Morgunblaðið - 13.08.1959, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.08.1959, Blaðsíða 20
VEÐRID Norffan kaldi, skýjað með köflum 173. tbl. — Fimmtudagur 13. ágúst 1959 Skipasmíðar Sjá bls. 11. Yfir 100 þúsund far- þegar um Reykjavík- urflugvöll í fyrra | Lokið við að steypa nýja flugturninn upp \ Á SÍÐASTA ári fóru 101 þúsund farþegar um Reykja- víkurflugvöll, en það jafn- gildir því, að 61% þjóðarinn- ar hafi farið um þessa mestu samgöngumiðstöð lands- manna. Jafnmargir farþegar fóru með millilandaflugvél- um um Reykjavíkurflugvöll og Keflavíkurvöll, en þar eru að sjálfsögðu undanskildir hermannaflutningar Banda- ríkjahers um Keflavík. Af þessu er ijóst hve flugvöll- urinn í Reykjavík er orðinn okk- ur geysi þýðingarmikill, sagði Gunnar Sigurðsson, settur flug- málastjóri, þegar fréttamaður Mbl. spurði hann tíðinda af fram- kvæmdum á flugvellinum í sum- ar. — ★ Bygging flugturnsins nýja er þar efst á blaði, sagði hann, en hann hefur nú að mestu verið steyptur upp. Þetta er sjö hæða bygging, sem gnæfir hátt yfir gamla turninn, sem fyrir löngu er orðinn ófullnægjandi, enda byggður af Bretum á styrjaldar- árunum og miðaður við þeirra þarfir þá. Ofan á nýja turninn á svo eftir að bæta glerkúlunni, þar sem umferðarstjórnin á sjálf- um vellinum á að fá aðsetur, en sennilega getum við ekki flutt í þessi nýju húsakynni fyrr en næsta haust. Þessi nýi turn er sem kunnugt er upphafið af fyrirhugaðri Flugstöðvarbyggingu Reykjavík- urflugvailar þar sem ætlunin er að öll starfsemi og þjónusta flug- vailarins fái samastað. En kappkostað verður að full- gera turninn, sem verðúr sam- kvæmt áætlun miðhluti væntan- legrar flugstöðvarbyggingar. — Þegar turninn verður tekinn í notkun mun flugstjórnarmiðstöð in á N-Atlantshafi verða flutt þangað, flugumferðarstjórnin, ratsjáin, veðurstofan og allur hinn tæknilegi útbúnaður sem nú er holað niður í gamla turninn. Á neðri hæðum verða skrifstof- ur flugmálastjóra, flugráðs, flug- öryggisþjónustunnar, loftferða- eftirlitsins svo og upplýsinga- þjónustu flugmálastjómarinnar. Þar verða og radíóviðgerðarverk- stæði þessara aðila. Vafalaust verður hafizt handa um að jafna gamla turninn við jörðu — en önnur gömul mann- Barnaspítalasjóði berast höfðingleg- ar gjafir BARNASPÍTALASJÓÐI Hrings- ins hefir borizt minningargjöf um frú Kristínu Guðjónsdóttur, að upphæð kr. 25.000.— frá eigin- manni hennar, Sigfúsi Jónssyni, framkvæmdastjóra, Víðimel 68. Barnaspítalasjóði Hringsins hef ir borizt minningargjöf um Egg- ert Jónsson, kaupm., frá ekkju hans, frú Sigurbjörgu Pálsdótt- ur, Óðinsgötu 30, að upphæð kr. 5000,00. Kvenfélagið Hringurinn færir gefendunum sínar beztu þakkir. virki, sem standa framan við nýja turninn verða sennilega ekki fjarlægð fyrr en flugstöðv- arbyggingunni er lokið. Þá er áætlað, að bæði flugfélögin geti flutt afgreiðslur sínar og alla starfsemi aðra en viðgerðir véla og viðhald í nýju bygginguna. Jafnframt er gert ráð fyrir að útlendingaeftirlitið, tollgæzlan og önnur venjuleg flughafna- starfsemi fái þar húsnæði — og þar verði og nýtízku veitinga- salir. Og spurningunni, hvort ekki yrði komið þar upp tollfrjálsri verzlun, eins og í Keflavík, svar- aði Gunnar: — Ég tel engann vafa á því, að strax og aðstæður leyfa verði siikri „fríhöfn“ kom- ið upp í Flugstöðvarbyggirjgu Reykjavíkurflugvallar. —• Þessi mynd var tekin ofan úr nýja flugturninum — yfir að „litla“ gamla turninum. Til vinstri sést ofan á flugskýlið að baki gamla turnsins, en til hægri er afgreiðsla Björns Pálssonar — og stendur flugvél hans þar. Ein Douglas-flugvél Flugfélagsins er að hefja sig til flugs. Það er víðsýnt hæðinni. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.). — sagði Eyjólíur Jónsson í gær er hann athugaði möguleika á að synda yíir Ermasund í EINKASKEYTI til Mbl. í gærkvöldi segir, að slæmt veður hafi verið á Ermarsundi í gær og því hafi mátt búast við, að Eyjólfur Jónsson, sundkappi, frestaði sundi sínu þangað til aðfaranótt föstudags, en áður var í ráði, að hann hæfi sundið í nótt, sem leið. Eyjólfur mun synda frá Cap Gris Nez til Dover. Ofmikill sjógangur? 1 gær var skýjað loft yfir Ermarsundi, vindhraðinn 15 sjóm. á klst., sem samsvarar 4 vindstigum, og var búizt við ein- hverri rigningu. —'Pétur Eiríks- son og Eyjólfur Snæbjörnsson, þjálfari sundkappans, sögðu í gær, að sennilega yrði sjógangur of mikill til þess, að unnt væri að leggja á sundið aðfaranótt fimmtudags. — Þá segir enn sjórinn var slettur. fremur í skeytinu til Mbl. að veðurútlit sé betra í dag (fimmtudag). Æfir vel Eyjólfur Jónsson sagði í stuttu samtali í gærdag: — Ég er vel upplagður til þess að þreyta sundið. Hann býr nú í litlu veit- ingahúsi nálægt Calais og hefir undanfarið æft sig á hverjum degi í sjónum. Hann hefir í hyggju að synda bringusund mestan hluta leiðarinnar. Ef Eyjólfi tekst að synda yfir Ermarsund, verður hann fyrsti íslendingurinn, sem þá þrekraun vinnur og 169. sundgarpurinn, sem kemst yfir sundið ftá Því Webb'kaptein tókst í fyrsta sinni að synda yfir Ermarsund 1875. ★ Loks má geta þess, að Eyjólfur sagði í gær að hann myndi taka þátt í Butlin-keppninni yfir Ermarsund 27. ágúst n. k., ef honum mistækist nú, en þá munu fjölmargir sundkappar reyna að synda yfir sundið. SÍÐUSTU FRÉTTIR Seint í gærkviíldi barst Mbl. skeyti um það, að Eyj- ólfur Jónsson hefði ákveðið að leggja af stað í sundið yfir Ermarsund í nótt. Hann lagði af stað með bifreið frá Calais skömmu eftir miðnætti og ætlaði að leggjast til sunds frá Gris Nez-höfða kl. 2,30. Fylgdarskip hans, enski bát- urinn Vilhjólmur III, var þá komið þangað. Himinn var skýjaður en skyggni gott og Nýi turninn, en glerhjálminn vantar enn ofan á. Alþingi komi saman 12. nóvemoer n.k. I GÆR var lagt fram á Al- þingi frumvarp til laga um samkomudag reglulegs Al- þingis 1959. Samkvæmt því skal reglu- legt Alþingi 1959 koma saman föstudaginn 20. nóvember, hafi forseti íslands eigi tiltekið annan samkomudag fyrr á árinu. Frumvarpið var lagt fram af forsætisráðherra, Emil Jóns- syni, og segir m. a. í greinar-’ gerð þess, að eigi bendi lík'ur til, að alþingiskosningar á hausti komanda fari fram svo snemma, að Alþingi geti kom- ið saman á þeim tíma, sem gengið er út frá í gildandi log- um, þ. e. þ. 12. okttóber nk. Yngri bróðirinn skœður keppinaufur aflakóngsins HINN KUNNI aflamaður Eggert Gíslason á Víði II úr Garði er sagð- ur hafa látið þau orð falla í sam- bandi við síldveiðarnar, að hann myndi þurfa að gæta sín fyrir Þorsteini bróður sínum. Þetta virð- ist ekki hafa verið ofmælt hjá hin- um margreynda og dugmikla afla- manni, Eggert á Víði II, því Þor- steinn bróðir hans, sem þó er ekki sjómaður að aðalatvinnu, er nú orðinn skæður keppinautur afla- kóngsins. Einn af lesendum Mbl., sem dag- lega fylgist með síldveiðifréttum af miklum áhuga, benti blaðinu á það í gær, að skipstjórinn á vél- skipinu Jón Kjartansson frá Eski- firði, væri Þorsteinn, bróðir Eggerts á Víði II. Þorsteinn er barnakenn- ari í Gerðum 1 Garði og er bú- settur þar með fjölskyldu sína, en hann mun vera maður um þrítugt. Um síðustu helgi var Jón Kjart- ansson kominn með 11.133 mál og tunnur. Síðan hefur skipið, þrátt fyrir óhagstætt veður bætt við sig verulegum afla, kom til dæmis í gær inn til Vopnafjarðar með 550 mál. Á laugardaginn var Víðir II, sem er aflahæsta skipið, með 13.725 mál. Þorsteinn barnakennari var með þennan sama bát á síldarvertíð í fyrra, og aflaði pa einnig mjög vel. — Þorsteinn mun vera alvanur sjó- maður. Foreldrar þessara óvenju aflasælu bræðra eru einnig búsett suður í Gerðum í Garði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.