Morgunblaðið - 15.09.1959, Blaðsíða 2
2
MORCV1SBLAÐ1Ð
Þriðjudagur 15. sept. 1959
Mjólk
í hyrnum
Mjólkursamsalan
hefur sölu á mjó!k
og rjóma i
pappaumbúÖum
NÆSIA miSvikudag byrjar
Mjólkursamsalan að selja mjólk
og rjóma í pappaumbúðum. Á
undanförnum árum bafa oft kom
ið fram óskir neytenda um
pappaumbúðir í staðinn fyrir
glerflöskurnar.
Mjólkursamsalan hefur því
ákveðið að gera tilraun með slik-
ar umbúðir. Fengnar hafa verið
sænskar vélar af svonefndri
„Xetra-Pak“ gerð til að fullgera
umbúðirnar og fylla þær. Þessar
vélar eru þrjár, ein fyrir hverja
umbúðastærð, 1/1 Itr., tá ltr. og
1/10 Itr. Fyrst um sinn verður því
á boðstólum mjólk í 1/1 Itr. og
í4 ltr. og rjómi í \í ltr. og desi-
Iitra „tetra“ umbúðum.
Notkun pappaumbúða um
mjólkurafurðir færist sífellt í
vöxt víða um heim, þar sem þær
hafa ótvíræða kosti fram yfir
glerflöskur. En þær eru dýrari,
fara aðeins eina ferð frá mjólkur-
stöð til neytandans, en glerflask-
an 70—80 ferðir. Einkum eru það
bandarísku pappaumbúðirnar,
sem reynast pyngju Evrópu-
manna ofviða.
Kostir
En kostir pappaumbúðanna eru
svo miklir, að rétt er talið að ís-
lenzkir neytendur eigi þeirra
kost. Pappaumbúðirnar eru
miklu léttari, ca. 20—40 grömm,
en glerflöskur í 1/1 Itr. eru um
650 gr. Og svo þarf að flytja þær
tómar aftur í mjólkurbúðina. —
Pappaumbúðirnar taka minna
rúm en glerflaskan, þeim má
hlaða saman og víða rúmast þær
í skáp, þar sem glerflöskur geta
ekki staðið. Þá þarf ekki lengur
skáprými fyrir tómar flöskur.
Húsmæður losna við að skola
flöskurnar og glerflöskur eru
brothættar.
Pappaumbúðirnar varna birtu
að komast að mjólkinni og spilla
henni, en óbragð af völdum birt-
unnar er hvimleiður galli á
mjólk.
Takmarkað magn
Efnið í hinar nýju umbúðir
kemur í rúllum. Er pappírinn
vaxborinn og plasthúðaður. Vélin
dauðhreinsar fyrst pappann,
myndar síðan úr honum eins
konar hólk, sem mjólkin rennur
L Síðan er þólkinum lokað með
vissu millibili og klipptur sundur
og að síðustu renna umbúðirnar
tilbúnar út úr vélinni ofan í
kassana.
Af 1/1 ltr. umbúðunum verður
takmarkað magn á boðstólum
eftir afkastagetu vélarinnar. Því
verður aðeins lítið af „tetra“
mjólk í hverri búð fyrst um sinn.
Y\ Itr. flöskur er ætlunin að
leysa alveg af hólmi. Framvegis
verður því öll mjólk og rjómi í
Cátu lent í annarri
tilraun
RÚSSNESK farþegaþota af gerð-
inni TU-104 var í dag á leið til
Keflavíkurvallar frá London, er
flugvöllurinn lokaðist af þoku og
varð vélin að snúa við til Prest-
víkur og-lenda þar. Skömmu síð-
ar lagaðist veðrið í Keflavík og
lögðu Rússarnir þá af stað aftur
og lentu í Keflavík kl. 17.45. —
Með vélinni voru 27 farþegar og
var þeirra á meðal forstjóri rúss-
neska flugfélagsins Aeroflot. —
Rússarnir gista á flugvallarhótel-
inu í nótt og halda áfram til
Bandaríkjanna í fyrramálið.
— B. Þ.
Einn af starfsmönnum Mjólk-
ursamsölunnar gæðir sér á
hyrnumjólk, mjólk í pappaum-
búðum.
(Ljósm.: Mbl.: M. Ö. Ant.)
pappaumbúðum, sem áður var í
Y\ ltr. glerflöskum.
Þá verður rjómi seldur í desi-
lítra „tetra“ umbúðum. Er þar
komið til móts við óskir neyt-
enda, sem vilja kaupa minna en
Y\ ltr. af rjóma í einu.
Leiðbeiningar
Vegna þess hve umbúðir þessar
f FIMMTU umferð á skákmótinu
í Bled sem tefld var á mánudag
mættust Friðrik og „undrabarn-
ið“ Fischer. Hjá þeim varð bið-
skák en Friðrik á betri stöðu,
hefur m. a. unnið skiptamun.
Önnur úrslit í umferðinni urðu
þau að Gligoric vann Smyslov
og Keres vann Benkö. Jafntefli
varð hjá Petrosjan og Tal.
Á laugardag voru tefldar bið-
skákir úr 3. og 4. umferð. Þá urðu
úrslit þau að Keres vann biðskák
sína við Tal, Gligoric og Friðrik
EINS og kunnugt er, heimsótti
Hátemplar, en svo nefnist æðsti
maður Góðtemplarareglunnar í
heiminum, fsland í sumar. Ru-
ben Wagnson landshöfðingi í Kal
marléni í Svíþjóð og fyrrver-
andi þingmaður, skipar þetta em
bætti nú, og hefir gert undan-
farin ár. Hátemplar mætti á
Stórstúkuþinginu en það var háð
í Reykjavík. Hann dvaldi hér um
vikutíma og ferðaðist nokkuð um
íiér sunnanlands og fór auk þess
til Akureyrar og víðar um Norð-
urland.
★
Hátemplar hafði með sér, út
hingað, kvikmynd, sem Hástúkan
hefir látið gera um starfsemi
Reglunnar víða um lönd. Kvik-
mynd þessi er alllöng, en sýning
hennar mun taka tæpan hálfan
ann tíma. Kafli úr mynd-
inni var sýndur í samtæti,
sem haldið var að Jaðri í sam-
bandi við Stórstúkuþingið. Mynd
in er hin fróðlegasta og bregður
upp greinagóðu yfirliti um hið
starf IOGT í heiminum. Hún
ber nafnið „Heimurinn er vor
akur“ en það er kjörorð reglunn-
ar.
★
f kvöld verður þessi kvikmynd
sýnd á kvöldvöku sem Þingstúka
Reykjavíkur gengst fyrir j Góð-
templarahúsinu. Þess er vænst að
templarar og aðrir þeir sem
áhuga hafa á að kynnast starf-
semi Góðtemplarareglunnar, fjöl
menni í GT-húsið kl. 8,30. Þetta
eru dýrar, er óhjákvæmilegt að
hækka verð. Mjólk í 1/1 Itr.
hækkar um 20 aura hver lítr.
Mjólk og rjómi í 14 Itr. stærðum
verður á sama verði og í gler-
flöskum, og desilítri af rjóma
kostar kr. 4.00.
Nauðsynlegt er að fólk læri að
opna tetra umbúðirnar á réttan
hétt. Pakkinn er látinn liggja á
borði, og síðan er klippt af horn-
inu, sem upp snýr, svo að op
myndast á stærð við tveggeyr-
ing. Haldið er um annan kant-
inn þegar hellt er, og ef pakkinn
er ekki tæmdur, þá er honum
lokað með því að brjóta fyrir
hornið. Pappaumbúðir eru sterk-
ar og leka ekki ef vel er með
þær farið, en varast þarf að þær
verði fyrir óþarfa hnjaski.
Ný mjólkurbúð
Um Ieið og byrjað verður að
selja mjólk í pappaumbúðum,
verður opnuð mjólkurbúð í
Austurveri við Miklubraut. Þar
verða á boðstólum sömu vörur
og í mjólkurbúðum að undan-
skildum brauðvörum. Þó verður
þar eingöngu mjólk í pappaum-
búðum. Mjólkurvörurnar eru
geymdar í stórum kæliklefa, sem
er þannig gerður að viðskipta-
vinir eiga auðvelt með að af-
greiða sig sjálfir.
Með pappaumbúðum er leyst-
ur sá vandi, sem tómu flöskurnar
skapa við sjálfsafgreiðslu, og
verður reynt í Austurveri hvern-
ig þetta fyrirkomulag muni gef-
ast í mjólkurbúðum.
Austurver er fimmtugasta búð-
in, sem Mjólkursamsalan rekur
hér í Reykjavík, Kópavogi og
Hafnarfirði. Á næstunni verða
opnaðar tvær í viðbót, að Álf-
hóltsvegi 32 í Kópavogi og Dun-
haga 20, Reykjavík.
skildu jafnir, sömuleiðis og einn-
ig Petrosjan og Sniyslov. í bið-
skák úr 4. umferð milli Petrosjan
og Keres urðu úrslit þau að Pet-
rosjan vann fallega, fórnaði fyrst
hrók og síðan drottningu.
Eftir 5 umferðir er staðan.
1. Petrosjan 4 vinn.
2. Keres 3.
3. Fischer 2% og biðskák.
4. —5. Tal og Benkö 214.
6.—7. Smyslov Gligoric 2.
8. Friðrik % °8 biðskák.
er einasta tækifærið til að sjá
kvikmyndina, en hún verður
send utan innan fárra daga.
Ollenhauer alvar-
lega sjúkur
BONN. — Ollenhauer, foringi
jafnaðarmanna í Vestur-Þýzka-
landi, hefur verið sjúkur um
skeið, en nú þykir sýnt, að sjúk-
leiki hans sé alvarlegra eðlis en
talið var í fyrstu. — Læknir
hans hefur mælt svo fyrir, að
hann skuli enn um a. m. k. mán-
aðarskeið hvíla sig frá störfum
og ekki skipta sér af stjórnmál-
um.
Er nú talið óvíst, að Ollen-
hauer geti haldið aðalræðuna á
flokksþingi jafnaðarmanna, sem
halda skal í Bad Godesberg um
miðjan nóvember. — Það er alvar
leg hjartaveila og truflanir á
blóðrás, sem þjá Ollenhauer.
Hann verður að gæta ströngustu
varúðar í mataræði og má hvorki
reykja né bragða áfenga drykki.
Vegna sjúkdóms Ollenhauers
er varaformanni Jafnaðarmanna-
flokksins nú veitt meiri athygli
en áður. Hann er talinn „sterkur
maður“, sem þegar hefur mjög
mikil völd í flokknum. Og vafa-
laust verður hann mest áberandi
á flokksþinginu í nóvember, ef
Ollenhauer getur ekki komið þar
íram.
— Lunik II
Framhald af bls. 1.
indamenn víða um heim hafa
látið hafa það eftir sér, að
Rússar hefðu teflt djarft að
skjóta tunglflauginni á þess-
um tíma, því hagstæðasti tím-
inn í haust sé í byrjun októ-
ber. í Lundúnaútvarpinu var
það haft eftir Nixon, varafor-
seta, að Bandaríkjamenn
hefðu vitað fyrir, að Rússar
voru að gera tilraunir til þess
að skjóta til tunglsins rétt áð-
ur en Krúsjeff lagði upp í
vesturförina. Hafi Rússar ver-
ið búnir að gera þrjár mis-
heppnaðar tilraunir fyrr í vik-
unni.
★
En oplnberlega er þetta önnur
tilraun Rússa. Hin fyrri var gerð
í janúar, þegar Mikojan, varafor-
sætisráðherra, var í Bandarikja-
för sinni. Sú eldflaug, „Lunik l.“,
átti annað hvort að hitta mán-
ann, eða fara á sporbaug um-
hverfis hann. Misheppnaðist t;l-
raunin og hélt Iunik áfram út í
geyminn og er nú orðinn einn af
fylgi-„hnöttum“ sólar.
Sömu sögu er að segja um eina
bandarísku eldflaugina, sem
stefnt var til sólar, en það var
fjórða tilraun Bandaríkjamanna.
Þrjú fyrri tunglskotin misheppn-
uðust öll.
★
Þessi nýjasta tungleldflaug
Rússa var margþrepa, en í síð-
asta þrepinu, sem vó 858 pund,
var hylki mikið — og hafði það
að geyma ýmis rannsóknartæki
og sjálfvirkar sendistöðvar, sem
jafnóðum sendu upplýsingar til
jarðarinnar. Víða um heim sást
til eldflaugarinnar með berum
augum meðan dimmt var að
nóttu — og sérstaka athygli
vakti það á laugardagskvöldið,
þegar hleypt var út úr eldflaug-
inni natriumskýi, en það var
einkum gert í sambandi við hraða
mælingar. Mestur mældist hraði
Luniks 2. 11,4 km á segúndu.
★
Vísindamenn um allan heim
eru sammála um það, að Rússar
hafi stórbætt stjómtæki á eld-
flaugum sínum, en víða er að
heyra það á sérfræðingum, að
Rússar hljóti að að hafa gert
fleiri tilraunir en þeir láta uppi.
1 Bandaríkjunum hefur atburð-
inum verið vel fagnað — og
hafa vísindamenn margra þjóða
sent starfsbræðrum sínum í
Rússlandi heillaóskir.
Samtímis skýrðu rússneskir
visindamenn svo frá, að ekki
væri fyrirhugað að senda mann
með eldflaug til tunglsins á næst
unni, enda þótt slíkt væri nú þeg-
ar í athugun og undirbúningL
★
Á Vesturlöndum eru margir
þeirrar skoðunar, að tunglskotið
muni hafa mjög mikið áróðurs-
gildi fyrir Krúsjeff í Bandaríkj-
unum, enda þótt tíðindin hafi
ekki komið Bandaríkjastjóm á
óvart. Nixon lét svo um mælt í
dag, að Bandaríkjamenn skyldu
ekki láta þennan atburð hafa of
mikil áhtrif á sig. Bandaríkja-
menn byggju yfir sömu tækni og
þess yrði sennilega skammt að
bíða, að þeim tækist jafnvel eða
betur.
Hann sagði, að Bandaríkja-
menn mundu taka Krúsjeff vel.
að enginn þyrfti að halda, að þeir
féllu fyrir honum þó hann veif-
aði til þeirra og brosti úr opnum
bíl.
Minningarnar frá Kóreustríðinu,
Berlinardeilunni og njósnum
kommúnista í Bandaríkjunum
væru ferskar í hugum manna —
og ekki væri hægt að taka mark
á friðarhjalinu nema friðarástin
væri sýnd í verki. Nixon sagði,
að það væri barnarlegt að ætla,
að það mundi breyta hugarfari
Krúsjeffs eitthvað þó Bandarikja
menn reyndu að sannfæra hann
um friðarást þjóðar sinnar.
Ágreiningurinn milli hins
frjálsa heims og kommúnista-
rikjanna er ekki vegna mis-
skilnings — heldur vegna
þeirra stefnu Ráðstjórnarinn-
ar að þenja út veldi sitt og
áhrif með öllum tiltækum ráð-
um í öllum hlutum heims.
★
Loks sagði Nixon, að það væri
hættulegt að ætla sér að sann-
færa Krúsjeff um of um friðar-
vilja bandarísku þjóðarinnar ,þvi
þá gæti farið svo, að Krúsjeff
héldi, að Bandaríkjamenn vildu
kaupa friðinn fyrir hvaða verði
sem sett væri upp, jafnvel upp-
gjöf við samningaborðið.
★
Krúsjeff leggur af stað frá
Moskvu í nótt flugleiðis til Banda
ríkjanna. Áætlað er, að flugvélin,
sem er af gerðinni TU-114 fljúgi
án viðkomu til Washington, en
þar mun hann ræða við Eisen-
hower síðdegis á morgun. Banda-
ríkjaför Krúsjeff mun standa í
12 daga. Hann mun ferðast um
Bandaríkin, hitta marga af
fremstu mönnum þjóðarinnar að
máli — og ávarpa Allsherjarþing
Sameinuðu þjóðanna.
★
Tunglskotið rússneska hefur
dregið miklu meira athygli að
för hans en annars hefði verið.
Leiðtogar brezka verkamanna-
flokksins eru þeirrar skoðunar,
að Krúsjeff geti ekki farið vest-
ur með stærri áróðursspjöld en
hann hafi nú fengið. Adenauer
sagði ekki ástæðu til þess að
hrífast um of af tunglskotinu,
en ekki væri hægt að loka aug-
imum fyrir því, að þetta hefði
mikið áróðursgildi í vanþróuðu
ríkjunum. Einn af fremstu vís-
indamönnum Japans á þessu sviði
sagði þetta enga stórfregn, en
Novotny, forseti Tékkóslóvakíu
sagði í skeyti til Krúsjeff, að nú
hefði kommúnismanum enn einu
sinni sýnt yfirburði sína yfir
kapitalismanum.
★
Utanríkisráðherra Frakka,
Murville, sagði augljóst, að
Krúsjeff hefði fengið stórt áróð-
urstæki í hendurnar svona rétt
fyrir Bandaríkjaförina, en Paul
Henry Spaak lét svo um mælt, að
hann teldi ekki, að tunglskotið
hefði nein diplomatisk eða póli-
tísk áhrif. A1 Kifeh, blað ara-
biskra þjóðernissinna í Beirut
segir, að Krúsjeff hafi ekki gefið
skipunina um að skjóta á tunglið
menningunni til ávinnings, held-
ur í pólitísku ágóðaskyni. Nehru
sagði að nú væri tunglið á undan-
haldi — öfugt við það sem áður
hefði verið, þegar menn hefðu
trúað því, að tunglið réði ör-
lögum manna. Dala Lama dró i
efa, að tunglskot Rússa yrði
mannkyninu til blessunar, en
Gomulka sendi Krúsjeff „hlýjar
kveðjur" og Kim E1 Sung, for-
sætisráðherra N-Kóreu taldi
atburðinn sýna yfirburði og veldi
hins kommúniska skipulags —
og tákn sigurs kommúnismans.
★
í fréttaauka í útvarpinu í gær
ræddi Dr. Trausti Einarsson um
rússnesku tunglflaugina og sagði
í niðurlagi spjalls sína:
Þessi fyrsta eldflaug, sem skot-
ið hefir verið til annars hnattar,
virðist sýna, að tæknin á þessu
sviði hafi stigið nýtt framfara-
spor, og nú megi búast við ýms-
um frekari tilraunum til að
kanna tunglið. Þessi fyrsta eld-
flaug kann þegar að hafa svarað
einhverjum vísindalegum spurn-
ingum, þótt það hafi ekki verið
látið uppskátt. Ef tunglið hefir
segulsvið, ma buast við að
geimgeislar breyti um styrk-
leik í nánd við það, eins og á sér
stað við jörðina. Og slíkt myndi
þessi eldflaug hafa skorið úr
um. Segulsvið jarðar á uppruna
sinn í fljótandi jarðkjarnanum,
og þannig myndi segulsvið á
tunglinu strax gefa víssar bend-
ingar um innra ásigkomulag
tunglsins. Að öllu samanlögðu
má búast við, að innan fárra ára
eða jafnvel mánaða, hafi menn
öðlast fyllri þekkingu á ástand-
inu á tunglinu, þótt lengur kunni
að dragast að menn komizt þang-
að.
Friðrik á beiri stöðu
Kvikmynd nm storísemi IOGT