Morgunblaðið - 13.09.1959, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.09.1959, Blaðsíða 14
14 MORCUNBLAÐIÐ Sunnudagur 13. sept. 1959 — Reykjavlkurbréf Frh. af bls. 13 að gegna um Stalin. Þó mátti sjá vangamynd hans utan á járn- Stólpa einum, en ekki vakti leið- sögumaður sérstaka athygli á henni. Hins vegar gat hann Stal- ins einu sinni í skýringu sinni á borginni og talaði þá um hann sem „Stalin, er var einn af for- ingjum kommúnistaflokksins“. Óhóf upphaf Lyltingar Hinn forni glæsibragur hafði auðvitað sínar skuggahliðar. Okkur íslendingum, sem erum vanir fábreytni og einfaldleik í háttum, ekki sízt í umbúnaði hins æðsta valds, hlýtur að of- bjóða það skraut og óhóf, sem sjá má frá fyrri dögum. Mörg- um, er það líta, mun þykja í því fólgin skýring á byltingunni, sem í Rússlandi varð. En auðvitað er þetta einnig vitni þess, að Rússland er búið að vera stórveldi öldum saman. Þessu stórveldi stjórnuðu zar- arnir áður og kommúnistar nú. Valdamenn slíks stórveldis ráða yfir svo miklum auðlindum og vinnuafli, að þeir geta nú sem fyrr gert stórvirki, sem okkar örsmáa þjóð á erfitt með átta sig á. Leningrad er og um margt ný- tízku borg. Neðanjarðarbrautin þar er t. d. vafalaust með hinum beztu sinnar tegundar í heim- inum. í Leningrad má og sjá miklar verksmiðjur og nýb/gg- ingar í úthverfum. Tilkomumest var þó að sjá sýningu ísballetts- ins frá Moskvu. Fullkomnari skrautsýningu er erfitt að hugsa sér. Margt er því að skoða í þess- ari miklu borg og þá ekki sízt bæjarbraginn sjálfan. íslending- ar reka einna fyrst augun í, að konur ganga hvarvetna að ýmissi vinnu, sem karlrríenn leysa hér af hendi. Við höfnina stýra þær krönum og trillum, upp í bæn- um mála þær hús, vinna múr- aravinnu, hreinsa götur, leggja götusteina og annað slíkt. Klæðaburður og yfirbragð fólksins er með þeim hætti, að það sér strax, ef útlendingur er á ferð. Börn biðja um minjagripi. Hinir fullorðnu eru flestir alvar- legir og yfirleitt vingjarnlegir. Sumir gera mönnum að fyrra bragði greiða, þegar þeir sjá að erlendir menn eiga í hlut. Lög- reglumenn sáust ekki margir á götu, en hermenn ámóta áber- andi og munkar í Rómaborg. Afgreiðslutafir Á fáum dögum verður ekki mikið séð og þó urðu þeir fleiri en gert hafði verið ráð fyrir. Afgreiðsluhættir voru óneitan- lega með mjög öðru móti en í hinum vestrænu borgum. Að vísu var unnið í vöktum nótt og dag og keppzt við, þegar að var verið, sunnudag jafnt sem rúmhelga. Enda er þar enginn slikur dagamunur gerður, allar búðir eru t. d. opnar á sunnu- dögum. En samkeppnina vantar. Ekki er hægt að beina viðskiptum til annars afgreiðslumanns, þótt hann láti önnur verk ganga fyrir. Viðtakandinn er einn og hans hentisemi ræður. Lipurð for- stjórans, sem fyrir afgreiðslu skipsins stendur, stoðar lítt, því að yfir honum eru' aðrir og síð- an eru aðrir þar yfir. acipverjarnir, sem þetta þekkja frá fyrri ferðum, eru biðinni vanir. í frítímum sínum sitja þeir flestir um borð og spila. Af einhverjum ástæðum kjósa þeir heldur að halda kyrru fyr- ir en fara upp í borgina. Þegar nokkuð var liðið á sjötta sólarhringinn var afgreiðslu lokið. Áður en látið var úr höfn, skoðuðu hermenn skipið að nýju, hátt og lágt, og afhentu síðan skipverjum vegabréf sín á ný. Út var siglt í björtu veðri. Þá sást, að innsiglingin er þröng og erfið, enda fylgdi leiðsögu- maður skipinu h. u. b. tveggja stunda siglingu. Með honum fóru frá borði tveir hermenn, er hon- um fylgdu. Helsingfors Næsta morgun vöknuðu menn í Helsingfors. Þá var á ný komið í umhverfi, sem menn könnuð- ust við. Vegabréfaskoðun var meira fyrir siðaskair en af al- vöru, svo að auðvelt hefði verið að laumast í land vegabréfs- laus, ef einhvern hefði fýst. All- ir, skipverjar sem aðrir, fóru í land svo fljótt sem þeir kom- ust og dvöldu eins lengi og þeir gátu. Afgreiðslan gekk svo greið- lega, að sumum þótti nóg um. Þó að ferðin hefði staðið lengi, langaði a. m. k. einstaka mann fremur til að dvelja um helgina í Helsingfors en Leningrad, þangað sem aftur þurfti að fara til að sækja bifreiðar til að hafa á þilfari heim. En um hádegi á laugardag, eða eftir 1!4 sólar- hring var búið að hlaða skipið. Þá skildu leiðir og góðir félagar voru kvaddir. Fríinu var lokið, heim var flog- ið sl. sunnudag. Fyrsta áfangann með nýrri franskri þotu í eigu SAS-félagsins og var sú ferð ævintýri fyrir sig, svo fljót og þægileg sem hún var. Bezt af öllu var þó að koma heim aftur eftir ágæta ferð með Flugfélagi íslands frá Kaupmannahöfn. Sími 19636 Matseðill kvöldsins ★ 13. sept. 1959. ★ Consomme Jardiniére ★ Soðin fiskflök Hollandaise ★ Reykt aligrísalæri með rauðvínsósu eða Tomedoz d’ail ★ /ívaxtasalat með rjóma Húsið opnað kl. 7. RÍÓ-tríóið leikur. Leikhúskjallarinn > ) ? > s s V s \ s s s s s s j s s s j s s s s s s s s Félag ísl. leikara. STÚLKAN Á LOFTINU Sýning í FRAMSÓKNARHÚSINU í kvöld kl. 8,30. Dansað til kl. 1. | Aðgöngumiðasala í Framsókn- Sarhúsinu frá kl. 4 í dag, sími \ 22643. ? Allra síðasta sýning í Rvik. s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s S I s s s s s s s s s s s Atvsnna 1—2 duglegar stúlkur óskast. Uppl. í verksmiðjunni á mánudag. Verksmiðjan Iris Bræðraborgarstíg 7. Rösk stúlka óskast til símavörzlu, upplýsingar á skrifstofu vorri. (ekki í síma). Eggert Kristjánsson & Co, hf.* Strigo prjónavélar Hin vandaða svissneska prjónavél STRIGO óskar að stækka sölukerfi sitt í Svíþjóð. Vill þess vegna kom- ast í samband við söiumenn, sem hver á sínu svæði hefðu áhuga fyrir þessari vörutegund. — Skriflegar umsóknir með öllum nánari uppl. sendist til: Akts SYNA Ved Godsbanegaarden 2 — Köbenhavn V > By 9501. Nýtt , ■ Kvengötuskór með lágum hælum, reimaðir og með spennu, brúnir, svartir og ljósir litir. Þetta er mjög þægilegir götuskór og kosta aðeins kr. 174.—. Skóverzlunin Hector hf. Laugavegi 11 — Sími 13100 B (J Ð I N Spítalastíg 10 Gólf, sem eru áberandi hrein, eru nú gljáfægð með: Rafmagnsperur Bgw mjög lágt verð. Heildverzlunin Reykjafell Templarasundi 3 — Sími 19480. ísienzk tunga tímarit um íslenzka og almenna málfræði: _ Ritstjóri: Hreinn Benediktsson prófessor. Ritnefnd: Halldór Halldórsson, Jakob Benedikts- son, Ámi Böðvarsson. Útgefendur: Félag íslenzkra fræða og Bókaútgáfa Menningarsjóðs. Áskriftarverð: Kr. 75.00 á ári (kr. 110.- í lausasölu) Útkomutími: Októbermánuður. Undirrit. . . gerist hér með áskrifandi tímaritsins „Islenzkrar tungu“, og óskar að fá ritið sent gegn póstkröfu. Nafn: ............................... Heimili: ............................. Pósthús: ............................. Reynið í dag sjálf-bónandi Dri-Brite fljótandi Bón. Mjög auðvelt í notkun! Ekki nudd, — ekki bog- rast, — endist lengi, — þolir allt! Jafn bjartari gljáa er varla hægt að ímynda sér! Til Bókaútgáfu Menningarsjóðs, Pósthólf 1398, Reykjavík. Fœst allsstaðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.