Morgunblaðið - 02.09.1959, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 02.09.1959, Qupperneq 19
Miðvikudagur 2. sepf. 1959 MORGUNBLAÐ1Ð 19 — Frönsk söngkona Frh. af bls. 3. Þá kveður hún ísland með góð- ar minningar uin fallegt land og fólk, sem var henni gott — og með fimm ný ljóð og lög, sem hún getur bætt á efnisskrá sína. þegar hún tekur aftur til við starf s*tt. Ekki er hætta á því, að hún sitji auðum höndum, því hún hef- ur fleiri tilboð, en hún getur tekið á móti. Hún verður að neita mörgum. Hún mun m.a. fljótlega syngja í mörgum stórum borg- um m. a. á Lyon o. fl. Við árnum hennf allra heilla í framtíð'nni, og vonum, að nýju „íslenzku“ lögin hennar og ljóðin verði enn fegurri en þau eldri fyrir áhrif frá íslenzkri náttúru- fegurð og iilýlegu viðmóti fólks- ins, sem hún kveðst hvarvetna hafa mætt hér. — Fréttaritar*. Annað kvöld kemur fram í Lido ný hljómsveit. Eru það fjórir franskir hljómsveitarmenn ásamt söngkonu. Verður sveitin hér 1—2 mánuði. Þetta er kunn hljómsveit sem hefur leikið víða í Evrópu, síðast í Helsingfors. Upphafs heimsstyrjaldar minnzt í Póllandi í gœr Cyrankiewiez ásakaði Adenauer um að vilja halda kalda stríðinu áfram VARSJÁj 1. sept. — Reuter. — ÞESS var í dag minnzt hér í borg, að liðin eru 20 ár frá innrás nazista í landið. Athöfnin hófst með blæstri vinnulúðra í öllum verksmiðjum borgarinnar til þess að rifja upp óminn frá loftvarnarflautunum, sem gáfu til kynna fyrstu loft- árásir nazista, sem síðan hrjáðu þjóðina sífellt í þau sex ár, sem heimsstyrjöldin stóð yfir. Síðan var einnar mínútu þögn til minningar um þær 6 milljónir pólskra borgara, sem létu lífið í styrjöldinni. Nokkur úrkoma var, þegar at- höfnin fór fram, en þrátt fyrir það gekk Cyrankiewicz forsætis- ráðherra fram yfirhafnarlaus, þegar hann hóf ræðu sína nokkr- um andartökum siðar. Donir fá fleiri eldfluugar og þotur Kaupmannahöfn, 1. sept. (Reuter). — DANHÖRK hefur þegið boð Bandaríkjanna um að búa aðra danska herdeild „Honest John“ eldflaugum. Ennfrem- ur hefur danska stjórnin þeg- ið tilboð um orrustuþotur fyr- ir enn eina flugsveit, sem látnar verða dankka flug- hernum í té samkvæmt á- kvæðum samnings Atlants- hafsbandalagsrikjanna. Bæði eldflaugamar og orrusöuþot- urnar verða afhentar Dön- um á næsta ári. Fyrsta send- ing af skammfleygum „Hon- est John“ eldflaugum er vænt anleg hingað á þessu hausti. Cyrankiewicz deilir á Adenauer í ræðunni ásakaði hann Adenauer kanzlara Vestur-Þýzka lands fyrir að „elska anda kalda stríðsins“ og leitast við að „vega að undirstöðu stjórnmálastefnu Póllands — vináttunni við Sovétríkin.“ Þá sagði hann að þýzkir hernaðarsinnar kepptust við að koma af stað nýrri styrj öld. Þegar Adenauer lýsti harmi yfir árásum Hitlers gréti kanzl- arinn krókódílatárum. Adenauer vill vinsamlega sambúð Það var í gærkvöldi, sem Adenauer hélt ræðu sína í til- efni af upphafi heimsstyrjaldar- innar. Þar lét hann m. a. í ljós þá von sína, að Þýzkaland og Pólland yrðu þegar fram í sækti góðir nágrannar. Var á þetta lit- ið sem vináttubragð í garð Pólverja. — Enska knattspyrnan Framh. af bls. 18. Lill, fyrsta markið og var staðan þannig í hálfleik. f byrjun seinni hálfleiks setti Herd, miðframh. Arsenal, 2 mörk. Deeley jafnaði fyrir Wolverhampton en stuttu síðar bætti Clapton, hægri úth. Arsenal einu við. Rétt fyrir leiks lok tókst Deeley að jafna eftir gott upphlaup. Síðast er leið þessi léku saman sigraði Wolverhamp- ton 6:1. Þrátt fyrir að Jonny Haynes meiddist tókst Fulham að sigra Blackpool; markið setti Leggat á 17. mín. Macedo stóð sig mjög vel í markinu og er spáð að hann muni innan tíðar leika í enska landsliðinu. 53276 áhorfend ur sáu Manohester United vinna sinn fjnrsta leik á þessu keppnis- tímabili. Mörk Manohester settu Charlton eitt og Viollet tvö. Fyrir Newcastle skoruðu White og Allc hurch. — Leikurinn milli Leiches ter og Chelsea var mjög harður enda meiddust margir leikmenn. Lítið bar á Jimmy Greaves enda var hans vel gætt af Appletoy. Mörk Leichester settu Cheesebor ough, Cunningham og Leek, en fjrrir Chelsea skoraði Brabrook. Að þremur umferðum loknum er staðan þessi: I. deild (efstu Uðin) — Geimfar Framh. af bls. 1. rískur fulltrúi, dr. Robert H. Boden, leggja fram ritgerð um nýja aðferð til þess að knýja geimförin utan gufuhvolfs, en aðferð þessi hefur verið reynd síðustu mánuði. Með henni á að vera hægt að knýja geimförin áfram með fleiri þúsund mílna hraða í næstum heilt ár, eftir að þau eru laus við aðdráttar- afl jarðar. Blackbum 3 2 1 0 9:2 5 West. Ham. 3 2 1 0 7:2 5 W ol verhamp ton 3 2 1 0 7:4 5 Tottenham 3 1 2 0 7:3 4 Blackpool 3 2 0 1 4:3 4 (Neðstu liðin) Luton 3 0 1 2 2:4 1 N. Forest 3 0 1 2 3:7 1 Newcastle 3 0 0 3 6:13 0 2. leid. (efstu liðin) Huddersfield 3 3 0 0 8:1 6 Sheffield U. 3 2 1 0 9:2 5 Leyton Orient 3 2 1 0 8:4 5 Cardiff 3 2 0 1 6:4 4 Neðstu liðin: Brighton 3 0 1 2 1:4 1 Scunthorpe 3 0 1 2 1:7 1 Lincoln 3 0 0 3 1:5 0 3. deild (efstu liðin). Grimsby 3 2 1 0 9:3 5 Norwich 3 2 1 0 9:3 5 Halifax 3 2 1 0 4:2 5 Brentford 3 2 1 0 7:4 5 4. deild (efstu liðin) Millwall 3 2 1 0 4:0 5 Stockport 3 2 1 0 4:1 5 Walsall 3 2 1 0 8:4 5 Enski landsliðsmaðurinn Jonny Haynes, er leikur með London- arliðinu Fulham, meiddist s. 1. laugardag og mun ekki leika næsbu vikurnar. ALLT 1 RAFKERFIÐ Bilaraftækjaverzluu Halldórs Ólatssonar Rauðarárstíg 20. — Sími 14775. 4ra herb. hæð við Hofteig Glæsileg 116 ferm hæð við Hofteig. Ræktuð og girt lóð, bílskúrsréttindi. íbúðin þarf að seljast strax. Málflutningsskrifstofa 1 Guðlaugs & og Einars Gunnars Einarssona, Fasteignasala Andrés Valberg. Aðalstrseti 18. Símar 19740 — 16573. Hjartanlegar þakkir færi ég öllum þeim sem glöddu mig með gjöfum, ljóðum og heillaskeytum á 80 ára af- mælisdegi mínum 20. ágúst s.l. og gjörðu mér daginn ógleymanlegan. Guð blessi ykkur ölL Kristín Krtstjánsdótt'r, Fossá, Barðastrandarsýslu. Þakka hjartanlega gjafir og hlýjar kveðjur á 60 ára afmæli mínu 29. ágúst s.l. Sigríður Ólafsdóttir, Þórkötlustöðum, Grindavík. Þakka innilega fyrir sýnda vinsemd á afmælisdegi mínum. Guðjón Guðmundsson. Hjartans þakklæti til skyldra og vandalausra fyrir allan hlýhug okkur sýndan. Margrét og Gunnar Bjaraason. Hjartanlegar þakkir færi ég öllum, sem auðsýndu mér vinarhug á sextíu ára afmæli mínu, 14. ágúst, með heimsóknum, gjöfum og skéytum. Guð blessi ykkur öll. Jón Guðmundsson, NorðurgarðL Hjartanlega þakka ég ykkur öllum sem glöddu mig & áttræðisafmæli mínu 28. f.m. með heimsóknum, gjöf- um og skeytum og gjörðuð mér daginn ógleymanlegan. Guð blessi ykkur öll. Jóhanna M. Guðmundsdóttir, Laugaveg 93. Vegna jarðarfara verða skrifstofur vorar lokaðar eftir hádegi miðvikudaginn Z. sept. 1959. r *** Afengisverzlun ríkisins Lyfjaverzlun ríkisins Systir mín, BÓSA ELfN VIGFCSDÓTTIB andaðist 1. september. Sigurveig Vigfúsdóttir Óðinsgötul7 A. Eiginmaður minn SEFAN DAGFINNSSON skipstjóri, andaðist í sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn 31. ágúst S.L Júniana Stefánsdóttir Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og útför GUÐBÚNAB STEINUNNAB VIGFtJSDÓTTUB Grettisgötu 36B. Vandamenn. Jarðarför BEKGÞÓBU J. NYBORG kaupkonu, fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði, fimmtudaginn 3. september. Athöfnin hefzt með húskveðju frá heimili hinnar látnu, Suðurgötu 27, kl. 3 síðdegis Júlíus Nyborg, Vigdís Bruun Madsen. Hjartanlega þökkum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og jarðarför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu SIGRlÐAR pétubsdóttur frá Neskaupstað. Hannes Ivarsson, Ivar Hannesson, Jóna Gísladóttir, Ölöf Hannesdóttir, Jósafat Hinriksson, Þórey Hannesdóttir, Gunnar Pétursson og barnabörnin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.