Morgunblaðið - 19.09.1959, Side 6
6
MORCUHBLAÐIÐ
Laugardagur 19. sept. 1959
Samanhurður á skatti
og útsvari er villandi
Árásirnar á niðurjöfnunarnefnd
gerðar til að breiða yfir úisvarsfrelsi SÍS
Frá upirczðum á bæjarstjórnarfundi
EINS og skýrt var frá í blað-
inu í gær urðu allmiklar um-
ræður i*m útsvarsmál á bæj-
arstjórnarfundi í fyrradag. —
Tveir fulltrúar kommúnista’ í
bæjarstjórninni, þeir Guð-
mundur J. Guðmundsson og
Alfreð Gíslason, báru ♦ram
tillögu á fundinum um að nið-
urjöfnunarnefnd gerði grein
fyrir viðhorfi sínu til þeirra
ásakana er hún hafði orðið
fyrir í blöðum. Greinargerð
frá nefndinni lá fyrir fundin-
um. —i
Guðmundur J. Guðmundsson
fylgdi tillögunni úr hlaði. Kvað
hann greinagerð niðurjöfnunar-
nefndar á engan hátt fullnægj-
andi. Það væri athyglisvert í
sambandi við útsvarslagning-
una að hátekjumenn virtust
vera á öðrum útsvarsstiga en
lágtekjumenn. Af útsvarsgreið-
endum hefðu 6268 verið teknir
út úr vélunum og meðal þeirra
væru þeir, sem hefðu sjálfstæð-
an atvinnurekstur og væri gam-
an að fá upplýst, hverjir það
væru sem yrðu þeirra gæða að-
njótandi. Kvaðst G. J. G. hafa
grun um, að reglur niðurjöfnun-
arnefndar giltu ekki alltaf fyr-
ir alla, heldutr stundum fyrir
suraa.
Ekki sambærilegt
Geir Hallgrímsson tók næstur
til máls. Kvað hann tillögu
þeirra Guðmundar og Alfreðs
fram bornar vegna blaðaskrifa
um útsvarsálagningu. Þau blaða-
skrif hefðu verið gerð í póli-
tískum tilgangi fyrst og fremst
til þess að ná sér niðri á pólitísk-
um andstæðingum.
Mörg dæmi lík þeim, sem birt
væri einungis um forvígismenn
Sjálfstæðisflokksins, mætti finna
um menn í öllum flokkum og
stéttum.
Samkvæmt landslögum ætti nið-
urjöfnunarnefnd að leggja út-
svörin á eftir efnum og ástæðum
hvers útsvarsgreiðanda, en skatt-
urinn væri hinsvegar lagður á
samkvæmt skattstiganum, sem
væri ákveðin f lögum gagnstælt
útsvarstiga, sem fer eftir ákvörð-
un niðurjöfnunarnefndar og er
frávíkjanlegur. Sá samanburð-
argrundvöllur sem notaður
hefði verið í þeim blöðum, er
ritað hefðu um þetta mál, væri
því ekki réttur.
Þá skýrði Geir Hallgrímsson
frá því, að verkefni niðurjöfn
unarnefndar væri að jafna nið
ur útsvörunum og til þess væri
hún kosin af bæjarstjórn. í
þessari nefnd ættu nú sæti
Sulltrúar sem allir flokkar í
bæjarstjórninni hefðu kosið.
Það væri býsna ótrúlegt, ef
fulltrúar ailra stjórnmála-
flokkanna hefðu samþykkt sér
stök útsvarsfríðindi handa for-
vígismönnum Sjálfstæðis-
flokksins eins og gefið hefið
verið í skyn,
Þá benti Geir á að til viðbótar
þeim 6268 framtölum, sem nið-
urj.n. hefði tekið til sérstakrar
athugunar og lækkunnar, mætti
gera ráð fyrir yfir 1000 lækk-
anir samkv. samtölum við niður-
jöfnunarnefnd meðan á kæru-
fresti stæði. Þar við bættust svo
þeir, er sjálfstæðan atvinnurekst-
ur stunduðu, en útsvar þeirra
breyttist yfirleitt til hækkunar
vegna veltuútsvars, en kæmu
ekki til frádráttar, eins og G.JG.
hefði sagt. Léti þannig nærri, að
um 7—8000 manns fengu útsvar
sitt lækkað eða um þriðjungur
útsvarsgjaldenda í bænum.
í sambandi við ósk G.J.G. um
nánari greinargerð frá niðurjöfn-
unarnefnd kvað Geir hana' vera
þagnarskylda samkyæmt lögum
og því ekki hafa heimild til að
ræða nánar álagningu.ýi—7 gjald-
enda af þeim 7—8000, sem tekn-
ir hefðu verið til sérstakrar at-
hugunar eða af þeim 22 þús. gjald
endum, sem ; bænum væru. Hins
vegar hefði Guðm. J. Guðmundss-
son getað kært útsvör þessara
manna, ef fyrir honum hefði vak-
að að sannleikurinn k'æmi fram
í málinu, en sá væri ekki til-
gangurinn, heldur að þyrla upp
um það sem mestu moldviðri.
Aðalatriðið væri, að niðurjöfn
unarnefnd væri sjálfstæður að-
ili, sem jafnaði niður útsvörum
og bæjarstjórn hefði ekki heim-
ild til að skipta sér af niðurjöfn-
uninni í einstökum atriðum.
Nefndin yrði að standa reiknings
skil á gerðum sínum, samkvæmt
lögum landsins, og þegar þar að
kæmi yrði bæjarstjórnin í kosn-
ingu niðurjöfnunarnefndar að
meta, hvort nefndin hefði farið
að lögum.
Að lokum vék Geir að nauðsyn
þess að útsvars- og skattalögin
væru tekin til gagngerðrarendur
skoðunar, meðan beinir skattar
væru við lýði.
Alfreð Gíslason talaði næstur.
Tók hann.mjög í sama streng og
Guðmundur J. Guðmundsson og
kvað nauðsynlegt að fá nánari
greinargerð um þetta mál en þá
er niðurjöfnunarnefnd hefði sent
frá sér, ef ekki mætti ræða málið
opinberlega, væri hægt að gera
það á lokuðum fundi í bæjar-
stjórninni.
Hún fékk leiðréttingu
Valborg Bentsdóttir kvað það
töluverða viðbót á skattinum og
útsvarinu, ef menn þyrftu að
leggja á sig slíkt ómak að kæra
útsvarið til niðurjöfnunarnefnd-
ar, sem svo erfitt væri að ná tali
af í litla herberginu á skattstof-
unni. Kvað hún villu hafa ver-
ið á framtali sínu í ár, en þó hefði
það farið fyrirstöðulaust £ vél-
arnar. Hefði hún farið upp á
skattstofu og fengið þar leiðrétt-
ingu, en þurfti einnig að fara til
niðurjöfnunarnefndar til að fá
leiðrétt útsvar. Hefði niðurjöfn-
unarnefnd tekið leiðréttinguna ti|
greina, en óskað þess að hún
legði hana fram skriflega. V.B.
lagði til að lokum, að niðurjöfn-
unarnefnd skýrði fyrir almenn-
ingi, hvaða liðir það væru, sem
hún tæki til frádráttar, því fleiri
en hún myndu vera illa heima í
skattalögunum.
Úrelt skattheimtuaðferð
Magnús Ástmarsson kvað hér
brennandi spursmál á dagskrá.
Öllum mundi nú vera að verða
Ijóst, að sú skattheimtuaðferö,
er hér tíðkaðist, væri orðin úr-
elt. Hver borgar, sem sæi sér
það fært, gerði í því að svíkja
undan skatti og sæju menn ekk-
ert athugavert við það, þó um
. væri að ræða um menn, sem'
væru heiðarlegir og samvizku-
samir í bðru tilliti. Ræðumaður
kvað mál þetta hinsvegar koma
til umræðu í bæjarstjórninni í
öðru formi en hann hefði talið
æskilegt, þv£ hér væri það lagt
fram á þeim forsendum, að niður-
jöfnunarnefnd hefði framið trún-
aðarbrot. Væri ákaflega erfitt fyr
ir bæjarstjórnina að fella nokk-
urn dóm í því máli. En sjálfur
kvaðst Magnús hafa fyllstu á-
stæðu til að ætla, að niðurjöfn-
unarnefnd hefði unnið störf sín
af fyllstu sanngirni. Kvaðst hann
því ekki geta greitt tillögu komm
únistanna atkvæði.
Ræða borgarstjóra
Gunnar horoddsen borgarstjóri
talaði næstur. Sagði hann, að
jafnan yrðu miklar umræður um
það manna á milli, er tekjuskatt-
ur og útsvar væri lagt á. Á hinn
bóginn væru útsvörin einu tekju
stofnar bæja- og sveitarfélag-
anna sem nokkru næmu og
kvaðst borgarstjóri vilja taka
undir þau orð Magnúsar Ást-
marssonar, að þessi tekjuöflua
væri orðin úrelt og þyrfti gagn-
gerðra breytinga við. Hefðu bæj-
ar- og sveitarfélögin á undan-
förnum árum farið þess á leit að
fá nýja tekjustofna, en sú bar-
átta hefði því miður borið lítinn
árangur, og hefði einn stjórn-
málaflokkur hér á landi, Fram-
sóknarflokkurinn, einkum ver-
ið þar Þrándur í Götu. Þetta yrði
að taka til úrlausnar. Ef tækist
að afla bæjar- og sveitarfélögun-
um nýrra tekjustofna, væri hægt
að stórlækka útsvörin.
Borgarstjóri kvað flesta
hneigjast meira og meira frá
beinum sköttum á síðari árum.
Væri sér minnisstætt í því sam-
bandi, er fjármálaráðherra
Noregs hefði reifað þessi mál á
fundi þingmannasambands Norð-
urlanda fyrir tveimur árum.
Hefði hann lýst rannsóknum, er
hann hafði látið gera í þessu
máli og skýrt frá því, að niður-
stöður hefðu orðið þær, að það
væri úrelt, óhagkvæmt og dýrt
skipulag að hið opinbera fengi
tekjur sínar í beinum sköttum.
Óbeinir skattar væru ekki síður
stighækkandi £ framkvæmd en
Rússneskir íistamenn á feröalagi
SL. miðvikudagskvöld komu
frá Moskvu fjórir frægir rúss-
neskir tónlistarmenn á vegum
MÍR. Munu þeir dvelja hér á
Iandi í um það bil hálfan mán
uð og halda hljómleika á
mörgum stöðum. Fyrstu tón-
leika sína munu þeir halda í
kvöld á Akranesi, í Hafnar-
firði annað kvöld, í Þjóðleik-
húsinu á sunnudag kL 4 og á
sama stað á þriðjudagskvöld.
Er síðan ráðgert að listamenn
irnir ferðist um landið, haldi
hljómleika á Akureyri og víð-
ar. Er hér um úrvais listafólk
að ræða og mun marga fýsa
að hlýða á túikun þeirra á
verkum stórmeistaranna. —
Listamennirnir eru, talið frá
vinstri: Mikail Voskresenskí,
píanóleikari, Ljúdmíla Isaeva,
sópransöngkona, Igor Pólit-
kovskí, fiðluleikari, og Taisía
Merkúlova, undirleikari.
þeir beinu og kæmu þannig nið-
ur á breiðustu bökin.
Niðurstaða þessa merka
Norðmanns hefði því verið sú,
að í nútíma þjóðfélagi væri
heppilegra og réttlátara að
skattar væru óbeinir en bein-
ir. Hér á landi hefðu tveir
stjórnmálaflokkar, Sjálfstæð-
isflokkurinn og Alþýðuflokk-
urinn, komizt að sömu niður-
stöðu og kvaðst borgarstjóri
vera þeirrar skoðunar, að þau
rök, er hinn norski fjármála-
ráðherra hefði lagt fram væru
rétt.
Útsvarsfrelsi SÍS vakti mikla
athygli
Er skattskráin hefði komið út
að þessu sinni, hefði það vakið
mesta athlygli, að Samband ís-
lenzkra samvinnufélaga greiddi
ekki eyri í útsvar. Samkvæmt
lögum og hæstaréttardómi mætti
ekki leggja á fyrirtæki þetta
hærra útsvar en næmi hagnaði
á viðskiptum við utanfélags
menn. Þetta fyrirtæki, sem mundi
hafa haft um 200 millj. kr. £ veltu
á síðasta ári, hefðj sýnt tap á
viðskiptum við utanfélagsmenn
og því ekki greitt eyri í útsvar.
Ef það hefði greitt svipað og
önnur slík fyrirtæki, t. d. 1% i
veltuútsvar, hefðu þar komið 2
millj. £ bæjarsjóð. Kvað borgar-
stjóri það ekki geta staðizt í þjóð-
félaginu til lengdar, að fyrirtæki,
sem hefði jafn umfangsmikinn
rekstur og SÍS slyppi við útsvar.
Hér þyrfti að breyta lögum.
úr
skrifar
daglegq hfinu
j
Kvöldfagur
Austurvöllur.
AUSTURVÖLLUR hefur um
langt árabil verið stolt og
prýði okkar Reykvíkinga. — Á
þesum litla reit hefur þjóðar-
dýrlingi okkar íslendinga verið
búinn minnisvarði og beinir
hann sjónum sínum til löggjaí-
arsamkomu þjóðarinnar. Reykja-
víkurbær hefur unnið samvizku-
samlega að skreytingu vallarins
og komið þar fyrir fallegum
blómabeðum og allt hefur þetta
mikla blómaskraut verið vel hirt
og af kostgæfni. Nú síðast, er
nótt tekur að dimma, hefur ver-
ið komið þar fyrir snotrum ljós-
kerum yfir blómabeðunum og er
að því einstaklega mikil prýði á
haustkvöldum. Þetta finnst Vel-
vakanda ástæða til að þakka
þeim, sem hugmyndina hafa átt
og séð um framkvæmdina. Öll
sumarfegurð gleður gest og gang
andi og það er hugulsemi að lofa
höfuðstaðarbúum að njóta blóm-
anna, þótt tekið sé að skyggja.
Ég vil aðeins skjóta því að
þeim, sem þetta góða verk hafa
unnið, hvort ekki væri gerlegt
að beina ljóskösturunum að
styttu Jóns Sigurðssonar svo að
frelsishetja okkar megi standa
uppljómuð í blómahafinu.
Drengir í fótbolta.
IGÆR tók ég eftir því, að
búið var að mála skemmti-
lega mynd á götuna við Gamla
barnaskólann, eða Miðbæjarskó!-
ann. Þetta var mynd af dreng
í fótbolta. Ég lagði saman tvo og
tvo og sá að hér myndi vera
um nokkurs konar viðvörunar-
merkí fyrir ökumenn, um það,
að á þessu svæði geti bílstjórar
átt á hættu að börn komi hlaup-
andi út á götuna út frá skólan-
um. Mér er óhætt að fullryða, að
þessi litla mynd, sem verður að
halda vel við, verði mun áhrifa-
meiri, nái betur tilgangi sínum,
heldur en spjald: Akið varlega,
skóli!
Iðulega þegar ég er að fara
heim frá vinnu seint á kvöldin,
milli klukkan 1—2 á nóttunni,
þegar vakt lýkur, hef ég séð
mesta urmul unglinga á götura
Miðbæjarins, ungmenna, sem ég
tel fullvíst að ekki geti verið
öllu msira en 14—15 ára.
Hvernig stendur á þessu?
Er ekki ákvæði um útivist
barna og ungnlinga og er ekki
passaskyldan enn í gildi?
í tvennum tilgangi
Þá vék borgarstjóri að þeim
blaðaskrifum, er orðið hafa um
útsvarsálagningu upp á síðkastið.
Kvað hann þessi skrif sumpart
skrifuð í þeim tilgangi að breiða
yfir útsvarsfríðindi SÍS, en sum-
part til að ná sér niðri á pólitísk-
um andstæðingum. Eins og skýrt
hefði komið fram í ræðu Geirs
Hallgrímssonar, væri það verk-
efni niðurjöfnunarnefndar að
jafna niður útsvörunum eftir efn-
um og ástæðum hvers og ems.
í blöðum hefðu birzt freklegar
aðdróttanir í garð niðurjöfnunar-
nefndar Reykjavíkur um íviln-
anir til einstakra lnanna. Afleið-
ingar þessara skrifa ættu að vera
þær að kæra niðurjöfnunarnefnd
fyrir sakadómaTa eða dómsmála-
ráðherra fyrir brot í opinberu
starfi. Ef einhver fótur væri fyrir
þessum ásökunum, væri það
beinlínis skylda þeirra, er se'.t
hefðu þær fram, að draga nefnd-
armenn fyrir lög og dóm. Þetta
hefðu árásarmenn ekki gert.
Höggunum væri hinsvegar
beint að þeim mönnum fyrst
og fremst, sem lagt væri á, og
væri það glöggt sýnishom af
þeim hugsunarhætti, er að
baki ásökunium lægi. Útsýn,
málgagn Alfreðs Gislasonar
læknis og bæjarfulltrúa, hefði
byrjað þessar ásakanir, en
Frjáls þjóð tekið undir þær,
tekið sýnu sterkara til orða og
kallað stjórnendur bæj-
arins „sakamenn". Hefði Útsýn
fundizt Frjáls þjóð ætla að
stela frá sér glæpnum, og
næsta blað Útsýnar herti þvi
á og kallaði okkur „þjófa“
hélt borgarstjóri áfrarn
Tilgangurinn væri sá að reyna
að níða æruna af nokkrum
mönnum, og um leið væra Út-
sýn og Frjáls þjóð að hjálpa
Timanum til þess að þagga nið
ur óánægjuna út af útsvars-
frelsi Sambandsins.
Borgarstjóri kvaðst aldrei hafa
reynt að hafa áhrif á niðurjöfn-
unarnefnd um það, hvaða útsvör
hún legði á nokkurn gjaldanda.
Þessum árásum hefur m.a. verið
beint að mér persónulega, sagði
borgarstjóri.
Hver einasti eyrir, sem ég hef
í tekjur liggur opinberlega fyrir
í bæjarreikningum varðandi laun
hjá bænum, og í ríkisreikningi
varðandi þingfararkaup, og allt
að sjálfsögðu talið í framtali. Því
er ekki svo farið með tekjur alira,
eins og Magnús Ástmarsson benti
réttilega á. Niðurjöfnunarnefnd
og skattstjóri eru bundnir þagn-
arheiti og mega ekki skýra frá
framtölum einstakra manna.
Framh. á bls. 15.