Morgunblaðið - 02.08.1959, Qupperneq 18
18
MORCVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 2. águsí 195&
~~J\uenjijóSin oíj heiniiíiá
Konur skipta um hár um leið
og þær skipta um föt
HÁRIÐ hefur löngum þótt mesta
prýði konunnar og fagurhærður
kvenmaður hvarvetna vakið at-
Ljóshærð í dag
hygli og aðdáun. Er því ekki að
undra að konur um allar aldir hafi
keppzt við að halda hári sínu
sem faliegustu, með misjöfnum
árangri þó.
En nú hefur hárkollumeistur-
unum tekizt að leysa þetta vanda-
Fullgerð hárkolla
Kústaskápurinn
Regiusemi í burstaskápum
Ágætt er að festa króka í göt
uðu masonítplöturnar, sem mik-
ið eru notaðar í sýningarglugg-
um, og koma þeim fyrir á hent-
ugum stöðum á heimilinu. — Hér
«r sýnishorn af burstaskáp, þar
sem slíkri plötu er komið fyrir
á skáphurðinni innanverðri, og
eru ýmis smáhlutir hengdir þar
upp, svo sem burstar og afþurrk-
unarklútar. Einnig er þægilegt
að hafa þær í skápum þar sem
geymdir eru litlir pottar, brauð-
form o. fl.
mál. Á markaðinn eru komnar
svo snilldarlega vel gerðar hár-
kollur að eigi verða þær greind-
ar frá lifandi hári, eins og með-
fylgjandi myndir sýna. Kona með
stuttklippt hár hefur nú tæki-
færi til að breyta útliti sínu með
þvf að skipta um hár um leið og
hún hefur fataskipti. Er ekki að
efa að þetta verður mjög vin-
sælt hjá kvenþjóðinni. í dag get
ur hún verið með ljóst, sítt hár,
Dökkhærð á morgun
á morgun rautt og slétt hár, hinn
daginn dökkt og þar fram eftir
götunum.
En þetta er ekki aðeins hentugt
fyrir þær, sem eilíflega vilja
vera að breyta til, heldur og fyr-
ir þær, sem fyrir því óláni verða
að missa háfið, eða ef það gisn-
ar og verður rytjulegt. Áður fyrri
áttu þær engra kosta völ annað
en hylja kollinn með skýluklút-
um eða þess háttar..
Um eina konu úti á landi sem
fyrir því óláni varð á miðjum
aldri að verða sköllótt segir
hún hafi búið sér til hárkollu
úr geitarhári og sett á höfuð sér.
Eigi hefur það höfuðfat þótt auka
á yndisleik konunnar, enda hentu
gárungar óspart gaman af því,
og varð hún að síðustu að taka
það niður og hylja skallann með
klút.
Má því segja að öldin sé önn-
ur nú, er hægt er að fara út í
búð og kaupa hár af allskonar
gerðum og mun margur fagna
því.
Borðið meira salat
yfir sumartímann
SUMARIÐ er stutt hér á landi og
hefur það þvj mikla þýðingu fyr-
ir alla landsmenn að nota það
vel, vera mikið úti og borða
holla og næringarríka fæðu.
Grænmeti er ágætis vítamíns-
gjafi og ættu því allir að borða
eins mikið af grænmeti og hægt
er að koma við, ekki aðeins sem
Spjallað v/ð rak-
arann í Álfheim-
um
Ilmbað
Setjið ögn af baðsalti í fram-
hólf handsturtunnar, skrúfið frá,
og þar með hafið þér fengið ang-
andi baðvatn. Það er auðvelt að
skrúfa í sundur framhólfið, þar
sem baðsaltinu er hellt í, og eng-
in hætta er á að baðsaltskristall-
arnir stífli sturtuna, þar sem þeir
leysast fljótt uþp í vatninu.
SÍÐA hárið hefur verið í tízku
öldum saman um heim allan allt
fram á 20. öld. Hárgreiðsla
kvenna á hverjum tíma hefur þó
verið mjög mismunandi, hárið
fléttað, bundið í hnút og skrýft
með heitu krullujárni. — Hér-
lendis fiéttuðu konur hár sitt,
venjulega í tvær fléttur og náðu
þær oft niður í hnésbætur. Þóttu
þær fallegastar, er gátu hulið sig
í hári sínu. En þegar í byrjun
aldarinnar voru skærin tekin
fram og kvenhár klippt svo um
munaði. Áður fyrr þótti það
heillaráð að taka við'og við neð-
an af hárinu með vaxandi tungli,
en nú var hárið klippt upp undir
eyru, alveg sama hvernig stóð
á tungli. Síðan hefur hárið allt-
af verið að styttast, til mikilla
þæginda fyrir kvenþjóðina alla.
En það er ekki sama hvernig
hárið er klippt. Við gengum því
á vit eins ágætasta rakara hér í
bæ, Jóns Geirs Árnasonar, sem
hefur rakarastofu í Álfheimum
31, og báðum hann að segja okk-
ur eilítið um klippingu á kven-
fólki, en hann hefur getið sér
góðan orðstír fyrir að klippa kon-
ur og börn svo vel fari.
— Klippingin er undirstöðu-
atriði fyrir hárgreiðslu kvenna,
sagði Jón Geir. Stutt klippt hár
er enn mest í tízku, Kim Novak
greiðslan er sérlega vinsæl, en
þár er allt hárið klippt mjög stutt
aðeins 2—5 cm. allur kollurinn.
Aðrar vilja hafa hárið síðara og
er klippingin þá mjög breytileg,
það fer allt eftir höfuðlagi og
smekk hvers og eins. Og svo
eru það þær, sem vilja síða hárið,
Bardot-greiðsluna, þær verða að
gæta þess að toppurinn sé rétt
Lílið I gluggann um helgina
Brúðarvendir — Kjólablóm — Gjafavörur o. fl.
Blóm & Ávextir
Kaupum notaðar blómakörfur.
Taunus M-IS
De Luxe til sýnis og sölu við Skúlagötu 78
Ein nýklippt —
klipptur ,má hann nema alveg
við augabrún en ekki lengra.
— Blásið þér og lagfærið hárið
eftir klippinguna.
— Nei, ég blæs ekki hárið með
handþurrku. Ég legg aðaláherzl-
una á klippinguna. Hárgreiðslu-
stofurnar eru miklu færari og
hafa betri aðstöðu til að leggja
hárið eftir klippingu. Að vísu er
hægt að laga hárið á skemmti-
legan hátt með handþurrkunni
einni saman, en þa.ð tekur langan
tíma, ef vel á að fara. Oft nægir
líka að þvo hárið vel eftir klipp-
inguna, bursta það og setja í það
spennur. Ef stúlkan er laghent
getur hún sjálf gert kraftaverk
á hárinu, en aðeins ef hún er
rétt klippt, þá tollir lagningin
miklu lengur og hárið verður allt
áferðarfallegra.
— En hvað um blessuð börnin?
— Það dugar ekkert annað en
klippa þau nógu oft. Ég er alger-
lega á móti því að börn safni
hári. Að vísu er einkar fallegt að
sjá litlar telpur með sítt hrokk-
ið hár, en það er verra fyrir þær
upp á framtíðina. Hárið vill slitna
og þynnast, fer oft í flóka og
veldur börnunum óþægindum í
leik.
— Eru allir viðskiptavinir þín-
ir konur og börn?
— Nei, nei, aldeilis ekki. Hing-
að koma alveg jafnt konur og
karlar, þetta er rakarastofa fyrir
alla, sagði Jón Geir að lokum,
brosti og hélt áfram að klippa.
aukarétt heldur líka sem aðal-
máltíð saman við kjöt og fisk.
Salatskálin ætti því að vera á
óorðum hjá öllum íslendingum
yfir þennan tíma. Hún verður að
vera stór og rúmgóð, svo hægt sé
að blanda vel saman, öllu því
góðgæti sem í hana er sett. Kjöt-
eða fiskafganga frá deginum áð-
ur er prýðisgott að nota, einnig
skinka og reyktan fisk. Það er
skemmtilegt að blanda sam-
an nýjum réttum í hvert skipti.
Hver er kominn til að segja að
í salatinu eigi aðeins að vera
tómatsfjórðungar, agúrku- og
kartöfluskífur ásamt afgangnum
af steikinni. Saxað kál, hakkaður
laukur, soðnar baunir, pipar, soð-
inn mais, harðsoðin egg og ost-
bitar eiga einnig vel heima í
salatskálinni, ennfremur hráar
ertur, soðnar seljurætur og hrá-
ir sveppir en það síðastnefnda er
erfitt að fá hér á landi. En at-
huga verður vel í hvert skipti, að
hinar mismunandi fæðutegundir
bragðist vel saman.
Salatsósan hefur meiri þýðingu
en margir halda, því það er hún
sem gefur réttinum sitt sérkenni-
lega bragð. Hægt er að fá salat-
sósu tilbúna í búðum — það er
handhægt, en auðvitað töluvert
dýrari en heimatilbúin sósa, og
oft og tíðum ekki eins góð. Gott
er að hræra saman mayonaise og
rjóma og bragðbæta það með
sósukrafti, en sú sósa verður að
vera mjög þunn. Einnig má hræra
salatsósu úr eggjarauðu, rjóma,
sítrónusafa, salti og pipar en ekki
má nota sykur, þv| hann dregur
úr hinu ferska brágði grænmet-
isins. En bezt af öllu er frönsk
salatsósa, sem samanstendur at
3 hlutum salatolíu, 2 hlutum vín-
ediki, salati, pipar og hvítlauk
eftir smekk. Þessi sósa geymist
mjög vel á köldum stað, allt að
2—3 dögum.
En munið, að salat er ætíð boð-
ið fram kalt.
Og að lokum eru hér tvær upp-
skriftir:
Gulrótasalat
250 gr. gulrætur 1 sítróna
50 gr. sykur 2-3 rúsínur
Gulræturnar eru raspaðar, sítr-
ónan pressuð, sykurinn hrærður
út í (það er einnig mjög gott að
nota púðursykur) og að síðustu
eru rúsínurnar settar út í. Mjög
gott er að bæta þeyttum rjóma
út í, en þó ekki nauðsynlegt.
Þetta salat má bæði hafa sem sér-
rétt, ofan á brauð og með k’*ti
og fiski.
Skinka- og melónusalat
300 gr. melónur
150 gr. soðin skinka
2 matsk. graslaukur, saxaður
1 salathaus
3 matsk. matarolia
1 matsk. edik eða sítrónusafi
salt, pipar.
Skerið melónu og skinka í
jafn stóra ferninga, og setjið sax-
aða graslaukinn og salatið saman
við. Þeytið olíuna, edikið eða
sítrónusafann og kryddið saman
og hellið því yfir salatið. Þetta er
borið fram ískælt sem forréttur í
skál, skreytt með salatblöðum.