Morgunblaðið - 15.09.1959, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 15.09.1959, Qupperneq 8
8 MORCUlSTtT, 4ÐIÐ Þriðjudagur 15. sept. 1959 Otrúleg óstjórn á Keflavíkurflugvelli Arásin 5. september ekki tilkynnt utanríkisráð- herra Lögreglustjóri vissi e\ki neitt fyrr en utanríkisróHÍKer/a sagði honum Vanrækt að kynna varnarliðsmonnuni íslenzka einkennisbúninga mönnum sínum var þeim leyft að fara leiðar sinnar. Herlögreglumennirnir hafa bor ið, að þeir þekki eigi einkennis- búning íslenzkra flugþjónustu- manna og að þeim hafi aldrei verið greint frá búningi þessum af yfirboðurum sínum. Varðandi bannsvæði herstjórn- arinnar á flugvellinum skal tek- ið fram, að þau eru auglýst með skyltum á staðnum og hefir svo verið frá því að her kom hér. Fjögur skylti eru við vegi að nefndu flugskýli og segir þar á íslenzku og ensku: A Ð V Ö R U N Þetta er samningssvæði norð- ur Atlantshafsbandalagsins NATO — Þess er gætt af vopnuðum vörðum. Óviðkom- andi stranglega bannaður aðgangur. W A R N I N G This is a NATON installation secured by armed guards off limits to unauthorized persons Þessi heimild herstjórnar bygg- ist á 5. gr. viðbætis um réttar- stöðu liðs Bandaríkjanna og eign ir þeirra, fylgiskjal með varnar- samningum lög nr. 110/1951 sbr. og lög nr. 60 frá 29. apríl 1943 um refsingu fyrir óheimilaða för inn á bannsvæði herstjórnar og óheimila dvöl þar. Það skal tekið fram, að þar sem atvik þetta gerðist við flug- skýlið er nokkuð langt frá aug- lýsingu um bannsvæði. Ástæðan fyrir því, að lögreglu- rannsókn hófst ekki í málinu fyrr en síðastl. þriðjudag er sú, að málið var ekki kært til lög- reglunnar eða utanríkisráðuney s- isins fyrr. Starfsmenn flugmála- stjórnarinnar, er hér áttu hlut að máli munu þó þegar hafa greint yfirmönnum sínum og þeir síðan flugmálastjóra frá málavöxtum, sunnudaginn 6. þ.m. Flugmálastjóri mun hafa rætt við yfirmann flugliðsins um at- vik þetta, en embættið og utan- ríkisráðuneytið fengu ekkert um málið að vita fyrr en utanríkia- ráðherra las um það í blöðum á þriðj Hdagsmorgun. Varnarmáia- nefnd var þá að hefja fund á Keflavíkurflugvelli. Lagði ráð- herra fyrir íslenzku nefndarmenn ina að hverfa af fundi og afla þegar í stað skýrslu flugmála- stjórnar um atvikið og afhenda málið emb'ættinu til rannsóknar ar og hófst rannsókn þá þegar í málinu, sem fyrr greinir. Mál þetta hefir nú verið sent utanríkisráðuneytinu til þóknan- legrar fyrirsagnar. Keflavíkurflugvelli 12. sept 1959. Björn Ingvarsson Á laugardaginn var að gefnu tilefni varpað fram þeirri spurningu hér í blaðinu, hvort yfirstjórn varnarmálanna væri í nægilega góðu lagi. Sama dag var í útvarp- inu lesin „tilkynning frá Iögreglust j óraemhættinu á Keflavíkurflugvelli44. Tilkynning þessi sannar svo ótvírætt, að ekki verð ur um deilt, að sízt var spurt. að ástæðulausu. Tilkynningin ber vitni um þvílíka óstjórn og andvaraleysi, að með ó- líkindum hefði verið tal- ið, ef einn aðila hefði ekki sjálfur lýst ástandinu. Jilkynningin fer orðrétt hér á eftir. ÞRIÐJUDAGINN 8. þ.m. bárust embættinu í hendur boðsendar skýrslur frá utanríkrsráðuneyt- inu ásamt fyrirmælum um dóms- rannsókn,út af því, að tveir af starfsmönnum flugmálastjórnar og tveir gmerískir flugmenn á þýzkri vél, er þá var hér stödd hefðu laust eftir miðnætti laug- ardagsins 6. þ.m. verið ögrað af vopnuðum herlögreglumönnum við hið svonefnda B-36 flugskýli ú flugvellinum, er þeir voru að fara til hinnar þýzku flugvélar er staðsett var hjá skýli þessu. Annar starfsmaður flugmála- stjórnarinnar var klæddur ein- kennisbúningi flugþjónustunnar í einkennisfrakka yztum fata og með einkennishúfu, sem í er gyllt merki flugþjónustunnar. Var maður þessi fyrir fjórmenn- ingunum og ók á mótorhjóli (vespu), er bar gulan lit, en hin- ir þrír fylgdu á eftir í bifreið (weapon carrier). Er að flugskýlinu kom ætlaði íslendingurinn, er í einkennis- búningnum var að hafa samband við hervörð, er þar átti að vera staddur f varðskýlinu, en þar var þá enginn. Ætluðu þeir þá að halda för sinni áfram, en þá var hrópað til þeirra að nema staðar, hvað þeir gerðu. Segja hinir íslenzku starfs- menn flugþjónustunnar, að þeim haíi verið skipað af hinum vopn- aða verði, að stíga af ökutækj- um sínum og raða sér upp fyrir framan biíreiðina (weapon carri- er), en síðan var þeim gefin fyr- irskipun um að leggjast á grúfu á jörðina og rétta út hendur og sundurglenna fingur. Öllu þessu hlýddu mennirnir og biðu í stell- ingum þessum, þar til liðþjálfi kom frá herlögreglunni og innti þá eftir skilríkjum, en mennirn- ir kváðust aldrei hafa haft tæki- færi til þess að greina vörðun- um frá hverjir þeir væru og hvert væri erindi þeirra. Eftir að mennirnir höfðu gert grein fyrir sér og erindi sínu við liðþjálfann fóru þeir erinda sinna. Strax og embættinu bárust skýrslur þessar hófst dómsrann- sókiy, en þá kom j ljós, að hinir amerísku flugmenn, er höfðu ver íð með starfsmönnum flugmála- stjórnar, voru farnir af landi brott. Herlögreglumennirnir hafa greint svo frá fyrir dómi, að þeim hafi verið skipað á varðstöð við áðurnefnt flugskýli kl. rúm- lega ellefu s.l. laugardagskvöld. Voru þeir vopnaðir byssum, (carabine cal. 30 M-l). Þær voru óhlaðnar, en þeir með laus skot með sér. Herlögreglumönnum hafði verið greint svo frá af yf- irmönnum sínum, að bannsvæði væri við flugskýlið og höfðu þeir undanfarna mánuði af og til ver- ið þar á verði. Um miðnættið s.l. laugardags- kvöld sáu verðirnir, hvar ók til flugskýlisins mótorhjól og bif- reið (weapon carrier) fylgdi á eftir og stefndu ökutækin í átt að erlendri flugvél, er var við skýlið. Hervörðurinn kveðst ekki hafa verið í skýlinu, en er öku- tækin óku framhjá honum hróp- aði hann stanz (halt) einum þrisv ar sinnum og námu ökutækin þá staðar. Maður sá, er stýrði mótor- hjólinu var klæddur einkennis- búningi, en ekki bar vörðurinn kennsl á búning þennan. Vörður- inn gaf mönnunum skipan um að rétta upp hendur og stíga úr öku- tækjunum og raða sér í ljósi bif- reiðarinnar (weapon carrier). Mælti hann „Get out infront off the vehichle headlights with your hands in the air.“ Vörðurinn kvaðst hafa verið með byssuna mundaða (port arms) og óhlaðna. Kvaðst hann hafa sagt þeim, að hér væri bann svæði og spurðist fyrir um skil- ríki þeirra til þess að fara inn á slíkt svæði (restricted area badges), en þeír höfðu engin. í þessu bar að hinn lögreglu- manninn. Gaf þá herlögreglu- maður sá, sem fyrr hafði stanzað fjórmenningana þeim skipan um að leggjast á grúfu á jörðina (rampinn) hvað þeir hlýddu. Orðrétt á ensku: „Lie flat on tha ramp and your arms and legs extended to their fullest extend". Lágu mennirnir þannig j fimm til tíu minútur eða á meðan að ann- ar herlögreglumannanna hringdi til aðalstöðvar herlögreglunnar að tilkynna atburð þennan, en á meðan gætti hinn herlögregiu- maðurinn fjórmenninganna með mundaða byssu. Liðþjálfi kom síðan frá herlögreglunni á vett- vang og átti tal við hinn einkenn- isklædda íslending og er hann gerði grein fyrir sér og fylgdar- Svan’.e Pahison látinn ÁSMUNDUR Sveinsson mynd- höggvari, leit inn á ritstjórnar- skrifstofur Morgunblaðsins í gær. „Nú er dáinn sá maður, sem ég held, að hafi ver ið mesti ídealist- inii gagnvart höggmyndalist á N or ðurlöndum". sagði Ásmundur. Það er Svíinn Svante Páhlson, majór og stór- iðjuhöldur, sem andaðist fyrir nokkrum dögum á búgarði sínum, Rottneros á Vermalandi, 77 ára gamall. Hann var einn af helztu frámkvæmda- paönnum í Svíþjóð og hafði átt ríkan þátt í atvinnuframförum í ina. Mér finnist, að það séu of fáir ídealistar, sem hafa áhuga á skúlptúr nú á dögum. Fyrir greiðsluna fyrir Móður jörð fékk ég tækifæri til að sjá Svíþjóð aft- ur eftir 30 ár og að hitta aftur gömul skólasystkini, sem tóku mér sem bróður. Af öllu því merka íólki, sem ég átti samskipti við «á þessu ferðalagi, verða Svante P&hlson og kona hans mér minnisstæðust", sagði Ás- mundur Sveinsson. „Af þeim stafaði einhver óstjórnlegur geisli og lífskraftur“. Bornamúsík- skólinn i ÁTTUNDA starfsár Barna- S S músíkskólans er nú að hefj- ) S S ast. Starfsemi skolans hefur S s s þróazt og aukizt ört síðustu ( árin, enda hefur nemenda- ^ fjöldinn nærri tífaldast á 5 j s s s s s s árum. Á myndinni sjást nokk ur börn úr skólanum við sam leik. í i 1 i SKAK i I i Sekúnuurnar björguðu Benkö landi sínu. Ásmundur sagði: „Fyrir nokkr um árum fékk ég bréf frá Svante Páhlson, og vildi hann kaupa gipsafsteypu af mynd minni, Móður jörð, til að láta gera eftir henni eirsteypu og setja upp í útisafni sínu í Rottneros. Páhl- son bauð okkur hjónunum til sín. Viðtökur hins sænska iðjuhölds og konu hans voru einstaklega elskulegar, og af þeim báðum geislaði tilfinningin fyrir hinu mannlega lífi. Sama kvöldið og við komum á sveitasetrið hljóp Svante Páhlson eins og unglamb með mig um allt útisafnið, þar sem um 100 höggmyndum er fyr- ir komið í ótal görðum. Hvergi sá ég Móður jörð, en vissi þó, að búið var að steypa hana í eir. Loks segir gamli maðurinn: Og nú förum við í garð Móður jarð- ar. Var hann þá að láta gera sér- stakan garð kringum myndina, og hafði það tekizt með miklum á- gætum. Mér þótti vænt um þennan mikla ídealista og það, sem hann hefur gert fyrir höggmyndalist- 1 FYRSTU UMFERÐ á kandidatamótinu í Bled, tefldi Benkö gegn Gligoric. Benkö náði betri stöðu og varð Gligoric að fórna peði til þess að eiga jafn- toflismöguleika. Endirinn á skák- inni varð sögulegur. Benkö varð að leika tíu leiki á tæpri mínútu. Þegar hann hafði leikið fimm leiki, bauð hann jafntefli, sem Gligoric þáði. Eftir á sýndi kiukk an að Benkö hefði ekki haft næg- an tíma til þess að leika næstu fimm leiki. Níundi leikur hvíts er nýjung. Hvítt: Benkö Svart: Gligoric 1. d4, Rf6 7. c4, g6 3. Rc3, Bg7 4. Bg5, d6 5. e3, c5 6. Rf3, Da5 7. Dd2, 0-0 8. Be2, h6 9. Bh4, Rc6 10, h3, a6 11. 0-0, Hb8 12. a3, cxd4 13. exd4, Dd8 14. Hadl Bd7 15. Hfel, Hc8 16. b4, He8 17. d5, Ra7 18. De3, b6 19. Rd4, Dc7 20. a4, b5 21. axb5, axb5 22. Rdxb5, Rxb5 23. Rxb5, Bx b5 24. cxb5, Db7 25. Bxf6, exf6 26. Dd3, f5 27. Hcl, He4 28. Bfl, Hxcl 29. Hxcl, Bd4 30. Dd2, g5 31. Khl, Da7 32. f3, He5 33. Dc2 Da3 34. Hdl, De3 35. Bd3, jafn- tefli. DALVÍK, 12. sept. — Nokkrir dagar eru síðan seinustu Dalvík- urbátarnir komu heim af síldveið unum fyrir Norður- og Austur- landi. Þótt allmikill aflamunur sé á bátunum verður að telja þessa vertíð mjög hagstæða, þeg- ar á heildina er litið. Aflahæstur er Björgvin með rúm 14 þús. mál og tunnur. Skipstjóri er Björgvin Jónsson. Þar næst kemur Bjarmi með 11500 mál og tunnur, skip- stjóri Jóhannes Jónsson. Mun hásetahlutur af Bjarma nema um 65 þúsund kr. og er hann því langsamlega hlutarhæstur en láta mun nærri að meðalhlutur á Dal- víkurbátum sé um 42—43 þús. kr. — SPJ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.