Morgunblaðið - 13.09.1959, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 13.09.1959, Blaðsíða 9
Sunnudagur 13. sept. 1959 M ORCVTSHh AÐ1Ð 9 Ólína Andrésdóttir Thoroddsen Öll börnin ólust up í Vatnsdal hjá foreldrum sínum, nema Stef- 'án, sem var í fóstri hjá systur Ólínu, Vigdísi Andrésdóttur ljós- móður og manni hennar Einari Gíslasyni bónda á Fífustöðum við Arnarfjörð. ★ Minningarorð Á MORGUN munu ættingjar og vinir kveðja Ólínu Thoroddsen, sem lengi bjó í Vatnsdal við Pat- reksfjörð. Hún andaðist hér í Reykjavík, nær 76 ára gömul. Ólína var fædd í Dufansdai við Arnarfjörð 23. sept. 1883. Foreldr ar hennar voru Andrés Björnsson síðast bóndi að Efra-Vaðli á Barðaströnd og kona hans Jóna Einarsdóttir. Mér hefur verið sagt, að þau hafi bæði verið dug- mikil og góðum gáfum gædd, en börnin voru mörg og efnin lítil. Ólína var elzt barna þeirra og umhyggja þeirra fyrir þessari efnilegu dóttur má marka af því, að þegar hún var aðeins 8 ára gömul komu þau henni til náms hjá sóknarpresti sínum, séra Þor- valdi Jakobssyni og konu hans Magdalenu Jónasdóttur, sem þá bjuggu í Haga á Barðaströnd. Meðan Ólína dvaldizt við nám 1 Haga veiktist faðir hennar og lézt eftir stutta legu. Varð þetta til þess, að Ólína varð kyrr í Haga og ólst upp hjá foreldrum jnínum, sem fósturdóttir þeirra, Og fluttist með þeim til Brjáns- lækjar og síðar til Saulauksdals, þar sem hún dvaldi þar til hún giftist. Þegar foreldrar mínir tóku Ól- inu í fóstur var ég aðeins nokk- urra mánaða gamall, og féll í hennar hlut að gæta mín fyrstu árin. Við urðum því sneinma leik félagár og tókst þá með okkur gagnkvæmt trúnaðartraust, sem hélzt öll ári, sem leiðir okkar lágu saman. Ég minnist með ánægju og þakklæti, að hún var góður félagi og þátttakandi í hverjum leik þrátt fyrir aldursmuninn. Þess vegna veit ég, að hún hef- ur verið manni sínum góður förunautur, þótt aðstæður þar hafi verið aðrar. Á unglingsárum sínum átti Ól- ina óvenjulega mikið lífsfjör. Hún undi sér betur úti en inni og kunni betur við sig á hestbaki en á kvenpalli, en með aldri O'g þroska gat hún þó fellt sig við kvenlegar listir, og bóklegt nám stundaði hún alltaf með kost- gæfni. Að menntun stóð hún því sízt að baki öðrum ungum stúlk- um í héraðinu, enda var hún vej greind. Hún stundaði nám hjá báðum foreldrum mínum og var auk þess einn vetur við nám í Reykjavík. Ólína var glaðlynd og hýr í geði og bar með sér hressandi blæ, hvar sem hún fór. Hún var hreinskilin og hispurslaus, kunni vel að koma fyrir sig orði pg hafði augun opin fyrir því, sem skoplegt var. Á yngri árum gat hún verið dálítið glettin, en þó var það græskulaust gaman. Árið 1906 giftist Ólína Ólafi E. Thoroddsen skipstjóra, dugleg- um og mikilhæfum manni. For- eldrar hans voru Einar J Thor oddsen bóndi í Vatnsdal vi5 Pat- reksfjörð og kóna hans Sigr'ður Óiafsdóttir, ættuð frá Svefneyj- um á Breiðafirði. — Ungu hjónir* hófu búskap í Vatnsdal árið 1907 03 bjuggu þar í 37 ár eða til árs- ins 1944, að þau fluttu til Reykja víkur. Fyrstu hjúskaparár sín var Ól- afur skipstjóri á þilskipum frá Patreksfirði, en síðar, þegar börn unum heima í Vatnsdal fjölgaði ár frá ári, varð hann að vera heima til þess að gæta búsins og beita sér betur til aðdrátta. Vatnsdalur er lítil bújörð. Þar er grýtt land og illa hæft til rækt- unar, en þar er sæmileg aðstaða til útræðis og þar gat Ólafur beitt sjómensku sinni, hagsýni og orku — og hann gerði það. Börn- in urðu mörg, 7 synir og 7 dætur og það má teija þrekvirki að koma upp svo stórum barnahóp við þær aðstæður, er þarna voru, og þar eiga Ólafur og Ólína ó- skiptan hlut. Þau voru samtaka í lífsbaráttunni. Eins og nærri má geta, voru hjónin í Vatnsdal fátæk, en þau voru sjálfbjarga alla tíð, og þau héldu heimili sínu þannig, að þangað þótti gott að koma og þar þótti gott að vera. Börnin frá Vatnsdal lærðu snemma að vinna og þau og foi- eldrarnir hjálpuðust að til þess að koma þeim öllum til þroska — annað. öll hafa þau notið fram- haldsnáms eða tekið sérnam, og gæfa foreldranna fylgdi þeim úr föðurgarði. Börn Ólínu og Ólafs frá Vatns- dal eru þessi: 1. Sigríður, gift Þórði Jónssyni hreppstjóra, bónda að Hvallátr- um við Látrabjarg. 2. Þorvaldur, hreppstjóri á Pa t reksfirði, kvæntur Elínu Björns dóttur frá Berunesi, Reyðarfirði. 3. Svava, kennari, gift Jóni Zóphóníassyni rafstöðvarstjóra. Núpi, Dýrafirði. 4. Birgir, 1. stýrimaður á Gull- fossi, kvæntur Hrefnu Gisladótt- ur frá Seyðisfirði. 5. Einar, skipstjóri, bæjarfull- trúi í Reykjavík, kvæntur Ing- veldi Bjarnadóttur frá Patreks- firði. 6. Una, hjúkrunarkona, gift Jó- hanni Sigurgeirssyni, iðnverka- manni ísafirði. 7. Arndís, gift Sæmundi Auð- unssyni skipstjóra, framkvæmda- stjóra í Reykjavík. 8. Bragi, verkstjóri á Patreks- firði, kvæntur Þórdísi Haralds- dóttur frá Bakkafirði. 9. Ólafur, rafvirki í Reykjavík, kvæntur Aðalbjörgu Guðbrands- dóttur frá Heydalsá, Ströndum. 10. Eyjólfur, loftskeytamaður, Reykjavík, kvæntur Elínu Bjarna dóttur frá Óseyrarnesi, Stokks- eyri. 11. Stefán, fulltrúi í Búnaðar- banka íslands, kvæntur Erlu Hannesdóttur Stephensen frá Bíldudal. 12. Auður, gift Guðmundi Árna- syni bifreiðarstjóra á Selfossi. 13. Magdalena, blaðamaður, gift Þorvarði K. Þorsteinssyni, stjórnarráðsfulltrúa í Reykjavík. 14. Halldóra, skrifstofumær í Reykjavík, ógift, hefur haldið heimili með foreldrum sínum. Barnabörnin eru þegar orðin 35. Þeir, sem þekktu Ólínu-á ungl- ingsárum hennar, þegar æsku- fjör hennar logaði bezt, munu sízt hafa látið sér detta í hug, að forsjónin hefði ætlað henm þrað hlutverk í lífinu að annast ung- b"orn í nær 25 ár samfleytt og að »ala upp stóran barnahóp, en þetta gerði hún með ágætum og mér finnst að lífsgleði hennar og lífsorku hafi varla getað verið betur varið en með þessari ráð- stöfun forsjónarinnar. Börn henn ar hafa sagt mér, að hún hafi verið þeim góð móðir meðan þau voru í æsku og góður félagi eft- ir að þau náðu þroska. Þeim hef- ur vafalaust þótt gott að leita til hennar ef eitthvað bjátaði á því kjarkur og táp brást henni ekki til síðustu stundar. Að sjálfsögðu hafa sum árin í Vatnsdal verið Ólínu erfið, en henni urðu þau léttari fyrir það, að eiginmaður hennar dáði hana og vildi hlífa henni, eftir því sem ástæður leyfðu. Hún naut og mikillar umönnunar barna sinna eftir að hún kom hingað til Reykjavíkur, og hún og eiginmað ur hennar gátu notið þeirrar á- nægju að sjá velgengni þeirra allra, því þau hafa öll orðið hin- ir nýtustu þegnar. Þannig er gjöf hjónanna frá Vatnsdal til þjóð- félagsins — ávöxturinn af lífs- starfi þeirra. Finnbogi R. Þorvaldsson. EF TAKAST mætti að segja sögu húsfreýjunnar frá Vatnsdal, Ólínu Thoroddsen, j lítilli minn- ingargrein, þá væri þjóðarsaga vor fáorð um það sem bezt þykir í þjóðmenningu vorri. Þess verður heldur ekki freist- a£ hér, því að rökin að manngildi og mannkostum, grundvöllurinn að lífsgæfu manna,, verður ekki útskýrður með orðum. Kona, sem frá einu atviki til annars rat- ar æfinlega réttu leiðina öðrum til hjálpar og heilla, býr að þeim eðlisþroska í skaphöfn og hátt- um, sem er ekki áunnin að ráði annarra, heldur runnin í merg og bein og nærður af innri hvöt til að láta gott af sér leiða. Þannig var farið um Ólínu. Þess vegna var hamingja henn- ar fólgin í fórnum, þvf í brjósti hennar lifði hin sívökula um- hyggja fyrir velferð allra, sem þörfnuðust hjálpar. Hver dagur var henni náðargjöf, sem gafst til að sinna þeim verkefnum, sem lífið kvaddi hana til. Þess vegna þráði hún lífið og annir þess. Þrátt fyrir erfiða sjúkdómslegu brann lífsloginn skært, en þegar henni þótti sýnt að hverju fór tók hún því með sömu hugprýði og öðru, sem óhjákvæmilega að höndum bar, sannfærð um það að finna líf á ný í dauða. Ólína Thoroddsen fæddist í Dufansdal við Arnarfjörð 23. sept. 1883. Foreldrar hennar voru hjónin Jóna Einarsdóttir og Andrés Björnsson. Ársgömul fluttist Ólína með foreldrum sínum að Vaðli á Barðaströnd, en þá hófu þau þar búskap. Um dvöl sína þar geymdi Ólína hug- leiknar bernskuminningar, þótt skuggi harms og örvæntingar félli á lokaþátt veru hennar þar, þar sem faðir hennar lézt, þegar liún var átta ára og hlutskipti móður hennar varð eins og flestra ekkna á þeim tíma að leysa upp heimilið. Ope/ Caravan Model 1955 í ágætu standi vel keyrður með útvarpi til sölu. Bíllinn verður til sýnis við vörugeymslu Eggert Kristjánsson & Co. h.f. á Hverfisgötu 54 á morgun (mánudag). Ólína fór þá til prestshjónahna frú Magðalenu og sr. Þorvaldar Jakobssonar, sem var sá prestur í Haga á Barðarströnd, en flutt- ist síðan að Sauðlauksdal, og ólst upp hjá þeim hjónum við gott atlæti. Séra Þorvaldur og frú hans sátu prestsetrið með rausn og miklum menningarbrag. Þar nutu fjölmargir unglingar mennt unar og hollrar uppfræðslu, enda bar Ólína jafnan merki þess í öllu dagfari, að hún hafði alizt upp á heilsteyptu menningar- heimili. Árið 1906 giftist Ólína eftir- lifandi manni sínum Ólafi E. Thoroddsen, skipstjóra og útvegs bónda í Vatnsdal við Patreks- fjörð. 'Þau bjúggu í Vatnsdal í hart nær fjörutíu ár, eða þangað tii þau fluttust til Reykjavíkur árið 1944. I Vatnsdal gerðist mikil gæfu saga, ofin þáttum harðrar lífs- baráttu og fórna en einnig ham- ingju og lífsfyllingar. Þeim hjón- um varð auðið 14 barna, sem öll eru gædd miklum mannkostum, bæði að greind og myndarskap. Heimilisbragur allur einkennd; ist af þeim menningarblæ, sem hófsamar lífsvenjur og eindrægni skapa. Þar ríkti glaðværð, sem gat gert lítið efni að kostgæti og góðvild, sem gerði fátæklega gjöf að veltiþingi. Bræður og systur studdu hvert annað til starfs og mennta og virðing fyrir foreldrum og ráðum þeirra hélt öllu í réttu horfi. Gestagangur var mikill í Vatns dal og þar var jafnan fjölmennt, þar sem margir ungir menn dvöldu þar á vetrum við nám hjá húsbóndanum, sem kenndi þeim siglingafræði ( g skipstjórn. Munu sveitungar Vatnsdals- hjóna minnast þakklátum huga ríklundaðrar gestrisni þeirra, sem mæddi ekki sízt á starfi hús- móðurinnar, sem aldrei sparaði fyrirhöfn né lítil efni til að veita gestum og heimafólki góðan við- urgerning. Vor og sumar varð hún tíðúm að stjórna heimilinu ein meðan húsbóndinn sótti sjó. Ólína var greind kona og fjöl- hæf og fundvís á spaugsamar hliðar hversdagsleikans. Þess vegna var alltaf upplífgandi að vera í návist hennar. Hún stráði gleðinni í kringum sig og upp- skar því velvild og virðingu þeirra sem kynntust henni. Á morgun mánudaginn 1.4. sept. verður hún borin til moldar i Fossvogskirkjugarði. Lifið hafði fært henni mikil verkefni, sem hún leysti á gæfusaman hátt. Hún er því kvödd með djúpri virð- ingu og þökk vandamanna og vina, en- hin fagra minning um hana mun verða þeim dýrmæt huggun í sorg þeirra. Vikar Daviðsson KópavogskaupsfaSur * vill ráða heilsuverndar hjúkrunarkonu, er einnig hafi á hendi störf skólahjúkrunarkonu við annan barna- skóla bæjarsins. Umsóknarfrestur til 1. október n.k. 6. september 1959. BÆJARSTJÓRINN I KÓPAVOGI. Stórt fyrirtæki í Miðbænum óskar að ráða til sín skrifstofustúlku með Verzlunarskóla- eða hliðstæða menntun. Góð íslenzkukunnátta nauðsynleg. Tilboð er tilgreini aldur. mennt- un og fyrri störf. sendist afgr. Mbl. sem fyrst, merkt: „Rösk—4375“. s £ HH O W o o < PZ w eí xn Fatubúoin Skólavörðustíg FALLEG KJÓLAEFNI PERLON-SLOPPAEFNI PEYSUFATASILKI PERLONEFNI í PE Y SUFATASVUNTUR og BARNAKJÓLA SVART KAMGARN LfTBO 1 GLUGG- ANA atabuðÍH,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.