Morgunblaðið - 30.08.1959, Page 6
6
MORVTJlVnT, AÐTÐ
Sunnudagur 30. ágúst 1959
Ögurkirkja 100
ara
Að lokinni guðsþjónustu mun
Kristján Jónsson frá Garðstöðum
rekja sögu kirkjunnar.
Afmælisins minnzf með háfíða-
guðsþjónusfu í dag
KIRKJAN í Ögri viS ísafjarðardjúp á í dag 100 ára afmæli. Er
þess minnzt með hátíðaguðsþjónustu í kirkjunni og prédikar séra
Jón Auðuns, dómprófastur.
Kirkjan í Ögri, sem er allstór timburkirkja var reist árið 1859
Ml hjónunum Þuríði Þiðriksdóttur og Hafliða Halldórssyni. Er hún
hið stæðilegasta guðshús og mun á sínum tíma hafa verið meðal
stærstu sveitakirkna á íslandi. En áður var torfkirkja í Ögri. —
Séra Daníel Jónsson var prest-
ur í Ögurþingum árið 1859. Meðal
presta er þjónað hafa Ögurkirkju
síðan eru séra Jón Bjarnason,
séra Páll Sívertsen, séra Sigurð-
ur Stefánsson í Vigur, sem var
prestur í Ögurþingum árin 1881—
1924, séra Óli Ketilsson, séra
Magnús Guðmundsson og séra
Rögnvaldur Jónsson, sem lét af
prestskap í ögurþingum fyrir
skömmu. Er Ögurkirkju nú þjón-
að af prófasti Norður-ísafjarðar-
sýsluprófastsdæmis, séra Sigurði
Kristjánssyni á ísafirði.
í dag eru 105 ár liðin frá fæð-
ingu Sigurðar Stefánssonar. Af
öðrum prestum sem þjónað hafa
Ögurkirkju um skeið, má nefna
séra Sigurgeir Sigurðsson síðar
biskup, er var prófastur á fsa-
firði og séra Þorstein Jóhannes-
son í Vatnsfirði, er einnig var
lengi prófastur Norður-ísafjarðar
sýsluprófastsdæmi
Ögurkirkjan hefur undanfarið
verið máluð utan og innan. Einn-
ig hafa kirkjunni borizt ýmsar
gjafir í tilefni af 100 ára afmæli
hennar. Er gert ráð fyrir að marg
ir verði við messu á hinu forna
höfuðbóli að Ögri í dag.
Þing Kvenfélaga-
samLandsins sett
á morgun
Á MORGUN, ménudag, hefst í
Reykjavík þing Kvenfélagasam-
bands íslands. Sitja þingið um
40 fulltrúar frá kvenfélagasam-
böndum landsins og stendur það
í fjóra daga. Forsetafrú Dóra
Þórhallsdóttir verður viðstödd
setningu þingsins.
Setningarathöfnin hefst með
guðsþjónustu í Oddfellowhúsinu
kl. 10,30 og annast sr. Óskar Þor-
láksson hana. Að því loknu flyt-
ur Guðrún Pétursdóttir, form.
Kvenfélagasambandsins, ávarp.
Þá verða fluttar skýrslur og rædd
störf sambandsin^. Kl. 5 talar
Hákon Guðmundsson, hæstarétt-
arritari, um heimilisskrúðgarða.
Þinginu heldur svo áfram á
þriðjudagsmorgun. Þá flytur
Steinunn Ingimundardóttir, hús-
mæðraráðunautur sambandsins,
erindi, og síðari hluta dags verð-
ur skýrsla frá milliþinganefnd
um orlofsfé húsmæðra.
skrifar úr
daglega lífinu
Oft meiri ástæða
til að kvarta.
ÞÁ er síldin sennilega að hugsa
um að fara að yfirgefa okk-
ur. Ekki þori ég að kasta á hana
kveðju, eins og eitt dagblaðið
hér í bæ gerði um daginn, þegar
síldin var komin 70 mílur austur
fyrir land og haldið var að nú
væri hún alveg að hverfa frá
landinu. Varla hafði blaðið birt
mynd af henni og prentað stórum
stöfum „Vertu sæl, elskan, og
komdu næsta ár“, fyrr en síldin
var snúin við og komin um 30
mílum nær landi aftur.
Enginn getur reiknað út upp
á hverju síldin kann að taka.
Hún bara fer sínu fram og gefur
okkur langt nef. í sumar lét hún
svo lítið að stanza hjá okkur
lengur en í mörg sumur áður,
en helminginn af tímanum hélt
hún sig við Austurlandið, þar
sem ekki er viðbúnaður til ið
taka á móti henni í stórum stxl.
Stór. verksmiðjurnar fyrir norð-
an héldu áfram að standa auðar
mikinn hluta sumars, og mann-
skapurinn þar að ganga um auð-
um höndum. Við megum kannski
bara þakka fyrir að hún skyldi
ekki koma að Vestfjörðunum, í
nánd við verksmiðjurnar, sem
lagðar voru niður fyrir mörgum
árum.
En hvað um það, síldaraflirvn
er oröixui ágætur, og margir koma
nú heim af síldinni með góðan
skilding í vasanum. Um síðustu
helgi var aflinn orðinn 200
milljónir og vinnulaunin komin
nálægt 130 milljór.um. Það hefur
oft verið meiri ástæða til að
kvarta.
Vatnl veitt yfir koll
vegfarenda.
ONA nokkur hringdi til Val-
vakanda fyrir nokkrum dög-
um. ún hafði farið í Austurbæj-
arbíó með manninum sínum á 9
sýningu. En þegar þau hjónin
komu út, var komin úrhéllis-
rigning, eins og æði oft kemur
fyrir hér í Reykjavík.
Hjónin hröðuðu sér niður Lauga
veginn, ásamt fjöldamörgum öðr
um vegfarendum. En leiðin vai
;-kki greið. Þáð bunaði úr renn
unum á mörgum húsunum ofan
á þá, sem um götuna gengu, svo
fólkið varð annað hvort að hörfa
út á götuna, út í umferðina, eða
láta sig hafa það, að ganga í
steypibað. Þeir, sem tóku seinni
kostinn, voru æði illa útleiknir
er niður á torg kom.
Hvernig er það, er ekki hægt
að skylda húseigendur til að hafa
heilar þakrennur á húsum sínum
við fjölfarnar götur? „Frelsi þitt
endar, þar sem nefið á mér byrj-
ar“, sagði maðurinn, þegar veg-
farandi sveiflaði stafnum sínum
í xxefið á honum, og taldi sig sv<
frjálsan að því að sveifla sínum
eigin staf út á götu. Sama er að
segja í þessu tilfelli.Lóð húseig-
andans nær aðeins út að götu.i.ri
og hann hefir ekki rétt til að veita
vatni út yfir kollinn á vegfar-
endum, sem þar er ætlaður stað-
ur.
Tæknilegt rit.
ÆKNIN skipar sífellt meira
rúm í okkar þjóðfélagi og
ál.ugi manna fyrir vísindum og
tækni fer sívaxandi. Einu sinni
kvartaði ungur maður yfir því
í dálkum Velvakana, að hér
vantaði alveg sæmilegt rit um
tækni, fyrir þá, sem ekki skilja
erlend tungumál, ekki sízt þar
sem útskýringar á tæknilegum
hlutum eru oft fullerfiðar þó
kunnáttuleysi í málinu bætist
ekki við.
Nú hefur þessi sami maðiT
komið að máli við Velvakanda
og skýrt frá því, að um skeið
hafi hann lesið „Flugmál og
tæk..i“, j sé hann harðánægð .r
með það. Það sé einmitt þess
háttar rit, sem hann átti við, er
kvörtun hans birtist. Þar séu oft
fróðlegar greinar um bíla og flug
vélar og alls kyns nýjungar. Vildi
hann ekki láta undir höfuð leggj
ast að lýsa yfir ánægju sinni með
það, ekki síður en óánægju sinni,
er ekkert slíkt rit var tiL
— Laos
Frh. af bls. 3.
Krúsjeff fyrir það að fara til
Bandaríkjanna eða þeir óttist
samninga milli Rússa og Banda-
ríkjanna, sem yrðu á kostnað
Kinverja.
Þessar hugmyndir um sjálf-
stæði Kínverja gagnvart Rússum
virðast þó ólíklegar, þegar betur
er að gáð. Kína er í rauninni
ekkert stórveldi, þrátt fyrir alla
mannmergðina. Það er fátækt og
máttlaust og algerlega háð Rúss-
um með iðnaðarvörur, vélar og
hergögn. Kínverjar eiga í mikl-
um erfiðleikum um þessar
mundir, vegna þess, hve ógæfu-
samlega hefur tekizt með stofn-
un hinna svonefndu kommúna.
Skortur er á matvælum og öllum
nauðsynjum, eftir þær misheppn
uðu þjóðfélagstilraunir og gjald-
eyrisöflun af útflutningsafurð-
um hefur skyndilega þorrið. Kín
verjar hafa því aldrei verið verr
undir það búnir en einmitt nú
að hefja styrjöld, en ef innrás-
inni í Laos verður haldið áfram
mun henni verða veitt öflug
mótspyrna þegar fram í sækir og
ekki óeðlilegt að nágrannaríki
Lí.os og jafnvel 3andaríkin komi
stjórninni þar til aðstoðar.
Þess vegna er miklu líklegra,
að það séu einmitt Rússar sem
standa að baki stríði því sem nú
er á byrjunarstigi í Laos. Það
var Ijóst að þeir stóðu þétt að
baki Kínverjum, þegar skothríð-
in var hafin á s.l. ári á Quemoy-
eyju og þegar Kínverjar bældu
niður uppreisnina í Tíbet, fóru
rússneskar hersveitir frá Síberíu
inn í vesturhluta landsins. Öll
hergögn sem notuð eru í þessum
nýja skæruhernaði koma sem
fyrr frá Rússum. Enn sem fyrr
er það sjálfur Krúsjeff sem er
kcngulóin í netinu og hefur alla
þræðina í hendi sér — getur
kippt í þá, hvenær sem honum
þóknast.
Þeir, sem þannig líta á málin,
telja það ekkert óvenjulegt, þótt
Rússar stofni til óróa í Asíu,
meðan þeir boða samningsfýsi í
málefnum Evrópu. Slíkt hefur
upphafi, sambland af blíðmælgi
upphafi, sambland af blíðmælgi
og hótunum, árás á einum stað
til að draga athyglina frá öðrum.
Borgarastyrjöld í I.ao5
Eins og árásarríki gera venju-
lega hafa kommúnistar nú valið
sér að fórnarlambi það ríkið sem
er veikast og varnarminnst. Laos
er lítt þróað háfjalla- og frum-
skógaríki með litlum samgöng-
um og ófullkomnu stjórnvaldi.
Um langt árabil hafa sundrung
og erjur ráðið í stjórnmálalífi
landsins. Það hefur lítinn og ófull
kominn her og má heita varnar-
laust gegn skæruliðahernaði kom
múnista, sem lengi hefur staðið
í nyrztu héruðunum.
Laos er um 230 þúsund fer-
kílómetrar að stærð og íbúatala
þess áætluð um iy2 milljón. —
Löngum hefur það verið konungs
ríki er konungurinn nú gam-
all og farinn maður. Laos var
hluti af lendum Frakka í Indó-
Kína og var einangraðasti hluti
þeirra. Það nær hvergi að sjó, en
stórfljótið Mekong rennur um
það og er helzta flutningaæðin
um landið. Á láglendinu við Me-
kong býr meginhluti íbúanr.a og
eru þeir skyldir íbúum Síams.
Aðalfundur stétt-
arsambands bænda
7.--0* sept.
DACANA 7.—8. september verð-
ur aðalfundur stéttarsamands
bænda haldinn að Bjarkarlundi
í Barðastrandarsýslu. 47 full-
trúar eiga sæti á fudinum, en
auk þeirra munu stjórn, starfs-
men í og gestir sitja hann, alls
um 70 manns. Helztu mál á dag-
skrá verða verðlagsmál land-
búnaðarins, kaupgjaldsmál og al-
menn félagsmál. Formaður Stétt
arsambands bænda er Sverrir
Gíslason.
En í hálendinu og hinum miklu
frumskógum búa ótal frumstæð
ir ættflokkar. Einmitt þar, við
landamæri Viet-Nam og Kína haf
ast skæruliðar kommúnista við
og hefur veikum ríkistjórnum
landsins reynzt um megn að
uppræta þá.
Þegar samið var um vopnahlé
í Indó-Kína 1954, var ákveðið að
Laos skyldi vera sjálfstætt, hlut-
laust ríki. Var þá litið svo á,
að skæruliðar kommúnista hefðu
á valdi sínu tvö nyrztu héruð
L&os sem nefnast Phong Saly og
Sam Neua eftir samnefndum að-
albæjum þeirra. Var vopnahló
samið á þeim grundvelli, að kom-
múnistar héldu þeim. Skipuð
var vopnahlésnefnd sem í áttu
sæti fulltrúar frá Kanada, Ind-
landi og Póllandi. Nokkur óá-
nægja ríkti með starf hennar,
þar sem pólski fulltrúinn notaði
aðstöðu sína til að styrkja undir-
róðursstarfsemi kommúnista 1
landinu.
Árið 1957 gerðu stjórn landsins
og kommúnistar þann samning að
kommúnistar skyldu leggja nið-
ur vopn og hersveitir þeirra
ganga inn í stjórnarherinn. — Á
móti þessu skyldi helzti foringi
kommúnista Souphannouvong
prins fá sæti í ríkisstjórninni.
Savannakone
kemur til sögunnar
Þetta samkomulag hefur nú
verið rofið og ber deiluaðiljum
ekki saman um, hver á sök á þvL
Það mun hafa verið ætlun kom-
múnista með samkomulaginu að
reyna að ná völdum i landinu
eftir stjórnskipulegum leiðum. í
ófullkomnum kosningum, sem
fram fóru kom í ljós að milli 30
og 40% þjóðarinnar fylgdi þeim
að málum. En afleiðingin af því
varð aftur sú, að hin andkom-
múnísku öfl í landinu sameinuð-
ust og við völdunum tók harð-
skeyttur og bráðduglegur maður
að nafni Savannakone.
Eftir valdatöku hans og eink
um og sér í lagi eftir atburðina
í Tíbet, sem hafa snúið Búddha-
tríar þjóð Laos gegn kommún-
istum hafa þeir aftúr misst von-
ina um að geta náð völdum með
stjórnskipulegum aðferðum.
Það var eitt af fyrstu verkum
hins nýja forsætisráðherra að
láta leggja niður vopnahlésnefnd
ina, þar sem vopnahlcsastandi
væri aflýst með samkon.ulaginu
frá 1957. Hann gerði og ráðstaf-
anir til að hindra að kommún-
istahersveitirnar, sem teknar
voru inn í herinn, gætu rekið
skemmdarstarfsemi i honum og
þegar þær snerust á móti þeim
aðgerðum, svaraði hann með því
að lýsa því yfir að þar með hefðu
kommúnistar rofið samkomulag-
ið og það væri úr sögunni.
Árekstrarnir eru því í sjálfu
sér aðeins nýr þáttur í langri
borgarastyrjöld í Laos og bein
afleiðing þess, að kommúnistar
kcmu ekki vilja sínum fram en
mættu sterkri mótspyrnu. — En
hitt er alvarlegra, að öfl utan
ríkisins hafa hönd í bagga með
þessum málum.
Þótt samgönguleysl valdi
því að fréttir af atburðunum
í Laos eru óljósar, er enginn
vafi á því, að alvop.iaður inn-
rásarher hefur ráðizt inn yfir
landamærin frá kommúnista-
ríkinu Norður-Vietnam. Að
áiiti fróðustu manna eru um
5000 hermenn í innrásarliðinu.
Mest megnis eru þeir I.aos-
menn að upprur.a, sem hafa
fengið vopn og l.ernaðarþjáif-
un í Norður Vietnam. Einnig
eru öruggar fréttir af því að
174. hersveit Norður Vietnam
hafi tekið sér stöðu skammt
vestur af bænum Sam Neua í
Laos.
Árekstrarnir í Laos hafa
enn verið í smáum stil, enda
er landið á þessum slóðum
mjög torvelt yfirferðar og
regntími hafinn. Engra úrslita
bardaga er að vænta á næst-
unni. En ekki er hægt að líta
fram hjá því, að atburðirnir
eru í eðli sínu innrás í sjálf-
stætt ríki og er að vænta að
það fái stuðning írú öðrum ná-
grannarikjum sínum og jafn
vel frá Bandaríkjunum, ef
sjálfstæði þess verðui aukin
hætta búin.