Morgunblaðið - 02.09.1959, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 02.09.1959, Qupperneq 12
12 MORCV iVBr.^BíB Miðvikudagur 2. sept. 1959 íbúBir til sölu Til sölu sérstaklega skemmtilegar 4ra herb. íbúðir í fjölbýlishúsi (vesturendi) í Háaleitishverfi. íbúðirnar verða seldar fokheldar með miðstöð og aJit sameigin- legt pússað. Bílskúrsréttur getur fylgt. Lán á 2. veð- rétti til 5 ára ef óskað er. Upplýsingar í síma 32190 írá 6—9 í kvöld og næstu kvöld. Maður öskast til spjaldskrár- og lagerstarfa á raf- magnsvörulager í Reykjavík. Nokkur enskukunnátta nauðsynleg. Einnig vant- ar menn til verzlunarstarfa í 4 mánuði að kaupfélagi á Norðurlandi. Upplýs- ingar gefur Starfsmannahald SÍS, Sam- bandshúsinu við Sölvhólgötu. PiLTAR, EFÞlÐ EIGIPUNNUSTUNA ÞÁ Á ÉG HRINö-ANA j /tftf/sfraer/ S \1 U^— — Kristín Jónsdóttir Framh. af bls. 11 hinir beztu menn hafa lagt mikið af mörkúm til að fegra heiminn og staekka hann. En hér ber enn allt að sama brunni. Okkar heimur stendur veikum fótum. Við vitum það og viðurkennum að vegir Guðs eru órannsakanlegir. Einn> traustur hlekkur í þeirri festi, sem bar uppi þann heim, sem veitti okkur svo mikla ham- ingju, hefur brostið. Einn úr for- ustuliði í menningarbaráttu okk ar litlu þjóðar, Kristín Jónsdótt- ir, listmálari, hefur kvatt samferð arfólk sitt um sinn. Fyrir fáum vikum stóð hún í vinnustofu sinni með pensilinn í annarri hendi og lykilmót að lífsgátu sinni í hinni, og ugði ekki að sér. Kristín Jónsdóttir var i engu venjuleg manneskja. Hún var skilgetið afkvæmi þeirra, er sköp uðu handa okkur þann víða heím og litríka, sem við lifum í. Hún fann og skildi flestum betur þá ábyrgð, er á þeim hvílir, sem fuli komna eigið sköpunarverkið, blása nýju lífi í brjóst samferða- mannanna, halda eldunum log- andi. í þrotlausri leit og tilraun- um í hinni nýju veröld mannsins, var hún ódeig, hiklaus og opin- ská. Gagnvart náttúrunni, lífs- kvikunni, var hún sem barn er les sér blóm á engi. í lífsviðhorfi var Kristín Jóns- dóttir — eins og aðrir mikilhæfir listamenn — þrælbundin þeirri skyldu gagnvart Guði og mönn- um, að taka ekkert frá öðrum og kalla sitt. Til þess var okkur gefið frelsi, að því yrði beitt til að opna nýjar leiðir, gera nýj- an heim, þar sem hver nýr dagur ber fram ný óþekkt vandamál, og lausnin, sem fannst í gær, gildir ekkí í dag né íramar. I þessum umbrota heimi ómildrár baráttu, og öðrum þræði ólýsan- legrar hamingju, þó sjaldan gæf- ist færi til að létta akkerum eða rifa seglin, lifði Kristín Jónsdótt- ir lengstan hluta ævinnar í ör- uggri fylgdi óviðjafnanlegs lifs- félaga, Valtýs Stefánssonar, rit- stjóra, og hin síðari ár, tveggja dætra þeirra, sem örugglega hafa haldið uppi merki hinna mik.u foreldra. Það á að mörgu leyti fremur við um þessa þjóð en nágrann- ana, að hún býr enn i ónumdu landi. Henar eigin heimur er að eins í mótun. En forsjónin heíur séð fyrir ævintýralegum mögu- leikum og fyrirmyndir hennar eru hér dregnar skýrum og ramm gerðum dráttum. Umfram allt hefur hún þó gefið okkur Jpp- örfvandi fordæmi mikilhæfra manna, sem varðað ,hafa leiðina um byggðir og öræfi. Við fráfall Kristinar hefur hlekkur brostið, sem erfitt mun reynast að bæta. Ragnar Jónsson. Kins og undanfarin ár tek ég að mér leikkennslu og leikstjóm frá leikfélögum og öðrum menningarfélögum í Reykjavík og út um land. INGIBJÖRG STEINSDÖTTIR, leikkona, p.t. Múlakamp 14 — Sími 34786. Skrifstofustúlka Innflutningsfyrirtæki óskar eftir skrifstofustúlku með góða kunnáttu á ritvél, ensku og dönsku. Um- sóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist Morgunblaðinu merkt: „Vel fær á ritvél — 4801". Framtíðaratvinna Ungur maður lagtækur við vélar getur fengið fasta atvinnu í verksmiðju nú þegar. — Há laun. Um- sóknir er greini aldur og fyrri störf sendist af- greiðslu Morgunbl. fyrir 10. sept. merkt: „Fram- tíðaratvinna—4731“. yÉR SELJUM: KÆLIVÉLAR OG KÆLIKOMPRESSOR frá 140 — 8000 kcl/h. fyrir sláturhús, matvöruverzlanir, veitingahús, hótel. iðnfyrirtæki, sjúkrahús, svo og fyrir kæligeymslur allra tegunda. Um þrjátiu ára skeið höfum vér haft á boðstólum viður- kenndar sem þýzk gæðavara, hin alþekktu DKK KÆLITÆKI OG KÆLIKOMPRESSORA sem tryggja ábyggilega starfrækslu, lágan reksturs- kostnað og mikil afköst. Tilboð og allar nánari upplýsingar fáið þér hjá: VEB DKK SCHARFENSTEIN Jömi bu-tHlujrLg SCHARFENSTEIN, ERZGEBIRGE, DDR.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.