn Aftureldingu og siðan
Fram gegn Ármann. Á miðviku-
dagskvöld leika FH—ÍR og Aft-
urelding—Ármann. Á laugardag
leika FRAM—FH og ÍR—Ár-
mann og síðasta mótsdaginn,
sunnudag, leika Fram—ÍR og
Aftusslding— FH. Eftir það slít-
ur Ásbjörn Sigurjónsson form.
H.S.Í. mótinu og afhendir verð-
laun.
Nú sem fyrr er lið FH sigur-
stranglegast. Það lið er nú sem
stendur meistari bæði í innan-
húss- og utanhússleik.. Til gam-
ans fer hér á eftir skrá um
meistara innan- og utanhúss 11
síðustu árin, eða frá því að fyrst
var keppt hér utanhúss.
Innanhúss Utanhúss
1948 Valur Ármann
1949 Ármann Ármann
1950 Fram Fram
1951 Valur Valur
1952 Ármann K.R.
1953 Ármann Ármann
1954 Ármann Fram
1955 Valur Valur
1956 F.H. F.H.
1957 F.H. F.H.
1958 K.R. F.H.
1959 F.H.
LEIKUR Fram og Þróttar í fs-
landsmóti I. deildar í fyrrakvöld
var einn daufasti leikur sem sézt
hefur hér á sumrinu. Leikgleði
brá ekki fyrir — en það sem gert
var, var gert með hálfum huga
og „hangandi hendi“.
Bæði lið áttu sín góðu tæki-
færi til marka, þvf varnir beggja
liða voru eins og gróf sigti. í
upphafi leiks fékk Þróttur gott
færi og hæfði skot Guðm. Axels-
sonar í stöng. Er ekki að vita
hvernig farið hefði ef þetta skot
hfði lent í markinu. En þetta
lán Fram var hið fyrsta í leikn-
um — oft síðar komust Þróttar-
menn í opin færi ,en það var eins
og hnötturinn vildi ekki í Fram-
markið. Var og að dómarinn
leyfði vörn Fram að brjóta gróf-
lega á sóknarmönnum Þróttar án
þess að hann gerði nokkuð nema
baða út höndunum!
Tvö urðu mörk Fram í fyrri
hálfleik. Skoraði Guðm. Óskars-
son hi.ð fyrra um miðjan hálf-
leikinn mð föstu skoti. Hið síð-
ara skoraði Guðjón Jónsson með
föstu skoti — sem markvörður
hálfvarði og var Gretar miðherji
reiðubúin að ýta á eftir ef með
þyrfti.
í upphafi síðari hálfleiks hjálp-
uðu Þróttarar upp á sakirnar
með því að skora sjálfsmark. Var
þar Birgir framvörður að verki
og dálítið klaufalega því mark-
vörður var tilbúinn — og knött-
urinn hefði sennilega farið fram-
hjá marki.
Að fjórða markinu unnu þeir
saman Grétar og Guðjón. Var
það skorað úr þvögu eftir sókn
upp hægri kant. Guðmundur
Órskarsson sem hóf að skora,
sagði svo lokaorðið — hann brun-
aði upp og innfyrir allt með send-
ingu frá Grétari, skaut — en
markvörðúr varði en hélt ekki
knettinum, sem Guðm. náði aft-
ur og skaut í mannlaust mark.
Rétt fyrir leikslok var Þrótti
dæmd vítaspyrna — og nú fyrir
brot, sem var engin vítaspyrnu-
sök, en þetta kom sem svolítil
uppbót frá dómaranum fyrir
margar misgjörðir gegn Þrótti.
Jón miðherji skoraði og hafði þó
Geir markvörður hendur á I
knettinum áður en hann komst i
netið.
Leikur Fram — einkum fram-
herjanna — gefur ekki sérstakar
vonir fyrir B-landsleikinn í
Færeyjum. Þarna voru saman
komnir meirihluti leikmanna,
sem valdir hafa verið til þeirrar
ferðar. Sama gamla sagan að
sækja inn á miðjuna — gleyma
köntunum. Bezti maður liðsins
var Guðm. Guðmundsson bak-
vörður, traustur að vanda, en
hann er ekki valinn til B-liðsins.
Að standa sig vel leik eftir leik
og að geðjast landsliðsnefnd,
virðist hérlendis vera tvennt ó-
líkt.
Sem fyrr segir, vöktu dómar
Þorláks Þórðarsonar almenna
furðu. Virtist sem hann væri með
öllu æfingalaus. Greinilegar víta-
spyrnur hirti hann ekki um, en
tók aftur aðra fyrir brot, sem
ekki er vítaspyrnusök. Og svo var
um mjög marga af hans dóm-
um. Yfirferð hans var engin —
allt séð úr fjarlægð og það með
augum, sem ekki verður komizt
hjá að saka um hlutdrægni.
— A. St.
afmæli um þessar mundir.
asta kasti. Gísli á 40 ára keppnis-
400 m. hlaup:
Guðjón I. Sigurðsson H 54,4
Bergþór Jónsson H 55.3
Björn Jóhannsson K 56,5
Rafn Sigurðsson K 1,04
54,4 í 400 m. hjá GuSjóni er
nýtt hafnfirzkt drengjamet og
unglingamet.
Víðavangshlaup;
Þórhallur Guðjónsson K 4:39,0
Páll Eiríksson H 4:39,4
Sigurður Albertsson K 4:40,7
Birgir Björnsson H
Hástökk;
Sigurður Friðfinnsson H 1,80
Ingvar Hallsteinsson H 1,70
Höskuldur Karlsson K 1,63
Björn Jóhannsson K 1,55
Kringlukast:
Flugmálastjórnin
Ungur áhugasamur og algerlega reglusamur maður
óskast til starfa í verksmiðju, sem framleiðir plast-
vörur. Umsóknir, er tilgreini, aldur og fyrri störf,
ásamt mynd sendist afgeiðslu Morgunblaðsins fyrir
þriðjudagskvöld merkt: „Reglusamur — 9893“.
Plastplötur
á borð og veggi
nýkomnar
H. Benediktsson hf.
Sím 11228 — Reykjavík
afgreiðslustúlku
vantar nú þegar.
KiDDABU
Njálsgötu 64
Hainafjörður vann Keflovík
NÝLEGA fór fram bæjarkeppni Egill Friðleifsson H 12,58
í frjálsíþróttum milli Hafnar- Kristján Stefánsson H 12,51
fjarðar og Keflavíkur. Úrslit Kúluvarp:
urðu sem hér segir: Halldór Halldórsson K 13,07
Ingvar Hallsteinsson H 13,02
100 m hlaup: Björn Jóhannsson K 12,65
Höskuldur Karlsson K 11,1 Sigurður Júlíusson H 12,03
Ingvar Hallsteinsson H 11,5
Bergþór Jónsson H 11,7 Sleggjukast:
Einar Erlendsson K Einar Ingimundarsson K 43,13
Pétur Kristbergsson H 41,73
Þristökk: Björn Jóhannsson K 38,18
Höskuldur Karlsson K 12,95 Gísli Sigurðsson H 28,02
Einar Erlendsson K 12,94 Pétur var fyrstur þar til í síð-
Nýkomið
úrval af sportsokkum og hosum í stærðum 1—10.
Kvenhanzkar. Plastefni einlit og mynstruð.
Hagstætt verð.
ÁSGEIR G. GUNNLAUGSSON & Co.
Austurstræti 1 — Sími 13192.
Hestamenn
Höfum fengið aftur hin viðurkenndu dönsku
Cotanreiðstígvél
Vinnufatabúðin
Laugaveg 76 — Sími 15425.
Halldór Halldórsson K 43,29
Björn Bjarnason K 41,13.
Sigurður Júlíusson H 38,33
Eðvarð Ólafsson H 36,30
Spjótkast:
Ingvar Hallstéinsson H 56,33
Halldór Halldórsson K 55,70
Kristján Stefánsson H 55,37
Ingvi Brynjar Jakobsson K 51,54
55,37 nýtt íslenzkt drengjamet
með karlaspjóti Kristján 17 ára,
Halldór náði 2. sætinu í siðasta
kasti.
Stangarstökk:
Högni Gunnlaugsson K 0
Halldór Halldórsson K 2,89
Páll Eiríksson H 3,12
Sigurjón Gíslason H 2,73
3,12 nýtt hafnfirzkt drengja.
met í stangarstökki hjá Páli
Eiríkssyni.
4x100 m. boðhlaup:
Sveit Keflavíkur 46,9
(Rafn Sigurðsson, Einar Erlends-
son, Björn Jóh., Höskuldur Karls
son).
Sveit Hafnarfjarðar 47,2
(Ragnar Jónss., Ragnar Magnúss.,
Bergþór Jónss., Ingvar Hallsteins
son).
Keflavík stig samtals: 61.
Hafnarfjörður stig samtals: 53.
Þetta er fyrsta keppni í frjáls-
íþróttum milli þessara staða.
Bæjarúgerð Hafnarfjarðar gef-
ur bikar einn fagran til keppni
um.
Athyglisvert, hve lið Hafn-
firðinga var allt ungt og miklu
yngra en Keflvíkingarnir. Veik-
indaforföll voru í liði Hafnarf.
Framkvæmd mótsins var með
ágætum og veður var mjög gott.