Morgunblaðið - 02.09.1959, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 02.09.1959, Blaðsíða 6
6 MÖRTtTJIVBLAÐIÐ Miðvilíu'dagur 2. sept.1959 Orlofsfé húsmædra rætt á þingi Kvenfélaga- sambandsins í gær Fulltrúar á þingi Kvenfélagasambandsins á fundi í gær. 13. LANDSFUNDUR Kven- félagasambands íslands stend ur þcssa dagana yfir í Tjarn- arkaffi í Reykjavík, eins og áður hefur verið frá skýrt, og eru þar mættir 44 fulltrúar frá 214 félögujn um land allt. 1 gær var tekið fyrir eitt aðal- mál þingsins, orlof húsmæðra. — Frú Herdís Ásgeirsdóttir, for- maður milliþinganefndar í orlofs- málinu, lagði fyrir fundinn frum- varp til laga, sem nefndin hefur samið í þeim tilgangi að það verði lagt fyrir alþingi. Hakti frú Herdís gang málsins, frá því það var tekið upp hjá kvenfélaga pambandinu árið 1955 og skýrði nauðsyn þess að það mál kæmist ( framkvæmd. Komst hún m. a. þannig að orði: „Okkur er öllum ljóst, hversu brýn þörf er fyrir hús- mæðraorlof einmitt nú, því áður fyrr var algengt að ein og tvær stúlkur voru á heimilunum. Þá gátu húsmæður notið margra frí- (tunda. Nú er aftur á móti óvíða um heimilishjálp að ræða, jafn- vel þótt húsmæður hafi stór heim |li og séu með barni. Það er (ilvörumál, ef stór hópur hús- mæðra bíður tjón á heilsunni að meira eða minna leyti.“ Allar húsmæður fái orlofsfé Það kom fram í ræðu frú Her- dísar, að síðan fyrst var rætt um orlof húsmæðra á landsfundi Kvenfélagasambandsins, hefur ætíð verið unnið að því í nefnd- um, með útvegunum á nauðsyn- legum upplýsingum og umræðum á þingum samtakanna. Á for- mannafundi árið 1958 lagði nefnd in svo fram tillögur í fimm liðum og er frumvarp það sem nú kemur fram að mestu byggt á þeim, en í frumvarpinu er m. a. gert ráð fyrir að komið verði á fót orlofsnefndum á starfssvæði hvers héraðssambands kvenfé- laga, er hefði það hlutverk að sjá um veitingu orlofsfjár o. s. frv., að fjár sé aflað með því að hver húsmóðir frá 18—65 ára greiði árlega í orlofssjóð kr. 10 að viðbættri vísitölu og að ríki og bæjar- og sveitafélög leggi fram fé á móti. Hétt til orlofs- fjár eigi allar konur, sem veita heimili forstöðu án launa- greiðslna og gert er ráð fyrir að höfð verði samvinna við fé- lagsmála- og menntamálaráðu-, neytið um afnot skóla og ann- arra opinberri bygginga, meðan ekki séu reist sérstök orlofsheim- ili. — Barnastúka Stykk- ishólms á ferðalagi STVKKISHÓLMI, 1. sept. — Síð- astliðinn fimmtudag fór Barna- stúkan í Stykkishólmi í skemmti- ferð til Akraness. Á annað hundr- að börn tóku þátt í förinni, sem farin var í langferðabifreiðum frá Bifreiðastöð Stykkishólms. Á Akranesi skoðuðu börnin m. a. sundlaugina og Sementsverk- smiðjuna, en stúkufólk bauð öll- um hópnum upp á mjólk og kök- ur í Templaraheimilinu. Var set- ið þar að ánægjulegu borðhaldi langa stund. Óðinn Geirdal, skrif stofustjóri, bauð hina ungu gesti og fylgdarmenn þeirra velkomna, en gæzlumaður barnastúkunnar í Stykkishólmi, Árni Helgason, þakkaði móttökurnar. Ferðin tókst í alla staði mjög vel og var hin skemmtilegasta. Hópurinn sendir kærar kveðjur og þakkir til þeirra, sem tóku á móti honum á Akranesi — Fréttaritari. Eftir formannafundinn 1958 var leitað undirtekta forráða- manna húsmæðraskólanna og voru þær mjög vinsamlegar. Þá fengu konur málið til umræðu heima í samböndunum. Aust- firzka sambandið reið svo á vað- ið og fékk húsmæðraskólann á Hallormsstað, þar sem konum var komið fyrir til orlofsdvalar. Sótti sambandið um orlofsfé til félagsmálaráðuneytisins af því fé sem veitt er af ríkinu til or- lofs húsmæðra, en fékk ekki svar. „Af þessu sjáum við hversu brýn þörf er á því að við sam- þykkjum frumvarp það sem fyrir liggur, svo unnt sé að fá nauð- synlegt fé til orlofsstarfsins, svo það kafni ekki í fæðingunni, sagði frá Herdís. Við vitum að sáralítið af orlofsfé því er ríkið hefur veitt hefur runnið í sveitir landsins og tími til kominn að breyting verði á þeim misrétti". Að ræðu frú Herdísar lokinni urðu umræður um málið og tóku margar konur til máls. Sagði stjórnin að málinu yrði vísað til heilbrigðis- og félagsmálanefnd- ar. Samstarf húsmæðraráðunauta og búnaðarráðunauta Er fundir hófust í gærmorgun, flutti húsmæðraráðunautur Kven félagasambandsins, Steinunn Ingi múndardóttir skýrslu og ræddi starf sitt. Síðan fyrsta marz s.l. hefur hún komið í 24 félagsdeild- ir, setið fund SSK á Selfossi í júní, hitt 615 konur um land allt, sýnt áhöld á 14 stöðum og skugga myndir á 19, og þar að auki gert riss að 6 eldhústeikningum fyr- ir húsmæður í sveitum. Þá minntist Steinunn á það, að sú skoðun væri almenn að fjölga þyrfti heimilisráðunautum, svo að verulegt gagn yrði að um- ferðakennslunni. Um þetta virt- ust allir sammála, en málið strandaði á féleysi Kvenfélaga- sambandsins eða ríkisins, því starfið væri rekið fyrir ríkis- styrk. Kvaðst hún mikið hafa velt þessu fyrir sér og rætt um það við kunningja hvar helzt væri stuðnings að leita í þessum efnum og þá lang oftast orðið niðurstaðan að Búnaðarfélag ís- lands gæti helzt orðið þar að Ég sakna fréttamyndanna. EGAR ég fer í bíó, sakna ég oft fréttamyndanna, sem hér áður voru sýndar á undan hverri kvikmynd. Nú kemur varla fyrir að slíkar myndir sjáist. Ég spurði um daginn starfs- mann í kvikmyndahúsi, hverju þetta sætti. Sagði hann að þar kæmi ýmislegt til, erfitt væri að fá myndir við okkar hæfi, og fréttamyndir væru dýrar. Kvik- myndahúsið, sem hann staríar við, gafst upp á því að fá enskar fréttamyndir til sýningar vegna þess að þær voru eingöngu mið- aðar við smekk brezkra kvik- myr.dahúsgesta, sem vilja t. d. fylgjast með hverju skrefi kon- ungsfjölskyldunnar. Þá var reynt að fá fréttamyndir fré Bandaríkj unum, en þær reyndust einnig fjalla of mikið um siys í Banda- ríkjunum, og annað sem almenn- ingur þar í landi fylgist með, en okkur varðar lítið. Samt sem áður minnist ég þess, *._fa hó. áður fyrr séð frétta- myndir, se... mér þó... i. í. Og ég sakna þess, að þær sku’.i nú alveg vera horfnar. liði. Lægju mörg rök að því: 1. Fyrst og fremst að Búnaðarfélag íslands hafi fyrst orðið til að styrkja umferðakennslu fyrir húsmæður á Norðurlandi árið 1904 með 100 kr. styrk. 2. Bún- aðarfélagið reki nú víðtæka ráðu nautastarfsemi fyrir bændur og margt af því sem búnaðarráðu- nautarnir flytja væri bæði fróð- legt og gagnlegt húsmæðrum ekkert síður en bændum. 3. Bún- aðarfélag íslands útvegi handa sínum ráðunautum ýmis nauðsyn leg kennslutæki og gögn erlendis frá, t. d. _skuggamyndir og kvik- myndir. Á meðan aðeins væri 1 heimilisráðunautur og þó þeir væru 4, gæti á þessu sviði orðið um mjög gagnlegt og hagkvæmt samstarf búnaðarráunauta og heimilisráðunauta að ræða. 4. Rúmur helmingur þjóðartekn- annan gang um geipar hús- mæðra og þar af eru landbún- aðarafurðir stór liður. Það ætti að vera áhugamál bænda að hús- mæður jafnt í byggð og bæ fræð- ist um þessa hluti. 5. Reynzla annarra þjóða, þar sem rekin er umferðakennsla fyrir húsmæður GUÐMUNDUR I. Guðmundsson flutti ávarp í gærkvöldi í út- varpið um landhelgLmálið og komst svo að orði, þegar hann hafði rætt um aðdragandann að útvíkkun fiskveiðilandhelginnar í 12 mílur: „Við vorum ekki fyrstir þjóða til að taka okkur 12 mílur. Sam- kvæmt skýrslum Sameinuðu þjóð anna höfðu um 25 þjóðir heims sett sér 12 til 200 mílna land- helgi eða fiskveiðitakmörk, án þess að verða fyrir nokkurri á- reitni annarra ríkja af þeim sök- um. Flestar þessar þjóðir höfðu gert slíkar ráðstafanir einhliða, enda sjaldan annarra kosta völ. Þegar á allt þetta er litið, verð- ur það enn furðulegra, að brezk stjórnarvöld skyldu bregðast við 12 mílna útfærslu íslendinga á þann hátt, sem raun ber vitni. SÉRSTAKAR fréttamyndasýn- ingar tíðkast mjög víða er- lendis og eru vinsælar. Eru pað gjarnan áframhaldssýningar, svo að fólk getur komið inn hvenær s-m er og farið þegar því hentai. Með fréttamyndunum eru oftast ýmis konar fræðslumyndir, teikr.j. myr.di. og að.ar stuttár myndir.. Bágt á ég með að trúa, að slíkar sýningar mundu ekki gefast vel hér líka. Varla erum við svo jfróðleiksfúsari en aðrir. Þó mun þetta hafa verið reynt á stríðsárunum. Þá sýndi a. m. k. eitt kvikmyndahúsið fréttamynd- ir og fræðslumyndir síðdegis kl, 4—5 að mig minnir. Aðgangs- cyrir »„r mun lægri en á öðrum sýning-.n. Þrátt fyrir það fékkst ekki nægileg aðsókn til að til- tækilegt þætti að halda slíku n sýni“óUin áfram. Þrátt fyrir þessar ófarir finnst mér ekki ástæða til að draga þá ályl-.un, að almenningur hér vi.ji ekki sjá fréttamyndir. E. t. v. hefur sýningartíminn ekki verið vel valinn. Mig grunar að hep. -- legra hefði verið að sýna kl. 5 —6. eftir að skrifstofum er lok- með svipuðu sniði sýna, að með nánu sambandi og samstarfi heim ilisráðunauta og búnaðarráðu- nauta næðist beztur árangur í þessari starfsemi. Tók Steinunn það að lokum fram, að Kvenfélagasamband ís- lands gæti eftir sem áður haft umsjón með alla stjórn á hús- mæðrakennslunni, þó samstarf Bretar hafa látið 25 þjóðir í friði með 12 til 200 mílna landhelgi — en ráðast svo með herskipaflota inn í landhelgi íslendinga til að ögra okkur, vopnlausri smáþjóð. í heilt ár hafa um 8 þúsund vopn- aðra sjóliða á mörgum herskip- um gætt til jafnaðar 300 fiski- manna,, sem brezk stjórnvöld hafa skipað að stunda ólöglegar veiðar við ísland, oft gegn vilja fiskimannanna sjálfra og að jafn- aði við lítinn afla. Á sama tíma hafa 25 aðrar þjóðir fengið að vera í friði fyrir Bretum í sinni 12 mílna landhelgi. Það mun ekki ofmælt, að þetta framferði Breta hafi verið for- dæmt um heim allan — og jafn- vel í Bretlandi sjálfu er vaxandi andstaða. Það er skilyrðislaus krafa fslendinga, að þessum til- gangslausu flotaaðgerðum inn- að eða jafnvel 6—7, eftir lokun- artíma sölubúða. Það verður vafalaust langt þangað til við fáum sjónvarp her á íslandi, enda er það dýrt og ýmsum erfiðleikum bundið að fá það en á meðan ættu kvik- myndai.úsin að taka að sér það hlutverk, að sýna okkur þá at- bv.rði, sem við heyrum um í út- varpinu og lesum um í blöðunum. Prentvillupúkinn gg er ekki vanur að eltast við prentvillur, sem púkinn slæðir inn í dálkana, en vona að les- endur sjái hvar þær eru á ferð- inni og kenni honum um þær en ekki mér. En í þetta sinn get ég ekki orða bundizt. í gær átti ein fyrirsögnin að hljóða svo: „Stig- ar fyrir þá, sem detta í sjóinn“, en varð „Stígur yfir þá, sem detta í sjóinn.“ Einnig var um daginn, þegar rætt var um kvik- mynd Ingmars Bergmanns, prent villa, sem gerði forsendur heils kafla nær óskiljanlegar. Velvak- andi ætlaði að benda á að þegar hann sá kvikmynd Bergmans, hafi hann minnst kafla úr grein eftir hann. Kaflinn var síðan til- færður. Fleira nenni ég ekki að tína til af glettum prentvillupúk- ans við Velvakanda. við Búnaðarfélagið og búnaðar- ráðunauta yrði tekið upp. Urðu nokkrar umræður u-m málið, og því vísað til nám- skeiða- og sambandsmálanefndar. Síðdegis í gær sátu fundarkon- ur boð forsetafrúar Dóru Þðr- hallsdóttur, að Bessastöðum. Og í gærkvöldi fóru fram ýms nefndarstörf. an 12 mílna fiskveiðilögsögunn- ar verði hætt. Þetta mál verður aldrei leyst með vopnum. Afli brezku togaranna innan íslenzkr- ar fiskveiðimarka er varla nema brot af herkostnaðinum. En hætt urnar, sem þetta ofbeldi skapar, eru alvarlegar. Við íslendingar erum sérstak- lega þakklátir bæði þeim þjóð- um, sem formlega viðurkenndu útfærslu fiskveiðilögsögunnar og þeim, sem gáfu fiskiskipum sin- um fyrirmæli um að halda sig utan við 12 mílna fiskveiðilög- sögu og virða hana þannig í verki. Þeirra afstaða er ólíkt heil- brigðari og farsælli ep ögrun Breta. Þessar þjóðir skilja, að málið verður aldrei útkljáð, nema á alþjóðlegum vettvangi. Landhelgismálin í heild eru nú í höndum Sameinuðu þjóðanna og þar verða þau útkljáð, hvort sem það verður fyrr eða síðar. Allsherjarþingið ræddi málin síðastliðið haust og ákvað að kalla saman nýja ráðstefnu í Genf, sem að líkindum kemur saman í marz-apríl næsta vor, til að fjalla eingöngu um landhelgí og fiskveiðitakmörk ríkja. Það skiptir fslendinga höfuð- máli, hver lok mála verða á þeirri ráðstefnu. Er nú unnið að und- irbúningi hennar af íslands hálfu á margvíslegan hátt. Einn liður í baráttunni í land- helgismálunum er kynning máls- ins erlendis. Undanfarnar vikur hefur utanríkisráðuneytið boðið hingað fjölda erlendra blaða- manna og hafa þeir, jafnvel brezkir blaðamenn, skrifað mik- ið og af skilningi um málið. Hafa þau skrif borið vott um vaxandi samúð með íslendingum í þessu máli og vaxandi andúð á ofbeldi brezka flotans. Ritum þeim, sem utanríkisráðuneytið hefur gefið út um málið, hefur verið dreift um allan heim og hafa vakið at- hygli. íslendingar hafa í landhelgis- málinu staðið saman sem einn maður. Allar tilraunir til að skapa deilur um málið eða mis- nota það hefur fólkið sjálft kveð- ið niður. Þessari einingu verður þjóðin að halda. Við verðum að sýna þrautseigju og festu, halda vel og virðulega á málstað okk- ar, og þá mun allt fara vel. Brezkur herskipafloti við fs- land mun engin áhrif hafa í þá átt að knýja íslendinga til und- anhalds í landhelgismálinu. Út- færsla fiskveiðilögsögunnar við ísland í 12 mílur er staðreynd, sem ekki verður haggað og ís- lendingar, sem einir allra þjóða í veröldinni eiga allt sitt undir fiskveiðum, munu aldrei sætta sig við annað og minna en það, sem aðrar þjóðir njóta í þess- um efnum. WiW&'-- E 1 skrifar úr daglega lifinu , Sérstakar frétta- og kvik- myndasýningar. Brezkur herskipafloti mun ekki knýja ís- lendinga til undanhalds Utvarpsávarp Guðm. I GuBmundssonar i gærkveldi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.