Morgunblaðið - 13.08.1959, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 13.08.1959, Blaðsíða 8
MORCVNBT/AÐIÐ Fimmfudagur 13. ágúst 1959 640 laxar í Laxá í Kjós VALD ASTÖÐUM, 2. ágúst: — Frá 14. júlí til 28. júlí var lax- veiðin í Laxá, Bugðu og í Meðal- fellsvatni sem hér segir: f Laxá veiddust 304 laxar. Alls hafa því veiðzt í Laxá 640 laxar í tæpa 2 mánuði. f Bugðu veiddust alls 63 laxar og í Meðalfellsvatni 10 laxar. Auk þess hafa veiðzt í Meðal- fellsvatni 2700 silungar. Vantar þó tölur yfir veiddan siiung hjá fóiki, sem býr í sumarbústöðum við vatnið. Og ef til vill er eitt- hvað ótalið af iaxi hjá þessu fólki sem ekki er komið á skrá hjá eft- irlitsmanni, þegar þetta er skráð. — St. G. Listkynning Mbl. Sólarorhan bcizluð 1 Þannig lítur nýja bandn- | ríska gervitunglið Könnuður | VI. út. Þessi nýi Könnuffur er | talinn fullkomnasta og marg i brotnasta gervitungliff, sem i skotið hefur veriff á loft. FKki einungis vegna þess, aff öll hin fjölmörgu vísindatæki og sendistöffvar í tunglinu fá orku sína frá sólinni, heldur einnig vegna þess, aff Könn- uffi VI er ætlaff mjög marg- þætt hlutverk. Höfuffverkefn- in eru 15, en auk þess mun Könnuður gera ýmsar fleiri athuganir og rannsóknir sem m. a. verffa haldgóðar, þegar lögff verður síffasta hönd á undirbúning aff íyrstu geim- ferffinni. — Þaff, sem sennilega vekur athygli lesandans, þeg- ar hann lítur á myndina og <iiinininiinniniiiniiunniiunniiiuiiinnutininutnnnininnimg«inini»inunii ..................................................... Úr Ausfur Skagaíirbi: Víba meira hey en allt sumarið í fyrra Listkynning Mbl. hefur undanfarið sýnt listvefnaff eftir lista- l konuna Ásgerði Ester Búadóttur. Er myndin hér að ofan af einu listaverka hennar, sem á sýningunni oru. BÆ á Höfðaströnd, 9. ágúst: — Eftir tvö stóráfelli í vor um 17. júní, sem elztu menn muna ekki eins, þar sem fé fennti og gróð- ur, sem þá var kominn, visr aði og bældist af fönn, héldu mer.n a& hörmung mundi verða með grassprettu og annan gróður, en þetta hefur nú orðið eitthvað ann að. Nú er eitt mesta sprettusum- ar, sem menn mUna, túnin breiða á sig, og útlit er fyrir að seinni sláttur verði mjög góður. Er nú á nokkrum stöðum byrjað á seinni slætti og er lítill munur á honum og þeim fyrri með gras- vöxt. Ekki er hægt að segja, að góð- ir þurrkar hafj verið að stað- aldri, en þó veit ég ekki annað en að hey hafi náðst lítið :ða ekkert hrakin Nú mun og víða vera komið eins mikið eða meira hey inn og allt sumarið 1958. Horfa menn nú með bjartsýiii fram á veginn hvað þetta snert- ir. Við rúning sauðfjár bar á þv: að eitthvað' af lömbum vaxitaði eða voru móðurlaus vegna vor- hretanna, en þó er haldið að minni brögð séu að fjársköðum en haldið var og tíúast rt#tti við. Miklar jarffabætur. Jarfðabætur eru miklar eins og undanfarin ár og eru þar stór- virkar skurðgröfur ug jarðýtnr, sem Búnaðarsamband Skagfirð- inga gerir út að verki. Bænd- urnir sjálfÍT fullvinna nú sín flög og ganga að öllu frá þeim. Jarðtætarar, sem einstaklingar eða búnaðarfélögin eiga eru að koma og eru þarfaþing, sem tæta jarðveginn í sundur og fullvinna í einni og tveim umferðum — Dráttarvélar eru líka að verða á hverju heimili með tilheyrandi verkfærum, enda getur nú eng- inn búið sæmilegu búi nema að hafa þessi tæki. Á sl. vori komu nokkrar Bam- fords snúnings- og múgavélar hér í sveitina. Virðast þær taka öðrum vélum nokkuð fram, sér- staklega með vinnugæði, og eru sýnilega ekki viðhaldsfrekar. Vegagerff og umferff. Samfelldur bílastraumur er nú um veginn til Siglufjarðar og hefur líklega aidrei verið eins. Vegheflarnir hafa ekki við £.5 hefla og er nokkuð kvartað um að vegur sé holóttur og brett- óttur. Unnið er nú að vegarlagnir.gu aðalvegar um Fljótiu á Sig'.u- | fjarðarvegi. Er áætlað að ljúka undirbyggingu í haust að Sard- ósi eða Haganesvík. Einnig er byrjuð vegagerð á Almenningi utan við Hraun og eitthvað cr unnið að sprengingum í Strák- um. Eygja menn nú að sú iar.g- þráða von rætast að vegur kom- ist fyrir Stráka, sem fær verði í öllum sæmilegum vetrum En vafalaust verða 'þó nokkur ár þar til að því marki verður náð. Eins og að undanförnu gerir fólk mikið að því að -setja upp tjöld sín meðfram vegum nálægt veiðivötnum eða á heimilum kunningja sinna. Er þetta skemmtilegt og tilbreyting, en þó getur gamanið farið af, ef mikið rignir og kalt er í veðri. Einstaka bændur og konur þeirra gefa sér nú tíma til að taka sér nokkurra daga sumarfrí en þó eru það fleiri sem ekkert komast, því víða eru aðeins hjón in og smábörn við heyskapir.n. gerir í huganum samanburff | viff myndir af eldri gervi- | tunglum, eru spjöldin fjögur, i sem standa á stilkum út úr | sjálfu tunglinu. í rauninni er | þetta eins og skipsskrúfa — 1 og þao eru „skrúfublöffin“ | sem taka viff orkugjafanum, i sólargeislunum. Á „blöðun- 'i um“ eru um 8,000 ,.sólar cell- ;i ur“ og alltaf er tryggt, aff liclm | :ingur þeirra snúi móti sólu — i IKönnuður VI., sem vegur tæp | flega 46 kg. verffur sennilega | |á lofti í lifflega ár. Vanguard: i í|l., sem enn er á lofti, nýtur i Hsólarorkunnar einnig á svip-,| §aðan hátt, en sá útbúnaðurli :=er mikiu frumstæffari og aff'i Jmestu gerður í tilraunskyni. ’i Má þá engri stund glata, jafnvel ekki sunnudögum. Skemmtanir. Eins og gefur að skilja vantar sízt skemmtanir. Unga fó'kið er -á fleygiferð um allar heigar, enda eru tækin til ferðalaga á hverju heimili næstum því. Þó þykir einna mest varið í fara sem lengst, i. d. í Húnaver, og Sauð- árkrók. Annars þykir þetta ekki orðið nema bæjarleið að skjótast 2—3 tíma á bíl. í júní bauð Kaup félag Austur-Skagfirðinga félög um sínum til skemmtiferðar um Snæfellsnes. Þótti það mjög ánægjuleg ferð. Sjósókn og aflabrögff. Gæftir hafa verið góðar í sum- ar, það sem af er. Afli ekki mik- ill, en drjúgt, þegar alltaf er hægt að róa. Er því kominn mikill fiskur á land á Hofsósi og afkoma mjög sæmileg. Rauðsprettuveiði er töluvert stunduð hér með sjáv arsíðunni og hafa þeir, sem aS staðaldri eru við það, drjúgar tekjur. Veit ég um einn mann á báti, sem frá júní byrjun, er koli var fyrst tekinn, hefir aflað fynr rúmar 20,000 krónur og annar, sem hefur verið með smástrák með sér hefur aflað fyrir um 40,000 krónur á þesum tíma. — Silungsveiði hefur verið heldur minni en sl. ár, en er mikið stunduð. sérstaklega af ferðafólki sem þykir upplyfting af að dútJa við það. Hcilsufar. í vor var mjög kvillasamt svo að læknir sagði að sjaldan hefði verið eins, en nú er eitthvað betra ástand á því sviði, enda má enginn vera að þeim óþarta um hásláttinn. —Bjö.'n. Brezki fáninn í Reykjavíkurhöfn ÞAÐ er sjaldgæf sjón orðin hér í Reykjavíkurhöfn að sjá vöru- flutningaskip undir brezkum fána. — En um klukkan 7,45 i eær kvöldi sigldi hér út úr höfnmni flutningaskipið ,,Passy“ hia'iið saltfiski, og blakti brezki fámnn að hún í norðanstrekkingnum. — Þetta var um 500 t. skip. Skipið var fullhlaðið, lúgufullt, eins og hafnarkallarnir segja, af bezta j íslenzka saltfiski til Suðurlanda. Það er orðið alllangt síðan að kaupfar undir brezkum fána hef- ir legið hér við hafnaigarðinn og tekið íslenzkar vörur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.