Morgunblaðið - 13.09.1959, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.09.1959, Blaðsíða 20
20 MORCrUTSTtlAÐlÐ Sunnudagur 13. sept. 1959 THIS OLP STOVE IS ALL CLOGGED SOMETHINGfe JAMMING the , DAMPER / og T annlœkningasfofan er flutt að Efstasundi 84. Hallur Hallsson yngri. HAIf S ■-WöLfOAWC í „Ég get ekki greitt gjaldið", sagði hún. „Ég get ekki farið frá börnunum mínum“. „Þér eruð búin að segja mér það“. Það var bæði gremja og léttir í rödd hans. Hún hikaði. Þau sátu hvort á móti öðru og sögðu ekki neitt. tTti var komið fjólublátt hálf- rökkur yfir úrangrafaraborgina. Það barst hljómlist frá vínstof- unni. Konan hafði hallað sér aft- ur í stólnum og ber handleggur hennar hvíldi á stólbríkinni. — Hann sat enn klofvega á stólnum og starði á hana. Þá mælti Vera: „Ég get ekki eyðilagt fjöl- skyldu mína. En ég get orðið ást- kona yðar“. , Hann sat grafkyrr. „Og þessa fórn mynduð þér vilja færa Adam Sewe“, sagði hann eftir stundarkorn. „Ekki eingöngu Sewe“. t „Heldur?" „Börnum mínum. Ég ætla að fara héðan. Ég vil ekki, að börn- in mín alist hér upp. Ég vil ekki, ' að þau fái að vita það dag nokk- urn, að faðir þeirra eigi röngum eiði völd sín og auðæfi að þakka“. Anton stóð snögglega upp. — Hann ýtti stólnum frá sér, svo að hann valt, og fór að ganga um gólf í stofunni. „Þetta er ekki að uppfylla skil- mála mína“, sagði hann. „Ég vil ekki halda yður aðeins einu sinni' í örmum mínum. Ég er ekki svo lítilþægur. Ég get ekki notazt við neina ástkonu, sem fer á flótta frá Leopoldville daginn eftir, eins og pestin geisaði hérna“. Hún stóð líka upp og tók loð- skinnsslána sína. „Með öðrum orðum", sagði hún, „þér kærið yður alls ekki m mig. Ást? Þér vitið alls ekki, vað ást er, Anton. Þér þekkið aðeins eina tilfinningu, hatur. Þér hafið sett skilyrði yðar að- eins af einni ástæðu. Þér viljið ná yður niður á Hermanni. Þér viljið taka konuna hans frá hon- um, — hver þessi kona er, skiptir yður engu“. Hann stóð kyrr og halíaðist upp að veggnum. En sá misskiln- ingur, hugsaði hann, en sá hræði- legi misskilningur. Er þessi kona í raun og veru svo skírlíf — líka á þessari stundu, þegar hún er að bjóða sig ókunnum manni — að hún álíti, að hann, Anton Wehr, sé að biðja um eina einustu ástar stund? Veit hún í raun og veru ekki, að fyrsta skiptið er ekkert, en hin, sem á eftir fara, eru allt? Og veit hún ekki, þessi fallega, hreina kona, að karlmaður, sem elskar, vill ást en enga fórn? — Hvernig sem hann braut heilann, þá gat hann ekki skýrt þennan misskilning. Hann mælti: „Ég bað yður í það skipti að yf- irgefa Hermann, af því að ég elskaði yður og af því að ég von- aði, að þér gætuð líka elskað mig. Ég var heimskingi". Hann rak upp hlátur, eins og hann væri að hæðast að því, hve orð hans voru blátt áfram. „Ég dreg tilboð mitt til baka. Farið þér! Hálf- tíminn er liðinn. Það er beðið eft- ir yður í landstjórahöllinni“. Hún yppti lítið eitt öxlum og gekk hægt til dyranna. Hann fylgdi henni til dyra. — Þegar hún lagði höndina áhurðar handfangið greip hann um úlflið hennar Hún hljóðaði upp, því að takið var svo fast. Nú stóðu þau hvort á móti öðru og mjög nálægt hvoi;t öðru. Það var dimmt í stofunni. Skinið frá blárauðri ljósaauglýsingu í Aven- ue G. Moulaert féll á andlit þeirra. Hann hafði ekki ennþá sleppt takinu á úlflið hennar. „Ég elska yður, Vera“, sagði hann. Hún lokaði augunum. „Ég elska yður, Anton“, sagði hún lágt. Hú reif sig lausa. „En ég mun ekki hylma yfir með yð- ur“. Hún var búin að opna dyrnar, áður en hann gat svarað nokkru. Hið bjarta Ijós í hótelgangin- um skein inn íherbergið. Anton gekk hröðum skrefum út að glugganum. Hann sá, að Vera fór frá hó- | telinu og steig upp í leigubíl. | Blaðasalarnir kölluðu og buðu aukablað. Málaferlin gegn Anton Sewe, hugsaði Anton. Á morgun byrjar málssóknin. Á ég að hætta öllu í senn? Á ég að bera vitni og missa Veru fyrir fullt og allt? Á ég að neita að bera vitni, án þess að vera viss um að vinná Veru? Hann gat ekki svarað því. Hann hringdi á þjóninn og bað um flösku af viský. Það var miðnætti. Veizlan á landstjórasetrinu hafði náð hámarki og fram yfir það. Vera hafði dansað við land- stjórann, við nokkra háttsetta her foringja og við Hermann. Menn höfðu þyrpzt í kring um haha. Litla, hvíta nýlendan í stóru svörtu nýlendunni var fegin því, að nýtt andllt — og það svo fal- legt andlit — hafði bætzt í hóp- inn. Sex korsur höfðu boðið Veru í cocktail-samkvæmi, í Bridge- samkvæmi, í golfleik á „Cerdede Leopoldville", í útrei# í „Cerde Hippique" og í tennis 1 „Funa Club“. Hún fann, að hún hafði aðeins eignazt vini og að hún átti enn enga óvir.i. Ekki ennþá. Kjól klæddu karlmennirnir og kon- urnar í síðu kvöldkjólunum skiptu sér í hópa — og það fannst að það voru ekki alltaf vinsam- legir hópar. Litla nýlendan í stóru nýlendunni hafði lítið að starfa. Umtalið um aðra var í góðu gengi. Það var deplað aug unum um leið og sneiðarnar þutu gegn um loftið. Kona herforingj- ans og sendiráðsfulltrúinn. Námu eigandinn og kona meðeiganda hans. í hverju kampavínsglasi gat verið dropi af eitri. Hljómsveitin hafði gert dálítið hlé. — Veru hafði tekizt að flýja frá síðasta dansherranum sínum, brezkum stjórnarfulltrúa. Hún fór gegnum tvo eða þrjá hvíta Snutvarpiö Sunnudagur 13. septemfoer 9.30 Fréttir og morguntónleikar — (10.10 Veðurfregnir). a) Brandenborgarkonsert nr. 2 í F-dúr eftir Joh. Sebastian Bach. Hljóðfæraleikarar undir stjórn Jascha Horensteins leika. Kathleen Ferrier syngur lög eft« ir Hándel og Brahms. c Andrés Segovia leikur á gítar verk eftir Sors, Mendelssohn, Villa-Lobos og Rodrigo. d) ..Vatnasvítan'*, hljómsveitar- verk eftir Hándel. — Fílharm- óníuhljómsveitin í Lundúnum leikur undir stjórn Eduards van Beinum. 11.00 Messa í Neskirkju í Reykjavík. (Prestur: Séra Björn Magnússon prófessor. Organleikari: Jón ís- leifsson). 12.15—13.15 Hádegisútvarp. 15.00 Miðdegistónleikar: a) Sinfónía nr. 6 1 C-dúr, K. 423, ,,Linz-sinfóníanM eftir Mozart. Columbia-sinf óníuhlj ómsveitin leikur. Burno Walter stjórnar, b) Píanókonsert nr. 4 eftir Beet- hoven. Edwln Fischer og hljóm sveitin „Pilharmonia'* leika. 16.00 Kaffitíminn: Jacques Ghestem og Raoul Gola leika vinsæl lög. 16.30 Veðurfregnir. Færeysk guðsþjónusta (Hljóðrit* uð í Þórshöfn). 17.00 Sunnudagslögin. 17.35 Útvarp frá íþróttaleikvangl Reykjavíkur: Knattspyrnulands- liðið frá 1949 leikur við unglinga- landslið (Sigurður Sigurðsson lý« ir seinni hálfíeik). 18.10 Sunnudagslögin, — framh. 18.30 Barnatími (Helga og Hulda Val- týsdætur): a) „Fílsunginn", saga eftir KIpl- ing í leikritsformi. (Leikstjórif Baldvin Halldórsson). b) „'WSfravagninn" — framhalds- saga. (Hólmdríður Pálsdóttir). c) Ævintýri Odysseifs (Ævar Kvaran). 19.25 Veðurfregnir. 19.30 Tónleikar: José Iturbi leikur vin- sæl píanóverk. 19.45 Tilkyrmingar. 20.00 Fréttir. 20.20 Raddir skálda: ÆvisögukafH, !jó« og smásaga eftir Ingólf Kristjáns- son. Stefán Júlíusson, Róbert Am finnsson og höfundur lesa. 21.00 Atriði úr óperunni „Samson og Dalíla" eftir Saint-Saöns. Ris* Stevens, Jan Peerce og Robert Merrill flytja ásamt Robert Shaw kórnum og NBC-sinfóníuhljóm- sveitinni undir stjórn Arturo Toscaninis. 21.30 Úr ýmsum áttum (Sveinn Skorrl Höskuldsson). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.05 Danslög. 23.30 Dagskrárlok. Mánudagur 14. septemher 8.00—10.20 Morgunútvarp (Bæn — S.Oi Tónleikar. — 8.30 Fréttir. — 8.40 12.00—13.15 Hádegisútvarp. — (12.25 Fréttir, tilkynningar). 15.00 Miðdegisútvarp. — (16.00 Fréttir tilkynningar). —- 16.30 Veðurfr, 19.00 Tónleikar. —‘ 19.25 Vreðurfregnir). 19.40 Tilkynningar. 20.00 Fréttir. 20.30 Einsöngur: Birgit Nilsson syngur aríur úr Tannhaúser, Lohengrin og Tristan og Isolde eftir Richard Wagner. \ 20.50 Um daginn og veginn (Bárður Jakobsson lögfræðingur). 21.10 Tónleikar: Burleska í d-moll fyr- ir píanó og hljómsveit eftir Ric- hard Strauss. Margrit Weber leik ur með sinfóníuhljómsveit út- varpsins í Berlín. Ferenc Frícsay stjórnar. 21.30 Útvarpssagan: Garman og Worse eftir Alexander Kielland. — IX lestur (Séra Sigurður Einarsson). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Búnaðarþáttur. Með hljóðnemann á Möðruvöllum 1 Hörgárdal. Gísli Kristjánsson ræðir við Eggert Davíðsson. 22.30 Kammertónleikar: Kvintett í A- dúr óp. 114, „Silunga-kvintett- inn", eftir Schubert. Flytjendur; Adrian Aeschbacher, píanó, Rud- olf Koeckert, fiðla, Oskar Riedl, lágfiðla, Josef Merz, hnéfiðla, og Franz Ortner, bassi. 23.00 Dagskrárlok. Þriðjudagur 15. september Kjólar Ný sending af svissneskum ^ KJÓLUM og KÁPUM tekin fram á mánudag. Amerísk húsgögn Þvottavél, Þurrkari og fl. til sölu vegna brottflutn- ings. Til sýnis eftir kl. 6 á mánudag að Fornhaga 20. Skrifstofusfúlka óskast nú þegar, vélritunarkunnátta nauðsynleg, létt vinna. Kaup eftir samkomulagi. Umsókn 8.00—10.20 Morgunútvarp (Bæn. — 8.0S Tónleikar. — 8.30 Fréttir. _ 8.40 12.00—13.15 Hádegisútvarp. — (12.25 Fréttír og tiikynningar). 15.00 Miðdegisútvarp. — (16.00 Frétti* og tilk.). — 16.30 Veðurfregnir. 19.00 Tónleikar, — (19.25 Veðurfr). 19.40 Tilkynningar. 20.00 Fréltir. 20.30 Erindi: Þegar Bretar tæmdu Norö ursjóinn af fiski. (Júlíus Hav- steen, fyrrv. sýslumaður). 20.55 Tónleikar: Fiðluleikarinn Wolf- gang Schneiderhan og pianóleik- arinn Carl Seemann leika sónötu í C-dúr eftir Hindemith. 21.10* Upplestur: Steingerður Guð- mundsdóttir leikkona lej ljóð eftir Einar Benediktsson og Matt- hías Jochumsson. 21.25 Tónleikar: a) Forleikur óp. 30 eftir Saint-Saéns. b) Spænsk rapsódía eftir Ravel. Sinfóníu- hljómsveitin í Boston leikur, Charles Munch stjórnar. 21.45 íþróttir (Sigurður Sigurðsson), 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Lög unga fólksins (Guðbjörg Jónsdóttir). 23.05 Dagskrárlok. a merkt: „Strax—9053“, r GUE93 MV | LUCK HAS RUN OUT...THE JEWELS ARE STILL MISSING AND I GO ON TRIAL TOMORROW/ r Þessi gamli ofn er allur úr sér | fríska eitthvað upp á hann. — I eru enn ófundnir, og á morgun j genginn, ég verð að reyna að | Ólánið eltir mig, ginísteinarnir J fer ég fyrir réttinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.