Morgunblaðið - 30.08.1959, Síða 11

Morgunblaðið - 30.08.1959, Síða 11
Sunnudaerur 30 aeust 1959 MORCTlNBLAfllÐ 11 REYKJAVÍKURBRÉF Laugard- 29. águst 761 nýbýli sl. 12 ár Þegar farið er um íslenzkar sveitir í dag verður það ekki aðeins ljóst, að jarðir hafa ver- ið byggðar upp og ræktun þeirra stóraukin, heldur hefur fjöldi nýrra býla risið víðs vegar um land. Samkvæmt upplýsingum, sem blaðið fékk hjá Pálma Ein- arssyni landnámsstjóra fyrir skömmu hefur síðastliðin 12 ár verið samþykkt að stofna sam- tals 761 nýbýli. Af þessum býl- um eru 630 hrein nýbýli en 131 býli eru endurbyggð á eyðijörð- um. Þá hafa 65 eldri bæir verið færðir til betri skilyrða innan landareignar hlutaðeigandi bónda. í árslok 1957 voru 564 af fyrr- greindum 761 nýbýlum komin í fullan búrekstur. Höfðu þá ver- ið ræktaðir á þessum býlum 3630 hektarar. Meðalræktun á býli verður þannig um 7 hektarar. Á árinu 1958 bættust svo við 100 nýbýli, sem nú eru nokkurn veg- inn komin í fullan búrekstur. Á árinu 1957 voru á þessum 564 býlum samtals 2856 mjólkandi kýr eða 6,85 fullmjólkandi kýr á býli. Ennfremur áttu ábúendur býlanna á því sama ári 54362 kindur, eða að meðaltali 109 á býii. Á árunum 1958 og 1959 hefur bætzt töluvert við þennan bú- stofn nýbýlabændanna. 1 fardögum á þessu ári voru þannig um 640 fullbyggð nýbýli í landinu. Á árinu 1958 voru samþykkt um 70 nýbýli, 9 upp- byggingar á eyðijörðum og 9 bæj artilfærslur til betri búnað- arskilyrða. Á árinu 1959 er búið að sam- þykkja aðstoð við um 50 ný ný- býli en óafgreiddar eru 50—60 umsóknir um aðstoð við nýbýli. í öllum landshlutum Nýbýlin sem reist hafa ver- ið síðastliðin 12 ár eru í öll- um sýslum og landshlutum. Landnám ríkisins og nýbýla- stjórn hafa forystu um stjórn nýbýlamála. Formaður ný- býlastjórnarinnar er Jón Pálmason bóndi á Akri, fyrr- verandi alþingisforseti. Land- námsstjóri er eins og kunnugt er hinn þekkti búnaðarfröm- uður Pálml Einarsson. Skortur á lánsfé torveldar ný- býlamyndanir verulega. En mik- ill áhugi ríkir meðal ungs fólks í sveitum landsins fyrir nýju landnámi og uppbyggingu nýrra býla. Hátt á fjórða þúsund manna munu nú búa á þeim ný- býlum, sem reist hafa verið sl. 12 ár. Nýbýlalöggjöfiu Fyrsta löggjöfin sem sett var um nýbýlamyndanir er frá ár- inu 1936. En á árinu 1946 hafði Pétur heitinn Magnúss'on og ný- sköpunarstjórnin forustu um nýja löggjöf á þessu sviði. Kom hún til framkvæmda á árinu 1947 og hefur síðan verið byggt á grundvelli hennar í þessum mál- um. Þessi löggjöf var síðan end- urskoðuð á árinu 1957. Brýna nauðsyn ber til þess að haldið verði áfram stuðningi við uppbyggingu nýbýla í landinu. Margt ungt fólk í sveitum lands- ins, sem hefur áhuga fyrir að hefja búskap, brestur til þess alla möguleika sökum fjárskorts. Enda þótt lán séu veitt til bygg-' ingar íbúðar- og fénaðarhúsa er — Hátt á fjórða þúsund nýbýlafólks. yfirleitt ekki hægt að fá lánsfé til bústofns- og vélakaupa. Veð- deild Búnaðarbankans er einnig févana og jarðakaup ungra manna því miklum erfiðleikum bundin. En hið nýja landnám í is- lenzkum sveitum verður að halda áfram. Góð framleiðslu- skilyrði verður að hagnýta sem víðast á landinu. Það er ekki aðeins hagsmunamál sveitanna og þess fólks, sem þar býr heldur þjóðarinnar allrar. Endurnýjun togaraflotans Eins og kunnugt er lofaði vinstri stjórnin því að láta byggja 15 nýja togara. Voru sett um þetta lög og ríkisstjórninni heimilað að veita þeim, sem hin nýju skip keyptu ákveðinn stuðn ing, sem var með svipuðum hætti og sá stuðningur, er veitt- ur var þegar nýsköpunartogar- arnir voru smíðaðir og fluttir til landsins. En vinstri stjórnin sveik þetta fyrirheit sitt eins og flest önnur. Enda þótt Lúðvík Jósefsson lýsti því yfir hvað eftir annað, að sendiboðar hans væru farnir utan til þess að semja um lántökur og smíði hinna 15 nýju togara þá kom aldrei einn einasti þeirra til landsins. Vinstri stjórnin fékk aldrei lán til þess að unnt væri að ráðast í ráðgerða endurnýj- un togaraflotans. Á sjómannadaginn í sumar lýsti núverandi forsætisráðherra því yfir, að ríkisstjórnin hyggðist beita sér fyrir því, og hefði haft samráð um það við Seðlabank- ann að veitt yrðu á yfirstandandi ári og næsta ári innflutnings- og gjaldeyrisleyfi fyrir allt að 8 nýjum togurum. Síðar var það upplýst á Alþingi, að ekki hefði ennþá verið gengið frá lántökum vegna þessara skipakaupa en inn- flutningsleyfi munu hafa verið veitt fyrir fjórum togurum á þessu ári. 4-5 skip á ári Um það þarf ekki að fara í neinar grafgötur að nauðsyn ber til þess að endurnýja togaraflota landsmanna. Skipin sem keypt voru fyrir forgöngu nýsköpunar- stjórnarinnar á sínum tíma eru sum tekin að ganga úr sér, og ýmsar breytingar hafa gerzt í smíði togara síðastliðinn áratug. Eðlilegast og skynsamlegast væri að íslendingar endurnýjuðu tog- araflota sinn smám saman með því að láta byggja til dæmis 4 —5 skip á ári nokkur næstu ár- in. Mun óhætt að fullyrða að unnt muni nú vera að útvega erlent lánsfé til þessara skipa- kaupa. Það verður eitt af hlutverk- um nýrrar ríkisstjórnar í landinu að beita sér fyrir endurnýjun togaraflotans. — Togararnir eru ennþá stór- virkustu framleiðslutæki okk- ar og til þess ber brýna nauð- syn að við fylgjumst með nýjungum, sem stöðugt ger- ast á sviði fiskiskipabygg- inga og veiðitækni. Svartsýni Fram- sóknar á framtíð sveitanna Framsóknarmenn halda því fram, að þeir hafi haft forystu um allt er til heilla horfir fyrir íslenzkar sveitir og landbúnað. Er það vitanlega hið mesta rang- hermi. Stefna Framsóknar í landbúnaðarmálum hefur oft mót azt af furðulegri þr,öngsýni og afturhaldi. Kom það meðal ann- ars greinilega í ljós þegar fyrsta frumvarpið var flutt um raf- væðingu sveitanna, fyrir frum- kvæði þeirra Jóns Þorlákssonar og Jóns á Reynistað. Þá snerust Framsóknarmenn gegn þeirri til- lögu og formaður Framsóknar- flokksins lýsti því yfir, að hag- nýting vatnsaflsins í þágu strjál- býlisins myndi „setja landið á hausinn“!! Þegar Sjálfstæðismenn beittu sér fyrir fyrstu virkjun Sogsins og fluttu frumvarp um það á Al- þingi árið 1931 rauf Framsókn- arflokkurinn þingið til þess að forða þeim voða, sem af því leiddi ef ráðist yrði í slíka stór- virkjun, í senn fyrir höfuðborg- ina og þéttbýlustu sveitir lands- ins. „Tíminn“ kallaði þá fyrir- hugaða virkjun Sogsins „samsæri andstæðinga Framsóknarflokks- ins“. Sem betur fer hafa Framsókn- armenn nú snúið frá þessari villu sinni, og árið 1953 tóku þeir þátt í því með Sjálfstæðis- flokknum að gera djarfhuga framkvæmdaáætlun um rafvæð- ingu sveitanna á næstu tiu árum. En alltaf öðru hverju gloppast upp úi Framsókn- armönnum uraraæli, sem sýna ótrúlega svartsýni þeirra á framtíð sveitanna. Það vakti til dæmis mikla athygli þeg- ar skólastjóri búnaðarskólans á Hólum, sem var einn af frambjóðendum Framsóknar- flokksins í Skagafirði í sið- ustu kosningum, lýsti því yfir á fundi á Sauðárkróki sl. vor að hann væri þess fullviss að fólki í Skagaf jarðar- og Húna vatnssýslum mundi fækka stórkostlega á næstu árum. Rakalaus hrakspá Þessi hrakspá Framsóknar- frambjóðandans í Skagafirði á ekki við nein rök að styðjast. Fólki hefur farið fjölgandi í öll- um þessum héruðum á undan- förnum árum. Þar hafa verið unnin stórvirki í ræktunarmál- um og mikill fjöldi bænda hef- ur byggt upp á jörðum sínum glæsileg íbúðar- og peningshús. Allt bendir þess vegna til þess að fólki muni halda áfram að fjölga í þessum héruðum á næstu árum, að minnsta kosti ef sæmi- lega verður að landbúnaðinum búið. Yfirleitt má gera ráð fyrir því að fólki taki á næstunni heldur að fjölga í sveitum landsins. Eins og getið er um hér að ofan er nú á ári hverju byggður fjöldi nýbýla, og víðsvegar um land hefur aðstaða til búnaðar batn- að svo mjög, að ástæða er til þess að ætla að vaxandi áhuga gæti meðal ungs fólks fyrir land- búnaðarstörfum. Svartsýni Framsóknarflokks- ins á framtíð landbúnaðarins er þess vegna ástæðulaus. Þessi gamli undirstöðu-atvinnuvegur þjóðarinnar er að hefjast til nýs vegs meðal íslendinga eftir að tæknin var tekin í þjónustu hans og almennari skilningur skapað- ist á því að fólkið í strjálbýl- inu verður að búa við sambæri- leg lífskjör og það fólk, sem byggir béttbýlið og hina stærstu kaupstaði. Hvorki vinstri- flokkur né milli- flokkur I áratugi hafa Framsóknar- menn haldið því fram að flokk- ur þeirra gegni fyrst og fremst hlutverki „milli-flokks“ í ís- lenzkum stjórnmálum. Hann ætti að berjast gegn öfgunum til hægri og vinstri. En á síðasta Alþingi lýsti einn af þingmönn- um flokksins því yfir, að á þessu hefði orðið mikil breyting. Nú væri svo komið að Framsóknar- flokkurinn sé „hinn eini sanni vinstri flokkur“. Samkvæmt yfirlýsingum for ystumannna Framsóknar- flokksins er hann sem sagt ekki lengur „milli flokkur" heldur „vinstri flokkur“. — Jafnhliða því sem Ieiðtogar flokksins lýsa þessu yfir gera S Nokkur nýbýli, sem reist J i hafa verið á undanförnum ár- > • um, talið frá vinstrir Kvistir, Í i Hlíðartunga, Lambhagi og • i Nautaflatir, öll í nýbýlahverf- j ■ inu í Ölfusi í Árnessýslu. 1 S Lengst til hægri er nýbýlið ■ i Höfðabrekka við Lindar- \ • brekku í Kelduhverfi i Norð- \ S ur-Þingeyjarsýslu. þeir hinum sósíalisku flokk- um það kostaboð að ganga, helzt í heilu lagi, í Fram- sóknarf lokkinn! Eftir er nú að sjá, hvernig kommúnistar og Alþýðuflokks- menn taka þessu tilboði Fram- sóknarmanna. En athyglisvert er það, hvernig stjórnarsamvinnan í vinstri stjórninni hefur leikið þessa tvo flokka, sem kenna sig báðir við verkalýðinn. Báðir þessir flokkar hafa stórtapað fylgi vegna stjórnarsamvinnu sinnar við Framsóknarflokkinn. Kom þetta greinilega fram, bæði í bæjarstjórnarkosningunum, sem fram fóru veturinn 1958 og í alþingiskosningunum í sumar. Hafa kommúnistar aldrei tapað eins stórlega fylgi og í þessum kosningum. í þessum staðreyndum felast merkilegir lærdómar, sem þessir flokkar geta dregið af þýðingar- miklar ályktanir. Samvinna „verkalýðsflokka" við Fram- sóknarflokkinn leiðir ævinlega til ófarnaðar fyrir þá. Það sýn- ir reynsla Alþýðuflokksins á ár- unum 1934—1938 og reynsla kommúnista og Alþýðuflokksins í hinni síðari vinstri stjórn Her- manns Jónassonar. Verkalýður- inn í landinu vantreystir Fram- sóknarflokknum. Fólkið veit, að Framsóknarflokkurinn er ekki venjulegur stjórnmálaflokkur heldur hentistefnuflokkur, sem allt miðar við pólitíska klíku- hagsmuni sína, en lætur sér hagsmuni almennings í léttu rúmi liggja. Engin stjórn hefur verið íslenzkum launþegum jafn þung í skauti og vinstri stjórnin. Hún lagði gífurlegar nýjar skatta- og tollabyrðar á almenning, rýrði kaupmátt launa en skaraði á óskammfeilinn hátt eld að köku fégírugs auðhrings. Þetta er reynsla almenn- ings af vinstri stjórninni, og það sætir vissulega engri furðu þótt þeir flokkar tapi fylgi og trausti meðal fólks- ins, sem studdu Framsóknar- flokkinn til forystu í þessari lánlausustu stjórn, sem hér hefur farið með völd. En þegar þannig er komið að samvinna verkalýðsflokkanna við Framsóknarflokkinn er búin að firra þá fylgi og trausti, þá lýsa leiðtogar Framsóknarflokks- ins því yfir, að Alþýðuflokkur- inn og kommúnistaflokkurinn eigi í raun og veru einskis ann- ars úrkosta en að ganga hrein- lega í Framsóknarflokkinn. — Þannig er hugsunarháttur Tíma- liðsins. Það reynir í lengstu lög að nota verkalýðsflokkana sem skóþurrkur og aðstoðarmenn til alls konar •glapræðis og óhappa- verka gagnvart almenningi. Síð- an kenna þeir samstarfsmönnun- um um allt það sem miður hef- ur farið og bjóðast til þess að gleypa þá, í þakkarskyni!!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.